Morgunblaðið - 17.06.2000, Side 84

Morgunblaðið - 17.06.2000, Side 84
84 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ $30)j ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stórn s</iðii kt. 1U.00 GLANNI GLÆPUR í LATABÆ Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson. Sun. 18/6 kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning leikársins. Miðasala Þjóðleikhússins lokar vegna sumarleyfa frá og með 21. júní. Opnar aftur 1. september. Sala áskriftarkorta auglýst í lok ágúst. GLEÐILEGT SUMAR! thore v @ theatre.is — www.Ieikhusid.Ls trLEIKFÉLAc'lá^ RF.YKJAVÍKURJ® BORGARLEIKHUSIÐ Stóra svið: Kysstu mig Kata Söngleikur eftir Cole Porter, Sam og Bellu Spewack lau. 24/6 kl. 19.00 örfá sæti laus sun. 25/6 ki. 19.00 örfá sæti laus Ath.: Síðustu svninaar Sjáið allt um Kötu á www.borgarleikhus.is Ósóttar miðapantanir seldar daglega. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Simapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000, fax 568 0383. Bandalag Islenskra k' Leikfélaga \g| Skagaleikflokkurinn sýnir „LIFÐU“ eftir Kristján Kristjánsson í Bjarnalaug, Akranesi. sunnudag 18/6 kl. 20 Miðapantanir f síma 431 3360. Í EIKFEIAG ISIANDS KaífiLeihliú$i5 Vestufgötu 3 Bannað að blóta í brúðarkjól miðvikudag 21. júní kl. 21 föstudaginn 23. júní kl. 21 Fáar sýningar eftir Ljúffengur málsverður fyrir sýninguna MIÐASALA í síma 551 9055. Wt KflstflUNM 552, 3OOO Sjeikspír eins og hann leggur sig lau. 24/6 kl. 20 fös. 30/6 kl. 20 530 3O3O Stjömur á morgunhimni ’ sun 18/6 kl. 20 laus sæti Siðasta sýning í sumar Miðasalan er opin frá kl. 12—18 alla virka daga, kl. 14-18 laugardaga og fram að sýningu sýningar- daga. Miðar óskast sóttir I viðkomandi leikhús (Loftkastalinn/lðnó). flth. Úsóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu. www.landsbanki.is Tilboð til Nómufélaga Internetkaf f i thomsen Frítt fyrir Nómufélaga 15% afsláttur af myndböndum hjá solumyndir.is Ýmis önnur tilboð og afslættir bjóðast klúbbfélögum Landsbanka íslands hf. sem finna má á heimasíðu bankans, www.landsbanki.is L Landsbankinn | Opið frá 9 til 19 fAJœturgatmrisMssjeoso f í kvöld leika hinir frábæru !^l Stefán P. og Pétur p *■ Happdrætti um Græna JÉ1|| kortið í Bandaríkjunum Lærðu, starfaðu og njóttu lífsins í Bandaríkjunum 50.000 Græn kort í boði. Möguleiki á ríkisborgararétti. Frestur fyrir DV-2002 verður tilkynntur seinna... Ekki missa af því! ÓKEYPIS OPINBERAR upplýsingar - sendiö nafn, heiti fræðingarlands og fullt heimilsfang til: National Visa Registry PMB 725, 16161 Ventura Blvd., Encino, CA 91436 USA Eða sækið um á: www.nationaIvisaregistry.com Netfang: info@nationalvisaregistry.com Sími: 001 818 784 4618 HflRMONIKUBflLL Gleðilega þjóðhátfð Dansinn dunar dátt frá kl. 22.00 f kvöld í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur leika fyrir dansi og Ragnheiður Hauksdóttir syngur. Allir velkomnir, ungir sem aldnir FÓLK í FRÉTTUM Sálarmenn afklæða eitt laga sinna á órafmögnuðum tónleikum. Úr hljóðverinu í leit að full- komnu popplagi Síðustu tvö ár hafa ekki verið Sálarlaus. Þetta ár verður það ekki heldur. Birgir •• Orn Steinarsson hitti Guðmund Jónsson, manninn sem heldur Sálinni í þjóðlífinu. ÞEGAR kviknar á deginum og í líf- inu ljós hljótum við að vera hlusta á (þjóðar-) Sálina hans Jóns míns. Hljómsveitin er orðin það samvaxin þjóðinni að í dag er nánast hægt að fullyrða að allir Islendingar sem ein- hverjum tökum hafa náð á tungu- málinu hafi raulað eitthvert laga þeirra á ævi sinni. Ef tónlist þeirra gæfi frá sér einhvern lit þá væri það blái liturinn í íslenska fánanum. Þó svo að hljómsveitin hafi ekki gefið frá sér breiðskífu stútfulla af nýjum lögum í fimm ár