Morgunblaðið - 17.06.2000, Síða 79

Morgunblaðið - 17.06.2000, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 79 Er þetta siðmenn- ing? Frá Maríu Súsönnu Hiller: ÉG FINN mig knúna til að skrifa um leiðindamál sem hrjáir þjóðina um þessar mundir, það er að segja verkfall Sleipnismanna. Undarlegt þykir mér að umræð- unni um þetta mikla vandamál hef- ur verið haldið í algjöru lágmarki, þar sem mikill fjöldi manna reiðir sig daglega á Almenningsvagna, og orsakar þetta því mikla erfið- leika fyrir þá sem ekki hafa bíl til umráða. Það er skömm að því að ekkert hefur verið gert til að enda þetta verkfail, engar samningaviðræður eftir verkfall sem varað hefur í rúma viku, og veldur svo mörgum einstaklingum erfiðleikum. Ríkisstjórnin kærir sig augljós- lega kollótta, enda hafa eflaust all- ir hinu hátekju meðlimir ríkis- stjórnar bíl til umráða, og sjá því vandamálið sem „minniháttar". Verkfallið bitnar að allramestu leyti á þeim sem minnst mega sín í samfélaginu, öldruðum, öryrkjum, námsmönnum, o.s.frv, sem eru neyddir til að greiða fyi-ir leigubíla daglega, þrátt fyrir að hafa engin tök á því fjárhagslega. Þess má til dæmis geta að ör- yrkjar hafa gjarnan um 60 þúsund krónur í mánaðartekjur. Sé leigu- bíll tekinn til og frá vinnustað í 22 daga, sem er algengur fjöldi vinnudaga á mánuði, nemur upp- hæðin sem greiða þarf u.þ.b. 70.000 krónum. Ég held að þetta segi sig sjálft. Ég er engan veginn að setja út á Sleipnismenn, það er réttur hvers manns að krefjast þess sem hann telur sig eiga skilið, og það er á allra vitorði að bílstjórar hafa ekki há laun. En vandamálið er, að samgöngu- mál eru ákaflega mikilvæg, og því get ég ekki annað en álasað ríkis- stjórn okkar og meðlimum í bæj- arstjórn Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar, fyrir það sem er hreint og beint út sagt sjálfselska, leti og ófyrirgefanlegt kæruleysi. Þetta gengur ekki upp, það er okkur sem ekki höfum bíl til um- ráða ekki mögulegt að eyða því sem nemur mánaðarlaunum til að komast á nauðsynlegustu staði. Verkföll eiga sér alltaf stað, en að ekkert skuli hafa verið gert, bara alls ekki neitt. Engar samn- ingaviðræður, ekki neitt. Hver ber ábyrgð á þessu spyr ég? Og hver er hugsunin á bakvið þetta, að bjóða fólki upp á þetta? Þeir sem hafa minna fé á milli handanna eru skotspónn vanda- málsins, og virðist mér sem verið sé að traðka á þeim þjóðfélagshópi og sýna honum algjört virðingar- leysi. Og það sem vekur hjá mér mest- ar spurningar er sú staðreynd eð enginn berst á móti, enginn stend- ur á rétti sínum og krefst aðgerða af hálfu valdhafa. Þar að auki á þess ekki að vera þörf, vandamál sem koma upp í þjóðfélaginu, einkum og sér í lagi af þessum toga, á að leysa sem fyrst, en ekkert hefur verið gert, og ég á engin orð til að lýsa reiði minni og vonbrigðum með stöðu mála. Ég minnist verkfalls sjómanna fyrir allnokkru síðan. Þá voru samningaviðræður í gangi myrkr- anna á milli. Það var sem sé talið mikilvægt, en núverandi vandamál ekki. Þetta á ekki að geta átt sé stað í siðmenningu, og dregur þessi at- burður verulega úr trú minni á ríkisstjórnina og á þetta þjóðfélag okkar sem við köllum siðmenntað. Og því get ég ekki annað en spurt sjálfa mig, hver er orsökin? MARÍA SÚSANNA HILLER, Kaldaseli 15, Reykjavík. Nvtt hnisu-ocp hrefmkjö*. odviirqeisladiskqr. úrvalaf leikfönqum og gasfvlltar blöörur í Kolaportinuá 17. iúní Utimarkaður og ókeypis heilun í Kolaportinu á 17. júni Mannlífið á markaðstorgi Kolaportsins er fiölbreytt o^ skemmtilegt. í tilefni af 17. júní er í gangi útimarkaður þar sem hægt er að smakka og kaupa hnísukjöt og fá gasfylltar blöðrur. Innandyra er í gangi líflegur og fjölbreyttur markaður á kompudóti, antiki, bókum, fatnaði, skarti, matvælum og ótal fleiru. Bergur Björnsson er þar með ókeypis heilun fyrii þá sem eru illa haldnir af \ streitu eða