Morgunblaðið - 15.06.2000, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR15. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Háskólaráð samþykkír að taka upp MBA-nám
Flugmenn, flugvirkjar og flugfreyjur hittu verkfallsmenn
Námið kostar
nemendur
1.250 þúsund
HÁSKÓLARÁÐ samþykkti á
fundi sínum í gær tillögu við-
skipta- og hagfræðideildar um að
bjóða upp á MBA-nám frá og með
næsta hausti sem endurmenntun í
samvinnu við Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Islands.
Nokkur styr hefur staðið um
þær fyrirætlanir að taka upp gjöld
fyrir námið en samþykkt var í gær
að það kostaði nemendur 1.250
þúsund krónur á ári.
Páll Skúlason rektor Háskólans
lagði fram bókun þar sem hann
gerði grein fyrir þeirri skoðun
sinni að hér væri um afar sérstakt
nám að ræða og því skapaði það á
engan hátt fordæmi fyrir gjald-
töku fyrir almennt nám í Háskól-
anum, hvort sem væri á grunn-
eða framhaldsskólastigi.
Eiríkur Jónsson formaður
Stúdentaráðs sagði við Morgun-
blaðið í gær að úr því sem komið
var kæmi samþykkt Háskólaráðs
ekki á óvart. Hann fagnaði hins
vegar sérstaklega bókun rektors
vegna þessa máls og taldi hana
þungt lóð á vogarskálar þeirra
sem andsnúnir væru því að tekin
yrðu almennt upp skólagjöld í Há-
skólanum.
Lýsa stuðningi við
aðgerðir Sleipnis
FÉLAG íslenskra atvinnuflugmanna,
Flugfreyjufélag íslands og Flug-
virkjafélag íslands lýsa yfír fullum
stuðningi við verkfallsaðgerðir Bif-
reiðastjórafélagsins Sleipnis í bréfi
sem félögin sendu Sleipni í gærkvöldi.
Fulltrúar félaganna áttu fund með
Sleipnismönnum og fulltrúum Al-
þýðusambandsins í gærkvöldi þar
sem rædd var beiðni Sleipnis til félag-
anna um stuðning. Eftir fundinn
sendu félögin þijú Sleipni bréfið.
I því fordæma félögin þau verk-
fallsbrot sem höfð hafa verið í frammi
frá því verkfall Sleipnis hófst um leið
og lýsa yfir furðu á þeim lögbanns-
úrskurðum sem felldir hafa verið og
heimila að á samningssviði Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis starfi félagar
í stéttarfélögum sem ekki hafa kjara-
samninga um viðkomandi störf.
íhuga frekari aðgerðir
Hvetja félögin félagsmenn sína til
að virða í hvívetna löglega boðað
verkfall Sleipnis, eins og það er orðað
í bréfinu, og í því felist að félagsmenn
gangi ekki í störf félagsmanna í
Sleipni og taki á engan hátt þátt í
meintum verkfallsbrotum annarra.
I lok bréfsins segir að félögin þrjú
muni á næstunni íhuga frekari að-
gerðir til stuðnings löglega boðuðu
verkfalli Sleipnis verði ekki breyting
á framkomu atvinnurekenda.
Anna Dóra segir aðspurð um hugs-
anlegar aðgerðii- félaganna þriggja að
þeim beri vissulega skylda til að halda
frið enda séu kjarasamningar í gildi.
Hins vegar sé alvarlegt að sjá aðgerð-
ir Sleipnis brotnar miskunnarlaust á
bak aftur og því muni félögin íhuga
vandlega frekari aðgerðir í stöðunni.
Ekki í samúðarverkfall
FyiT í gær ákváðu flugmenn, flug-
virkjar og flugfreyjur hjá Flugleiðum
að verða ekki við beiðni Norræna
flutningaverkamannasambandsins
um samúðaraðgerðfr- vegna verkfalls
Sleipnis þar sem Flugleiðir ákváðu á
þriðjudag að hætta akstri með far-
þega út í þotur á flugvélahlaðinu á
Keflavíkurflugvelli. Aksturinn hafði
verið í höndum félagsmanna í Sleipni
en starfsmenn Flugleiða sinntu
akstrinum eftir að verkfall skall á.
Níræð saumakona í hálfu starfí hjá Sjóklæðagerðinni
Morgunblaðið/Kristinn
Anna Franklínsdóttir við vinnu sína í Sjóklæðagerðinni en hún vinnur enn hálfan daginn.
