Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.06.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 59 SVAVA SIG URÐARDÓTTIR + Svava Sigurðar- dóttir fæddist á Signýjarstöðum í Hálsasveit 28. júlí 1909. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 9. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Innri- Hólmskirkju 16. júm'. Með nokkrum orðum langar mig að minnast Svövu ömmusystur minnar, sem var ómis- sandi að kynnast og hafa með í æsku- minningum. Þegar ég hugsa til Svövu frá því hún var á Þaravöllum, man ég eftir henni sitjandi við eldhúsgluggann. Svipmikil kona með miklar augabrýr og sítt fléttað hár, prjónandi eða strjúkandi ketti. Stundum þegar við Gugga opnuðum hurð- ina á Þaravöllum heyrðist vælið af stilli- myndinni úr sjónvarp- inu. Inni í stofu sat Svava og beið eftir dag- skránni. Ein af mínum upp- áhalds stundum með Svövu var Þorláks- messukvöld. Ég fór inn í Gerði með pabba og Beisó bróður, um leið og við komum inn i Gerði suðaði ég um að fá að fara til Guggu inn að Hnúki. Ég hljóp yfir túnin en ákvað að koma við á Þara- völlum og kasta kveðju á Svövu. Stundum þegar maður hitti Svövu nennti hún ekki að tala við mann og stundum spjallaði hún og spjallaði. Þá var hún með skemmtilegustu manneskjum sem éghef kynnst. Þetta kvöld var hún svoleiðis. Klukkutímamir fuku eins og gerist þegar er gaman. Svo ég rétt náði að heilsa fólkinu á Hnúk áður en ég var sótt. Svo flutti Svava inn að Hnúki til Rúnu, Nonna, Guggu, Hönnu M. og Siggu. Janúar ’88 flutti hún á Dval- arheimilið Höfða á Akranesi. Á Höfða sat hún oft hjá jukkunni sinni og fylgdist með fólkinu sem var á ferðinni. Beit í efri vörina með örfá- um tönnunum sínum, kleip stundum í skinnið á handarbakinu og horfði á það jafna sig aftur. Ég vil þakka ykkur öllum á Höfða fyrir að hafa verið svona einstaklega góð við Svövu. Það var alveg sér- stakt. Svava mín, Inga mín hélt mikið upp á þig. Þú sagðir mér oft svolítið stolt, að hún héti Inga eins og systir þín; sem var þér greinilega kær. Ég veit það verður vel tekið á móti þér, foreldrar, systkini og sérstak- lega Siggi í Gerði. Kveð ég þig eins og þú kvaddir alltaf „Ég bið að heilsa til þín“. Ása Jóna og Inga Lísa. LOVISA GUÐMUNDSDÓTTIR + Lovísa Guð- mundsdóttir fæddist í Vallarhjá- leigu í Gaulveijabæj- arhreppi 30. septem- ber 1910. Hún lést í Vestmannaeyjum 29. maí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Landa- kirkju 8. júní. Kær móðursystir mín, Lovísa Guðrún Guðmundsdóttir, er látin á 90. aldursári. Lovísa, sem alltaf var kölluð Lúlla í minni fjölskyldu, var önnur í röð sjö systkina sem lifðu, en tvö létust í frumbemsku. Lúlla var vart af unglingsaldri þegar hún missti föður sinn, og móður tíu árum síðar. Þurfti hún því snemma að taka á sig mikla ábyrð við umönn- un yngri systkina sinna. Systumar vom aðeins tvær, móðir mín Viktoría Kristín og Lúlla. Var mikill kærleikur með þeim og fjöl- skyldum þeirra og bar þar aldrei skugga á. Það veit ég að systurnar hefðu kosið að hittast oftar en þær gerðu en ekki var auðvelt fyrir barn- marga húsmóður í sveit að fara frá börnum og búi til Vestmannaeyja þar sem Lúlla bjó. Ekki var heldur auðhlaupið fyrir Lúllu að skreppa til lands þar sem hún hafði árið 1943 tekið að sér þá miklu ábyrgð að sjá um heimili fyrir ekkil með fimm böm, allt frá mánaðargömlu hinu yngsta og það elsta rétt komið yfir fermingu. Én þegar heimsóknir tók- ust man ég að það var sönn hátíð í bæ. Það hefði ekki hver sem var valdið þessu stóra og krefjandi hlut- verki en fyrri reynsla hennar í lífinu hefur þá komið að góðu gagni. Lúlla ílengdist á Sandfelli og hóf sambúð með Ingibergi Gíslasyni, foður barn- anna fimm, og bjuggu þau saman Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. alla tíð þar til Ingiberg- ur lést árið 1987. Þau eignuðust tvær yndis- legai' dætur, Guðrúnu og Guðmundu, sem mjög ánægjulegt hefur verið að rækta frænd- semi við. Þegar ég var stelpa var það mér mikið gleðiefni að fá að heim- sækja Lúllu og fjöl- skyldu. Það