Morgunblaðið - 02.09.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 29
Alríkislögreglumenn leiða Mark Jakob á brott frá heimili sínu.
Netið ekki
skálkaskjól
BANDARISKA alríkislögreglan
hefur handtekið ungan mann fyrir
að gefa út falska fréttatilkynningu á
Netinu, sem leiddi til hruns á verði
hlutabréfa í tæknifyrirtækinu
Emulex. Maðurinn hagnaðist síðan
sjálfur á spákaupmennsku.
Mark Jakob er 23 ára gamall há-
skólanemi og fyrrverandi starfs-
maður fyrirtækisins Internet Wire
sem tekur við fréttatilkynningum og
dreifir þeim á Netinu. Hann hafði
verslað töluvert með hlutabréf í
Emulex í þeirri von að bréfin féllu í
verði, en gengi bréfanna tók hins
vegar að hækka og Jakob sá fram á
að tapa jafnvirði 7,8 milljóna króna.
A föstudag í síðustu viku greip hann
til þess örþrifaráðs að senda falska
fréttatilkynningu til Intemet Wire,
þess efnis að rekstur Emulex væri í
járnum, forstjórinn hefði sagt af sér
og að fjárreiður fyrirtækisins væru
til skoðunar hjá yfirvöldum. Fáein-
um mínútum eftir að fréttatilkynn-
ingunni var dreift hafði gengi hluta-
bréfanna fallið verulega og þá greip
Jakob tækifærið og keypti fleiri
bréf, sem hann seldi með nær 15
milljóna króna hagnaði nokkrum
dögum síðar.
Slóðin rakin
Alríkislögreglunni tókst fljótlega
að rekja fölsku fréttatilkynninguna
til tölvunets E1 Camino-háskóla í
Kaliforníu, þar sem Jakob hefur lagt
stund á viðskiptafræði. Nafn hans
var þegar komið á lista lögreglunn-
ar, þar sem hann hafði látið af störf-
um hjá Intemet Wire aðeins viku
áður en falska fréttatilkynningin
barst þangað. Lögreglan fékk stað-
festingu á því að Jakob hefði notað
tölvur háskólans á þessum tíma og
eftir að í ljós kom að hann hafði átt
viðskipti með hlutabréf í Emulex
var hann handtekinn á heimili sínu.
Alejandro Mayorkas, saksóknari í
Kaliforníu, varaði við því að Netið
væri ekki skálkaskjól íyrir lög-
brjóta. „Við löggæslumenn kunnum
líka að nota Netið,“ sagði hann á
fréttamannafundi vegna málsins.
Skólastjóri sýknaður
MARJORIE Evans, skólastjóri í
Monmouth-skíri á Suður-Englandi,
var í gær sýknuð fyrir dómstólum í
CardifF, eftir að hafa áður verið
fundin sek um að hafa löðrungað
einn af ódælli nemendum skólans.
Dómarinn, McKinnon, tilkynnti
Evans í gær að hún yfirgæfi rétt-
arsalinn með óskert mannorð. Ev-
ans hafði frá upphafi haldið fram
sakleysi sínu, kvaðst hafa brotnað
niður er dómstólar fundu hana
seka um löðrunginn nú í ágúst sl.
Að sögn Evans, sem segir síðasta
ár hafa verið það versta í lífi sínu,
hafði einn nemenda hennar uppi
ráðagerð gegn henni. „Ég trúði því
ekki að mannorð mitt hefði getað
verið eyðilagt af tíu ára dreng sem
var með illkvittnislegar ásakanir.
Það er virkilega hryggilegt til þess
að hugsa að aðrir kennarar kunni
að þurfa að ganga í gegnum það
sama og ég,“ sagði Evans í viðtali
við fréttastofu BBC og kvaðst stað-
ráðin í að hefja á ný kennslu við
sama skóla og áður.
Breska kennarasambandið fagn-
aði úrskurði McKinnons í gær og
sagði að um „timamótadóm“ væri
að ræða sem sýndi fram á hversu
berskjaldaðir kennarar væru.
Heilsulatexdýnur og
rafmagnsrúmbotnar
Þcgar kemur að því að velja rúm /æÉL
eða dýnu eru gæðin, úrvalið og /Æk
reynslan okkar megin. /jra
Iðjuþjálfi veitir ráðgjöf
milli kl. 11 og 15 í dag. \VHf
I y s I a rt u n. i s
é íS’ 3 Velkomin á
®VÍndhátíð 2000
Dagana 3.- 9. september nk. verður haldin i Reykjavík Vindhátið 2000
og er hún hluti dagskrár Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000.
Vindhátíðin verður óður til vindsins, þess þáttar íslenskrar náttúru sem „næstur" okkur
stendur. Vindurinn er órjúfanlegur hluti hennar og enginn þáttur veðurfars okkar er
tengdari og áþreifanlegri hverju mannsbarni en vindurinn.
Tilgangur Vindhátíðar er að leita sátta milli vinds og manns. Hinar jákvæðu hliðar
vindsins verða virkjaðar til listrænnar sköpunar og innblásturs auk þess sem snertifletir
hans við þjóðlíf og menningu verða kannaðir - bæði í nútíð og framtíð.
Á vindhátiðinni verða fjölmargir viðburðir m.a. dansverk eftir þau Láru Stefánsdóttur
dansara og Guðna Franzson tónskáld og sem frumflutt verður á Vindhátíðinni.
Vindhátíð 2000 er haldin
á þaki Faxaskála við Reykjavíkurhöfn
og í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.
Opin daglega frá kl. 16:00-22:00.
Styrktaraðilar
Austurbakki hf. ■ Batteríiö - Arkitektar ehf. • Byko hf. • Damstahl hf. • Deloitte STouche hf. • Epal hf. • Flugfélag
íslands hf. • Hampiðjan hf. • Héðinn hf. Istak hf. • Japanska menningarmiðstöðin • Járnsmiðja • Höskuldar
hrf. • Landsíminn • Norðurlandahúsið í Færeyjum • Offsetþjónustan ehf. • Orkuveita Reykjavíkur Reykjavík-
Menningarborg Evrópu árið 2000 • Reykjavíkurhöfn • Seglagerðin Ægir hf. • Sindri hf. • Styrktaraðilar
Vindhátíðar 2000 ■ Veitingahúsið 2 fiskar Veitingahúsið 3 frakkar hjá Úlfari • Veitingahúsið La Primavera
• Veitingahúsið Perlan • Veitingahúsið Við Tjörnina • Vírnet hf.