Morgunblaðið - 17.06.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 17.06.2000, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Helgi Jónsson Álftir í Ólafsfirði Ólafsfirði - Fjöldi álfta hefur gert sig heimakominn við ósinn í Ólafsfirði. Þær voru ekkert að flýja af hólmi þótt ljósmyndari væri í grennd við þær og smellti af í gríð og erg. Samkvæmt heimildum blaðsins voru 18 álftir í Ólafsfirði þegar mest var, en hér gefur að líta nokkrar þeirra í góða veðrinu. Húnvetningar kynna atvinnulífíð Hvammstanga - Atvinnulífssýning verður haldin helgina 24.og 25. júní í og við Félagsheimilið Hvamms- tanga. Sýningin er liður í sumarhá- tíð Vestur Húnvetninga - Björtum nóttum - sem nú er haldin í sjöunda sinn. Á liðnu ári var sett á stofn samstarfsverkefni fjölmargra fyrir- tækja, félaga og einstaklinga í héra- ðinu undir heitinu MARK-HÚN. Framkvæmdastjórinn, Björn Hann- esson, var tekinn tali í tilefni sýn- ingarinnar sem hlotið hefur heitið Atvinna 2000. „Það eru um 55 aðilar sem munu kynna sína þjónustu á sýningunni Atvinna 2000. Sambærileg sýning var hér árið 1997 og þótti takast af- ar vel en hátt á þriðja þúsund manns komu á þá sýningu og var þá mál manna að mjög fjölbreytt at- vinnulíf væri hér í héraðinu. Nú á að gera annað átak í að kynna atvinnulíf héraðsins fyrir íbú- um norðurlands vestra og gestum sem leið eiga um en við eigum von á að hér verði nokkuð mannmargt yfir sýningarhelgina. Sýningin að þessu sinni er töluvert meiri að umfangi en við héldum síðast og þar af leið- andi fjölbreyttari. Ný fyrirtæki hafa verið stofnuð hér á Hvammstanga á síðustu misserum og uppbygging atvinnuhúsnæðis verið stórfelld. ísprjón ehf. flutti í vetur í 1300 m2 húsnæði sem byggt hefur verið yfir starfsemina og þessa dagana er ver- ið að taka í notkun iðngarða, þar sem gert er ráð fyrir nokkrum fjölda fyrirtækja. Má því segja að hér sé mikill hugur í fólki. MARK-HÚN hefur opnað kynn- ingarvef í tengslum við Atvinnu 2000 en slóðin er http/Avww.mark- hun.is. Þar er að finna þau fyrirtæki sem taka þátt í sýningunni. Þar má einnig frnna dagskrá sumarhátíðar- innar Bjartar nætur en sú dagskrá hefur verið kynnt með kynningar- riti sem sent hefur verið víða og liggur einnig frammi á ferðamið- stöðvum víða um land. Margt verð- ur til gamans gert og standa atburð- ir frameftir sumri segir Björn. Þess má geta að fyrri sýningar- daginn, laugardaginn 24. júní, verð- ur hið vinsæla matarhlaðborð hús- freyjanna á Vatnsnesinu haldið. Það hefst kl. 19 og stendur til miðnættis. Að vanda verður margt girnilegt á borðum en einnig óvenjulegir réttir, enda margir frá fyrri tíð þegar hús- mæður við sjávarsíðuna urðu að nýta allt matarkyns sem náttúran ( og bændurnir) lagði þeim í hendur. --------------------- Kosin forseti bæjarstjórnar Arborg-ar Á FUNDI bæjarstjómar Árborgar 14. júní 2000 var kosið í embætti inn- an bæjarstjómar til eins árs. Ingunn Guðmundsdóttir (D) var kosin for- seti bæjarstjórnar en hún var áður formaður bæjarráðs. Kristján Einarsson (B) var kosinn formaður bæjarráðs en aðrir í bæj- arráði eru Samúel Smári Hreggviðs- son (D) og Margrét Ingþórsdóttir (K). Kristján var áður forseti bæjar- stjórnar. Uppákoma 1 Templaranum Fáskrúðsfirði - Ahugahópur um björgun gamla samkomuhússins á Fáskrúðsíirði var nýlega með upp- ákomu í húsinu. Húsið, sem alla tíð hefur gengið undir nafninu Templarinn, var byggt á öldinni sem leið af Góðtemplara- stúkunni Eldingu og var notað sem samkomuhús til ársins 1963. Vom þar haldnar leiksýningar, dansleikir og um tíma vom guðsþjónustur haldnar í því áður en kirkja var reist á Fáskrúðsfirði. Húsið, sem vai' orðið illa farið enda ekki verið notað lengi, er nú að fá nýtt hlutverk þar sem komið hefur verið upp sýningum gamalla muna og mynda frá tíma Fransmanna á Fáskrúðsíirði. Auk þess verður rek- ið kaffihús í húsinu í tengslum við sýningarnar. Áhugahópur sér um verkið Búðahreppur eignaðist húsið fyrir nokkmm áram en hefur nú afhent það áhugahóp sem er að gera það upp. Fyrstu afskipti áhugafólks um björgun hússins vom með bréfi til hreppsnefndar Búðahrepps 30. apríl 1997 þar sem þess var farið á leit að fá húsið afhent til eins árs til að finna því hlutverk og forða því frá frekari skemmdum. Var það samþykkt og hófst þá endurbygging þess. í ávarpi Alberts Eiríkssonar, sem er í hópnum, kom meðal annars fram að margir höfðu lagt hönd á plóg við að gera þetta mögulegt, en Albert hefur lagt mikla vinnu í að afla upp- lýsinga um sögu Fransmanna á Fá- skrúðsfirði. Þrátt fyrir að mikil vinna hafi ver- ið lögð í að standsetja húsið er mikið verk óunnið og allir styrkir vel þegn- ir. í tilefni uppákomunnar söng Bergþór Pálsson franskt lag og Dalabandið tók nokkur lög. Geirasafn gert upp og opnað á Seyðisfírði Hús Ásgeirs Jóns Emilssonar er listaverk út af fyrir sig. Safn til minningar um alþýðu- listamann ÁKVEÐIÐ hefur verið að varð- veita og gera upp hús Ásgeirs Jóns Emilssonar, Geira, á Seyðis- firði og gera að safni til heiðurs og minningar um listamanninn. Ásgeir bjó í litlu húsi á Seyðis- firði og lést þar síðastliðinn vet- ur. Hann var þekktur fyrir lítil listaverk sem hann bjó til úr bjór- dósum og myndaramma og fleira úr sígrarettupökkun. Þá málaði hann töluvert, meðal annars skreytti hann húsið að utan og innan með því að mála á það myndir. I húsinu eru húsgögn og ýmsir munir Ásgeirs og eftir að hann dó komu fram óskir um að húsið yrði Morgunblaðið/Ásdís Geiri var hrifinn af konum og hafði þær í kringum sig í eldhúsinu. varðveitt sem safn. Húsið þarfn- ast töluverðra viðgerða. Tók menningarmiðstöðin Skaftfell að sér að annast varðveisluna og að reyna að afla peninga til að gera við húsið. „Þetta er merkilegt safn að okkar mati og slæmt að tapa því sem Geiri hefur skapað hér,“ segir Gréta Garðarsdóttir framkvæmdastjóri Skaftfells. Geirasafn verður opnað á þjóð- hátiðardaginn. Ferðafólk og aðrir sem áhuga hafa á að skoða það geta snúið sér til menningar- miðstöðvarinnar Skaftfells og fengið leiðsögn um húsið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.