ÞAÐ er orðið fremur óalgengt að
fólk vinni úti þegar það hefur náð
sjötugsaldri en Anna Franklínsdótt-
ir hefur gert gott betur. Anna, sem
fagnar níræðisafmæli sínu í dag,
vinnur enn hálfan daginn sem
saumakona hjá Sjóklæðagerðinni
og er ekkert á þeim buxunum að
hætta. „Ég hef unnið hér hjá Sjó-
klæðagerðinni undanfarin 30 ár. Ég
byijaði svo seint hérna að ég er
ekki með hæsta starfsaldurinn en
ég er hins vegar örugglega elst af
þeim sem eru að vinna hérna núna.
Það eru nú ekki margir á minum
aldri sem eru að vinna og þeir
kunningjar mínir sem enn eru að
eru talsvert yngri en ég. Ég er mjög
þakklát fyrir það að fá að vinna og
ég tel það hreint og beint forrétt-
indi.“
Anna fæddist í Strandasýslu 15.
júní 1910. Hún bjó framan af í sveit
Forréttindi
að vinna
en áður en hún hóf störf hjá Sjó-
klæðagerðinni starfaði hún stutta
stund á saumastofu á Selfossi.
Anna segir ástæðu þess að hún
hætti ekki að vinna þegar hún var
komin á aldur vera þá að hún hafði
heilsu til að vinna og vildi því gjarn-
an halda því áfram. „Þetta er ágæt-
is vinna sem ég er í og það er gott
að vinna þegar maður hefur heilsu
til. Eins hef ég haft ákaflega góða
húsbændur hér sem hafa gert mér
það kleift að halda áfram að vinna."
Anna reiknar ekki með því að
halda daginn neitt sérstaklega há-
tíðlegan enda segir hún að nóg sé
komið af siíku. „Ég reikna með því
að mæta í vinnuna eins og aðra
daga. Ég hélt kaffihóf á laugardag-
inn var fyrir mfna nánustu og sfðan
komu samstarfsmenn mínir með
tertu í vinnuna í gær en ég vona að
þau láti mig í friði í dag,“ segir
Anna og hlær við.
Aðspurð segir Anna að hún sé
ekki farin að huga að starfslokum.
„Það er alls óráðið hvenær ég hætti
að vinna. Þegar maður er kominn á
þennan aldur en nú farið að halla
undan og maður veit ekki hversu
marga góða daga maður á eftir en
ég ætla mér að vinna meðan ég hef
heilsu til og á meðan ég fæ að
vinna.“
Anna segir að hún lumi ekki á
neinum ráðum handa fólki sem vill
ná aldri við góða heilsu. Hún segir
að þetta velti allt á heilsunni en bæt-
ir jafnframt við að hún hafi aldrei
hugsað neitt sérstaklega um hana.
Island viðkomustaður
í heimsmetstilraun
„HLEYPIÐ mér út!“
sagði Robert Ragozz-
ino þegar Boeing
Stearman-vél hans
staðnæmdist á Reykja-
víkurflugvelli klukkan
rúmlega hálfellefu í
gærkvöld. Ragozzino
hyggst verða fyrstur
manna til að fljúga einn umhverfis
hnöttinn í tvíþekju með opnum
stjómklefa. ísland er einn af við-
komustöðum hans en hann vonast til
að ljúka ætlunarverkinu í ágúst í
Oklahóma þar sem för-
inhófstl.júnísl.
Aðspurður hve lengi
hann hefði verið á leið-
inni frá Narsasuaq á
Grænlandi sagði hann
„þijú ár“, svo lengi
fannst honum klukku-
stundimar sjö að líða.
Ragozzino var dasaður eftir flugið og
sagðist ekki viss um hve lengi hann
myndi dvelja hér á landi en það yrðu
líklega 2-3 dagar. Þetta er í fyrsta
skipti sem hann kemur til íslands.
Vegur salt við kranann
STÖR byggingakrani og bensín-
tankur vógust á fyrir framan Víkur-
skála í Mýrdal í gær. Unnið var við
að koma nýjum stómm bensíntanki
fyrir við bensínstöð ESSO. í fyrstu
gekk vel að færa tankinn en þegar
tankurinn var kominn yfir gryfjuna
fóra þyngslin að segja til sín. í fyrstu
vó hann salt við kranann en hvarf
síðan ofan í gryfjuna með miklum
dynk og látum svo pottar og glös í
glömraðu eldhúsi Víkurskála og
kokkurinn hljóp út til að gá að því
hvað væri að gerast. Þurfti að hífa
tankinn aftur upp til að laga undir-
stöður hans.“
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sérblöð í dag
3 SlSUR
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
Morgunblaðinu
ídagfylgir
tímaritið 24-7.
Útgefandi:
Alltaf ehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson
-í SÍiAIR
•••••••
•••••••••••••••••
Tveir vináttuleikir
ákveðnir við Póiverja/Cl
Haukar ■
Evrópukeppnina/Cl
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is