Morgunblaðið - 15.06.2000, Síða 61

Morgunblaðið - 15.06.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000 61 ^ í sendiráði fslands í Washington. Sveinn Björnsson sendifulltrúi og kona hans túku á móti íslenska hópnum í fjarveru Jóns Baldvins Hannibals- sonar sendiherra. Keppnislið íslands f.v. Sigríður Hrefna, Heiðar Ásberg og Atli Már. Myndin er tekin fyrir sfðustu keppnina gegn Grikklandi. (a.m.k. að okkar mati) að miklu leyti um skilyrði upplýsts samþykkis til þátttöku í vísindarannsóknum og stærsti hluti okkar greinargerða fór í umfjöllun um þann þátt. Það kom okkur því verulega á óvart að sum liðin minntust varla á slíkt upplýst samþykki í sínum greinargerðum en lögðu mikla áherslu á önnur atriði sem okkur fundust vera lítillar at- hygli verð. T.d. fjallaði eitt liðanna frá Bandaríkjunum nánast eingöngu um einkaleyfi í sinni greinargerð en minntist ekki á upplýst samþykki. Ekki vitum við enn hvernig þeir náðu að tengja einkaleyfi við málið, en lið- ið komst a.m.k. ekki áfram! Þetta sýnir vel hversu ólíkar áherslur eru milli landa og það var mjög skemmti- legt og lærdómsríkt að sjá og heyra önnur sjónarmið. Áherslur liðanna skiptu hins vegar ekki öllu máli þeg- ar í málflutninginn var komið enda var ekki dæmt um efni málsins held- ur um málflutninginn sem slíkan. Samkvæmt reglum Jessup mega lið ekki fá mikla aðstoð við að skrifa greinargerðirnar. Aðstoðin er tak- mörkuð við fræðilega ráðgjöf og heimildaöflun, en samning greinar- gerða er hins vegar alfarið í höndum keppenda. Það er tekið mjög hart á brotum á þessari reglu enda var einu liði vikið úr keppni vegna „of mikillar utanaðkomandi aðstoðar.“ Það eru einnig settar íram strangar for- mkröfur og fá lið refsistig íyrir brot á þeim. Á upplýsingafundi sem hald- inn var daginn áður en keppni hófst var liðum tilkynnt um refsistig vegna greinargerða, en stigaskorið sjálft er ekki gefið upp fyrr en að keppni lok- inni til að auka spennuna. Það er mikilvægt að fylgja ströngum for- mkröfum Jessup því refsistig geta skipt mjög miklu máli. í undanúrslit- unum þurftu dómaramir að athuga sérstaklega hvort heimilt væri að dæma jafntefli þar sem stigin voru hnífjöfn. í slíkri stöðu getur eitt refsistig verið dýrkeypt. Flutt á ensku Keppendur standa vissulega ekki jafnfætis þegar kemur að tungumáh keppninnar, sem er enska. Þrátt fyr- ir það forskot sem enskumælandi löndin hafa óumdeilanlega þá hafa önnur lönd staðið sig mjög vel í Jess- up eins og sést á þvi hvaða lönd hafa sigrað keppnina. I ár var það reynd- ar enskumælandi lið frá lagaskólan- um í Melbourne í Ástralíu sem sigr- aði lið frá Venezúela í úrslitum. Vissulega verða keppendur að vera vel talandi á ensku til að geta flutt málið og svarað spurningum dóm- ara, en hins vegar þá era margir dómaranna ekki með ensku að móð- urmáli og eiga því jafnvel erfiðara með að skilja hraðmæltan Skota heldur en hægfara íslending. Það er því ekki í öllum skilningi betra að geta talað sitt móðurmál þar sem mönnum hættir þá til að tala of hratt og verða óskýrir. Málflutningurinn Daginn fyrir fyrstu keppnina fengum við í hendur greinargerðir þeirra liða sem við áttum að keppa við. Þá fyrst sáum við hvaða áherslur hin liðin höfðu og gátum hagað okkar málflutningi eftir því. Hins vegar var ekki mikið svigrúm til breytinga á ræðum vegna þess að við höfðum að- eins 45 mínútur til málflutnings og urðum að nýta tímann til að koma okkar sjónarmiðum á framfæri auk þess að svara rökum hinna. Við skiptum tímanum þannig að tveir keppendur fluttu hvor um sig u.