Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 70

Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 70
70 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Krækiber og bláber j Seg;ia má að Kristín Gestsdóttir hafí faríð yfír lækinn til að sækja vatnið, en hún tíndi krækiber austur í Skaftafells- sýslu þó að þau vaxi við húsdyrnar heima hjá henni á Garðaholti. SVONA er þetta, ávextirnir í garði nágrannans eru betri. Þau ber sem ég tíndi í grámosabollum í eystri kvísl Skaftáreldahrauns voru mun stærri en þau krækiber sem vaxa hér á holtinu. Á hverju sumri förum við hjón- in a.m.k. einu sinni austur í Land- brot. Núna ókum við austur 18. ágúst, en þann dag voru birta og litir óvenju skírir. Þótt við höfum oft komið á þessar slóðir höfum við aldrei séð eysti hraunbreiður Skaftáreldahrauns, sem eru þaktar þykku lagi af grámosa (gamburmosa). Maður verður að gæta sín við hvert fótmál, þar sem ekki sést hvað er undir mos- anum. Við gosið 8. júní 1783 rann Skaftáreldahraunið í 6 vikur nið- ur farveg Skaftár niður í Land- brot og Meðalland. Það hraun- rennsli stöðvaðist 20. júlí vestan Systrastapa í Eldmessutanga, þegar séra Jón Steingrímsson flutti eldmessu sína á Kirkjubæj- arklaustri. Hinn 29. júlí hófst gos á ný í gígjaröðum frá Laka inn undir Vatnajökul og næstu daga rann hraunstraumurinn niður gljúfur Hverfísfljóts sem fellur austan Síðunnar. 7. ágúst kom hraunflóðið fram úr gljúfrinu á sléttlendið beggja vegna Orr- ustuhóls. Þar beygðum við af hringveginum inn á vegaslóða sem liggur gegnum hraunið inn að fjallinu Miklafelli, áðum þar og tíndum fáein risastór krækiber, en snerum þar við enda degi tekið að halla. Allt var þakið grámosan- um, jafnvel hraundrangamir sem stóðu upp úr og voru þar ýmsar kynjamyndir einkum voru marg- ar fuglaþúfur skrítnar en þær myndast þegar fuglar setjast á stein eða hraunnibbu og bera á í leiðinni, enda eru þær margar vel hærðar. Krækiberja- hlaup (sulta) 1 lítri krækiberjasafi_ _______1 kg sykur_______ safi úr einni sítrónu hleypiefni ætloð í 1 lítro safa 1. Setjið krækiberjasafann og sítrónusafann í pott og látið sjóða. Stráið hleypiefninu út í og látið sjóða í eina mínútu. Takið þá af hellunni og hrærið sykurinn út í. Látið ekki sjóða eftir að sykur- inn er kominn saman við. 2. Sjóðið frekar litlar krukkur með skrúfuðu loki. Hellið sjóð- heitri sultunni í þær, hafið þær fleytifullar. Skrúfið lokið strax á. Athugið: Til þess að hlaup hlaupi, þarf safinn að vera tals- vert súr. Sykurinn á undantekn- ingarlaust að setja út í eftir á, jafnvel þótt annað standi á um- búðum. Bláberjasulta __________1 kg bláber________ __________750 g sykur________ 2 tsk. sultuhleypir + 2 msk. sykur 1. Setjið berin í pott ásamt helmingi sykurs og sjóðið við hægan hita í 10 mínútur. Takið þá pottinn af hellunni og kælið örlít- ið. 2. Setjið það sem eftir er af sykrinum út í og sjóðið í 5 mínút- ur. 3. Blandið saman sultuhleypi og 2 msk. af sykri, setjið í sigti og stráið yfir sjóðandi sultuna og hrærið vel í. 4. Hellið heitri sultunni í sjóð- andi heitar krukkur, sjá hér að framan. Að lokum er hér uppskrift af fljótlegum ábætisréttti. Bláberia- eða krækiberjabúð- ingur 1 