Morgunblaðið - 17.06.2000, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 17.06.2000, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Fyrirhuguð hlutafjár- aukning hjá Netverki Bankar vanmeta kvenkyns frumkvöðla Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. NÚ standa yfir viðræður við 4-5 er- lenda aðila um kaup á hlutafé í Net- verki Plc. og hefur hluthafafundur verið boðaður til að greiða leið þeirra til þess að þvi er fram kemur í bréfi til hluthafa í Netverki. Fyrir hluthafafundinum sem haldinn verður 29. júní munu m.a. liggja tillögur um heimild til aukn- ingar hlutafjár og breytingu á sam- þykktum félagsins. Holberg Más- son, framkvæmdastjóri Netverks, segir í samtali við Morgunblaðið að markmiðið sé að undirbúa félagið fyrir skráningu á markað og að vonir standi til að hún geti farið fram á fyrrihluta næsta árs. Að sögn Holbergs mun heimild til 20% hlutafjáraukningar verða lögð til á fundinum og býst hann við að fjár- magn úr væntanlegum samningum við erlenda fjárfesta muni koma þar til. Þetta muni þó liggja ljósar fyrir á fundinum í lok júní. Auk tillagna um hlutafjáraukn- ingu og breytingu á samþykktum mun liggja fyrir hluthafafundinum tillaga um samræmingu hlutabréfa- flokka. Holberg segir allar tillög- urnar miðast að þvi að undirbúa fé- lagið fyrir skráningu á hlutabréfa- markað. BANKARNIR hafa enn ekki komist að því að konur eru góðir viðskipta- vinir. Það er almennt erfiðara fyrir konur að fá lán í bönkum til að byggja upp fyrirtæki, jafnvel þótt tölur sýni að konur hafa ekki síðri og stundum betri forsendur til að hleypa nýju fyr- irtæki af stokkunum en karlar. Þetta kemur iram í rannsókn, sem sænska atvinnu- og tækniþróunarstofnunin, Nutek hefur nýlega gert í samvinnu við sænskan banka, Föreningsspar- banken. Þegar Nutek kynnti skýrsluna ný- lega fylgdi henni sönn saga úr sænsk- um raunveruleika. Kona nokkur hafði fengið áhugaverða hugmynd að fyrirtæki og fór nú í bankann til að freista þess að fá lán. Ekkert gekk og henni var vísað heim. Hún undirbjó sig betur, fór aftur en allt fór á sama veg. Og í þriðja skipti fór enn á sama veg. Þá brá hún á það heillaráð að senda manninn sinn í bankann og láta hann kynna hugmyndina sem sína eigin. Og viti menn! Eiginmaðurinn fékk lánið eins og ekkert væri. Með skýrsluna í höndunum má þó glöggt sjá að bankamir þurfa hafa engar haldgóðar ástæður til að hika við að veita konum lán. Konur, sem freista þess að stofna fyrirtæki, hafa að meðaltali betri menntun en karlar, sem stofna fyrirtæki. Og konur hafa líka þann kost að þær eru samvisku- samari þegar að því kemur að greiða lánin. En hvemig horfa málin þá við bönkunum? Ráðin, sem bankaráð- gjafarnir gefa er að konur eigi ekki að vera neitt að draga fjöður yfir að hug- myndir þeirra séu góðar. Ef þær virðast ekki trúa á þær, hver á þá að gera það? Þær eiga að gera eins og karlarnir: Vera sannfærðar um eigið ágæti og hugmyndar sinnar. En þær verða einnig að gera sér grein fyrir að efnahagslegu hliðunum, samkeppn- inni, sem þær mæta hugsanlega og átta sig á að það er ekkert tóm- stundastarf að reka fyrirtæki heldur mikil vinna og oft meira en það. En þessi ráð sýna einnig að kon- urnar skortir einmitt oft þá bjarg- föstu sannfæringu, sem karlar í sömu aðstöðu hafa, eða að þær em jarð- bundnari og átta sig betur á að það getur auðvitað bragðið til beggja vona. Og það ríkir ákveðin tortryggni á konur því þær era líklegri til að vera bundnari yfir búi og bömum en karlar. Það gerir konum einnig erfitt fyrir að viðskiptahugmyndii’ þeirra era oft annars eðlis en hugmyndir karla. Og þar er hængurinn oft sá að í bönkun- um era það karlar sem meta hug- myndimar. Konur era oft með hug- myndir að litlum þjónustufyrir- tækjum og síður með hátæknihug- myndir. Bankarnir eiga til dæmis ekki auðvelt með að taka konu, sem nýlega hefur lært heilun og ætlar nú að opna stofu í kringum slíka starf- semi. Og ef konan er í þokkabót í doppóttum kjól með fléttur þá verða viðtökurnar aðrar en dökkklæddur karl með hálsbindi fær. En bankamir hafa einnig eftir nokkur að slægjast. Konur era að meðaltali samviskusamari í að borga lán sín. Og þeim konum, sem stunda eigin rekstur fer einnig fjölgandi. I Svíþjóð era það konur, sem hefja rekstur þrjátíu prósent nýrra fyrh-- tækja. Alveg síðan 1997 hefur sænski Föreningssparbanken rekið sérstaka deild, sem einbeitir sér einkum og sér í lagi að kvenkyns viðskiptavinum. Það hefur gefið góða raun. Það veitir heldur ekki af því kann- anir sýna að flestir kvenkyns atvinnu- rekendur era óánægðir með bankana og þær móttökur sem þar er að fá. En konumar þurfa ekki á neinni sérmeðhöndlun að halda. Þeim dugir að bankamir taki þeim faglega og af hlutlægni, rétt eins og körlunum. ------------------------- Tilboði lægst- bjóðanda hafnað TILBOÐI íslenskra aðalverktaka hf. að fjárhæð 1.310.505.224 krónur í innréttingar og kerfi vegna stækk- unar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar var tekið en tilboði Orkuvirkis-Gils ehf., upp á 1.287.375.116 krónur, var hafnað. Samkvæmt upplýsingum frá Framkvæmdasýslu ríkisins var það mat verkkaupa að lægstbjóðandi, Orkuvirki-Gils, uppfyllti ekki þau skilyrði sem sett vora, m.a. um reynslu, fjárhagsstöðu, kostnaðar- umfang verksins og tímamörk. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 1.003.814.358 krónur og reyndist til- boð Orkuvirkis-Gils vera 28,2% hærra en áætlun hljóðaði upp á. Til- boð í AV var 30,6% hærra en kostn- aðaráætlunin. Auk þess gerði Há- virki sf. tilboð í verkið upp á 1.341.762.752 krónur sem er 33,7% hærra en kostnaðaráætlunin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.