var mjög vel tekið á móti mér og hjartahlýja fólksins mikil í Mtla húsinu á SandfelU, sem stóð við Vestmannabraut. Sama má segja um síðari heimsóknir þangað. Lúlla var mikil hannyrðakona og bjó hún til marga fallega hluti. Við systkinin fengum oft fallegar gjafir frá henni, sem sýndu hver Msta- manneskja hún var í höndunum. Þegar við vorum böm var tilhlökk- unin oft mikil á aðfangadagskvöld að opna jólapakkana frá Sandfelli. Það brást ekki að upp úr þeim kom alltaf eitthvað óvænt sem heiilaði bams- hugann. Eftir gosið í Eyjum fluttu Lúlla og Ingibergur til Guðrúnar dóttur sinn- ar og fjölskyldu hennar, sem gerði þeim kleift að halda heimili út af fyr- ir sig. Eftir að Ingibergur lést tók Lúlla þátt í starfi eldri borgara í Vest- mannaeyjum og ferðaðist með þeim á sumrin meðan heilsan leyfði. Éinn- ig heimsótti hún Guðmundu dóttur sína og fjölskyldu hennar til Stöðvar- fjarðar og dvaldi oft hjá henni hluta úr sumri meðan hún hafði heilsu og þrek til að takast á hendur langa ferð. Mikil hlýja stafaði af nærveru hennar og sóttust margir eftir að hitta hana þegar hún kom upp á land. Lúlla var lítillát og vildi aldrei láta hafa íyrir sér; kunni sjálf betur \úð að veita öðrum. Hún var hæglát og rólynd kona, sem hægt var að treysta í hvívetna. Þar sem Lúlla bar afar mikla um- hyggju fyrir fjölskyldu sinni var það mikið áfall fyrir hana, sem og alla aðra er tii þekktu, þegar hún missti elskulega dótturdóttur sína í blóma lífsins. Anna María hefur örugglega tekið vel á móti ömmu sinni. Dætrum, fósturbömum og fjöl- skyldum þeirra votta systurbörn hennar frá Björk sína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Lovísu Guð- mundsdóttur. Ólaffa Jónsdóttir. Þegar andlát ber að höndum Önnumst aila þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. ' ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ' Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Utfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útf ararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. I Sverrir I Einarsson I útfararsijóri, \ % Jfsími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu, móður, dóttur, systur og mágkonu, BRYNDÍSAR ERNU GARÐARSDÓTTUR, Frostafold 131, Reykjavík. Gennady Tereshenko, Magnús Þór Guðjónsson, Guðrún Magnúsdóttir. Sigurborg E. Garðarsdóttir, Mark Zítaní Ásdís E. Garðarsdóttir, Svanur Tryggvason, Hafsteinn Þ. Garðason, Snjólaug Bragadóttir, Hafdís B. Hannesdóttir, Stefán Kristjánsson, Guðrún Jónasdóttir og börn. h + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs sonar okkar, dóttursonar, bróðurs, mágs og frænda, GUÐJÓNS INGA MAGNÚSSONAR, Víðivöllum 6, Selfossi. Guð blessi ykkur öll. Magnús Sigurðsson, Ólöf Kristjánsdóttir, fris Björk Magnúsdóttir, Ólöf Ósk Magnúsdóttir, Helga Skúla Magnúsdóttir, Þorsteinn Magnússon, Aðalheíður B. Birgisdóttir, Ágúst Guðjónsson, Jón Ari Guðbjartsson, Steindór Guðmundsson, Arnar Þór Sveinsson, Þóra S. Jónsdóttir og frændsystkini. + Innilegar þakkir til allra, er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, MATTHILDAR JÚLÍÖNU SÓFUSDÓTTUR frá Drangsnesi, Suðurgötu 121, Akranesi, sem lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 24. maí sl. Magnús Bakkmann Andrésson, Sófus Magnússon, Gunnfríður Magnúsdóttir, Andrés Magnússon, Súsanna Ernudóttir, barnabörn og langömmuböm + Innilegar þakkir fyrir hlýhug við andlát og útför móðursystur minnar og frænku okkar, KRISTBJARGAR ÞORVARÐARDÓTTUR, Fannborg 1, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við Jóni Eyjólfi Jóns- syni lækni og hjúkrunarfólki á deildum 32A og 32B á Landspítalanum. Heiðveig Guðmundsdóttir og frændsystkini hinnar látnu. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and- lát og útför frænda okkar, DAVÍÐS ÁSMUNDSSONAR, Laufásvegi 18. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild B-7 á Landspítalanum í Fossvogi. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir, Jón Reynir Magnússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.