Morgunblaðið - 15.06.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 35
Fjölbreytt listahátíð hefst á Seyðisfirði á þjóðhátíðardaginn
Margt á seyði
LISTAHATIÐIN A seyði hefst á
Seyðisfirði á þjóðhátíðardaginn, 17.
júní, með opnun fjögurra mynd-
listarsýninga og fleiri atburðum.
Þar ber hæst sýningu á verkum
norska listmálarans Olavs Christ-
ophers Jenssens í menningarmið-
stöðinni Skaftfelli. Síðan rekur
hver atburðurinn annan, meðal
annars sumartónleikar Bláu kirkj-
unnar, menningardagur barna og
Listahátíð ungs fólks.
Listahátíðin Á seyði er orðin
fastur liður í bæjarlífinu á Seyðis-
firði og hefur aukist að umfangi og
vinsældum ár frá ári. Að þessu
sinni taka um 60 listamenn þátt í
listahátíðinni og tónleikaröðinni
Bláu kirkjunni, að sögn Aðalheiðar
Borgþórsdóttur, ferða- og menn-
ingarfulltrúa Seyðisfjarðarkaup-
staðar, sem skipuleggur hátíðina.
Listahátíðin verður sett 17. júní í
Skaftfelli, menningarmiðstöð. Við
opnunina leika Marion Herrera á
hörpu og Margrét Árnadótir á
selló. Jafnframt verður opnuð veit-
ingastofa og kaffihús, net- og bóka-
kaffi, í Skaftfelli en unnið er að
gagngerri endurnýjun hússins.
Þekktur norskur
listmálari sýnir
Einn af hápunktum listahátíðar-
innar er sýning á verkum Olavs
Christophers Jenssens en hún
verður opnuð í sýningarsal Skaft-
fells á þjóðhátíðardaginn. Jenssen
er þekktur norskur listmálari sem
býr í Berlín og hefur kennt við
Listaháskólann í Hamborg.
Eria Albertsdóttir sýnir olíu-
myndir í „Gömlu Bröttu“ að Aust-
urvegi 30. Hún á ættir að rekja til
Seyðisfjarðar en hefur búið í Dan-
mörku síðastliðin 20 ár.
Alda Sigurðardóttir, Ásta Ólafs-
dóttir, Kristín Reynisdóttir og Sari
Maarit Cedergren sýna í Seyðis-
fjarðarskóla og samsýningin
Heimamenn verður á Hótel Seyðis-
firði.
Þrjár fyrrnefndu sýningarnar
eru opnar daglega frá kl. 14 til 18,
nema mánudaga, en sýning heima-
manna er opin á afgreiðslutíma
hótelsins.
Á þjóðhátíðardaginn verður
einnig opnað Geirasafn til heiðurs
og í minningu alþýðulistamannsins
Ásgeirs Jóns Emilssonar. Safnið er
í húsi hans og er stefnt að varð-
veislu þess.
Menningardagur barna, Karlinn
í tunglinu - börnin á jörðinni, verð-
ur í Skaftfelli 24. júní ásamt dag-
skrá fyrir börn. Karlinn í tunglinu
er alheimsverkefni á Netinu í sam-
starfi við Reykjavík - menningar-
borg Evrópu árið 2000. Pétur
Kristjánsson sér um verkefnið og
Halldóra Geirharðsdóttir skemmtir
börnunum sem trúðurinn Barbara.
Listahátíð ungs fólks
Dagana 19. til 23. júlí verður
Listahátíð ungs fólks á Austur-
landi, L.ung.A - Ekkert normal, í
Herðubreið. Listahátiðin, sem er
fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára,
er í formi vinnubúða og lýkur með
samkeppnum og sýningu þar sem
afraksturinn verður kynntur. Með
unga fólkinu starfa meðal annars
afródansarinn Oi’ville, Helga
Braga Jónsdóttir leikkona og
Andri Snær Magnason rithöf-
undur.
