Morgunblaðið - 02.09.2000, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
LISTIR
MGRGUNBLAÐIÐ
Þorgeirsdóttir og Theodór Júlíus-
son. Leikstjóri er Bergur Þór Ing-
ólfsson
/
Aannan í jólum verður
frumsýnt leikrit Henriks
Ibsen;
Þjóðníðingur, sem segir frá lækn-
inum Tómas Stockmann, sem stend-
ur einn gegn samfélaginu þegar
hann gerir uppgötvun sem setur
væntanlegar stórframkvæmdir bæj-
arins í uppnóm. Ibsen samdi á þriðja
tug leikrita, m.a.: Veisluna á Sól-
haugum, Pétur Gaut, Brúðuheimili,
Afturgöngur, Þjóðníðing, Villiönd-
ina, Heddu Gabler og Sólness bygg-
ingameistara.
Halldóra Geirharðsdóttir og Ing-
var E. Sigurðsson fara með hlutverk
Stockmann-hjónanna, en leikstjóri
er Ivlaría Kristjánsdóttir.
I janúar 2001 setjast
Öndvegiskonur austum'ska
skáldsins Werner Schwab á svið
Borgarleikhússins. Þar eru á ferð-
inni í eldhúsi Ernu hún sjálf, Gréta
og uppkomin dóttir Ernu, Maja.
Þær eru leiknar af Hönnu Maríu
Karlsdóttur, Margréti Helgu Jó-
hannsdóttur og Sigrúnu Eddu
Björnsdóttur. Þorgeir Þorgeirson
þýddi leikritið, leikstjóri verður Við-
ar Eggertsson.
Werner Sehwab fannst látinn í
íbúð sinni á nýársdag 1994, illa far-
inn af áfengis- og eiturlyfjaneyslu.
Þá höfðu meira en fjörutíu leikhús í
Evrópu tekið verk hans til sýninga.
Eftir hann liggja um það bil tuttugu
leikrit.
Kontrabassinn eftir Patrick
Suskind verður frumsýnt í
marz á næsta ári.
Þrjátíu og fimm ára einstæður
kontrabassaleikari segir frá lífi sínu
með kontrabassanum, mikilvægi
hans og eiginleikum og því ömurlega
hlutskipti að lifa og búa með honum.
Ellert A. Ingimundarson fer með
hlutverk bassaleikarans í leikstjórn
Kjartans Ragnarssonar. Hafliði
Arngrímsson þýddi leikritið.
I marz verður líka frumsýnt leik-
ritið Beðið eftir Godot eftir Samuel
Beckett, sem talið er
eitt merkasta leikverk aldarinnar
og stuðlaði að miklum breytingum í
leikritun.
Benedikt Erlingsson, Bergur Þór
Ingólfsson, Björn Ingi Hilmarsson
og Hilmir Snær Guðnason
skipta með sér mönnunum tveim-
ur, sem bíða og bíða. Þýðingin er
verk Árni Ibsen og leikstjóri er Pet-
er Enquist.
Þriðja leikritið, sem frumsýnt
verður í marz, er Blúndur og blásýra
eftir Joseph Kesselring. Þetta er
grafalvarlegur gamanleikur og
margir af vinsælustu leikurum Leik-
félagsins kqma fram í sýningunni í
leikstjórn Asdísar Þórhallsdóttur.
Þrjú verk verða tekin upp frá
fyrra leikári og verður fyrsta
sýning leikársins í kvöld á
Sex í sveit eftir Marc Camoletti, sem
þar með byrjar sitt fjórða leikár.
Hin verkin tvö eru Afaspil eftir Örn
Árnason og Kysstu mig Kata eftir
Cole Porter
Þá er meiningin að verða með alls
kyns uppákomur á leikárinu;
iðandi h'f og titrandi hjörtu. Þetta
verða hættuleg kvöld og heitir dag-
ar, tónleikar, rabbkvöld, leiklestrar,
útvarpsleikhús og kvikmyndir.
Um mánaðamótin október/
nóvember verður Danshátíð Menn-
ingarborga Evrópu árið 2000 Hún
hófst í Avignon í febrúar á þessu ári
og lýkur í Reykjavík í nóvember.
Hún verður þá auk þess búin að fara
fram í Bergen, Bologna, Brussel,
Helsinki og Prag. Islenski dans-
flokkurinn hefur verið fulltrúi
Reykjavíkur Menningarborgar á há-
tíðunum erlendis og sér jafnframt
um skipulagningu hátíðarinnar hér.
íslenski dansflokkurinn frumsýn-
ir svo í janúar tvö ný verk eftir
þekkta evrópska danshöfunda, Jo
Strpmgren frá Noregi og Rui Horta
frá Portúgal. Rui Horta er nú að
vinna með Islenska dansflokknum í
annað sinn en veturinn 1999 sýndi
dansflokkurinn þá verk hans Diving
og Flat Space Moving. Bæði verkin
eru samin sérstaklega fyrir Islenska
dansflokkinn.
Þrettán leikrit á verkefnaskrá Borgarleikhússins í vetur
Tvö íslenzk leikrit verða frumsýnd í
Borgarleikhúsinu í vetur, en á dagskrá
auk þeirra eru átta sígild og ný erlend
7
verk. Islenzki dansflokkurinn verður
með tvær sýningar. Guðjón Pedersen
leikhússtjóri kynnti verkefnaskrá Borgar-
leikhússins í gær.
