Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 23
Hraðfpystistöð Þórshafnar
Úr milliuppgjöri 2000
Rekstrarreikningur jan.-júni 2000 1999 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 952,6 826,3 665,6 548,9 +43% +50%
Afskriftir Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 143,8 79,0 134,3 33,9 +7% +133%
Tap af reglulegri starfsemi -96,4 -51,5 -87%
Aðrar tekjur og gjöld 34,0 6,9 +393%
Tap ársins -32,2 -12,8 -352%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Eignir samtais Milljónir króna Eigið fé 3.017,2 2.577,7 +17%
303,7 373,2 -19%
Skuldlr 2.718,5 2.224,1 +22%
Skuldir og eigið fé samtals 3.017,2 2.577,7 +17%
Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Veltufjárh 1 utfai 1 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 0,55 31,5 0,3 43,5 -28%
Tap á rekstri Hrað-
frystistöðvar Þórs-
hafnar 32,2 millj. kr.
HRAÐFRYSTISTÖÐ Þórshafnar
var rekin með 32,2 milljóna ki-óna
tapi fyrstu sex mánuði ársins saman-
borið við um 12,8 milljóna króna tap
á sama tímabili í fyrra. Veltufé frá
rekstri var jákvætt um 31,5 milljón
króna samanborðið við um 43,5 millj-
ónir króna fyrstu 6 mánuðina 1999.
Rekstrartekjur námu 952,6 milljón-
um króna samanborið við 665,6 millj-
ónir króna á sama tíma 1999.
Dótturfélagið Skálar ehf., sem
annaðist útgerð nótaskipanna Júpit-
ers og Neptúnusar, var sameinað
HÞ miðað við 1. janúar síðastliðinn
og í tilkynningu HÞ til Verðbréfa-
þings segir að því sé rekstrarniður-
staða á milli ára ekki fyllilega saman-
burðarhæf.
Fram kemur í tilkynningunni að
það sem olli taprekstri var slæm af-
koma á útgerð samstæðunnar. Þann-
ig hafí verið ráðist í kostnaðarsamt
viðhald á báðum nótaskipum félags-
ins auk þess að frystitogari sam-
stæðunnar var útbúinn til rækju-
veiða á Flæmingjagi'unni.
Veiðarfæra- og viðhaldskostnaður
útgerðarinnar er mjög hár á tímabil-
inu á móti hlutfallslega litlum
tekjum. Tekjur vegna útgerðar fé-
lagsins á Flæmingjagrunni eru
óverulegar á fyrstu sex mánuðum
ársins þar sem Stakfellið hóf þar
ekki veiðar fyrr en í júní. Þá segir að
afurðaverð hafi verið lágt og til-
kostnaður aukist. Dregið var úr bol-
fiskvinnslu félagsins eftir fyrsta árs-
fjórðung vegna tapreksturs sem að
miklu leyti verði rakinn til verðfalls á
mörkuðum. Verð á mjöli og lýsi hélst
lágt en olíuverð hefur hækkað veru-
lega. Afurðabirgðir jukust með til-
svarandi kostnaði.
Skuldir HÞ jukust meðal annars
vegna aukinnai- fjárbindingar í
birgðum og kröfum. Þetta ásamt
hækkun vaxta leiddi til verulegrar
hækkunar á fjármagnskostnaði fé-
lagsins. Þessu til viðbótar kemur
nokkurt gengistap vegna lækkunar
krónunnar á síðustu dögum júní-
mánaðar.
í tilkynningunni til Verðbréfa-
þings segir að afkoma seinni hluta
ársins ráðist mikið af veiðum á upp-
sjávarfiskum og á verðþróun á mjöli
og lýsi. Með breyttum áherslum í út-
gerð nótaskipa félagsins sé miðað að
því að komast fyrir taprekstur
þeirra auk þess sem þess sé vænst að
sá kostnaður er lagt var í vegna
nótaskipanna og rækjuveiðanna á
Flæmingjagrunni fari að skila sér á
seinni hluta ársins. Unnið sé mark-
visst að lækkun skulda félagsins með
það að markmiði að lækka vaxta-
kostnað þess til lengri tíma litið.
• •
Ossur hf. kaupir
Skóstofuna ehf.
í GÆR var undirritaður samning-
ur um kaup Össurar hf. á Skóstof-
unni ehf., Dunhaga. í tilkynningu
frá Össuri hf. segir að tilgangurinn
með kaupunum sé að efla og víkka
út þjónustu innanlandsdeildar fyr-
irtækisins á sviði stoðtækjasmíða,
skósmíða, innleggjagerðar og
göngugreiningar.
Samningurinn nær til kaupa á
vélbúnaði, tæknibúnaði og birgð-
um Skóstofunnar ehf., ásamt því
að Össur hf. tekur yfir samninga
við Tryggingastofnun ríkisins um
sérgerða og aðlagaða skó. I
samningnum er einnig gert ráð
fyrir að eigendur Skóstofunnar
ehf. komi til starfa hjá Össuri hf. í
tilkynningunni segir að með til-
komu eigenda Skóstofunnar í
starfslið Össurar verði þar með
enn frekari stækkun á hópi fag-
legra starfsmanna hjá innanlands-
deild fyrirtækisins.
Kaupverðið er 15 milljónir
króna og greiðist með hlutabréfum
í Össuri hf., auk 5 milljóna króna
sem koma til greiðslu á næstu 3
árum, verði sölu- og hagnaðar-
markmiðum fullnægt. Samningur-
inn mun taka gildi 2. október
næstkomandi og leggst starfsemi
Skóstofunnar ehf. á Dunhaga af í
núverandi mynd.
Langur
laugardagur
/tl t(f\
•AJlofnnö tg>7-* munít
Langur
laugardagur
Höfum stækkað verslunina
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
in \
15.580 kr.
verð áður: 16.980 kr.
14.980 kr.
verð áður: 16.980 kr.
SAGEM MC950
Ending rafhlöðu 2,5 klst.
í notkun og 130 klst. f bið
Innbyggt mótald
Handfrjáls notkun
Vekjari og skeiðklukka
Titrari
ERICSS0N R320s
• WAP simi
• Styður 900 og 1800 mhz GSM kerfin
• Gagnaflutningur
• Innrautt tengi
• Rafhlaða endist í 4 klst. í notkun
og 100 klst. í bið
• Fæst f þremur mismunandi litum
13.580 kr.
verð áður: 15.980 kr.
N0KIA 5110
• Rafhlaðan endist í allt að 270 klst.
í bið og 4 klst. í notkun
• Styður myndsendingar
• Upplýstur skjár með allt að fimm línum
fyrir texta og grafík
11.980 kr.
verð áður: 13.980 kr.
N0KIA 3210
• 900/1800 mhz
• Rafhlaðan endist f 50-250 klst.
f bið og 2-4 klst. f notkun
• Styður myndskeytasendingar
• Hægt að semja hringingar f sfmann
og senda þær ( aðra sfma
29.980 kr.
verð áður: 39.900 kr.
ERICSS0N A2618s
• Hægt er að skipta um framhlið
• Stærð 131x 51x 25 mm
• Lithium rafhlaða
• Raddstýrð svörun og hringing
• 3 leikir, t.d.Tetris og PacMan
• Sfmafundur
• Sfmtal f bið
IrwTrrrw www.simi nn.is/gsm 1
( ÞjAnustunúmtr 800 7000
N
SIMINN-GSM
FÆRIR ÞÉR FRAMTÍÐINA
J