Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 4

Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 4
4 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 MORGUNB LAÐIP FRETTIR Forstjóri Náttúruverndar ríkisins um hugmyndir um að veita Skaftá í Langasjó Morgunbláðið/RAX Jökulvatn hætti að renna í Langasjó um 1965 og er það í dag fagnrblátt. Nú er rætt um að veita Skaftá í vatnið. Vel horfir með kart- skeruna VEL horfir með kartöfluuppskeru um allt land í haust og segir Sigur- bjartur Pálsson, kartöfluræktandi á Skarði í Þykkvabæ, að þokkaleg- asta spretta sé og búast megi við góðu meðalári. Bændur eru ekki byrjaðir að taka upp til geymslu en Sigurbjart- ur átti von á því að uppskeran hæf- ist fyrir alvöru núna um helgina. Hann kvaðst hafa heyrt að bændur um allt land létu vel af sér enda veðrið verið gott í sumar. Stans- laust framboð er á nýjum kartöfl- um eins og markaðurinn krefst. Sigurbjartur kvaðst ekki geta séð hve mikil uppskeran yrði og það kæmi ekki í ljós fyrr en búið væri að taka allt upp og gera dæm- ið upp. Þó átti hann von á miklu framboði en vonaðist til að það yrði ekki of mikið. Bændur þyrftu að lifa við sífellt lægra verð en mark- aðurinn stjórnaði þessu. Kallar á miklar á 3 ÁRNI Bragason, forstjóri Náttúru- verndar ríkisins, segist ekki treysta sér til að taka afstöðu til hugmynda um að veita Skaftá í Langasjó vegna þess að eftir sé að rannsaka ftarlega áhrifa slíkrar fram- kvæmdar. Hann segir að þetta mál sé ákaflega flókið og áhrif breyt- inga á farvegi Skaftár séu ekki all- ar kunnar. Langisjór var jökulvatn fram yfir 1960, en hugmyndir hafa verið sett- ar fram um að veita Skaftá í vatnið í þeim tilgangi að losna við þann jökulburð sem íylgir hlaupum í ánni. Árni segir að hægt sé að sjá fyrir ýmsar jákvæðar breytingar við þessa framkvæmd, en hugsan- legar neikvæðar breytingar séu síð- ur þekktar. Það þurfi t.d. að svara þeirri spurningu hvort þær hug- myndir, sem hafi verið ræddar í þessu sambandi, leiði til þess að allt hlaupvatn úr Skaftá fari í Langasjó, en ef það geri það ekki feli þessi framkvæmd ekki í sér lausn á þeim vanda sem menn standi frammi fyr- ir. Það þurfi einnig að rannsaka ■ hvaða áhrif þessár framkvæmdir hafi á vatnafar í Landbroti og Með- allandi. Einnigþurfi að rannsaka betur kenningar um að Skaftá renni að hluta undir hraunið. Ámi var spurður hvort Náttúm- vernd ríkisins væri almennt andvíg því að stýra breytingum í náttúra landsins eins og um er að ræða í þessu máli. Hann segir að við því sé erfitt að gefa einhlítt svar. Náttúm- vernd ríkisins hafi t.d. stutt að byggðir verði varnargarðar við Jökulsá áFjöIIum við Herðubreið- arlindir. í því tilfelli hafi menn stað- ið frammi fyrir að bjarga mannvirkjum sem kostuðu milljón- ir. Hann segir hins vegar að reynsl- an hafi kennt íslendingum að það sé erfitt að temja jökulár. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra vildi ekki tjá sig um fram- komnar hugmyndir. Þetta mál hefði ekki borist til ráðuneytisins. Fornleifarannsóknir í Reykholti Morgunblaðið/Arnaldur Augu eru skorin út í tijábútnum sem fannst við fornleifauppgröft í Reykholti. Utskorinn trjábútur frá UTSKORINN trjábútur, hugs- anlega frá 9. eða 10. öld, fannst við fornleifauppgröft í Reykholti í Borgarfirði í sumar. Afar sjaldgæft er að gamlir munir úr tré finnist við rannsóknir hér á landi. Þjóðminjasafnið hefur unnið að fornleifauppgreftri í Reyk- holti undanfarin ár. í fyrra fundust þar minjar um bygg- ingu sem getgátur voru uppi um að gæti hafa verið virki Snorra Sturlusonar, en Guðrún Svein- björnsdóttir fornleifafræðingur, stjórnandi rannsóknarinnar, segir nú að það sé líklega bara einhvers konar íveruhús. Trjá- búturinn fannst í lífrænu gólf- lagi neðarlega í þessu húsi. Ekki er búið að ljúka uppgreftr- inum og verður verkinu haldið áfram næsta sumar. Guðrún segir ekki vitað með vissu hversu neðarlega þau séu komin en þau séu að minnsta kosti komin aftur í miðaldir. Trjábúturinn er lítil grein, hugsanlega úr birki, eins og stofn með tveimur litlum grein- um. í hann eru skorin út hring- laga augu og er annað mjög skýrt ásamt augnabrún. Brotið er neðan af hlutnum og því ekki vitað til hvers hann var notaður. Þá er talið hugsanlegt að hann hafl b'rotnað áður en verkinu var lokið og hann því ekki not- aður til neins. Segir Guðrún að útskurðurinn minni á Borre-stíl sem er einn af elstu skrautstíl- um víkingaaldar. Slíkir munir eru yfirleitt tímasettir á 9. eða 10. öld en eftir er að aldurs- greina trjábútinn frá Reykholti. Til marks um að varð- veisluskilyrði séu góð Að sögn Guðrúnar ætti út- skorni trjábúturinn að geta komið að gagni við aldursgrein- ingu gólflagsins sem verið er að rannsaka. Hluturinn er til marks um að varðveisluskilyrði séu þar góð. Ekki er mikið um að útskurður finnist við forn- leifauppgröf hér á landi, að sögn Guðrúnar, og enn sjaldgæfara að vel finnist. varðveittir trjámunir Loksins fáanleg aftur 33113 Nýjung hjá Morgunblaðinu „Óð fluga ' qast 3-itatai góð fluga? Þórarínn -HELGAFELL Hægt að sækja um störf á Netinu NÚ ER mögulegt að sækja um á Netinu störf hjá Morgunblaðinu. Upplýsingar um laus störf og umsóknareyðublöð eru á upplýs- ingasíðum Morgunblaðsins á Net- inu. Þangað er hægt að komast með því að velja hnapp neðarlega í vinstri dálki á forsíðu fréttavefjar blaðsins, mbl.is. Að sögn Bylgju Birgisdóttur hjá starfsmannahaldi Morgunblaðsins fara umsóknirnar inn í gagnasafn í Focal-umsóknarkerfinu og það <<9ty*b'pt IH brti '**«*•»'I iviórgunblaíið óskar efar að róða msra frðflKeiftslu&tjorii. L wfáð ér að EjaltsiœOum og skipwtóððufn eitiötóklingl s«m pétnr telóö virkért þátt I fnötun gtófísihs StórtssviÖ » Alrrtaríft fllérasfóff rttnifl » trí índ» ífnl |H rtinjli I iihflUíifcliðifia » Skjatevarsia og UfffiijM ffteð l.óius NoléS nkjdlavistunafkerfi * UrnsJ&n b§ eftifflí iftéÖ skfém sðfa vaffla HatfjlidðsM ttsMíltt * ShjsHfSslingðynsurriteEÍiniferkiln i Prírf I bókasafns- oö uppfýsingafitóói. * Wihdtnw-kunnáöa i Öóó (Siefisku- Ofl éf«ki4<unflð!ta HWiMeri •úídÍWhji luíBOniiliélnu Nátiari uppfystngar lifn stóffið veitir stðrfsnianriðhafd f SSna 569-1400 Umsóknum skaf skfla l afgreíðslu Morgunbtóðsihs á umsðknareyðublöðum sem par fást í siðasta légi 0.9ðpt&mb«r fi.k Binhig rflá saekja ufri startið ð nétinu nwð þvt é0 smená . LltlltBhönnuöur lorgunfclnðíin* ■ Jgjsá mun auðvelda starfsmannahaldinu að velja fólk úr hópi umsækjenda. Áfram verður unnt að nálgast um- sóknareyðublöð í afgreiðslu Morg- unblaðsins og sækja um vinnu á_ hefðbundinn hátt. —----------------------------

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.