Morgunblaðið - 24.09.2000, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 23
Kosovo kemur
okkur við
Morgunblaðið/Þorkell
Urður Gunnarsdóttir í ræðustól á fundinum í utanríkisráðuneytinu.
Kristín Ástgeirsdóttir fylgist með.
Kristín Ástgeirsdóttir,
fv. alþingismaður og
núverandi starfsmaður
UNIFEM í Kosovo, og
Urður Gunnarsdóttir,
fv. fjölmiðlafulltrúi
ÖSE þar, segja að full
ástæða sé til þess fyrir
Islendinga að láta sig
þróun mála á Balkan-
skaga varða og leggja
sitt af mörkum til upp-
byggingarstarfs á
þessum slóðum.
í KOSOVO-héraði og á öðrum svæð-
um Balkanskaga starfa um þessar
mundir tíu Islendingar að friðar-
gæzlu- og uppbyggingarstarfi sam-
kvæmt launasamningum sem utan-
ríkisráðuneytið hefur gert við þá,
auk annarra sem eru að svipuðum
störfum á svæðinu á vegum frjálsra
félagasamtaka, svo sem Rauða
krossins.
Þær Kristín Astgeirsdóttir, fyrr-
verandi alþingismaður, sem hefur
undanfarið hálft ár verið í Kosovo á
vegum UNIFEM, kvennahjálpar
Sameinuðu þjóðanna, og Urður
Gunnarsdóttir blaðamaður, sem ný-
lokið hefur 18 mánaða starfi á vegum
ÖSE í Kosovo, fluttu á föstudag er-
indi um reynslu sína, ástand og horf-
ur í Kosovo á opnum fundi í utanrík-
isráðuneytinu sem ráðuneytið og
Félag stjómmálafræðinga boðuðu
til. Hjálmar W. Hannesson sendi-
herra sem stýrði fundinum upplýsti
að undanfarin ár hefðu fjárframlög
Islands til friðargæzluverkefna og
uppbyggingarstarfs á átakasvæðum
hækkað og á fjárlögum væri nú varið
til þessa starfs 147 milljónum króna
sem væri fimmtungsaukning frá því
í fyrra. Þessa þróun segir Hjálmar
vera mjög æskilega, enda sé Islend-
ingum nauðsynlegt að taka þátt í
friðargæzlu- og uppbyggingarstarfi.
Það þjóni bæði öryggishagsmunum
þjóðarinnar til langs tíma litið en
hjálpi einnig Islendingum til að láta
taka sig alvarlega á alþjóðavett-
vangi. „Slíkt starf fellur vel að utan-
ríkispólitík lands sem ekki hefur eig-
in her og hugmyndafræðin um að
koma að uppbyggingu þar sem brýn
er þörfin passar okkur vel,“ segir
Hjálmar. Þetta hafi Halldór As-
grímsson utanríkisráðherra einnig
tíundað í ræðu sinni á 55. allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna á dögun-
um.
Þolinmæði þarf til
Kristín rifjaði upp sögu Kosovo-
héraðs sem upplifað hefur ýmsa
hildina á liðnum öldum. Ibúar hér-
aðsins, sem er 11.000 ferkílómetrar
eða á stærð við Þingeyjarsýslumar
tvær, eru nú taldir vera tæpar tvær
milljónir, en tölur þar að lútandi em
á reiki. Sennilega búa nú færri en
100.000 Serbar innan landamerkja
Kosovo. Sagði Kristín það mjög mik-
ilvægt að íbúarnir lærðu sem fyrst
að bera sjálfir ábyrgð á eigin framtíð
og því væm kosningar til sveitar-
stjóma, sem fram eiga að fara í
héraðinu í næsta mánuði eftir nýrri
skipulagsáætlun þeirra alþjóðasam-
taka sem virk em á svæðinu, mjög
mikilvægar. Herskáir Kosovo-Alb-
anar, sem áður tilheyrðu Frelsisher
Kosovo (UCK), fara að sögn Kristín-
ar sínu fram að mestu.
I sínu erindi velti Urður fyrir sér
hverjar væm ástæðurnar fyrir því
að svo lítið hefur farið fyrir frétta-
flutningi frá Kosovo hér á landi frá
því að friður komst aftur á í héraðinu
eftir hernaðarárásir Atlantshafs-
bandalagsins í íyrra. Sagði hún allar
helztu fréttastofur heims og fjöld-
ann allan af virtum dagblöðum ým-
issa landa fylgjast náið með atburð-
um í Kosovo, enda lægi þar í raun
lykillinn að því að tryggja megi frið
til frambúðar í þessum heimshluta.