FIMM nýir leikarar hafa
verið ráðnir á fastan
samning hjá Borgar-
leikhúsinu í vetur; Ólaf-
m- Darri Ólafsson,
Bergur Þór Ingólfsson, Jóhanna
Vigdís Amardóttir, Katla Margi-ét
Þorgeirsdóttir og Þór Tulinius. Þá
leikur Kristbjörg Kjeld nú fyrsta
sinni með Leikfélagi Reykjavíkur í
leikriti Sigurðar Pálssonar. Þá
munu Linda Árnadóttir og Ragna
Fróða starfa að búningahönnun fyr-
ir tvær sýningar félagsins.
Fyrsta frumsýning vetrarins
verður um miðjan september á leik-
riti Sigurðar Pálssonar, Einhver í
dyrunum, sem forsýnt var á Lista-
hátíð í vor. Kristín Jóhannesdóttir
leikstýrir verkinu, Kristbjörg Kjeld
leikur aðalhlutverkið og aðrir leik-
endur eru; Björn Ingi Hilmarsson,
Edda Björgvinsdóttir
Guðmundur Ingi Þorvaldsson og
Sigurður Karlsson.
I kynningu leikhússins er þetta
sagt um söguþráð leikristsins:
„Hysterísk stórleikkona hefur lokað
sig af á heimili sínu og neitai’ að fara
út á meðal fólks. Einóður maður
hennar, sem vinnur í eftir-
litsiðnaðinum, er fastur í sinni þrá-
hyggju. í dymar koma óboðnir gest-
ir, m.a. ungur maður, sem dáð hefur
leikkonuna frá barnsaldri. Móðir
hans kemur einnig við sögu, og enn-
fremur fyrirsæta, sem minnir hana
óþægilega á fortíðina.“
I október koma tvö leikrit á fjal-
irnar; harmleikurinn Lér konungur
eftir William Shakespeare og gam-
anleikurinn Abigail heldur partí eft-
ir Mike Leigh.
Lér konung leikur Pétur Einars-
son en aðrir leikendur eru; Friðrik
Friðriksson, Guðmundur Ólafsson,
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðjón Pedersen leikhússtjóri kynnir dagskrá vetrarins.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Hall-
dór Gylfason, Halldóra Geirharðs-
dóttir, Hlín Hjálmarsdóttir, Jó-
hanna Vigdís Amardóttir, Kristján
Franklín Magnús, Nanna Kristín
Magnúsdóttir, Pétur Einarsson,
Sigurður Karlsson og Valur Freyr
Einarsson. Leikstjóri er Guðjón
Pedersen. Hrafnhildur Hagalín
Guðmundsdóttir hefur endurskoðað
þýðingu Steingríms Thorsteinsson-
ar til þessarar sýningar.
Mike Leigh, höfundur Abigail
heldur partí er fæddur 1943 og lagði
stund á nám í leiklist og kvikmynda-
gerð. Hann á að baki tugi kvik-
mynda, sjónvarpsmynda og leikrita.
Leikendur í Abigail eru Harpa Arn-
ardóttir, Hjalti Rögnvaldssqn, Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir, Ólafur
Darri Ólafsson og Sóley Elíasdóttir.
Leikstjóri Hilmir Snær Guðnason.
7
nóvember verður frumsýnt
leikritið Skáldanótt eftir Hall-
grím Helgason. Leikarar í sýn-
ingunni verða; Árni Pétur Guðjóns-
son, Bergur Þór Ingólfsson, Bjöm
Ingi Hilmarsson, Edda Björg Eyj-
ólfsdóttir, Eggert Þorleifsson, Ell-
ert A. Ingimundarson, Gunnar
Hansson, Katla Þorgeirsdóttir,
Sigrún Edda Björnsdóttir, Steinn
Ármann Magnússon, Theodór Júl-
íusson og Þór Tulinius. Leikstjóri er
Benedikt Erlingsson og tónlist er
eftir Ragnhildi Gísladóttur
Efni leikritsins er svo lýst í kynn-
ingu Borgarleikhússins: „„Skálda-
nótt“ er haldin hátíðleg í Reykjavík
einu sinni á ári. Þá lifna við öll helstu
skáld þjóðarinnar, allt frá Agli
Skallagrímssyni til Halldórs Lax-
ness, og taka þátt í fjörinu í Miðbæ
Reykjavíkur. Ungskáld bæjarins
fara á stjá og vill þá hver finna „sinn
mann“, ná að hitta eftirlætisskáldið
og sýna því kveðskap sinn. „Skáld-
anótt“ lýkur hverju sinni með
„Skáldaslag", þar sem ungskáldin
keppa í orðfimi.“
Skáldanótt er á dagskrá Reykja-
víkur Menningarborgar Evrópu árið
2000.
Móglí eftir Rudyard Kipling verð-
ur frumsýnt í desember.
Illugi Jökulsson hefur unnið leik-
gerð um þessa sögu, sem gerist í
fmmskógum Indlands, og fjallar um
drenginn Móglí, sem alist hefur upp
á meðal úlfa.
Leikendur eru Björn Ingi
Hilmarsson, Friðrik Friðriksson,
Gunnar Hansson, Halldór Gylfason,
Jóhann G. Jóhannsson, Jóhanna
Vigdís Amardóttir, Katla Margrét
LISTMUNIR
Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð.
Höfiim kaupendur að góðum verkum
gömlu meistaranna.
Gallerí Fold
Rauðarárstíg 14-16, sími 551 0400.
foId@artgalleryfold.com
www.artgalleryfold.com
ART GALLERY
Tvö íslenzk verk, Shake-
speare, Ibsen og Beckett