þ.b. 20 mínútna ræðu í fyrri umferð, en 5 mínútur vora geymdar til andsvara í seinni umferð. Við höfðum hagað undirbúningi með þeim hætti að við voram með tilbúnar ræður sem við kunnum mjög vel. Okkur hafði verið sagt að vera búin undir spumingar dómara og við geymdum því nokkrar mínútur til þess og töldum það duga. Hins vegar hefði fátt getað búið okk- ur undir þær yfirheyrslur sem við fengum þegar í sjálfan málflutning- inn var komið. Það er varla hægt að segja að við höfum nokkum tímann komist í að flytja sjálfar ræðurnar þar sem við voram spurð um leið og við höfðum kynnt okkur og eftir það var málflutningurinn meira eins og munnlegt próf, samtal milli málflytj- anda og dómara. Þetta kom mjög á óvart en hefði kannski ekki þurft að gera það. Jessup er keppni í mál- flutningi, ekki ræðukeppni. Það geta allir lært ræðu utanbókar en í mál- flutningi skiptir mestu að þekkja og skilja málið vel en ekki síður að geta útskýrt það fyrir dómurunum. Dóm- ararnir vora mjög virkir að spyija og í raun ekkert líkir dómuram við Al- þjóðadómstólinn í Haag (sem era eins og „cold fishes“ eins og einn dómarinn orðaði það). Þrátt fyrir að dómararnir gengju hart fram með spumingum og sumar spurninganna hefðu lítil tengsl við málið, þá vora þeir almennt nokkuð sanngjarnir. Fjórar keppnir Við kepptum fjóram sinnum, tvisvar í sókn og tvisvar vörn. Mánu- daginn 3. apríl kepptum við fyrst við Kanada um morguninn og síðan við Rúmeníu seinni partinn. Þetta var erfiður en jafnframt skemmtilegur dagur. Spumingar dómaranna byij- uðu strax eftir 30 sekúndur og þær hættu ekki fyrr en tíminn var úti. Við lærðum mikið á þessum tveimur keppnum og notuðum því vel næsta dag, sem var frídagur, til undirbún- ings fyrir síðari keppnisdaginn. ^ Ræðurnar breyttust mikið eftir fyrri daginn og við æfðum okkur að svara erfiðum og ágengum spumingum dómaranna. Miðvikudaginn 5. apríl kepptum við síðan við Suður-Kóreu og Grikkland. Gengu þær keppnir mun betur fyrir sig en þær fyrri, enda við orðin æfðari og öraggari og betur að okkur en áður. Þegar síð- ustu keppninni lauk, lá það fyrir að bíða eftir tilkynningu um þau 16 lið sem komust í úrslitin. Þangað kom- umst við ekki að þessu sinni en eram sátt við okkar hlut og staðráðin í því að hjálpa til að ári og koma Leifi Eir- íkssyni á toppinn, þar sem hann á heima. Að lokum Lögfræði er ekki bara keppni í heppni, eins og einhver sagði, heldur þarf að leggja á sig mikla vinnu til að taka þátt í og ná árangri í keppni sem þessari. Þeir sem fóra út fyrir hönd Islands að þessu sinni lögðu á sig mikla vinnu en það voru hins vegar margir sem komu að undirbúningi keppninnar og aðstoðuðu okkur við að komast út og gera eins vel og mögulegt var. Við viljum því þakka öllum þeim komu að undirbúningi fyrir keppnina með einum eða öðram hætti. Sérstaklega viljum við þakka Ragnari Tómasi fyrir góða leiðsögn v og frábæra aðstoð bæði úti í Banda- ríkjunum og heima á íslandi. Einnig viljum við þakka Edwin Brown fyrir veitta aðstoð. Edwin á í fyrsta lagi heiðurinn af því að koma íslenskum laganemum í kynni við Jessup keppnina og einnig var aðstoð hans við undirbúninginn ómetanleg. Að síðustu vUjum við þakka öllum þeim fyrirtækjum og opinbera aðilum sem styrktu forina vestur um haf, Leifur Eiríksson og við sem fóram út undir nafni hans, eram þeim mjög þakklát. . --—-- c Samskiptl á hraða Ijóssins Skiptu með einu símtali. 17. og 18. júní kostar aðeins 11,90 kr. að hringja til útlanda. / ■a p W': rm Þú skráir þig hjá okkur í einu símtali og eftir það hringir þú í 00 til útlanda eins og áður - en á lægra verði. Skráðu þig í sírrta 594 4000 eða á islandssimi.is.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.