Urður var í fyrstu, í febrúar 1999,
skipuð sem einn tíu blaðafulltrúa um
1.300 manna eftirlitsliðs Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, í
Kosovo en skömmu eftir að hún hóf
þessi störf í héraðshöfuðborginni
Pristina var allt lið ÖSE tilneytt
vegna átaka að víkja þaðan til fyrr-
verandi júgóslavneska lýðveldisins
Makedóníu. Er friður komst aftur á
sumarið 1999 flutti hún aftur til
Pristina og var m.a. sett talsmaður
ÖSE þar. Síðastliðið hálft ár, fram til
loka ágústmánaðar, stýrði hún ein-
um hluta fjölmiðladeildar ÖSE sem
sér um stuðning við frjálsa fjölmiðla,
auk þátttöku í að semja ný og um-
deild fjölmiðlalög og siðareglur sem
þörf þótti á að setja.
Tók Urður undir það mat Krist-
ínar, að það væri nánast ómögulegt
að ímynda sér, að albanskir íbúar
Kosovo myndu um fyrirsjáanlega
framtíð geta sætt sig við að héraðið
færi aftur undir stjórn Belgrad,
hvort sem þar yrðu stjórnarherra-
skipti eður ei. Eftir það sem á undan
er gengið sæti hatrið djúpt og við-
búið að blossa myndu upp átök milli
þjóðabrotanna á ný ef hið alþjóðlega
friðargæzlulið hyrfi af vettvangi.
Urður benti á, að þrátt fyrir að
„alþjóðasamfélagið", þ.e. SÞ, ÖSE,
NATO, Evrópusambandið (ESB) og
einstök lönd, væri með sterkt og fjöl-
mennt lið á sínum snærum í Kosovo
og mikið hefði verið fjárfest í upp-
byggingarstarfinu væri samt langt
frá því að það dygði til að hafa fulla
stjórn á ástandinu. Urður og Kristín
sögðu báðar íslendinga geta lagt
uppbyggilegan skerf af mörkum til
að mjaka málum til betri vegar. Það
væru sameiginlegir hagsmunir allra
að stöðugleiki kæmist á og með því
að miðla af reynslu okkar af því að
búa í frjálsu og þroskuðu lýðræðis-
samfélagi stuðluðum við að því.
Esjuberg auglýst til sölu
ÁKVEÐIÐ var á borgarráðsfundi í vikunni að húsið upp ákveðið verð heldur óskað eftir tilboðum,
Esjuberg við Þingholtstræti, sem áður hýsti Borgar- Aðalsafn Borgarbókasafnsins var til húsa í Esju-
bókasafn Reykjavikur, verði auglýst til sölu. bergi um áratugaskeið en starfsemi þess var flutt í
Að sögn Hjörleifs Kvaran borgarlögmanns verður nýtt húsnæði við Tryggvagötu, nú í haust.
húsið auglýst nú um helgina og verður ekki sett
(i (~l_
4
Lrh
lC c
. **
fil vin<
®g vandamnnika
i úIIÍllíuih I
Isiglft 8sppfesf§ÉféSá né aiiSiMiiiaittfð
Eftir að þú hefur skráð þig í Landsnetið fyrir
ódýrari símtölum til útlanda, getur þú um leið
hringt til útlanda úr hvaða síma sem er!
IMmgfe m&WM í síma mm eða
skráðu þig á heimasíðu okkar á slóðinni
WWWJkmám@L%&. Þú velur síðan í
stað OO áður en erlenda símanúmerið er valið
og byrjar strax að spara!
¥®i# fe¥#rl mm SnrlMgl er
Símtöl mæld í sekúndum.
MilIaiiMteMiSfléS tSS
í
Einnig hægt að fá yfirlit sent í
hefðbundnum pósti eða nálgast daglegt
yfirlit á heimasíðu okkar.
Verðdæmi: 10 mínútna símtal til útlanda:
Landsnet(1080)* Landsíminn (00)
Belgia 165.- 229.-
Bretland 165.- 209.-
Danmörk 165.- 209.-
Luxemburg 165.- 229.-
Japan 165.- 490.-
* Verð til helstu viðskiptalanda okkar. Sjá nánar á heimasíðu okkar.
Endanlegt verð pr. mínútu til viðskiptavina með vsk.