Morgunblaðið - 12.09.2000, Síða 72
MORGUNBLAÐW,KRINGLUNNI 1,103REYKJAVÍK,SÍMl5691100,SÍMBRÉF5691181,PÓSTHÓLF3040, TspTr\ TTTF» A PTTT? 1 9 QT?T3rrT?l\/TT3T7'T3 onnn TrTT’prv T T A TTQ A QÖT TT 1 KÍT ITT? TV/TTT'IT T7'QLr
ASKRIFT-AFGREWSLA5691122,NETFANG:R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI:KAUPVANGSSTRÆTI1 PKliJJ U JjATjr U Lá. Oiljr 1 Il/iViljUK ZUUU VillItxT I LAU öAoUL U ÍDU V OlV.
Ashkenazy
gefur Sinfóníu-
hljómsveitinni
bestu einkunn
VLADIMIR Ashken-
azy, tónlistarstjóri
Tékknesku fílharm-
óníusveitarinnar og
heimskunnur píanóleik-
ari, kemur hingað til
lands í janúar á næsta
ári til þess að stjórna
Sinfóníuhijómsveit Is-
____lands. 22 ár eru síðan
Ashkenazy stjómaði
síðast Sinfóníuhljóm-
sveitinni. Það var árið
1978 á Listahátíð í
Reykjavík og einleikari
var Mstislav Rostropo-
vich sellóleikari. Vinslit
urðu þá með Ashkenazy
og Sinfóníuhljómsveit-
inni en nú hafa fullar sættir tekist.
Ashkenazy gefur hljómsveitinni nú
sína bestu einkunn.
„Það er langt síðan ég stjómaði
j^hljómsveitinni síðast. Það kom upp
misskilningur milli hljómsveitarinnar
og mín á sínum tíma og þess vegna
hefur orðið svo langt hlé á samstarfí.
Þegar svo langur tími h'ður breytist
allt. Það er komið nýtt fólk og það
skiptir ekki máli lengur hvað gerð-
ist,“ segir Ashkenazy.
Hann mun stjóma hljómsveitinni í
janúar og á efnisskránni verður
níunda sinfónía Dimitrij Shostakovits
og Das Lied von der Erde eftir Gust-
av Mahler. „Das Lied von der Erde
er eitt af mínum uppáhaldsverkum.
Shostakovits var mjög hrifinn af
Mahler og mér fannst vit í því að hafa
þá saman á efnisskránni."
Sinfóníuhljómsveitin
•JK í háum gæðaflokki
Ashkenazy kveðst ekki hafa heyrt
Sinfóníuhljómsveit íslands leika ný-
lega. „Fyrir fáeinum ámm keypti ég
geisladisk þar sem hljómsveitin lék
og spilamennskan var einstaklega
góð; mun betri en áður fyrr. Það hafði
mikil áhrif á mig og gladdi mig ósegj-
anlega að heyra hve mikil framför
hafði orðið. Eg veit því að hljómsveit-
in er í mjög háum gæðaflokki,“ segir
Ashkenazy.
Sem tónlistarstjóri Tékknesku fíl-
harmóníunnar hefur Ashkenazy ver-
ið önnum kafínn að undanfömu í
hljóðveri við upptökur. Hann segir að
hljómplötuiðnaðurinn hafi mátt þola
_mikinn samdrátt síðustu ár og nú sé
^^minna um upptökur á klassískri tón-
list en áður. „Við erum ein af fáum
hljómsveitum í heimi sem enn hafa
verkefni á þessu sviði,“ segir Ashk-
enazy.
Aðspurður hvort til greina komi að
Vladimir Ashkenazy
hljómsveitarstjóri.
hann haldi píanótón-
leika hér á landi ein-
hvem tíma á næstunni
sagði hann: „Eg vona
það og mun reyna að
finna tíma til þess ein-
hvem tíma.“
Hann staldrar ekki
lengi við að þessu sinni
á landinu en vonast til
þess að komast aftur til
Islands næsta sumar.
„Ég er afar hrifinn af
landinu og langar að
eyða meiri tíma þar. Ég
verð alltaf þakklátur ís-
lendingum fyrir vinar-
þel þeirra síðustu ára-
tugina. Þeir hafa verið
einstaklega vingjamlegir og hlýir í
minn garð. Berið kveðju mína til allra
á Islandi og sérstaklega hljómsveit-
arinnar," sagði Ashkenazy.
Eldur við Hverfísgötu
Morgunblaðið/Kristinn
TALSVERT tjón varð í bruna í
geymsluhúsnæði við Hverfisgötu
91 í Reykjavík í gærkvöldi en
greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Enginn var í húsinu þegar eldsins
varð vart og eldsupptök eru
ókunn. Slökkvilið var kallað út um
kl. 21.40 og voru allir vaktmenn
sendir á vettvang. Töluverður eld-
ur var þegar slökkviliðsmenn
komu að húsinu, sem er þriggja
hæða geymsluhúsnæði, og logaði
glatt á efstu hæð þess. Slökkvistarf
gekk hins vegar vel og tókst fljót-
lega að ráða niðurlögum eldsins.