hefur hún líklega aldrei verið vinsælli en nú. Utgáfa safnplötunnar „Gullna Hlið- ið“ var best heppnaða hjartahnoð sem sveitin hefði getað fengið og eft- ir að sú tvíréttaða þjóðhöfðingja- slagaramáltíð hafði stökkbreyst í gull var ljóst að hjörtu hljómsveitar- innar og þjóðarinnar sló í takt. Um síðustu jól deyfðu þeir félagar ljósin, kveiktu á kertunum, drógu út rauðvínsflöskuna og færðu okkur eftirréttinn. Lög þeirra voru færð úr spjörunum í náttsloppana eina sam- an og þjóðin andvarpaði af sælu. Nú er afmælismáltíðinni lokið og komið er að þvi að taka upp pakkana. I ár fáum við þann stóra frá hljómsveit- inni. Kúnst að taka sér frí „Þessar upptökur eru fyrir stóra plötu sem kemur út núna í haust,“ segir Guðmundur Jónsson, gítar- leikari og aðallagahöfundur Sálar- innar. „Þetta verður fyrsta stóra hljóðversplatan í fimm ár. Við byrj- uðum að undirbúa hana í janúar á þessu ári.“ Síðasta hljóðversplata þeirra fé- laga hét „Sól um nótt“ og var hún gefin út í október árið 1995. „Við höfum auðvitað gefið út ný lög á safnplötum og á órafmögnuðu plötunni síðasta haust. Þannig að við höfum örugglega gefið út nægt efni til þess að fylla stóra plötu á þessum fímm árum. Þetta eru 12 -13 lög hér og þar.“ Þó svo að platan verði ekki gefin út fyrr en í haust ætlar hljómsveitin að sleppa tveimur lögum út á safn- plötuna „Svona er sumrið 2000“ sem kemur í verslanir 3. júlí. Hafa þessar vinsældir síðustu tvö ár komið hljómsveitarmeðlimum á óvart? „Já, þetta er búið að vera alveg með ólíkindum og kemur okkur mik- ið á óvart. Þetta er svipaður tími og þegar hljómsveitin var hve vinsæl- ust, fyrir 7-8 árum. Þá vorum við meira unglingaband. Við höfum allt- af verið duglegir við það að spila en það er líka kúnst að taka sér frí.“ Er það þá mikilvægur hluti af ferlinu? „Já, sérstaklega þegar þú ert í 12 ára gamalli hljómsveit eins og við erum. Fyrstu 5 árin gáfum við út plötu á hverju ári og spiluðum hverja helgi. Hljómsveitin hefur aldrei hætt. Við tókum okkur 1-2 ára pásu eftir þessi fyrstu 5 ár. Þá sprakk mórallinn og allt fór til fjandans svo við skildum áður en vinskapurinn slitnaði. Þessi ákvörð- un að taka því rólega milli syrpna kom upp frá því.“ Það er öllum ljóst að eins miklar væntingar hafa sjaldan verið gerðar til Sálarplötu. „Það er nokkurnveginn eins og þessi plata sem er að koma núna sé önnur platan okkar. Við erum að drepast úr stressi við það að fylgja eftir þessari velgengni." Viðtökurnar á nýjasta lagi hljóm- sveitarinnar eru þó það góðar að óhætt er að segja að útlitið sé gott. En það er aldrei verra að vera til- búinn í slaginn. „Við erum búnir að semja 18 lög núna þannig að það er úr nægu að velja, það hefur aldrei verið eins mikill kraftur í bandinu.“ Eins og áður kom fram semur Guðmundur flest lögin en einnig eru þrjú nýju laganna eftir Jens Hans- son, saxófóns- og hljómborðsleik- ara. I gegnum árin hefur þó Sálin sýnt á sér margar hliðar og spratt sú djarfasta líklegast fram á plötunni „Þessi þungu högg“ þar sem laga- smíðarnar voru með örlítið öðruvísi sniði en áður. Hverju megum við eiga von á með þessari nýju skífu? „Platan er bara á framleiðslustig- inu þessa dagana,“ svarar Guð- mundur og blaðamaður áttar sig á því að í rauninni getur enginn vitað hvernig afkvæmi sitt mun líta út fyrr en það er fætt. „Hún verður all- avega jafn melódísk og aðrar plötur. Ástæðan fyrir því að „Þessi þungu högg“ var svo sérstök var sú að það var enginn einn sem samdi lögin. Við mættum bara niður í æfingahús- næði og fórum ekkert út fyrr en það var komið lag sem við höfðum djammað saman. Við gengum út frá því að hafa þá plötu rokkaða, þannig að önnur hljóðfæri fengu að víkja fyrir gítörunum í