Morgunblaðið - 02.09.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 25
Miklar endurbætur hafa nú verið gerðar á Hamri SH.
Hamri SH breytt
RÆKJUBÁTURINN Hamar SH er
nýkominn úr breytingum sem á
honum voru gerðar hjá Hólmgeiri
og Ellert á Akranesi.
Hamar SH var smíðaður 1964 í
Englandi og hét upphaflega Jör-
undur II. Kristinn Jdn Friðþjófs-
son, útgerðarmaður Hamars, seg-
ir að hann hafi komið í eign
núverandi eigenda árið 1972.
„Við höfum gert þennan bát út
síðan 1972 en fannst nú að það
væri kominn tími á endurbætur á
honum. Hann fór því í slipp í maí
þar sem settur var á hann nýr
skutur, stýri og skrúfa ásamt
ýmsum öðrum lagfæringum.
Segja má að öftustu átta metrarn-
ir hafi verið lagfærðir og endur-
bættir en báturinn var ekki
lengdur nema um einn metra.
Breytingunum lauk nú í ágúst og
hann kom hingað heim til Rifs 16.
ágúst. Hamar er kominn á rækju-
veiðar fyrir norðan land og segir
Kristinn að breytingarnar hafi
gefist vel.
Útflutningur á saltfíski hefur aukist fyrstu 7 mánuðina
Um 9,5% aukning á
verðmæti á árinu
ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI
sjávarafurða nam á fyrstu sjö mán-
uðum ársins alls um 55,7 milljörð-
um króna sem er 2,2% samdráttur
frá sama tímabili síðasta árs. Verð-
mæti saltfískútflutnings jókst hins-
vegar um 9,6% á fyrri helmingi árs-
ins.
Útflutningsverðmæti sjávar-
afurða jókst hinsvegar um 263
milljónir í júlí sl. frá sama mánuði
síðasta árs.
Alls nam útflutningsverðmæti
sjávarafurða í júli sl. um 8,5 millj-
örðum króna. Þar af var verðmæti
saltaðra og þurrkaðra afurða um
2,3 milljarðar króna, frystra flaka
um 2 milljarðar króna, fískimjöls
um 1,3 milljarður króna og heil-
frysts fisks um 1,2 milljarður
króna.
Útflutningsverðmæti saltaðra og
þurrkaðra afurða jókst um 9,6 á
fyrstu sjö mánuðum ársins, borið
saman við sama tíma í fyrra, var
alls um 13,3 milljarðar króna. Verð-
Makríll til
Japan
ÁRLEGA flytja Norðmenn út
100.000 tonn af makríl til Jap-
ans en norski makríllinn hefur
verið mjög vinsæll hjá japönsk-
um neytendum vegna hás fitu-
innihalds sem í honum er.
Markaðurinn fyrir makrílinn er
nokkuð stöðugur en nokkrar út-
gáfur eru á þvi hvernig hann er
íluttur út. Hann er fluttur út í
flökum, skömmtum, þurrkaður,
saltaður eða niðursoðinn. Eftir-
spurn meðal japanskra neyt-
enda eftir rnakríl er mjög mikil
og er hann fáanlegur hvai’ sem
er. Vinsældir norsks makríls í
Japan er aðeins viðbót við það
mikla magn sjávarfangs sem
þeir flytja þangað fyrir en mikið
magn laxs, silungs, sfldar og
loðnu er flutt árlega til Japans.
Einnig aukning
í ferskfískút-
flutningi á
sama tímabili
mæti ferskfiskútflutnings jókst
einnig verulega eða um 9% og var
rúmir 6 milljarðar króna á fyrstu
sjö mánuðunum. Útflutningsverð-
mæti lýsis dróst hinsvegar verulega
saman eða um 26,2% en það var
rétt rúmur milljarður króna á tíma-
bilinu, borið saman við 1,4 milljarða
króna á sama tíma í fyrra. Þá dróst
verðmæti rækjuútflutnings saman
um 17,3% á tímabilinu, var alls um
4,7 milljarðar króna, borið saman
við rúma 5,9 milljarða í fyrra. Út-
flutningsverðmæti frystra flaka var
á tímabilinu tæpir 16 milljarðar
króna sem er 10% samdráttur.
