Morgunblaðið - 17.10.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 17.10.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913 238. TBL. 88. ARG. ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTOBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Lítill árangur náðist á fyrsta degi leiðtogafundar fsraela og Palestinumanna Reynt til þrautar að ná samkonmlagi Sharm el-Sheikh. Reuters, AFP. ÍSRAELAR og Palestínumenn sögðu að lítill árangur hefði náðst á leiðtogafundi þeirra í Egyptalandi í gær og blóðug átök blossuðu upp að nýju milli ísraelskra hermanna og palestínskra mótmælenda á Vestur- bakkanum og Gaza. Fundinum var haldið áfram fram eftir nóttu og reynt til þrautar að ná samkomulagi sem gæti bundið enda á blóðsúthell- ingarnar. „Þetta er flókið og við vitum ekki hvað gerist,“ sagði Ehud Barak, for- sætisráðherra Israels, skömmu áð- ur en hann snæddi kvöldverð með hinum leiðtogunum á fundarstaðn- um, Sharm el-Sheik við Rauðahaf. Bill Clinton Bandaríkjaforseti ætlaði að fara aftur til Bandaríkj- anna í gærkvöld en frestaði heim- ferðinni um óákveðinn tíma. Shlomo Ben-Ami, starfandi utanríkisráð- herra ísraels, sagði að viðræðunum yrði haldið áfram langt fram eftir nóttu ef nauðsyn krefði. „Viðræðurnar hafa gengið erfið- lega en enn eru helmings líkur á því að samkomulag náist vegna þess að hinn kosturinn er svo skelfilegur," sagði evrópskur stjórnarerindreki. Leystist upp í hávaðarifrildi Utanríkisráðherrar ísraels, Bandaríkjanna og Egyptalands, að- alsamningamaður Palestínumanna og fleiri embættismenn komu saman til að reyna að leggja drög að yfir- lýsingu um hvernig binda ætti enda á átökin en fundinum lauk án nokk- urs árangurs. Palestínskur embætt- ismaður sagði að deilt hefði verið um „öll atriði“ fundarefnisins. Israelskur heimildarmaður sagði að Palestínumenn hefðu viljað að í yfirlýsingunni yrðu átökin rakin til „ögrandi" ferðar ísraelska hægri- mannsins Ariels Sharons á helga staði múslíma og gyðinga í Jerúsal- em 28. september. Fundurinn leyst- ist þá upp í hávaðarifrildi milli Ben- Amis og Saebs Erekats, aðalsamn- ingamanns Palestínumanna. „Þið morðingjar!" er Erekat sagð- ur hafa hrópað að Ben-Ami, Madel- eine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Terje Rpd-Lar- sen, sendimanni Sameinuðu þjóð- anna. „Þið hafið tekið alla palest- ínsku þjóðina í gíslingu. Þetta er óaðgengilegt." Andrúmsloftið var einnig þrúg- andi þegar leiðtogamir snæddu há- degisverð í boði Hosnis Mubaraks, forseta Egyptalands. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, sat gegnt Ehud Barak, forsætisráðherra ísra- els, og hermt er að þeir hafi ekki yrt hvor á annan. Þegar þeir mættust á gangi fundarstaðarins létu þeir sem þeir sæju ekki hvor annan, að sögn ísraelskra heimildarmanna. Palestínsku samningamennirnir höfnuðu tillögu Clintons um að hann gæfi út almenna yfirlýsingu um við- ræðurnar og kröfðust þess að greint yrði ítarlega frá því hvað hefði verið samþykkt og hvað ekki. Bill Clinton ræddi þrisvar við Ehud Barak, forsætisráðherra Israels, og Bill Clinton Bandaríkjaforseti á leiðtogafundinum í Sharm el-Sheik í Egyptalandi. Við borðið sitja einnig Dennis