Morgunblaðið - 12.09.2000, Síða 41

Morgunblaðið - 12.09.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR12. SEPTEMBER 2000 41 UMRÆÐAN Stíflugerður þjóðgarður? EFTIR Eyjabakka- deiluna hefur æ fleiri landsmönnum orðið ljóst hversu mikil og vaxandi verðmæti fel- ast í stórbrotinni og tiltölulega ósnortinni náttúru íslands. Gera verður þá kröfu að skipulagning og nýt- ing þessarar auðlindar sé byggð á vandvirkni og framsýni og að skammtímahagsmunir núlifandi kynslóðar séu þar ekki allsráð- andi. Enda þótt ís- lendingar eigi mikinn forða vatnsfalla og annarra virkjunarmöguleika til raforkuframleiðslu er langt frá því að þar sé um ótæmandi auðlind að ræða, sem hægt sé að ganga á af handahófi eða samkvæmt óskum hagsmunaaðila, stjórnmálamanna eða þrýstihópa. Þessa var sannar- lega ekki gætt þegar þingsályktun- artillaga um Fljótsdalsvirkjun og tilheyrandi uppistöðulón á Eyja- bökkum var keyrð í gegn á Alþingi í lok ársins 1999. Vonandi hafa menn lært af mistökunum. Heillandi hugmynd um þjóðgarð Hugmyndin um að norðan Vatnajökuls verði í framtíðinni stærsti þjóðgarður í vestanverðri Evrópu á stærsta ósnortna víðerni þess heimshluta er heillandi. I henni felst að náttúruleg og til- finningaleg verðmæti eru varðveitt en jafnframt hafðar tekjur af þeim. En sitt sýnist hverjum og stundum taka hlutirnir óvænta stefnu. í máli fjölmargra stuðningsmanna stór- virkjana norðan Vatnajökuls í tengslum við byggingu fyrirhugaðs risaálvers í Reyðarfirði hefur kom- ið fram, að sjálfsagt sé að koma á fót þjóðgarði norðan Vatnajökuls, en það geti vel samrýmst fyrirætl- unum um risastíflur og víðáttu- mikil uppistöðulón á svæðinu! Að mínu mati stangast þessar tvær hugmyndir á. Verði hugmynd virkjana- og stóriðjusinna ofan á verður að færa fyrir henni skýr efnahagsleg rök. Hugsanleg málamiðlun? Jafnvel þótt virkjað yrði við Kárahnúka, yrði það nokkur sára- bót fyrir umhverfis- og náttúru- verndarsinna, ef Snæfellssvæðið ásamt aðliggjandi vatnsföllum yrði friðað í Snæfellsþjóðgarði. Þá á ég við að Jökulsá í Fljótsdal, Grjótá, Hölkná og Laugará falli áfram í óbreyttum farvegum sínum til sjávar, en sameiginlegt vatnsmagn þeirra er aðeins fjórðungur af vatnsmagni Jökulsár á Brú eða Jöklu. Að tala um Snæfellsþjóð- garð eftir að svæðið norðan fjalls- ins hefur verið girt með stíflum, skurðum og veitum sem tengja Grjótá, Hölkná og Laugará saman er ósamrýmanlegt í huga undirrit- aðs. Ekki má heldur gleyma því, að með virkjun Jökulsár í Fljótsdal við Eyja- bakkafoss hverfa margir fallegir fossar á leið árinnar norður í Lagarfljót. Það skal þó ekki vanmetið hversu miklu er hlíft með hinu breytta lóns- stæði frá fyrri áætlun- um. Eyjabakkasvæð- inu verður ekki sökkt og komist hjá því að sendin strönd með ÓlafurF. rofabörðum myndist í Magnússon austurhlíðum Snæ- fells, en þær eru grón- ar í allt að 1.000 metra hæð eða sem samsvarar því að Esjan væri klædd gróðri frá fjöru að tindi! En jafnvel þó að talsmenn náttúru- verndar í dag gætu sætt sig við einhverja málamiðlun er hætt við að komandi kynslóðir muni seint fyrirgefa þau náttúruspjöll, sem nú standa fyrir dyrum. Stíflur og veitur Kárahnúkavirkjunar A heimasíðu Landsvirkjunar um Kárahnúkavirkjun kemur fram, að gert sé ráð fyrir að stífla Jökulsá á Brú með þremur stíflum og mynda þannig miðlunarlón virkjunarinnar þ.e. Hálslón, sem yrði 50-60 fer- kílómetrar að flatarmáli eða á stærð við Blöndulón. Aðalstíflan