Morgunblaðið - 15.06.2000, Page 60

Morgunblaðið - 15.06.2000, Page 60
—*80 FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ 4- Málflutnings- " keppni laganema í Washington íslenska liðið ásamt liði Kanada sem í voru fyrstu andstæðingarnir. "W" BYRJUN apríl fóru íslenskir ^•3 laganemar vestur um haf til að taka þátt í alþjóðlegri mál- JL flutningskeppni. Um var að ræða keppni sem haldin er árlega á vegum Alþjóðasambands laganema (Intemational Law Students Associ- ation, ILSA) og kennd er við Philip C. Jessup, sem kom keppninni af stað fyrir rúmum 40 árum. Keppnin er stærsta málflutningskeppni í heimi. Á hverju ári taka um 1600 laganemar frá um 330 lagaskólum úr öllum heimsálfum þátt í þessari keppni þar sem sviðsettur er mála- rekstur milli ímyndaðra ríkja fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Um 70 lið komast í úrslitin sem fara fram í Washington í Bandaríkjunum sam- jfchliða vorfundi ILSA en jafnframt fóru tveir fulltrúar frá Islandi á þann fund. Þetta var í fyrsta sinn sem Is- land tekur þátt í þessari keppni og liðið sem fór út að þessu sinni var skipað Atla Má Ingólfssyni, Heiðari Ásberg Atlasyni og Sigríði Hrefnu Hrafnkelsdóttur. Leifur Eiríksson málflutningsfélag Þegar ákveðið hafði verið að Is- land sendi lið í keppnina var stofnað félag til að halda utan um þátttökuna til að afla styrkja til að standa Stærsta málflutningskeppni í heimi var haldin í Washington í Bandaríkjunum í apríl sl. Heiðar Ásberg Atlason var einn þriggja íslenskra laganema sem fóru vestur um haf og kepptu fyrir hönd íslenskra laganema. Er þetta í fyrsta skipti sem fulltrúar frá Islandi taka þátt í keppninni. straum af kostnaði o.fl. Þegar litið var til þess að mikilvægt væri að nafn félagsins væri einkennandi fyr- ir ísland og einnig vegna þess kynn- ingarstarfs sem í gangi er í tengslum við landafundi norrænna manna í Norður-Ameríku var nafnið „Leifur Eiríksson málflutningsfélag" valið. Félagið var stofnað í janúar sl. og þá þegar skipað í stjórn þess. I stjórn þess eru eftirtaldir: Guðmundur Ei- ríksson, dómari við Hafréttardóm- stól Sameinuðu þjóðanna, er heið- ursforseti félagsins, Ragnar Tómas Ámason, héraðsdómslögmaður, er formaður félagsins, Tómas H. Heið- ar, þjóðréttarfræðingur, er ritari og Skarphéðinn Pétursson, formaður Orators, er gjaldkeri. Vífill Harðar- son, gjaldkeri Orators er varamaður stjómar. Að auki er Edwin Brown, viðskiptafulltrúi í bandaríska sendi- ráðinu sérstakur ráðgjafi stjórnar- innar en hann hefur verið dórnari í Jessup keppninni. Mikilvægi þjóðaréttar fyrir lögfræðinga í dag Þjóðaréttur er sú fræðigrein inn- an lögfræði sem fjallar um samskipti milli þjóða og er um margt frábrugð- in hefðbundinni lögfræði. Það er óhætt að segja að nú á tímum al- þjóðavæðingar fyrirtækja og auk- inna samskipa ríkja, sérstaklega í gegnum aukin viðskipti við erlend fyrirtæki, ætti það að vera öllum Ijóst að það getur verið vísir að góð- um starfsvettvangi fyrir unga lög- fræðinga að læra þjóðarétt eða laga- reglur sem fást við alþjóðleg málefni. Velgengni íyrirtækja getur að mikl- um hluta byggst á því að þau geti starfað á alþjóðlegum mörkuðum og náð hagstæðum samningum við er- lenda aðila. Það er einnig nauðsyn- legt fyrir hverja þjóð að geta gætt réttar síns gagnvart öðrum þjóðum sérstaklega fyrir lítið land eins og ísland. Jessup keppnin er ákjósan- legur grunnur fyrir aukna þekkingu á sviði þjóðaréttar og er það von þeirra sem stóðu að þátttöku í Jess- up að þessu sinni að vegur hennar verði sem mestur í náinni framtíð. í ljósi þessa fullyrða þeir keppendur sem tóku þátt í Jessup að þessu sinni, að þetta verður fastur liður hjá íslenskum laganemum hér eftir. Keppni í lögfræði? Einhvern kann að undra að það sé hægt að keppa í lögfræði en það er hins vegar hægt. Ekki er þó í raun- inni keppt um hver sé bestur í lög- fræði enda leysa dómarar keppninn- ar ekki úr málinu og dæma ekki um efni þess. Það er keppt í málflutn- ingi. Dómararnir dæma um hæfni málflytjenda til að setja mál sitt skýrlega fram og styðja það þjóð- réttarlegum rökum. Jessup er fyrst og fremst liðakeppni óg það lið sem sigrar hveiju sinni vinnur „Heims- meistaratitil Jessup“. Hins vegar eru málflytjendur einnig dæmdir einstaklingsbundið og sérstök verð- laun eru veitt fyrir stigahæsta ein- staklinginn auk þess sem sérstök verðlaun eru veitt fyrir greinargerð- ir. Jessup er því keppni í því að vera sem bestur „Orator“ eða málflytj- andi. Fyrirkomulag Jessup Þrátt fyrir að málflutningurinn sé það sem mestu máli skiptir þegar út er komið, þá snýst Jessup hins vegar ekki eingöngu um málflutninginn. Áður en að honum kemur verða öll lið að senda frá sér greinargerðir þar sem mál hvors ríkis um sig er stutt lögfræðilegum rökum. Stig fyrir greinargerðimar kemur inn í heild- arstigagjöfina sem sker úr um hvaða lið komast áfram í sjálfri málflutn- ingskeppninni. Málsatvikalýsing er sett fram þar sem hvort ríki um sig setur fram ákveðnar kröfur sem það heldur fram fyrir dómstólnum. Lið verða að halda sig innan þess ramma sem kröfugerðin setur en hafa frjáls- ar hendur um leiðir til rökstuðnings. Athyglisvert var hversu mismunandi lið tóku á álitaefninu. Málið sem til umfjöllunar var í keppninni snerist

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.