pk. Royal-skyndibúðingur, ___________sítrónu________ 3 dl nýmjólk (minna en segir á um- __________búðum)__________ _________1 peli rjómi_____ 3 dl krækiber eða 4 dl bláber 1. Þeytið búðinginn með mjólk- inni. Þeytið rjómann og hrærið út í. 2. Setjið berin út í og geymið í kæliskáp í 15-30 mínútur. ÍDAG VllAAIvWm Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Útlendingar í ferðaþjón- ustustörfum FYRIR nokkrum árum las ég grein í Morgunblaðinu þar sem vakin er athygli á hversu margir útlendingar vinna hér í ferðaþjónustu. Þetta flaug í huga mér þeg- ar sagt var í fréttum frá tveimur rútuslysum sem orðið hafa hér á landi nú í sumar. I báðum tilvikum virtust leiðsögumennirnir vera erlendir, annar talaði reyndar ágæta íslensku, en hinn aðeins þýsku. I frétt- um af vélsleðaslysi á Langjökli var sagt að jökla- leiðsögumaðurinn hefði langa reysnlu sem hjálpar- sveitamaður. í frétt frá Leiðsögumannafélaginu kom fram að sá leiðsögu- maður hafi ekki leiðsögu- mannaréttindi. Er það virkilega svo að í ferðaþjón- ustunni sé verið að nota ómenntað starfsfólk sem tekur lægri laun en al- mennt gerist og jafnvel er- lent vinnuafl sem er ódýr- ara en íslenskt vinnuafl? Ég heyrði nýlega að erlend kona sem vinnur hér sem leiðsögumaður á sumrin fyrir erlenda ferðaskrif- stofu fái kr. 3000 í laun á dag. Það gerir svona 350- 400 kr. á tímann sem er ör- lítið hærra en unglingar fá hér í unglingavinnunni. Er ekki ábyrgðarhluti að láta útlendinga stjórna hér ferðum ef þeir þekkja ekki landið, rata ekki um landið, þekkja ekki staðhætti, veð- ur og náttúru og geta þar að auki ekki tjáð sig við þá aðila sem þeir verða að hafa samskipti við t.d. starfsfólk á viðkomustöðum, fólk sem það hittir til að spyrja til vegar í óbyggðum og ekki einu sinni við bílstjórann sem keyrir rútuna? Vina- fólk mitt sem ferðast mikið hér innanlands segist oft hitta erlenda leiðsögumenn sem vita ekkert hvar þeir eru staddir á landinu eða í hvaða átt eigi að keyra til að komast á ákveðinn áfangastað. Þau hafa líka sagt að á nokkrum gisti- stöðum úti á landi vinni út- lendingar sem ekki kunna stakt orð í íslensku nema „góðan dag“ og „takk fyr- ir“. Er ekki svolítið harka- legt að íslenskir ferðamenn verði að geta talað erlend tungumál til að fá af- greiðslu? Oft hefur verið talað um að störf í ferða- þjónustu væru láglauna- störf. Fróðlegt væri að heyra frá þeim sem til þekkja hvort íslensk ferða- þjónusta sé svo illa á vegi stödd að hún geti ekki borgað mannsæmandi laun. Er ekki nauðsynlegt að þessi störf vinni vel menntað fólk sem getur tai- að bæði íslensku og erlend tungumál og veit eitthvað um landið? Einnig væri fróðlegt að vita hve margir útlendingar hafi atvinnu- leyfi til að vinna hér ferða- þjónustustörf á þessu ári. Þetta er fyrirspurn til félagsmálaráðherra sem ég vona að hann svari. Guðrún. Enn um biðlistana ÞÖKK sé ritstjórn Morg- unblaðsins fyrir að leita á tilhlýðilegum stöðum eftir svörum við áleitnum spurn- ingum í bréfi mínu til heil- brigðisráðherra um biðlista sjúkrahúsa nú fyrir skömmu. Svörin segja mér þó ákaflega lítið. Forsvars- menn heilbrigðiastofnana hafa tileinkað sér lífsspeki þá sem oft má finna stað á Alþingi og reyndar mjög