Morgunblaðið - 15.06.2000, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Úr dansi eftir stúlkurnar sjálfar.
Morgunblaðið/Arnaldur
^Utlínur sýndar í
Islensku óperunni
í KVÖLD munu átta ungar stúlkur
úr Listdansskóla íslands sýna ballett
í Islensku óperunni. Sýningin er próf
stúlknanna upp í nemendadansflokk
Listdansskólans, sem er elsti flokkur
skólans. Á efnisskrá eru verk eftir
Helenu Jónsdóttur og Margréti
Gísladóttur, sem báðar eru kennarar
við Listdansskólann, dans úr Svana-
vatninu og verk eftir stúlkumar sjálf-
ar, við tónlist eftir hljómsveitina Air.
Sýningin ber heitið Utlínur.
Inntökupróf í
nemendadansflokk
Stúlkurnar, sem eru á aldrinum
15-17 ára, heita Sigríður Wikfeldt,
Emilía Benedikta Gísladóttir, Sigrún
Huld Gunnarsdóttir, Hjördís Lilja
Ömólfsdóttir, Unnur Elísabet Gunn-
arsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Mar-
ía Lovísa Ámundadóttir og Hrefna
Ingadóttir. Þær hittu blaðamann á
æfingu. Flestar hafa þær stundað
ballettnám síðan á unga aldri. „Við
höfum allar verið lengi í ballett,11
segja þær, „en við höfum verið mis-
lengi hér í skólanum. Til þess að
sækja um í Listdansskóla íslands
þarf að hafa náð níu ára aldri og sum-
ar okkar byrjuðu héma þá, en það er
misjafnt. Ein okkar hóf nám við skól-
ann í vetur, en hafði lært annars stað-
ar fram að því.“
Flokkur stúlknanna heitir 6. og 7.
flokkur og er sameinaður úr tveimur
flokkum. „Við vomm miklu fleiri, en
það hafa margir hætt gegn um tíð-
ina.“ Sýningin í Islensku óperunni er
próf upp í nemendadansflokkinn,
sem er elsti flokkur skólans. „Þá fá-
um við að gera miklu meira, fara til
útlanda og sýna og svo framvegis.
Auðvitað vonumst við til að komast
allar að, en það veltur á prófdómur-
unum.“ Ekki hefur verið látið uppi
hverjir prófdómararnir em, en stúlk-
umar búast við að það verði einhverj-
ir kennara þeirra og dansarar úr ís-
lenska dansflokknum.
Það er strangt nám að vera í ball-
Morgunblaðið/Amaldur
F.v. Hrefna Ingadóttir, Sigríður Wikfeldt, Emilía Benedikta Gísladóttir,
Guðrún Óskarsdóttir, Sigrún Huld Gunnarsdóttir, Unnur Elísabet
Gunnarsdóttir og María Lovísa Amundadóttir. A myndina vantar Hjör-
dísi Lilju Örnólfsdóttur.
ett þegar komið er þetta langt, „Við
æfum 5-6 sinnum í viku í þrjá og hálf-
an tíma í senn. Þær okkar sem em
komnar í menntaskóla em flestar í
Menntaskólanum við Hamrahlíð en
þar er sérstök listdansbraut og þá
era danstímarnir metnir inn í stunda-
skrána. Ein af okkur di-eif sig þó í
Versló," útskýra þær. Ein af stúlkun-
um, Unnur Elísabet, er að fara til
Svíþjóðar í ballettnám næsta vetur.
„Ég stefni að því að verða ballettd-
ansari,“ segir hún. Hinar em ekki al-
veg eins öraggar. „Auðvitað langar
mann, en það verður bara að koma í
Ijós hverjir möguleikarnir eru.“
Veglegsýning
Sýningin í íslensku óperanni er
meira og minna verk stúlknanna
sjálfra frá upphafi til enda. „Við vild-
um frekar halda svona sýningu held-
ur en að taka hefðbundið próf í sal.
Við ákváðum þetta eiginlega sjálfar,"
útskýra þær. Sjálfar hafa þær safnað
styrlg'um til þess að auglýsa sýning-
una, fengið aðra listamenn til að taka
þátt með þeim og samið stóran hluta
úr efnisslá’ánni. ,Á efnisskránni era
verk eftir kennara okkar, Margréti
Gísladóttur og Helenu Jónsdóttur,
og tvö verk sem við sömdum sjálfar.
