Morgunblaðið - 02.09.2000, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 33
LISTIR
Söngsveitin Fflharmónía.
Söngsveitin Fflharmónía
C-moll messa Mozarts
meðal verkefna
VETRARSTARF Söngsveitarinn-
ar Fílharmóníu hefst nk. miðviku-
dag með fyrstu æfingu hennar í
Melaskóla. Við upphaf þessa
starfsárs gengst Söngsveitin fyrir
námskeiði fyrir áhugafólk um kór-
söng og þar verður farið yfir und-
irstöðuatriði í nótnalestri og radd-
beitingu. Mun Hulda Guðrún
Geirsdóttir söngkona annast
kennslu þar.
Um aðra helgi í aðventu verða
hefðbundnir aðventutónleikar
kórsins í Langholtskirkju en aðal-
verkefni starfsársins er flutningur
C-moll messu eftir W.A. Mozart.
Hún verður flutt á tvennum tón-
leikum um mánaðamótin
mars-apríl, einnig í Langholts-
kirkju. Auk þessa flytur Söng-
sveitin trúarleg og veraldleg tón-
verk og lög sem henta til flutnings
við ýmis tækifæri. Hyggst Söngs-
veitin halda tónleika í nágrenni
Reykjavíkur næsta vetur með
slíkri efnisskrá.
Þá verður jafnframt undirbúin
utanlandsferð kórsins í júní 2001.
Stjórnandi Söngsveitarinnar er
Bernharður Wilkinson en hann
gegnir stöðu aðstoðarhljómsveitar-
stjóra Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands en undirleikari er Guðríður
Sigurðardóttir píanóleikari.
Formaður Söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu er Lilja Árnadóttir.
Nýjar bækur
• Tíska. Sögulegt ágrip, eftir
Gertrud Lehnert í þýðingu Fr/dar
Ólafsdóttur.
I bókinni er lýsing á mikilvæg-
ustu stíltegundum tískunnar frá
miðöldum og þeim óteljandi áhrif-
um sem undangengnar stíltegund-
ir hafa haft á þróun tískunnar á
síðustu öldum og fram til okkar
daga.
Yfirlit er yfir mikilvæga þætti
tískunnar. Hvernig mótar tískan
daglegt líf, endurspeglar tíðarand-
ann og hefur áhrif á listir og við-
skipti?
Bókin er með orðaskýringum,
ritaskrá til frekari fróðleiks og
skrá yfir mikilvæg tískusöfn,
tískuskóla og nafnaskrá.
Bókin Tíska er kynning á heimi
tískunnar, greinargóð eins og
alfræðiorðabók, skemmtileg eins
og skáldsaga og lifandi eins og
myndabók.
Utgefandi og dreifingaraðili er
Háskólaútgáfan. Bókin er 191 bls.,
kilja. Verð kr. 2.790.
Óskammfeilni
ormurinn
Morgunblaðið/Jim Smart
Halla Margrét Jóhannesddttir er einbeitt og
örugg í öllum hlutverkum.
LEIKLIST
Kaffileikhúsið
STORMUR OG ORMUR
Höfundar upphaflegrar sögu:
Barbro Lindgren (texti) og Cecil-
ia Torudd (myndir). Upphafleg
leikgerð: Leikhópur By-teatern.
Þessi leikgerð: Thomas Ahrens.
Þýðing: Jórunn Sigurðardóttir.
Leikstjóri: Thomas Ahrens. Leik-
mynd og búningar: Rannveig
Gylfadóttir. Hönnun lýsingar,
tækni- og sýningarstjórn: Kol-
brún Ósk Skaftadóttir. Leikari:
Halla Margrét Jóhannesdóttir.
Fimmtudagur 31. ágúst.
ÞESSI sýning byggir á sænskri
barnasögu sem hefur verið færð í
leikbúning af þarlendum leikhópi
og svo af þýska leikhúsmanninum
Thomas Ahrens sem hér stendur
við stjórnvölinn. Sýningin ber
sænsk-þýskum uppruna glöggt
vitni, hér er fjallað m.a. um smá-
smyglislega reglusemi sem þykir
einkenna þessi lönd öðrum fremur.