víða í þjóðfélaginu og sem ég felldi þannig rím og stuðla fyrir nokkrum árum: Ég breytingar vel víst til bóta / þær bjargfastur styð yfirleitt /. En eins verður alltaf að gæta / að engu sé raskað né breytt. Sigurbjörn Guðmundsson. Meðhjálpara getið MAÐUR hafði samband við Velvakanda og vildi koma því á framfæri að sér fyndist leiðinlegt að með- hjálparans er aldrei getið í messuflutningi. I upphafi messu les meðhjálparinn alltaf upphafsbænina, sem á að gilda fyrir alla mess- una og í messulok les hann þakkarbænina, þegar gengið er út til hins dag- lega lífs. Honum finnst að meðhjálparans eigi vissu- lega að vera getið, hans sé aldrei getið að verðleikum. Dýrahald Simbi er týndur SIMBI er eins og hálfs árs persneskur köttur, gul- brúnn að lit. Hann hvarf frá Úthlíð í Biskupstungum í byrjun ágúst. Hann er ómerktur. Simba er sárt saknað. Ef einhver veit um ferðir hans eða hvar hann er niðurkominn, vinsamleg- ast hafið samband í síma 567-1874. Fundarlaun. Einstein er týndur EINSTEIN hvarf frá heimili sínu í Skipasundi fyrir þremur mánuðum. Hann er tíu mánaða gamall geltur fress. Hann er gul- bröndóttur með hvítar loppur og bringu. Hann er eyrnamerktur með K-0017 húðflúrað í eyrað. Ein- steins er sárt saknað. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar um ferðir hans eru beðnir að hafa samband við Önnu í síma 863-9336. Fundarlaun. BRIDS Umsjón Guðmundur PáU Arnarson ANTON Haraldsson sýndi umsjónarmanni þetta spil frá útsláttar- leiknum á sænsku brids- hátíðinni sem íslenska sveitin tapaði með 6 IMP- um í 8-liða úrslitum og féll þar með úr keppni. Með réttu segir Anotn að sjald- an hafi hann séð jafn ótrú- lega vinningsleið í jafn slæmri legu! Vestur gefur; AV á hættu. Norður * 5,4 * 4762 ♦ A10984 ♦ 86 Vestur Austur + D * KG982 r KDG1098 » 3 ♦ KDG ♦ 7652 * 942 * 753 Suður ♦ Á10763 y 54 ♦ 3 ♦ ÁKDG10 „Meldingar eru bann- aðar yngri en 26 ára,“ segir Anton, en við látum þær flakka samt og þeir ungu halda bara fyrir augun. Magnús Magnús- son var í norður, en Þröst- ur Ingimarsson í suður: Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta Pass Pass Dobl 2 hjörtu 3 tíglar Pass 3spaðar Pass 4 spaðar Dobl Með doblinu var Þröst- ur að halda opnum þeim möguleika að makker væri bólstraður í hjarta, en þegar það reyndist ekki vera fóru sagnir nokkuð úr böndum. Að sögn Antons var lokadobl austurs svo- nefnt „smellidobl", sem heyrðist um allan sal. Út- spilið var tígulkóngur, sem Þröstur drap og dúkkaði strax spaða yfir á drottn- ingu vesturs. Nú tapast spilið óhjákvæmilega, því austur fær alltaf þrjá slagi í viðbót á tromp. En það er til vinningsleið á opnu borði og hún er þessi: Tígull er trompaður í öðrum slag og svo er spaðaásinn lagður niður. Þá er hjarta spilað á ás og tígull trompaður. Nú hef- ur það gerst að KDG í tígli eru fallin í valinn og tían er frí. Næst er laufi spilað og það þriðja trompað í borði. Hin fría tígultía er tekin og tígli spilað. Sagnhafi á nú níu slagi og fær þann tíunda á spaðatíu með framhjáhlaupi. Austur á KG98 í trompi, en suður tvö lauf og lOx í spaða! Sannarlega fallegt spil. Víkverji skrifar... EFTIR helgi byrja grunnskóla- börn fyrir alvöru í skólanum. Nestismál hafa