Verðmæti útflutnings á heilfrystum
NÝTT nóta- og togveiðiskip Sam-
herja hf., Vilhelm Þorsteinsson EA,
kemur til heimahafnar á Akureyri
á morgun, sunnudag. Skipinu verð-
ur formlega gefið nafn á Togara-
bryggjunni á Akureyri kl. 15:00 en
að því loknu verður það til sýnis al-
menningi til kl. 18:30. Áætlað er að
skipið haldi til síldar- og kolmunna-
veiða í lok næstu viku.
Skipið var smíðað hjá Kleven
Verft AS í Noregi en þangað var
skipsskrokkurinn dreginn um miðj-
an mars sl. frá Stocznia
skipasmíðastöðinni í Gdansk í Pól-
landi.
Skipið er án efa eitt best búna
fiski dróst einnig saman, var tæpir
6 milljarðar á fyrstu sjö mánuðun-
um, borið saman við 6,9 milljarða á
sama tíma síðasta árs sem er 9,5%
samdráttur.
Mest af saltfiski
til Portúgal
Alls voru flutt út 30.588 tonn af
saltfiskafurðum á fyrri helmingi
ársins, að verðmæti alls um 10,5
milljarða króna. Þar af voru flutt út
um 24.850 tonn af blautverkuðum
saltfiski fyrir alls 8,4 milljarða, að-
allega til Portúgal eða um 13.896
tonn að verðmæti tæplega 4,8 millj-
arða króna.
Á fyrri helmingi ársins voru flutt
út tæp 14 þúsund tonn af ferskum
fiski sem er 614 tonnum minna en á
sama tíma síðasta árs. Útflutningur
á ferskum flökum jókst hinsvegar á
tímabilinu, var 6.479 tonn nú, að
verðmæti 3,2 milljarðar króna, bor-
ið saman við 5.735 tonn, að verð-
mæti 2,8 milljarðar króna í fyrra.
skipið í íslenska flskiskipaflotanum.
Það er 79 metra langt og 16 metra
breitt. Aðalvél þess er 7.500 hest-
öfl. Um borð verður fullkominn
vinnslubúnaður til frystingar og
vinnslu á bolfiski, síld og kolmunna.
Frystilestir skipsins rúma 650 tonn
af frosnum afla í frystilest og um
1.100 tonn af fiski í kælitönkum. í
skipinu eru íbúðir fyrir 28 manns.
www.mbl l.is
Nýtt Samherjaskip til heimahafnar
Eitt best búna
skip flotans
ISLAND - DANMÖRK
FYLGSTU MEÐ
LANDSLEIKNUM Á
mbl.is
í dag verður á mbl.is fylgst náið með að-
draganda landsleiks íslands og Dan-
merkur í knattspyrnu, undirbúningi ís-
lenska liðsins, fréttum af ástandi leik-
manna og byrjunarliði.
Stemmningunni á Laugardalsvelli verð-
ur lýst í máli og myndum, allt frá því að
fyrstu vallargestir mæta og þar til leik-
urinn hefst. Viðtöl við áhorfendur og
spekingar spá í spilin.
Leiknum verður lýst ítarlega og sam-
hliða lýsingunni sagt frá því sem frétt-
næmt þykir á vellinum. Myndir birtar af
leiknum, áhorfendum og stemmning-
unni í stúkunni.
Að leik loknum verður ítarleg umfjöllun
ásamt myndum og viðtölum við leik-
menn og þjálfara.
&
SÍMINN-GSM
WWW.GSM.IS
F0TB0LTI A
mbl.is