tilfinningalegri spennu. Það verður góð stemmning í Kolaportinuumhelgina. A 17. júni verður í gangi skemmtilegur útimarkaður með fjölbreyttu sniði og innandyra verður markaðs- umhverfí með góðri stemmningu. Ókeypis heiiun Bergur Bjömsson reikimeistari mun ásamt nemendum sínum um þessa og næstu helgar helgar bjóða gestum Kolaportsins upp á heilun eða reiki íyrir þá sem vilja. Reiki getur haft mikil og jákvæð áhrif á fólk, en þama er um að ræða jákvæða orku sem hver og einn móttekur ffá reikimeistara eftir eigin þörfum og vinnur gegn streitu og tilfinningalegri spennu. Hver athöfh getur tekið 15 til 20 mínútur og er ókeypis, en tekið er við frjálsum ffamlögum. Þetta getur einnig verið kynning fyrir þá sem hafa áhuga á að læra reiki, en Reikimiðstöðin býður upp á námskeið í þeim efnum. Sérstök saga í hverjum hlut í Kolaportinu er hægt að gramsa í gömlum hlutum sem hver hefúr sina sögu. Líttu við og skoðaðu gamlan lampa, fallegan veggplatta eða glansandi postulínsstyttu og veltu fyrir þér hver hafí átt þessa hluti. Þessir hlutir hafa prýtt stofu einhvers sem lifað hefúr fjölbreyttu og jafhvel viðburðarríku lífi. Það væri gaman ef þesir hlutir gætu sagt sina sögu. Hvað þeir hafi upplifað í mannlífi fyrri eigenda? Lampar, teppi, skart og föt í Kolaportinu er að finna fjölbreytt úrval af nýrri vöru sem er yfirleitt á mjög hagstæðu verði. Fyrir þá sem vilja gera hagstæð kaup í lömpum, teppum, skarti, fatnaði á börn, unglinga og fullorðna, skóm, gjafavöru, leikföngum, kvenntöskum eða geisladiskum er upplagt að líta við í Kolaportinu. Hvers vegna ætti að borga allt að þrisvar sinnum meira fyrir sama hlut og annarstaðar. Svartfuglsegg og hókarl í Matvælamarkað- inum er allar helgar boðið upp á ljúffeng einstök sérunnin íslensk matvæli á verði sem slær flest út. Hákarl, svartfúglsegg, harðfiskur, tilbúnir réttir s.s. saltfiskbollur með hvítlaukssósu, fylltar fiskirúllur með ostasósu, plokkfiskur eða marineraður saltfiskur. Fallegt handverk Fallegt handverk kemur oft í Kolaportið og konumar á mynd- inni hér til hægri komu fyrir viku alla leið frá Akureyri til að selja sína fallegu hluti. Flestar helgar má finna handverk af ýmsum tagi í Kolaportinu og þar eru oft glæsilegir hlutir á ferðinni. Handverkskonur frá Akureyri sem komu fyrir nokkrum vikum til að selja í Kolaportinu fallega handunna hluti afýmsu tagi. -N -.--v- l' ‘ , . W<..' ' A-N ;: \ Ódýrt, einstakt og ævintýri líkast HAFGULL GK umboð Beinhreinsuð laxaflök á grillið, rababari eg svnrffugl. Bleikjuflök á grillið Sallfiskbollur með hvítlaukssósu. Fylltar fiskirúllur með ostasósu. Marineraður saltfiskur. Plokkfiskur. Ný sending af töskum úr leðri, plasti, taui og rúskinni. Allar Töskur á kr. 1200,- Jf.lPlfTTl 128 vörutegundir í leikföngum, gjafavoru, kristal og fleiru. Vönduð vara ú vægu verði. - beint frá Ameríku Geisladiskar á kr. 300, Disney PC tölvuleikir á kr. 500 og Playstation tölvuleikir kr. lOOO Upplifðu hina einstöku stemmningu sem er að finna i Kolaportinu. Gramsaðu í kompudótinu, verslaðu ódýrt í matinn, fáðu þér gott að borða eða spjallaðu við gömlu kunningjana. HULDA EFSTUBUÐ GVENDUR DÚLLARI TEPPI Siffon jakkar, mussur og fleira. Lítil og stór númer. Álnovara í miklu úrvali á frábæru verði Nancy dúkkuhús og brúða á aðeins kr. 999 (rétt verð kr. 5000). Tískuúr og flott sól- gleraugu á frábæru verði Mikið úrval af hekluðum ung- barnapeysum, vöggusettum, náttfötum, handprjónuðum dúkkukjólum og fleiru. Bestur i bókum. 50% afsláttur af öllum bókum. Aðeins um þessa helgi. Verið velkomin. Mikið úrval af dýrum austur- lenskum teppum á lágu verði. Sölusvæði fyrir nýja vöru er opið á föstudögum kl. 13:00-17:00. Um helgar bætist kompudótlð og matvælamarkaðurinn við. Allt markaðstorgið er oþið laugardaga og sunnudaga kl. 11:00-17:00. m m t
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.