Ross, sendimaður Bandaríkjastjórnar (t.v.), Amr Moussa, utanríkisráðherra Egyptalands (3. frá hægri) og fleiri embættismenn. Barak og jafnoft við Arafat. ísra- elskir og palestínskir embættis- menn sögðu að leiðtogafundinum kynni að verða haldið áfram í dag. P.J. Crowley, talsmaður þjóðarör- yggisráðs Bandaríkjanna, sagði að Clinton gæti verið á fundarstaðnum þar til síðdegis í dag en ef hann yrði þar lengur myndi hann missa af minningarathöfn í Bandaríkjunum á morgun um sautján bandaríska sjó- liða sem biðu bana í sprengjuárás á bandarískt herskip í höfn jemensku borgarinnar Aden í vikunni sem leið. Clinton sagði við setningu leið- togafundarins að ísraelar og Palest- ínumenn yrðu að hætta að karpa um hverjir ættu sök á átökunum og ein- beita sér að framtíðinni. Hann sagði að markmið fundarins væri að binda enda á blóðsúthellingarnar, ná sam- komulagi um hlutlausa rannsókn á átökunum og koma friðarviðræðun- um á skrið að nýju. Arafat krefst þess að hafin verði alþjóðleg rannsókn á tildrögum átakanna. Barak ljær aðeins máls á því að skipuð verði nefnd undir for- ystu Bandaríkjanna til að afla upp- lýsinga um átökin. Israelskur heimildarmaður sagði að einnig væri deilt um þá kröfu Pal- estínumanna að ísraelar kölluðu hersveitir sínar af átakasvæðunum áður en Palestínumenn gerðu ráð- stafanir til þess að binda enda á blóðsúthellingarnar. Fundinn sitja Abdullah Jórdaníu- Reuters Palestínumaður hleypur frá ísraelskum hermönnum sem hleyptu af byssum til að stöðva mótmæli á Gaza í gær. konungur, Javier Solana, æðsti embættismaður Evrópusambands- ins 1 utanríkismálum, og Kofi Ann- an, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, auk Arafats, Baraks, Clintons og Mubaraks. Ekkert lát á átökunum Meðan leiðtogarnir sátu á rökstól- um blossuðu upp átök að nýju á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. Israelskir hermenn skutu palest- ínskan lögreglumann til bana á Gaza og 14 ára palestínskur drengur var skotinn til bana í Betlehem. Átökin hafa kostað 102 manns líf- ið síðustu 19 daga, þar af 95 araba. ■ Það endar með málamiðlun/30 Flokkur Milosevic fellst á þjóðstjórn Belgrad. Reuters, AFP. STUÐNINGSMENN Vojislavs Kostunica, forseta Júgóslavíu, náðu í gær samkomulagi við bandamenn Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta, um að mynda þjóðstjórn sem á að vera við völd í Serbíu fram að þingkosningum 23. desember. „Sósíalistaflokkur Serbíu [flokkur Milosevic] hefur samþykkt að mynda stjórn með öllum stjómmálaflokkum landsins," sagði Zoran Andjelkovic, framkvæmdastjóri flokksins. Zoran Djindjic, leiðtogi bandalags stuðningsmanna Kostunica, DOS, kvaðst vera ánægður með samkomu- lagið. „Við teljum að þetta dragi úr spennunni í landinu," sagði hann. Vuk Draskovic, leiðtogi Serb- nesku endumýjunarhreyfingarinnar (SPO), sem á ekki aðild að DOS, sagði að Kostunica og Milan Milut- inovic Serbíuforseti, dyggur stuðn- ingsmaður Milosevic, væra „ábyrgð- armenn" samkomulagsins. Samkvæmt samkomulaginu verð- ur forsætisráðherra bráðabirgða- stjórnarinnar úr flokki Milosevic og skipaðir verða tveir aðstoðarforsæt- isráðhemar, einn úr DOS og annar úr flokki Draskovic. Þá er gert ráð fyrir því