Bæjarstjdri V e stmannaeyj a um útboðið á rekstri Herjólfs
Ahyggjur ef stjórn-
unin fer frá Eyjum
GUÐJÓN Hjörleifsson, bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum, og
Magnús Jónasson, framkvæmda-
stjóri Herjólfs hf., lýstu í gær
áhyggjum sínum af þeim mögu-
leika að stjórnun Vestmannaeyja-
ferjunnar Herjólfs færðist úr Éyj-
um en greint var frá því í gær að
tvö tilboð hefðu borist í rekstur
ferjunnar. Liðlega 133 milljóna
króna munur er á tilboðunum sem
bárust og bjóðast Samskip hf. til
að reka ferjuna í þrjú ár fyrir 192
milljónir, sem er talsvert undir nú-
verandi kostnaði, en Herjólfur hf.,
núverandi rekstraraðili, bauð 325
milljónir kr.
Herjólfur þjóðvegur
Vestmannaeyja
Magnús sagði í samtali við
Morgunblaðið að það myndi sjálf-
sagt vekja litla ánægju í Vest-
mannaeyjum ef Herjólfi yrði fram-
vegis stjórnað frá Reykjavík og
Guðjón tók í sama streng. Rekst-
urinn hefði verið í höndum heima-
manna og gengið vel.
Sagði Guðjón að það væri mjög
bagalegt fyrir Vestmannaeyjar ef
reksturinn færi til Reykjavíkur.
Hér væri um tilfinningamál að
ræða því Herjólfur væri þjóðvegur
Vestmannaeyinga. „Það sem kem-
ur mest á óvart er þessar upp-
hæðir sem boðnar eru í verkið,"
sagði hann. „Þessi rekstur hefur
verið í járnum og ef eitthvað er þá
hefur ekki tekist að sinna því við-
haldi sem skipið hefur þurft.“
Guðjón sagði að tilboð Herjólfs
hf. fæli einfaldlega í sér borðliggj-
andi kostnað, allar tölur í dæminu
væru meira og minna eyrnamerkt-
ar og kröfur um þjónustu og tíðni
ferða væru jafnframt skýrt skil-
greindar. Væri svigrúmið jafn
mikið og tilboð Samskipa gefur til
kynna þá væri eitthvað meira en
lítið dulið þeim í Vestmannaeyjum.
Sagði hann að menn hlytu að fara
ofan í þessar tölur og sannreyna
það með sjálfum sér að hægt væri
að reka ferjuna svona ódýrt.
Kristinn Þór Geirsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs innan-
lands hjá Samskipum, sagði hins
vegar að hjá félaginu væri fyrir
hendi góð reynsla af rekstri Eyja-
fjarðarferjunnar Sæfara sem Sam-
skip hafa haft með höndum undan-
farin ár. Félagið væri auk þess
með flutninga á sjó og landi.
Ekki óvanir því að vera
undir kostnaðaráætlun
Kristinn Þór sagði að búið væri
að fara yfir forsendur tilboðsins
eftir að tilboðin voru opnuð í gær
og ekkert benti til annars en að
það stæðist skoðun. Tilboð félags-
ins væri nálægt kostnaðaráætlun
og menn þekktu forsendur þess
munar sem þar væri. „Við erum
ekki óvanir því að vera undir
kostnaðaráætlun," sagði hann.
■ Tilboð Samskipa/12
Eyðublöð LÍN innan skamms á Netinu
Léttir álag á umboðs-
• •
monnum namsmanna
VIÐSKIPTAVINIR Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna munu innan tíð-
ar geta nálgast eyðublöð sjóðsins á
Netinu, fyllt þau út og sent með raf-
rænum hætti. Lánasjóðurinn er
fyrsti aðilinn hér á landi sem kynnir
þessa nýjung í samstarfi við Form.is,
en samningur þar um var undirritað-
ur í gær. Steingrímur Ari Arason,
framkvæmdastjóri LÍN, segir að
mikið hagræði og miklir möguleikar
skapist með tilkomu samstarfsins.
Þessi nýja þjónusta muni þegar fram
líði stundir sérstaklega létta mjög
álag á umboðsmönnum námsmanna
erlendis.
■ Þjónusta/20
Þegar farið var að gera við
strenginn kom í ljós að hann hef-
ur sennilega verið logskorinn í
sundur.
Landssíminn óskar
lögreglurannsóknar
Cantat 3
skorinn í
sundur?
VERKSUMMERKI benda til þess
að Cantat 3-sæstrengurinn, sem fór í
sundur skammt innan marka ís-
lensku lögsögunnar í seinasta mán-
uði, hafi verið vísvitandi skorinn í
sundur. Hefur Landssíminn óskað
eftir opinberri rannsókn á atburðin-
um, að sögn Ólafs Þ. Stephensen,
forstöðumanns upplýsinga- og kynn-
ingarmála hjá Landssímanum.
„Verksummerki benda til þess að
sæstrengurinn hafi verið dreginn
upp á dekk á togara, tjöruþráðum,
sem eru ysta einangrunin á strengn-
um, hafi verið ýtt aftur og vírkápan,
sem er utan um sjálfa glerþræðina,
verið logskorin í sundur. Þetta lítur
allt öðruvísi út en þegar strengur
slitnar vegna átaks,“ sagði Ólafur.
Hann bendh- einnig á að í fjar-
skiptalögum séu lagaákvæði þar sem
kveðið er á um að bæta beri útgerð-
um tjón ef skip flækja veiðarfæri í
sæstreng. „Við viljum miklu frekar
að menn skeri á togvírana og við
bætum þeim tjónið en að menn skeri
á sæstrenginn og valdi stórkostlegri
truflun á fjarskiptum, auk þess sem
þeir eiga þá yfir höfði sér lögsókn."