þ.e. Kárahnúkastífla kæmi þvert yfir syðsta hluta Dimmugljúfra vestan í Fremri-Kárahnúk og yrði um 190 metrar á hæð en 750 metra löng, en vesturstífla um 35 metra há og 1.045 metra löng á mótum Sauðár- og Laugavalladals og aust- urstífla 55 metra há og 875 metra löng í Desjarárdalsdrögum. A sömu heimasíðu er rætt um veitur tengdar Kárahnúkavirkjun og er þar fyrst vikið að veitu úr Jökulsá úr Fljótsdal, sem gerð yrði með um 1 km langri og 40 metra hárri stíflu í farvegi árinnar fyrir neðan Eyjabakkafoss. Einnig eru nefndar til sögunnar Hraunaveita austan Eyjabakkasvæðisins og áð- urnefndar veitur norðan Snæfells, „þar sem vatni úr Grjótá og Hölkná yrði veitt til Laugarár með stíflum og skurðum". Loks er nefnd Bessastaðaárveita, þar sem Bessastaðaá yrði stífluð og veitt um Gilsárvötn og skurði að inntaki í aðrennslisgöng Kárahnúkavirkj- unar. Mikil spjöll fyrir lítinn ávinning í skýrslu Landsvirkjunar um mat á umhverfisáhrifum Fljóts- dalsvirkjunar, sem kom út í nóv- ember 1999, er fyrirhugaðri Grjót- ár-, Hölknár- og Laugarárveitu lýst. Með þessum veitum myndast um 12 kílómetra langt samfellt svæði stíflugarða, skurða og lóna. Segja má að þessar veitur myndi bogadregna línu vestan og norðan Sauðafells, norður af Snæfelli. Efri (0 c "5 u5 o HELLUSTEYPA JVJ Vagnhöfða 17 112 Reykjavík Sími: 587 2222 Fax: 587 2223 Geriö verðsamanburð Tölvupóstur.- sala@hellusteypa.is Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18 Stífla Verði Jökulsá á Brú, Grjótá, Hölkná, Laugará og Jökulsá í Fljótsdal stíflaðar, segir Olafur F. Magnússon, er út í hött að tala um þjóðgarð norðan Vatnajökuls. hluta Grjótár, sem liggur vestast, á að veita í Hölkná með stíflum og skurði. Stíflugarðar Grjótárveitu verða tæplega 1 km að lengd og skurðir mun lengri. Með Hölknár- veitu verður vatni úr Grjótá og Hölkná veitt í Laugará og verður Hölkná stífluð um 2,5 km norðvest- an Sauðafells, en þar myndast um 0,75 ferkílómetra lón, þar sem ak- vegir frá Hrafnkelsdal og Fljótsdal mætast við afleggjarann inn að Snæfellsskála. Aður hefur leið ferðalanga úr Fljótsdalshéraði leg- ið fram hjá stíflu Laugarárveitu, þar sem vatninu úr Grjótá, Hölkná og Laugará er veitt í aðrennslis- göng Jökulsárveitu. Sameiginlegt rennsli Grjótár-, Hölknár- og Laugarárveitu til fyrirhugaðrar Kárahnúkavirkjunar yrði aðeins rúmlega 3 rúmmetrar á sekúndu. Sumum finnst að hér sé nokkuð langt seilst eftir hverjum vatns- dropa á svæði, sem rætt er um að tilheyri Snæfellsþjóðgarði. Margt mælir með að þessum þrem litlu bergvatnsám verði leyft að renna áfram í farvegum sínum, jafnvel þótt bæði Jökulsá á Brú og Jökulsá í Fljótsdal yrðu virkjaðar. Allt of mikil spjöll til viðbótar hlytust af því að virkja þessar bergvatnsár, sem eru smásprænur í samanburði viðjökulfljótin tvö. Eg læt það síðan verða mín loka- orð, að verði Jökulsá á Brú, Grjótá, Hölkná, Laugará og Jökulsá í Fljótdsdal stíflaðar, er út í hött að tala um þjóðgarð norðan Vatnajök- uls. Betra er að finna aðrar og rétt- ari nafngiftir fyrir svæði, sem verða fyrir jafn mikilli breytingu. Höfundur er læknir og borgnr- fulltrúi. Hnnn er stofnandi og forsvarsmaður Vmhverfisvina. Lýðræði í stað einræðis við skipun hæsta- réttardómara ÞAÐ væri að bera í bakkafullan lækinn að bæta nokkru við þá umræðu sem fram hef- ur farið um nýjustu skipun dómara við Hæstarétt, en þar sýn- ist sitt hverjum. Það er hins vegar að mínu viti alvarlegt mál að jafn skiptar skoðanir skuli vera um skipun í rétt- inn því Hæstiréttur Islands er einn af homsteinum íslensks stjómskipulags og mikilvægt að sátt ríki Lúðvík um réttinn og skipun í Bergvinsson hann. Það er ein af for- sendum þess að virðing sé borin fyrir niðurstöðum réttarins. Núverandi fyrirkomulag Það hefur lengi verið mín skoðun að núverandi fyrirkomulag við skip- un í réttinn, sem er þannig að dóms- málaráðherra einn tilnefnir dómara, sem forseti síðan skipar, sé ekki til þess fallið að ná sátt og virðingu sem æðsti dómstóll hvers lands verður að njóta. Þetta fyrirkomulag býður auk þess hættunni heim á að skipað verði í réttinn út frá pólitískum línum, sem getur leitt til virðingarleysis almenn- ings gagnvart réttinum. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. í ljósi reglna stjórnarskrárinnar um þrí- greiningu ríkisvalds í löggjafar-, framkvæmda- og dómsvald, verður að telja undarlegt að við skipun dóm- ara í réttinn skuli aðeins koma full- trúi framkvæmdavaldsins, þ.e.a.s. dómsmálaráðherra. Þriðji handhaf- inn, Aiþingi, kemur þar hvergi nærri. Dómsmálaráðherra hefur því, skv. núgildandi reglum, nánast ein- ræðisvald um það hverjir setjast í Hæstarétt íslands. Tillaga um breytingar Á síðasta löggjafarþingi lagði und- irritaður fram frumvarp til laga á Al- þingi um breytingu frá núverandi fyrirkomulagi, sem fólst í því að for- sætisráðherra tilnefndi dómara í réttinn. Þá tilnefningu tilkynnti hann forseta Alþingis. Tilnefning forsætisráðherra fengi að því loknu meðferð í þingnefnd, sem ætlað væri að fjalla um hæfni þess sem til- nefnd(ur) er, og skila skýi-slu um það mat sitt með rökstuddri niður- stöðu. Að því loknu yrði tillaga forsætisráð-s> herra borin undir Al- þingi, sem samþykkti tdnefninguna ef % hlut- ar þeirra þingmanna sem greiða atkvæði eru tillögunni fylgjandi. Annars er tilnefning forsætisráðherra fallin og verður hann að til- nefna að nýju. Hug- myndin að baki þessari tillögu um breytingar er fyrst og fremst sú, að styrkja stöðu Hæstaréttar í samfélaginu. Því það er mat undirritaðs að ef báðir hand- hafar ríkisvaldsins, framkvæmda- Hæstiréttur Tillaga frá Lúðvík Bergvinssyni um að forsætisráðherra til- nefni dómara í réttinn. valdið og löggjafarvaldið, standa að skipun í réttinn sé það til þess fallið að styrkja réttinn og líklegra til að skapa sátt um tilnefninguna. Með því:- að gera kröfu um aukinn meirihluta er verið að reyna að tryggja rétt minnihlutans til að hafa áhrif á það hver á endanum sest í sæti dómara, sem væri þá líklegt til að skapa sátt um niðurstöðuna. Þetta ætti að styrkja stöðu einstakra dómara og Hæstaréttar, sem einn af hornstein- um íslensks stjómskipulags. Þetta frumvarp verður lagt fram að nýju á komandi vetri. Höfundur er alþingismaður. Grunnnám í Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun hefst 14. okt 2000 Leiðbeinandi Thomas Attlee DO,MRO,RCST COLLEGE OF CRANIO-SACRAL THERAPY sími 699 8064/564 1803 www.simnet.is/cranio skóli ólafs gauks Innritun stendur nú yfir í flokka er í boði, bæði fyrir síma 588-3730, eða í skólan- byrjendur og þá sem kunna um að Síðumúla 17. Fjölbreytt nám fyrir alla aldurs- HÆGT AÐ FÁ LEIGÐA HEIMAGÍTARA KR. 2500 Á ÖNN Sendum vandaðan upplýsingabækling eitthvað fyrir sér. Innritun er dag- lega kl. 14-17. 588-3730 INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17 fi „

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.