Morgunblaðið - 15.06.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 47*
með blik í auga, hress og jákvæður. í
raun þá mun ég seint, ef nokkurn
tímann, hætta að vonast eftir því að
þú komir í heimsókn. Þú hefur oft
horflð í smá tíma á sjóinn eða tii út-
landa, og fyrstu dagana eftir að ég
fékk fréttirnar að þú væiir látinn, þá
reyndi ég að sannfæra sjálfa mig um
að hér væri um misskilning að ræða.
Þú hlytir að hringja og leiðrétta þetta
allt saman. Þú hefur alltaf unnið
mjög mikið og það kom fyrir að vinn-
an gleypti þig, en þú passaðir samt
upp á að missa ekki sambandið við
vini þína, sem vai- mjög stór hópur.
Við kynntumst að Staðaifelli fyrir sjö
árum. Síðan þá höfum við verið í
sama vinahópi og hist þannig alltaf
reglulega. Við áttum nú ekki alveg
skap saman fyrst til að byrja með.
Eg hélt í fyrstu að við værum mjög
ólík en komst að þvi seinna að það var
kannski ekki eins mikið og ég hélt.
Ég er á því að sá munur sem er á okk-
ur sé það sem ég þarf að laga hjá
mér. Þolinmæði þín, jákvæðnin og
viljinn til að gera gott úr öllu eru eig-
inleikar sem ég myndi alveg vilja til-
einka mér.
Ég á eftir að hugsa mikið til þín og
eflaust hvað mest þegar við eldum
góðan mat. Ég vissi einfaldlega fátt
jafn skemmtilegt og að elda fyiir þig
góðan mat og ef það var nóg til til að
gera þig saddan þá var kvöldið full-
komið.
Ég vona innilega að þar sem þú ert
núna séu haldnar miklar matarveisl-
ur á hverju kvöldi og ég veit að hún
amma þín hefur tekið hlýlega á móti
þér, þarna í himnaríki.
Takk fyrir vinskapinn, ég mun
ávallt vera þakklát fyiir þann tíma
sem ég fékk að eiga þig sem vin í
þessu lífi. Vonandi hittumst við í því
næsta. Fjölskyldu þinni, ættingjum
og vinum sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Með saknaðarkveðju.
Þín vinkona,
Ásdís Elva
Pétursdóttir.
Við spyijum drottin særð, hvers vegna hann
hafði það dularfulla verkalag
að kalla svona vænan vinnumann
af velli heim á bæ um miðjan dag.
Og þó, með trega og sorg, skal á það sæst,
að sá með rétti snemma hvílast megi
í friði, er hafði, fyrr en sól reis hæst,
fundið svo til, að nægði löngum degi.
(JóhannS.Hannesson.)
Elsku Binni. Það er svo sárt að þú
sért farinn frá okkur svona fljótt, of
snemma og alltof ungur. Þú varst
náfrændi minn og einn minn besti
vinur. Við áttum svo margt sameigin-
legt þó að ég væri fjórum árum yngri
en þú. Ég sakna þín.
Þinn frændi,
Kristján Albertsson (Baddi).
Elsku Binni minn. Mig grunaði
aldrei að kynni okkar ættu eftir að
verða svona stutt.
En kallið er komið og við sem eftir
sitjum verðum að sætta okkur við
það.
Þú varst alltaf svo yndislegur, allt-
af brosandi og kátur. Þú varst svo
sannarlega vinur vina þinna og vildir
allt fyrir þá gera, alltaf varst þú
fyrstur að bjóða fram krafta þína ef
einhver þurfti á þeim að halda. Þú
gafst þér alltaf tíma til að rækta vin-
skapinn við vini þína þrátt fyrir það
að eiga góða fjölskyldu sem þú hélst
mikið upp á. Það var alltaf gott að
tala við þig enda dæmdirðu aldrei,
heldur tókst fólki eins og það var. Þú
komst líka til dyranna eins og þú
varst klæddur.
Það er djúpt skarð í hjarta mínu og
ég þakka fýrir allar minningarnar
sem ég á um þig og eru þær ófáar og
má þar nefna að alltaf var stutt í
brosið og prakkarann sem leyndist
bak við það.
Elsku Binni minn ég vona að þér
líði vel þar sem þú ert núna í faðmi
afa þíns og ömmu og ég veit að þau
hafa tekið vel á móti þér.
Kalliðerkomið,
kominernú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimirkveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margseraðminnast,
margterhéraðþakka.
Guði sé lof fyrh- liðna tíð.
Margseraðminnast,
margseraðsakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Farþúífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
Gekkst þú með Guði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ég vil votta fjölskyldu Brynjars,
rinum og öðrum aðstandendum mína
dýpstu samúð. Megi góður Guð
geyma minninguna um góðan dreng.
Þín vinkona,
Alda.
• Fleirí minningargreinar
um Brynjar Braga Stefánsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
PÁLLVALDASON,
(f. 14/6 1900, d. 8/6 2000),
Álfaskeiði 82,
síðast til heimilis
á Sólvangi Hafnarfirði,
andaðist fimmtudaginn 8. júní.
Útför hans fór fram í kyrrþey, að ósk hins látna, frá Garðakirkju miðviku-
daginn 14. júní.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs.
Hildegard Valdason,
Kristín H. Pálsdóttir, Guðmundur Sigurðsson,
Helgi K. Pálsson, Eygló Guðmundsdóttír,
Guðrún R. Pálsdóttir,
Vigdís K. Pálsdóttir, Þorbjörn Guðbjörnsson,
Halldóra Gréta Pálsdóttir, Konráð Hjaltason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Látinn er í Reykjavík langt um
aldur fram ungur frændi minn
Brynjar Bragi Stefánsson. Eftir
stöndum við ættingjar hans agndofa
og harmi slegnir.
Brynjar Bragi var dóttursonur
kærrar móðursystur minnar, Bryn-
hildar Magnúsdóttur, sem lést fyrir
rúmu ári. Hann bjó á heimili ömmu
sinnar og afa, Braga Sigurbergsson-
ar, og hjá ömmu sinni eftir að þau
slitu samvistir. Hafði hann búsetu hjá
ömmu sinni allt fram á unglingsár. Af
miklum samskiptum við Brynhildi
frænku mína leiddi að ég hafði einnig
talsverð samskipti við Brynjai- Braga
og fylgdist með honum og lífi hans
allt frá fæðingu og fram á unglingsár
en eftir það fækkaði fundum okkar
eins og gengur.
Lífið var ekki áfallalaust hjá þess-
um frænda mínum frekar en svo
mörgum öðrum en hann tók karl-
mannlega á vandanum og reyndi að
leysa hann. Hann hafði komið sér vel
fyrii- í eigin íbúð og stóð sig vel bæði í
vinnu og námi. Framtíðin virtist því
svo sannarlega vera björt. En ytri
umgjörð segir ekki allt og svo virðist
sem þessi frændi minn hafi borið
innra með sér sársauka sem honum
reyndist um megn að lifa með og því
kvaddi hann okkur svo ungur, áður
en sól hans reis í hádegisstað.
Mikill harmur er nú kveðinn að
frænku minni Bylgju, móður Brynj-
ars, og fjölskyldu hennar. Móður-
systkini hennar öll og fjölskyldur
þeirra senda henni og fjölskyldunni
innilegustu samúðarkveðjur og biðja
um styrk þeim til handa í sorginni.
Brynjar Braga kveðjum við ætt-
menni hans og óskum honum góðrar
vegferðar á nýjum leiðum. Veri hann
ævinlega guði falinn.
Áslaug Þórarinsdóttir.
+
Hjartkær eiginkona mín, móöir okkar, fengda-
móðir og amma,
SIGFRÍÐUR PÁLMARSDÓTTIR,
Baugatanga 7,
Skerjafirði,
lést mánudaginn 12. júní.
Útförin auglýst síðar.
Magnús Wíum Vilhjálmsson,
Sigurlína Magnúsdóttir, Magnús Brimar Jóhannsson,
Pálmar Magnússon,
Dagný Magnúsdóttir, Agnar Kárason,
Axel Wíum Magnússon, Sigurbjörg Jónsdóttir
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN MARZ ÁMUNDASON,
Langholtsvegi 26,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt
mánudagsins 12. júní.
Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 16. júní
kl. 15.00
Jóhanna Björnsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Halldór Hlífar Árnason,
Ámundi Grétar Jónsson,
Birna Jónsdóttir, Eiríkur Jónsson,
S. Dagbjört Jónsdóttir, Hermann Jónas ívarsson,
Daði Jónsson, Olga Sylvía Ákadóttir,
Svanhildur Jónsdóttir, Bárður Helgason,
Þórhildur Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Sonur okkar og bróðir,
SIGURÐUR ÞENGILL HJALTESTED,
Hjarðarhaga 50,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 9. júní sl.
Sigríður Guðsteinsdóttir, Geir Harðarson,
Sigurður Kr. Hjaltested, Þórunn Ósk Rafnsdóttir,
Rósa Birgitta, Guðsteinn Þór, Nína Björk,
ívar Rósinkrans og Lína Rós,
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA PÁLÍNA LOFTSDÓTTIR,
áður til heimilis á Vegamótum,
Seltjarnarnesi,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn
5. júní sl., verður jarðsungin frá Seltjamames-
kirkju föstudaginn 16. júní kl. 13.30.
Karl B. Guðmundsson, Halla Jóhannsdóttir,
Gyða Einarsdóttir, Ólafur Guðbjörnsson,
Einar Ö. Kristinsson, Áslaug Stefánsdóttir.
+
Ástkær bróðir okkar og föðurbróðir,
ÓLAFUR ÞÓRARiNN ÖGMUNDSSON,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn
11. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Margrét Ögmundsdóttir,
Guðný Ögmundsdóttir,
Kristín Haraldsdóttir
og systkinabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur, tengdasonur og vinur,
DAVID W. POARCH,
918-3H-1A,
Keflavíkurflugvelli,
sem lést þriðjudaginn 6. júní síðastliðinn, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju mánudaginn 19. júní kl. 15.00.
Anna María Þórðardóttir,
Erla Ingibjörg,
Tyler Þór,
Matthew,
David,
Carolyn Poarch
Erla Þorvaldsdóttir,
Þuríður Þórðardóttir,
Ásþór Tryggvi,
erindrekar MC.
+
Kveðjuathöfn um ástkæran föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
FRIÐGEIR STEINGRÍMSSON
frá Raufarhöfn,
sem andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, laugar-
daginn 10. júní, fer fram í Langholtskirkju
föstudaginn 16. júní kl. 13.30.
Jarðsungið verður frá Raufarhafnarkirkju
mánudaginn 19. júní kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Hjartavernd eða aðrar líknarstofnanir.
Gígja Friðgeirsdóttir, Örn Erlendsson,
Garðar Friðgeirsson, Aðalbjörg Pálsdóttir,
Bjarki Friðgeirsson, Hafdís Matthíasdóttir,
Viðar Friðgeirsson, Kolbrún Þorsteinsdóttir,
Ragnheiður Ó. Friðgeirsdóttir, Einar Árnason,
Sigríður B. Friðgeirsdóttir, Þóroddur F. Þóroddsson,
Stefán Friðgeirsson, Sigurveig Ingimundardóttir,
Sævar Friðgeirsson,
Arngrímur Friðgeirsson, Sigurlaug Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.