Halldóra Malin sem er í fram-
kvæmdanefnd L.ung.A segist
verða vör við töluverðan áhuga fyr-
ir listahátíðinni en hún óttast að
krakkarnir setji það fyrir sig að
missa tvo daga úr vinnu. „Eg hef
þó trú á því að þeir sem mestan
áhuga hafa muni koma. Ég hvet
krakka eindregið til þess að draga
úr peningaæðinu, þótt það sé nauð-
synlegt með, og horfa fram hjá
þessum tveimur vinnudögum. Það
er ennþá leiðinlegra að þurfa að
segja eftirþá: Ég ætlaði að koma
en réð ekki við það.“
Meðal annarra atburða á listahá-
tíð Seyðfirðinga má nefna að leik-
ritið Þúsund eyja sósa eftir Hall-
grím Helgason verður sýnt í
Herðubreið 30. júní og 1. júlí og
Morgunblaðið/Ásdís
Dagskrá listahátíðarinnar Á seyði kynnt í nýju kaffihúsi í menningar-
miðstöðinni Skaftfelli, f.v. Halldóra Malin úr undirbúningsnefnd Lista-
hátíðar ungs fólks, Aðalheiður Borgþórsdóttir, ferða- og menningar-
fulltrúi, Gréta Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Skaftfells og Muff
Worden, umsjónarmaður Bláu kirkjunnar.
Leitin að vísbendingu um vits-
munalíf í alheiminum 18. og 19.
ágúst. Á sama stað verður sýningin
Menning og náttúra - Virkjun,
Seyðisfjörður, opnuð 23. júlí. Er
þetta samstarfsverkefni Listahá-
skóla Islands og M 2000 undir
stjórn Þorvaldar Þorsteinssonar.
Þá verða Norskir dagar 21. til 23.
júlí og þá opnar norska textíllista-
konan Heidi Kristiansen sýningu í
„Gömlu Bröttu".
Bláa kirkjan eflist
Bláa kirkjan verður í sumar með
röð tónleika, með svipuðu sniði og
síðastliðin tvö ár. Tónleikarnir eru
í Seyðisfjarðarkirkju alla miðviku-
daga, klukkan 20.30, frá 21. júní og
til 6. september. Tríó Ólafs Steph-
ensen leikur á opnunartónleikun-
um en á flestum tónleikanna er
flutt sígild tónlist. Á lokatónleikun-
um koma fram vinsælir íslenskir
söngvarar og hljóðfæraleikarar,
meðal annars Bergþór Pálsson og
Sigrún Hjálmtýsdóttii-.
Muff Worden tónlistarkennari
stendur ásamt fleirum fyrir Bláu
kirkjunni. Hún segir að markmiðið
með sumartónleikunum sé meðal
annars að veita nýjum atvinnutón-
listarmönnum tækifæri til að koma
fram. I sumar verða meðal annars
þrír tónlistarmenn sem tóku burt-
fararpróf úr tónlistarskóla í vor.
Flestir flytjendanna eru íslenskir
Norræna húsið
Selló og
gítar á
Björtum
nóttum
FYRSTU tónleikar í tónleikaröð
Norræna hússins sem hlotið hefur
heitið Bjartar nætur verða í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 22.
Það eru Gunnar Kvaran sellóleik-
ari og danski gítarleikarinn Jens
Bang Rasmussen sem leika saman
verk eftir Vivaldi, Sibelius, Maria
Theresia von Paradis, J.S.Bach og
Franz Schubert. Auk þess leikur
Gunnar Kvaran einleiksverk fyrir
selló eftir Oliver Kentish og er það
frumflutningur.
Jens Bang Rasmussen leikur ein-
leiksverk fyrir gítar eftir danska
tónskáldið Henrik Rung sem var
uppi á 19. öld.
Gunnar Kvaran er deildarstjóri
strengjadeildar Tónlistarskólans í
Reykjavík. Hann hefur haldið ein-
leikstónleika og leikið á kammertón-
leikum í mörgum löndum.
Jens Bang Rasmussen er alþjóð-
lega þekktur sem gítarleikari og hef-
ur fengið mörg verðlaun fyrir leik
sinn. Verkefnaskrá Jens Bang
Rasmussen spannar tónlist allt frá
endurreisnartímanum til nútíma-
tónlistar, en hann er fyrst og fremst
sérfræðingur í fyrra skeiði róman-
tíska tímabilsins og danska tón-
skáldinu Henrik Rung.
Aðgöngumiðar eru til sölu á skrif-
stofu og við innganginn.
Morgunblaðið /Amaldur
Gunnar Kvaran sellóleikari og gítarleikarinn Jens Bang Rasmussen.
Síðasta sýning
Hádegisleikhúsið Iðnó
Leikir
Síðasta sýning á Leikir eftir
Bjarna Bjarnason, sem sýnt er í
Hádegisleikhúsi Iðnó verður kl.
12 á morgun, föstudag.