Við notum tónlist hljómsveitarinnar
Air, sem er svona mystísk en samt
hress og mjög flott.“
Aðspurðar segjast þær semja
verkin algjörlega í sameiningu og að
samvinnan hafi gengið framar von-
um. „Við höfum að minnsta kosti ekki
rifist neitt ennþá,“ segja þær hlæj-
andi. Á efnisskrá kvöldsins er jafn-
framt dans litlu svananna úr Svana-
vatninu. „Við voram nokkrar úr
þessum hópi sem voram statistar í
sýningunni með San Franciseo-ball-
ettinum, en svo setti skólinn upp sýn-
ingu á Svanavatninu í vetur, svo
þetta var nokkuð sem við áttum í
pokahorninu," segja dansaramir.
„Við verðum í allskonar búningum og
mismunandi skóm, þannig að við höf-
um fengið aðra listamenn til að koma
og vera með atriði á sýningunni á
milli okkar atriða. Gyða Bergs dans-
ar sólódans, en svo verður líka söng-
atriði og fiðluleikur. En okkar atriði
era auðvitað það sem máli skiptir á
sýningunni."
Sýningin í kvöld hefst klukkan
20.30 og er aðgangseyrir 1.000 kr.
„Þetta eru
mínar rætur“
*
Islensk flaututónlist frá miðhluta tuttug-
— 7
ustu aldar mun hljóma á tónleikum í Ymi í
kvöld kl. 20.30 en þar leikur Ashildur Har-
aldsdóttir á flautu auk þess sem fímm aðrir
hljóðfæraleikarar koma við sögu. Margrét
Sveinbjörnsdóttir komst að því 1 stuttu
----------7--------------------
samtali við Ashildi að flautuleikararnir
Manuela Wiesler og Robert Aitken hefðu
verið miklir áhrifavaldar í lífi hennar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Áshildur Haraldsdóttir ásamt Guðna Franzsyni og Bryndísi Höllu
Gylfadóttur. Auk þeirra koma fram á tónleikunum í Ymi þau Anna Guð-
ný Guðmundsdóttir, Steef van Oosterhout og Atli Heimir Sveinsson.
Á EFNISSKRÁ tónleikanna era
verk eftir tónskáldin Ama Bjömsson,
Leif Þórarinsson, Hafliða Hallgríms-
son, Áskel Másson, Þorkel Sigur-
bjömsson, Magnús Blöndal Jóhanns-
son og Atla Heimi Sveinsson.
Tónleikamir eru liður í tónlistarhátíð
Tónskáldafélags íslands í samvinnu
við Reykjavík menningarborg
Evrópu árið 2000.
„Ég hélt að ég þekkti meira og
minna öll helstu verk sem hér hafa
verið skrifuð fyrir flautu en þegar
nánar var að gáð kom í Ijós að það var
mjög mikið af verkum sem ég þekkti
ekki,“ segir Áshildur. „Þetta er mjög
gott tækifæri til að fá yfirsýn yfir
þessa tuttugustu aldar tónlist sem
margir skilja hvorki upp né niður í og
geta kannski ekki gert sér grein fyrir
hvort viðkomandi verk sé samið í
kringum 1960 eða 1990 eða kannski
1955 - það er ekki alltaf svo auðvelt.
Það setur þessa tónlist í ákveðið sam-
hengi að taka svona fyrir eitt tíma-
bil,“ heldur hún áfram.
