Morgunblaðið - 17.10.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 55
...... *
MAGNUS
GESTSSON
+ Magnús Gests-
son, húsasmiður
og kennari, fæddist á
Ormsstöðum í Dala-
sýslu 29. september
1909. Hann lést á
Sjúkrahúsi Akraness
29. september síðast-
iiðinn og fór útför
hans fram frá Stað-
arfellskirkju 7. októ-
ber.
Látinn er í hárri elli
Magnús Gestsson,
mörg hin síðustu ár
safnvörður Byggða-
safns Dalamanna á Laugum í Sæl-
ingsdal. Ég kynntist Magnúsi þegar
ég flutti að Laugum 1981 og vorum
við nágrannar í 17 ár. Þá var
byggðasafnið nýlega tekið til starfa
en það er, að öllum öðrum ólöstuð-
um, verk Magnúsar og hans lífs-
starf frá því um 1970 eða frá þeim
tíma er harin fór um sýsluna og
safnaði görmum munum ogbjargaði
eflaust mörgu frá glötun. Þetta safn
er hann kom upp í kjallaranum á
Laugum þótti um margt, og þykir
enn, sérstakt á þessum árum, sér-
staklega meðan Magnús hafði fulla
heilsu til þess að sinna því og betr-
umbæta, en við það var hann
óþreytandi. Það er með ólíkindum
hvernig honum tókst að koma fyrir
öllum þessum munum í þröngu og
óhentugu húsnæðinu, um það geta
allir verið sammála. Magnús var
ákaflega stór maður vexti og fór
ekki fram hjá neinum er hann var í
nánd. Lá honum hátt rómur og það
lét honum ekki að tala í hálfum
hljóðum við menn. Hann var sér-
stakur áhugamaður um ættfræði og
var yfirleitt með því fyrsta sem
hann gerði er hann hitti ókunnugt
fólk að spyrja það um ættir og upp-
runa. Fór það svo eftir svarinu
hvernig hann tók fólki. Nýráðnir
kennarar voru ávallt teknir í
smáyflrheyrslu og var þá farið yfir
Varanleg
minning
er meitlub
ístein.
S.HELGASONHF
IISTEINSNHHJA
Skemmuvegi 48, 200 Kóp.
Sími: 557-6677 Fax: 557-8410
Netfang: sh.stone@vortex.is
Blómabúðiia
Öa^ðskom
v/ Fossvogskii-kjugarS
Símii 554 0500
menntun og fyrri störf,
auk ættarsögu. Nið-
urstaða þeirrar við-
ræðu litaði síðan sam-
skiptin þann veturinn.
Magnús hafði sérstaka
ánægju af að ræða við
kennara, sérstaklega
ef hann gat rekið þá á
gat, enda hafði hann
sjálfur kennt víða um
land hér fyrrum. Það
var bjargföst skoðun
Magnúsar að menntun
* hefði hnignað verulega
á hinum seinni árum,
lítil áhersla væri lögð á
utanbókarlærdóm og forn fræði en
kunnátta í þeim var að hans mati sá
grunnur er allt byggðist á. Magnús
var útsjónarsamur smiður og gerði
hann upp fjölda húsmuna fyrir vini
og kunningja meðan hann gat unnið
við smíðar. Var þar eins og með
menntunina, heldur hafði handverki
hrakað á hinum síðari árum. Eins
var oft leitað til hans við að dytta að
húsmunum skólans. Tók hann að
sér ýmis verkefni fyrir skólann með
ánægju án þess að þiggja greiðslu
fyrir. Ávallt mataðist Magnús í
mötuneyti skólans með starfsfólki
hans. Var hann ákaflega vanafastur
þar sem annars staðar. Átti hann
sitt sérstaka sæti við borðið. