Morgunblaðið - 15.06.2000, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Veiðiskólinn út-
skrifar nemendur
„VIÐ erum búnir að útskrifa tvö
holl með glæsibrag og það var stór-
kostlegt að sjá þetta fólk sem lítið
eða ekkert kunni þegar það kom
hingað, standa við ána og með-
höndla veiðitækin kunnáttusamlega
undir lok kennslunnar. Þau köstuðu
öll flugunni eins og herforingjar,
full sjálfstrausts og vildu helst ekki
fara frá ánni,“ sagði Ingvi Hrafn
Jónsson á Langárbökkum í Borgar-
Firði í samtali við Morgunblaðið, en
fyrir nokkru setti hann fyrsta flugu-
veiðiskóla sem starfræktur hefur
verið hér á landi á árbakkanum.
Kennaraúrvalið í skólanum er
ekki af verri endanum, þrír þunga-
vigtarmenn frá Húsavík, sjóaðir af
bökkum Laxár í Aðaldal í marga
áratugi, þeir Þórður Pétursson,
Pétur Pétursson og Birgir Stein-
grímsson, auk Hafsteins Orra
Ingvasonar, staðarleiðsögumanns
við Langá. Þórður er landsþekktur
fluguhnýtari og hönnuður og hann-
aði hann nýja flugu, Langá blá, í til-
efni af skólasetningunni.
Eitt námskeið er eftir og hefst
það 19. júní. Áin verður formlega
opnuð í dag með veiðiskap landeig-
enda og síðan veiða leigutakar og
gestir þeirra. Horfur eru nokkuð
góðar, nokkuð er siðan fyrstu lax-
arnir sáust í ánni og sfðustu daga
hafa laxar sést lyfta sér á Breiðunni
og í Strengjunum.
Morgunblaðið/RAX
Birgir Steingrímsson kennir Nikulási Sigfússyni, Aðalheiði Magnúsdóttur, Mist Þorkelsdóttur og Sigurbirni
Þorkelssyni réttu handtökin á bökkum Langár á Mýrum.
Miklir möguleikar taldir á virkjun bæjarlækja
Raforkubændur gætu
framleitt 60 MW
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hjálmar Árnason og Ólafur Eggertsson við orkuskápinn. Þar er raf-
magnsmælir sem snýst niður en ekki upp eins og aðrir orkumælar hjá
RARIK þar sem verið er að flytja orku út, en ekki inn.
Nýtt deiliskipulag
gæti kallað á bæt-
ur eða uppkaup
EINKAREKNAR vatnsaflsstöðvar
voru alls 196 talsins árið 1998 og
framleiða þær um 4.038 kW. Að mati
starfsmanna Orkustofnunar gætu
verið möguleikar á allt að 60 MW
framleiðslu með skynsamlegri nýt-
ingu lítilla vatnsaflsstöðva á íslandi
eða sem nemur um tveimur Nesja-
vallavirkjunum. Ýmsir áhugamenn
um slíkan virkjanakost nefna tölur
allt að 100 MW. Þetta kemur fram í
nýútkominni skýrslu, Raforku-
bændur, hagkvæmni, tækni, mögu-
leikar, sem samin var af nefnd á veg-
um iðnaðarráðherra en hún kannaði
hagkvæmni þess að virkja smærri
vatnsföll á bújörðum.
í niðurstöðum skýrslunnar segir
að virkjun bæjarlækja geti styrkt
byggð í dreifbýli og aukið fjölbreyti-
leika atvinnulífsins.
Sparar 500 þús. kr.
í orkukaup á ári
Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum og for-
maður Landssamtaka raforku-
bænda, segir engan vafa leika á að
bændur geti haft af því tekjur að
byggja smárafstöðvar, þar sem þess
er kostur, og tengja heimarafstöðv-
ar sínar inn á landskerfi Rafmagns-
veitna ríkisins. Ólafur sparar um 500
þúsund kr. í raforkukaup á ári á búi
sínu með eigin raforkuframleiðslu í
heimarafstöðinni á Þorvaldseyri en
hún hefur nú einnig verið tengd við
landskerfi RARIK í tilraunaskyni.
Ólafur segir marga bændur búa
við óbeislaða læki og ár sem þeir eigi
kost á að virkja. í mörgum tilfellum
geti verið mjög hagkvæmt að virkja
þessi vatnsföll. Hann bendir á að
virkjunarkostnaður Landsvirkjunar
á hverja kílówattstund sé um 120
þúsund kr. og raforkubændur telji
sig vel geta sett upp virkjanir á því
verði. Það sé svo samningsatriði á
hvaða verði rafmagnið sé selt.
Kemur í ljós í haust
hvaða verð við fáum
„Sú vinna er í gangi en það kemur
í ljós í haust hvaða verð við fáum. Ég
tel þetta mjög vannýttan kost úti í
hinum dreifðu byggðum, auk þess
sem svcna smáorka er vistvæn.
Þetta er gert víða erlendis, s.s. í Sví-
þjóð, Noregi, Austurríki og Sviss.
Erlendis eru svona smávirkjanir
ríkisstyrktar. Ég hef trú á að þetta
eigi eftir að stóraukast hér,“ segir
Ólafur.
Ólafur er með nýuppgerða rafstöð
og eru afköst hennar í dag 8 kW en
þegar hún verður komin í full afköst
verða afköst hennar 17-18 kílówött.
Ólafur segist sjálfur nota um 10 kW
á sínu búi allt árið um kring og raf-
orkukostnaðurinn á ári nemi um 500
þúsund kr. Þessi litla stöð muni því
hafa því umtalsverðan sparnað í för
með sér auk þess sem hún geti fram-
leitt 7-8 kW til viðbótar inn á lands-
kerfi RARIK. Hann segir að kostn-
aður við endurbyggingu stöðvar-
innar sé innan við 2 milljónir kr.,
sem greiðist niður á fjórum árum.
HJÖRLEIFUR Kvaran borgarlög-
maður telur ekki að samningur
Reykjavíkurborgar við eigendur
bakhússins á Laugavegi 53b hafi for-
dæmisgildi gagnvart öðrum húseig-
endum sem hugsanlega kjmnu að
vera í svipaðri stöðu. Unnið er að
gerð deiliskipulags fyrir Laugaveg-
inn og er stefnt að því að kynna það
næsta haust.
Hjörleifur segir að mál bakhúss-
ins á Laugavegi 53b sé einstakt í
sögunni og verði ekki öðru til jafnað.
Hann bendir hins vegar á að um
bótaréttinn sé fjallað í skipulags- og
byggingarlögum. í 33. grein þeirra
laga segir að valdi gildistaka skipu-
lags því að verðmæti fasteignar
lækkar og nýtingarmöguleikar
hennar skerðast frá því sem áður var
heimilt eða hún muni rýma svo að
hún muni ekki nýtast til sömu nota
og áður, geti sá sem sýnt getur fram
á að hann verði fyrir tjóni af þessum
sökum, átt rétt á bótum úr sveita-
AÐFARANÓTT mánudags kom til
harkalegra átaka milli tveggja
manna á ísafirði sem enduðu með
því að annar maðurinn beit af
megnið af neðri vör hins. Sá sem
bitinn var hefur legið á sjúkrahúsi
frá því ráðist var á hann og hafa
læknar reynt að gera að sárum
hans.
Önundur Jónsson, yfirlögreglu-
þjónn á ísafirði, segir að tildrög áta-
sjóði eða að hann leysi fasteignina til
sín. Hjörleifur segir að það geti
reynt á þessi ákvæði þegar verið er
að gera deiliskipulag fyrir gróna
byggð eins og á Laugaveginum.
, „Nú hef ég ekki séð þær tillögur
að deiliskipulagi sem er verið að
vinna en ég geri ráð fyrir því að við
þá vinnslu, og þegar menn sam-
þykkja deiliskipulagið að endingu í
sveitastjórn, hafi þeir í huga að ein-
hverjir fasteignaeigendur gætu talið
sig verða fyrir skerðingu eða tjóni,“
segir Hjörleifur.
Óvíst hverjar verði afleiðingar
nýs deiliskipulags
Hann segir alveg ljóst að tekið sé
mið af þessum möguleika við gerð
deiliskipulagsins. Það þurfi að horfa
til þess hvað deiliskipulagið geti haft
í fór með sér. Það geti leitt til ein-
hverra bóta eða uppkaupa á eignum
og menn gangi til verks með fullri
vitund um að á þetta kunni að reyna.
kanna séu ókunn en málið sé í rann-
sókn. „Ljóst er að hér er um meiri
háttar líkamsárás að ræða. Ekki
hefur enn verið lögð fram kæra en
tjónþoli hefur legið á sjúkrahúsi og
ekki verið fær um að gera slíkt,“
sagði Önundur í samtali við frétta-
vef Bæjarins besta.
Lögregla hefur yfirheyrt árásar-
aðilann en vill ekki gefa frekari upp-
lýsingar um málið að svo stöddu.
Neðri vörjbitin af
manni á Isafirði
Júlíus Vífíll Ingvarsson um tillögu um sameiningu nefnda í stjórnkerfí borgarinnar
Verið að taka vald frá
kjörnum fulltrúum
REYKJAVÍKURLISTINN lagði í
gær fyrir borgarráð tillögu um að
byggingamefnd og umferðar- og
skipulagsnefnd yrðu sameinaðar.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, er andvíg-
ur tillögunni og segir að verið sé
með þessu að færa vald frá kjörnum
borgarfulltrúum til embættismanna
með tilheyrandi vandkvæðum fyrir
borgarbúa.
Fram kom í viðtali við Helga
Hjörvar, formann stjórnkerfis-
nefndar, í Morgunblaðinu fyrir
skömmu, að ástæða þess að lagt
væri til að byggingamefnd og skipu-
lagsnefnd yrðu sameinaðar væri sú
að nefndirnar fáist við náskyld mál
og fjölmörg mál hafi þurft umfjöllun
í þeim báðum og málsmeðferðin hafi
stundum verið tímafrek og til óhag-
ræðis fyrir almenning. „Það er verið
að leitast við að einfalda stjómkerf-
ið og auka skilvirknina í því. í mörg-
um þeirra mála sem snúa að skipu-
lags- og byggingaryfirvöldum er um
að tefla gríðarlega fjárfestingu og
jafnvel aleigu einstaklinga. Það er
þess vegna sérstaklega mikilvægt
að öll afgreiðsla mála þar sé skilvirk
og þau tefjist ekki í meðförum leng-
ur en nauðsyn ber tíl,“ sagði Helgi.
Júlíus Vífill segir að bæði umferð-
ar- og skipulagsnefnd og byggingar-
nefnd séu mjög veigamiklar og lík-
lega erfiðustu nefndir borgarinnar.
Þar eru jafnan langir fundir og oft á
tíðum í hverri viku. Júlíus Vífill seg-
ir að tillagan snúist um að leggja
niður byggingamefnd og flytja
mörg af þeim verkefnum sem skipu-
lags- og umferðamefnd hafi núna til
embættismanna.
„Það er verið að færa vald frá hin-
um kjömu fulltrúum til embættis-
manna. Lagt er tíl að þau mál sem
nú koma fyrir byggingarnefnd fari
alfarið til byggingarfulltrúa. Hann
mun afgreiða erindin en borgarbúar
eiga málskotsrétt til nefndarinnar
sem tekur við af byggingarnefnd
sem verður skipulags- og bygginga-
nefnd. Þetta er að mínu mati miklu
flóknari framkvæmd. Nú veita hinir
kjömu fulltrúar embættismönnum
aðhald og em í nánu sambandi við
þá sem leita til nefndarinnar, þekkja
málin og geta fylgt þeim eftir. En
með því fyrirkomulaginu sem mælt
er með verða hinir kjörnu fulltrúar
ekki inni í málunum og þurfa að leita
sér upplýsinga í hvert skipti sem
mál koma upp og mun færri mál
munu koma inn á þeirra borð en áð-
ur,“ segir Júlíus Vífill.
Hann segir að hið sama sé að
segja um skipulagsmálin. Mörg
þeirra mála sem nú fara fyrir nefnd-
ina munu fara beint í embættís-
mannakerfið.
„Þetta er embættismannavæðing.
Það er verið að taka vald frá hinum
kjörnu fulltrúum og það er vald sem
er ekki laust í hendi hvað mig varðar
að minnsta kosti. Ég vil að þeir sem
eru kjörnir til þessarar ábyrgðar
axli hana en afsali sér henni ekki til
embættismannanna."