Foss af íslenskum einleiks-
verkum fyrir Manuelu
Af þeim níu verkum sem flutt
verða á tónleikunum era fjögur samin
fyrir austurríska flautuleikarann
Manuelu Wiesler sem var búsett hér
á landi um nokkurra ára skeið og setti
svip á íslenskt tónlistarlíf. Þetta era
einleiksverkin Sonata per Manuela
eftir Leif Þórarinsson, Itys eftir Ás-
kel Másson og Solitude eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson og Xanties fyrir
flautu og píanó eftir Atla Heimi
Sveinsson. „Þegar Manuela fluttist
hingað kom foss af íslenskum einleik-
sverkum fyrir flautu,“ segir Áshildur,
sem nýtur nú góðs af. Fyrir kanad-
íska flautuleikarann Robert Aitken
skrifaði Þorkell Sigurbjömsson ein-
leiksverkið Kalais og Verse I fyrir
flautu og selló framflutti höfundurinn
Hafliði Hallgrímsson sjálfur ásamt
Aitken á sínum tíma. Ónnur verk á
efnisskránni era Fjögur íslensk þjóð-
lög eftir Áma Bjömsson, For Renée
fyrir flautu, píanó, selló og slagverk
eftir Þorkel og Klif fyrir flautu, klar-
ínettu og selló eftir Atla Heimi.
Gæti kannski orðið
atvinnuflautuleikari...
Áshildur rifjar upp að hún hafi
kynnst þeim Robert Áitken og Man-
uelu Wiesler á námskeiði eitt sumarið
þegar hún var unglingur. „Þessir
tveir flautuleikarar höfðu kannski
einmitt þau áhrif á mig að ég varð
flautuleikari., Aitken sagði við mig að
ég gæti kannski orðið atvinnuflautu-
leikari ef ég æfði mig nógu rosalega
mikið. Á þessu sama námskeiði
kynntist ég Kolbeini [Bjamasyni
flautuleikara] og hann kynnti mig
fyrir Manuelu og hjá henni lærði ég
svo nokkur sumur,“ segir Áshildur,
sem fór að ráðum Aitkens og æfði sig
af kappi.
Hún segir að sér þyld vænt um að
fá að flytja verk sem samin vora fyrir
þau Manuelu og Aitken. „Þó að þessi
verk hafi ekld verið samin fyrir mig
þá eru þetta mínar rætur,“ segir hún.
Áshildur fékk til liðs við sig fimm
hljóðfæraleikarara, þau Önnu Guð-
nýju Guðmundsdóttur píanóleikara,
Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleik-
ara, Guðna Franzson klarínettuleik-
ara og Steef van Oosterhout slag-
verksleikara, að ógleymdum Atla
Heimi Sveinssyni, sem mun stíga
fram og takast á við hlutverk ílytja-
ndans í verki sínu Xanties. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem þau Atli og Ás-
hildur flytja það verk saman. „Ég
spilaði það fyrst með honum á tón-
leikum í Svíþjóð þegar ég var innan
við tvítugt og svo aftur í Salnum í
Kópavogi á síðasta ári,“ segir hún og
kveðst hlakka mikið til að spila með
Atla.
Veflista-
verk í
Varma-
hlíð
AUÐUR Vésteinsdóttir og Sig-
ríður Ágústsdóttir opna sam-
sýningu á veflistaverkum og
reykbrenndum vösum og te-
kötlum í Gallerí ash, Lundi í
Varmahlíð, annað kvöld, föstu-
dagskvöld, kl. 20.
Auður Vésteinsdóttir nam
við Myndlista- og handíðaskóla
íslands, Textildeild 1968-72 og
tók kennarapróf frá Kennara-
háskóla íslands 1989. Hefur
unnið að frjálsri myndsköpun
frá 1989, á verk í opinberri eigu
og hefur fengið styrki og viður-
kenningar.
Auður hefur haldið fimm
einkasýningar og þetta er 22.
samsýning hennar.
Sigríður Ágústsdóttir nam
við Cambridgeshire College of
Arts and Technology, Cambr-
idge, Englandi, 1979-1971,
École d’Art et d’Architecture,
Marseille, Frakklandi, 1971-
1974, var í námi hjá Helen
Pincombe á Country Centre og
Kettle’s Yard Workshop,
Cambridge 1974-1976, 1979-
1980 og 1982.
Starfrækti eigin vinnustofu
frá 1990 og starfaði við leiðsögn
erlendra ferðamanna frá 1986.
Sigríður hefur haldið 2
einkasýningar en þetta er 17.
samsýning hennar. Sýningin í
Gallerí ash, Lundi, Varmahlíð
stendur til 30. júní og er opin
frá kl. 10-18 alla daga nema
þriðjudaga.