hljóðblönduninni. A þessari plötu ætlum við að finna nýjan hljóm. Við erum alltaf að reyna aðsemja hið fullkomna popp- lag. Það hefur alltaf verið útgangs- punktur þessarar hljómsveitar." Skallað, stangað og spyrnt SÉRKENNILEG mynd var sýnd á ríkisrásinni að kvöldi 8. júní. Þar lék aðalhlutverk leikari, sem búið var eiginlega að afskrifa að gæti leikið nokkurtíma framar á æv- inni, eftir að hann féll af hestbaki og lamaðist allur, nema hvað hann getur hreyft höfuð- ið lítillega. Þetta var Christopher Reeve. í kvik- myndinni situr hann lamaður í sín- um stól og má sig ekki hræra, en getur læst dyrum og stjórnað lyft- um með því að blása í rör sem er sveigt að munni hans. Þennan búnað notar hann í myndinni og í raunveruleikanum. Myndin heitir Glugginn á bakhliðinni, en Reeve sér innum gluggana og fylgist með sér til dægrastyttingar ýmslegu basli íbúanna. Það sérkennilega við þessa mynd er, að hlutverkum er nokkuð snúið við og tekst alveg ágætlega. Vegna fötlunar Reeve verður myndin að koma til hans, en ekki eins og í venjulegum myndum, að leikarinn kemur til myndavélarinnar. Reeve fer vel með hlutverkið þótt hann geti lítið beitt röddinni og enn minna hreyft höfuð. Og þegar fílefldur bófinn sækir að honum blæs sá fatlaði bara í rörið og villir um fyrir hon- um, en litlu munar þegar bófinn ætlar að stúta honum með því að skera á öndunarrörið. Rúnar Gunnarsson er tekinn við dagskrái’stjórn hjá ríkiskassanum og er lentur nú þegar í fótboltag- eðveikinni. Samt hefur honum tek- ist að setja mark sitt á dagskrána. Meira hefur verið um innlenda þætti og geðslegra erlent efni en hjá undanförnum þremur dagskrárstjórum, þótt er- lenda efnið eigi lítið að geta breyst vegna innkaupasiða. Ameríska efnið er keypt inn í tíumyndapökk- um og látin ein góð mynd fylgja pakkanum til að gera hann seljan- legri. Oft eru þessar myndir bara rusl, eða þá amerísku þættirnir, sem hingað eru keyptir um hegð- un unglinga í Bandaríkjunum og okkur varðar bara hreint ekkert um. Við erum með nóg vandamál fyrir. Vonandi tekist Rúnari að hrinda af okkur vitlausu innkaupa- okri Gyðinga í New York, en þeir ráða mestu í kvikmyndaheiminum vestra um þessar mundir. Gaman hefur verið að upprifjun- inni frá hernámsárunum undir stjórn Helga Jónssonar. Við höf- um alltof lítið sinnt þessum tíma í þjóðarsögunni, svo einstæður sem hann var. Reynir Oddsson gerði kvikmyndina Hernámsárin og tókst bara sæmilega, annars var Reynir merkur brautryðjandi í ís- lenskri kvikmyndagerð. Nú ættu einhverjir fullvaxnir menn og full- þroskaðir að taka að sér að gera kvikmynd um hernámsárin á með- an minningin vakir. Þá er komið að helstu menning- arþörfum Islendinga ef marka má dagskrárgerð sjónvarpsins og samsetningu hennar. Enn er ríkis- kassinn lagstur í djúphugsaða knattspyrnu og leggur um leið undir sig fasta dagskrárliði eins og fréttir, sem greiðendur sjónvarps- gjalda borga fyrir. Þetta er í ann- að eða þriðja sinn, sem sjónvarpið varpar af sér „klæðum" (fréttum) eins og mannegal poppkvinna, af því einhverjir eru að spila fótbolta. Það ætti hreinlega að athuga sál- arheilbrigði þeirra sem þessu ráða - þetta er nú einu sinni stöð ríkis- ins, en ekki stöð Jóns Ólafssonar og henni ber að flytja þjóðinni fréttir en ekki öskur og óhlóð og trumbuslátt af erlendum fótbolta- völlum. I stað heimsfrétta situr einhver aulinn og þylur um prívat- hetju sína: Hann skallar, stangar og spyrnir, en það gerist ekkert. Væntanlega hefur fótboltahetj- unni þótt leiðin torsótt að markinu og heyrði hann þó ekki rövlið í þul- inum. Við urðum að umbera það í öllu markaleysinu. Indriði G. Þorsteinsson SJONVARP A LAUGARDEGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.