að allar mikilvægar ákvarðanir verði háðar samþykki allra stjórnmálaflokkanna og fjögur ráðuneyti - innanríkis-, fjármála-, dómsmála- og fjölmiðla- ráðuneytin - verði undir sameigin- legri stjórn. Milosevic saksóttur í Serbíu? Stríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur ákært Slobodan Milosevic fyr- ir stríðsglæpi í Kosovo en einn af helstu bandamönnum Kostunica, Zarko Korac, spáði því í gær að for- setinn fyrrverandi yrði sóttur til saka í Serbíu fyrir kosningasvik og fleiri lögbrot. Stjórn Clintons undirbýr uppboð á farsímarásum BILL Clinton Bandaríkjaforseti gaf í gær embættismönnum fyi-irmæli um að endurskoða tilhögun á skipt- ingu farsímarása með það að markmiði að boðinn verði upp stór hluti þeirra rása sem ýmsar opinber- ar stofnanir og einkafyrirtæki ráða nú yfir, að sögn The New York Tim- es. Er gert ráð fyrir að haustið 2002 muni fara fram geysilega umfangs- mikið uppboð á leyfum fyrir svo- nefnda þriðju kynslóð farsíma fyrir símfyrirtæki sem hyggjast bjóða háhraða netþjónustu. Reglur um uppboðið eiga að vera tilbúnar næsta sumar. Stofnanir vestra eins og varnar- málaráðuneytið og lögreglan munu fá fjárhagslega aðstoð við að skipta um rásir og nota í staðinn vannýttar rásir sem ekki em taldar verða gagnlegar fyrir nýjar gerðir farsíma. Einkafyrirtækin munu einnig fá bætur fyrir að skipta yfir á aðrar rásir. „Mikilvægt er að nýta vel tímann,“ sagði í yfirlýsingu frá Clinton forseta í gær. „Ef Bandaríkin bregða ekki skjótt við og úthluta rásum á þessu sviði er hætta á að þjóðin geti misst markaðshlutdeild í atvinnugreinum 21. aldar. Ef okkur tekst þetta vel mun það eiga sinn þátt í að tryggja framhald á hagvexti, sköpun nýrra hátæknistarfa og nýrrar og spenn- andi þjónustu með aðstoð Netsins og fjarskiptanna.“ í grein The New York Times segir að embættismenn minnist þess ekki að forseti hafi fyrr haft afskipti af ákvörðunum í sambandi við úthlutun fjarskiptarása. Á hinn bóginn séu þau eðlileg með tilliti til þess hve mikilvægar rásirnar séu orðnar fyrir efnahaginn. „Fjarskiptarásir em orðnar helsta verðmæti nýja hag- kerfisins, jafnmikilvæg og olía og kol voru í tíð iðnbyltingarinnar,“ segir í grein blaðsins. Stjórnir nokkurra Evrópuríkja hafa þegar boðið upp rásir og ríkis- sjóðir þeirra hagnast um tugmillj- arða dollara. Talið er að eftirmaður Clintons á forsetastóli muni taka undir með honum og knýja á um uppstokkun vegna þess að sumar af rásunum sem á að skipta á ný verða senn ofhlaðnar vegna þess hve notk- unin eykst ört. „Frekari seinkun á því að útveguð verði nægilega mörg farsímaleyfi fyrir háhraðaþjónustu minnkar lík- urnar á að bandarísk fyrirtæki taki forystuna í að þróa tækni og þjón- ustu á sviði fjarskipta,“ segir í nýrri skýrslu ráðgjafanefndar Clintons á sviði efnahagsmála. Bandarískir embættismenn hafa einnig bent á að á síðustu fimm ámm hafi upplýs- ingatæknin staðið undir nær þriðj- ungi af hagvexti í landinu. En þeir benda á að hægi á þróun breiðbands- tækninnar geti það dregið úr vextin- um og gert nýja fjarskiptaþjónustu dýrari en í samkeppnislöndum. MORGUNBLAÐK) 17. OKTÓBER 2000 D900 090000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.