verið til umræðu en í sumum skólum fá börnin mat og í öðrum skólum koma þau að heiman með nesti. Vinur Víkverja á barn í skóla á Seltjamarnesi þar sem ekki er boðið upp á mat og barnið fer með nesti. Stærra barnið í fjölskyldunni hefur mötuneyti í sínum skóla og for- eldrarnir borða í vinnunni. Það er því einungis yngsti fjölskyldumeðlimur- inn sem þarf að borða nesti sem smurt var mörgum klukkutímum áð- ur en þess er neytt. Og þar sem eng- in kæliaðstaða er í skólanum þýðir það að áleggið á brauðinu sem fer í nestisboxið er ekki mjög fjölbreytt. Víkverji furðar sig á seinagangin- um í forsvarsmönnum skólans. Plássleysi er kennt um fyrst og fremst og að foreldrar hafi skiptar skoðanir á þessum málum. Á meðan ekki er búið að koma upp eldhúsum í skólum, hvers vegna hafa þá ekki fleiri tekið upp sömu stefnu og er í Garðabæ, að kaupa matarpakka fyr- ir börnin utan úr bæ? Þar hefur verið gerður samningur við Sóma og for- eldrar borga 160 krónur á dag fyrir fjölbreytta matarpakka sem foreldr- ar, fulltrúar skóla og forsvarsmenn fyrirtækisins setjast niður og semja. Áð mati Víkverja er það hneisa að þessi mál skuli ekki vera komin í við- unandi farveg. xxx ANNAR vinur Víkverja freistast stundum til að panta pitsur fyr- ir fjölskylduna á föstudagskvöldum og hefur verið að prófa flatbökur frá ýmsum stöðum. Hann kaupir iðulega eina pitsu en fær síðan tvær ef hann sækir herlegheitin sjálfur. Nú er það svo að smábarnið í fjölskyldunni hef- ur sérþarfir, það borðar bara pitsu með skinku og ananas. Aðrir í fjöl- skyldunni fussa bara. Vinurinn hefur þess vegna reynt að fara fram á að fá fjórðung pitsunnar með skinku og ananas. Það reynist hins vegar ekki auðvelt. Afgreiðslufólkið á pitsustöð- unum vill bara að maður skipti pits- unni í tvennt hvað álegg varðar og það reynist ekki nokkur möguleiki á að fá það til að hliðra til með þetta. Vinur Víkverja hefur prófað að út- skýra að litla barnið í fjölskyldunni torgi ekki stærri skammti, hann hef- ur verið yfirmáta kurteis, beitt rök- um, notað ískalda rödd í símann eða verið pirraður. Ekkert dugar. Víkverji furðar sig á því að liðleg- heitin skuli ekki vera meiri á þessum stöðum og er búinn að lofa sjálfum sér að vera duglegri við að kaupa deigið í bakaríi og skella sjálfur álegginu á flatbökurnar. XXX Hlaupahjól hafa verið vinsæl í sumar og í hverfinu sem Vík- verji er í eru mörg börn á slíkum far- arskjótum. Hann veltir fyrir sér hvers vegna banna eigi bömum að koma á hlaupahjóli í skólann. I allri umræðu um að börn þurfi að hreyfa sig meira væri þá ekki tilvalið að örva þau til að koma á hlaupahjóli í skólann? Það er nauðsynlegt að fara var- lega á hlaupahjóli sem og á línu- skautum og venjulegum hjólum. Vík- verji teldi skynsamlegra að nota þetta tækifæri þegar skólarnir eru að byrja og skikka börnin til að nota hlífðarbúnað sem þau gera í undan- tekningartilvikum eins og málum er núna háttað. Ef þau mættu ekki koma á slíkum fararskjótum í skól- ann án þess að vera í stömum skóm og með hjálm, olnboga- og hnéhlífar svo og hanska. þá vendust þau hlífð- arbúnaðinum og væru alltaf varin, ekki bara á leið í skólann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.