Leikarar eru Nanna Kristín
Magnúsdóttir og Jakob Þór Ein-
Leikir var frumsýnt í mars sl.
og víkur nú fyrir nýju hádegisleik-
riti, Bjöminn, skrýtla í einum
þætti eftir Anton Tsjekhov, sem
frumsýnt verður 22. júní næst-
komandi. Leikritið er í þýðingu
Árna Bergmann. Leikstjóri er
Stefán Jónsson og leikai-ar María
Pálsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson
og Júlíus Brjánsson.
en nokkrir koma erlendis frá. Muff
annast sjálf tónlistarfólkið sem
kemur til Seyðisfjarðar og leggur
fram mikla vinnu við tónleikahaldið
en tekur fram að starfið væri erfitt
ef ekki nyti við styrkja frá fyrir-
tækjum, menningarsjóðum og op-
inberum aðilum. Hún segir að auð-
velt sé að fá tónlistarfólk til að
koma fram, hún þurfi ekki annað
en að hringja og nefna Bláu
kirkjuna þá sé fólkið tilbúið að
koma. Sem dæmi nefnir hún að sjö
ára bið sé eftir að koma að flytj-
endum á suma þætti tónleikanna
og einnig sé að fjölga óskum frá er-
lendum tónlistarmönnum um að
koma fram.
Upphaflega hugmyndin með tón-
leikum á miðvikudagskvöldin var
að nálgast ferðafólk sem þá er í
bænum að bíða eftir Norrænu.
Hugmyndin hefur verið að þróast
og með vaxandi aðsókn eru nú
haldnir tónleikar öll miðvikudags-
kvöld. Muff vonast til að áfram
verði stígandi í aðsókn. Nefnir sem
dæmi að fyrsta árið hafi að meðal-
tali komið 20-50 gestir á tónleikana
en 60-100 í fyrrasumar og uppselt
á lokatónleikana.
Mikilvægt fyrir bæinn
Listahátíðin Á seyði hefur haft
mjög góð áhrif á Seyðisfirði, að
sögn Aðalheiðar Borgþórsdóttur.
Listin skapar nokkur störf í bæn-
um og Aðalheiður lýsir þeirri skoð-
un sinni að öflugt lista- og menn-
ingarstarf eigi drjúgan þátt í því að
fólki hefur ekki fækkað á Seyðis-
firði á undanförnum árum. Fólk
kemur langar leiðir á tónleika og
sýningar, algengt er að gestir séu
af öllu svæðinu frá Höfn til Akur-
eyrar, en einnig eru dæmi um að
géstir komi lengra að á einstaka
viðburði, til dæmis alla leið frá
Reykjavík.
„Ég finn fyrir því í samstarfi
sem ég á við starfsmenn annarra
sveitarfélaga að starfið hér er talið
til fyrirmyndar. Og við sjáum
árangur af því auk þess sem
íbúarnir eru brosmildari," segir
hún.
Sýningar-
lok og
rayndbönd
Listasafn Islands
Síðasti sýningardagur sýn-
ingarinnar Nýr heimur - staf-
rænar sýnir, sem nú stendur
yfir í Listasafni íslands, er á
sunnudag. Sýningin saman-
stendur af fjórum sýningum;
Myndhvörf eftir Steinu Vas-
ulka, Islensk og erlend mynd-
bönd, íslensk og erlend veflist
og Atið eða @.
Á síðustu sýningardögum
sýningarinnar Islensk og er-
lend myndbönd verða þessi
myndbönd sýnd kl. 12 og kl. 15:
I dag, fimmtudag, Nan Hoover:
Returning to Fuji. Rafael
Montanez Ortiz: Dance # 1 og
Dance # 3. Föstudaginn 16.
júní: Jiirgen Klauke: Hin-
setzen/Aufstehn/Ich liebe Dich
og In der Tat. Laugardaginn
17. júní: Marcel Odenbach: Die
Distanz zwischen mir und
meinen Verlusten. Dan
Graham: Two Way Mirror
Cylinder, 1992. Sunnudaginn
18. júní: Nam June Paik: „Top-
less Cellist" Carlotte Moor-
man, 1995.
Þá mun Bragi Halldórsson,
myndlistarmaður og sýningar-
stjóri sýningarinnar íslensk og
erlend veflist, ræða um sýning-
una sunnudaginn 18. júní kl. 15.
SLATTUORF
ÞOR HF
Raykjavík - Akuroyri
Reykjavfk: Ármúla 11 - Sfmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sími 461-1070
BURBERRY
l ohd oi
Kjólar
Sky rtu r
Pils
B uxu r
Bol i r
Jakkar
Tösku r
11 mvötn
o. m.fI.
Latigavegi 54
sími 552 2535