Mikil formfesta einkennir líf
herra Storms; það mætti raunar
segja að hann haldi sér gangandi á
því að gera alla hluti eftir fyrir-
framsettum reglum. Hver hvers-
dagsleg athöfn er endurtekin á ná-
kvæmlega sama hátt. Endur-
tekningin ljær öllu blæ formlegs
hátíðleika. Athafnir hins daglega
lífs leiða hver af annarri eins og at-
riði messugjörðarinnar. Þannig
fær herra Stormur frídagana sína
til að líða, þar sem hann skortir
hugmyndaflug og framtakssemi til
að brjóta upp mynstrið sem hann
hefur fest sig við. Félagsleg sam-
skipti hans við aðra eru næsta lítil
og einkennast af mikilli kurteisi og
formfestu; helst ávarpar hann
hrafninn sem verður á vegi hans er
hann fer tvisvar á hverjum frídegi í
gönguferð um Hljómskálagarðinn.
Þetta niðurnjörvaða líf tekur
stakkaskiptum þegar Stormur
kynnist Ormi í einni gönguferðinni.
Ormur er andstæða Storms, ekki
eingöngu hvað líkamlegt sköpulag
áhrærir heldur einnig að lyndis-
einkunn og upplagi. Honum er ekk-
ert heilagt, hann er ýtinn, uppi-
vöðslusamur og umfram allt
óskammfeilinn. En hann er líka
hæfileikaríkur, heillandi og um-
fram allt frumlegur. Þrátt fyrir að
Ormur og Stormur séu þvílíkar
andstæður verður ekki aftur snúið;
Stormur getur ekki hugsað sér að
snúa aftur til hinnar tilbreytingar-
lausu endurtekningar sem líf hans
snerist um áður.
Það er sniðug hugmynd að láta
einn og sama leikarann leika hlut-
verk þessara tveggja gerólíku
persóna (auk nokkurra aukaper-
sóna og sögumanns). Þetta er
krefjandi verkefni sem er vel leyst
af hendi. Halla Margrét Jóhannes-
dóttir er einbeitt og örugg í öllum
hlutverkunum og gefur hverri
persónu sín sérkenni. Leikstjórnin
er öguð, vönduð og umfram allt
hófstillt; hér er ekki verið með
óþarfa læti heldur er gefið í þegar
ástæða er til en annars leikið á
hægu nótunum.
Þessi leikgerð er að mörgu leyti
óvenjuleg og mætti ætla að börnin
ættu erfitt með að fylgjast með
hinu upphafna máli formfestu og
kurteisi í íslenskum búningi Jór-
unnar Sigurðardóttur. Annað kom
á daginn enda hitti einfaldur húm-
orinn beint í mark og börnin hrifust
af hinum óskammfeilna Ormi.
Þetta sýnir fram á að það er óþaríi
að vanmeta börn sem áhorfendur;
leikhúsupplifunin getur aukið við
reynsluheim þeirra, hún þarf ekki
að einskorðast við það sem þau
hafa áður séð. Málskilningur þeirra
byggist ekki á nákvæmum skiln-
ingi á merkingu orðanna hvers fyr-
ir sig heldur læra þau merkingu
þeii-ra er þau eru notuð í samhengi.
Leikmynd og búningar Rannveig-
ar Gylfadóttur voru vel valin og Ijós
og hljóð einföld og blátt áfram und-
ir styrkri stjóm Kolbrúnar Óskar
Skaftadóttur. Allir þættir þessarar
vönduðu sýningar einkenndust af
einfaldleika sem gaf sýningunni
sterkan heildarsvip. Þessi sýning
er skemmtilega skrýtin og gengur
út frá öðrum forsendum en obbinn
af barnasýningum sem sýndar hafa
verið hér á síðustu árum. Hún
krefst jafnframt mikils af ungum
áhorfendum en heldur þeim í stað-
inn hugföngnum allt til enda.
Sveinn Haraldsson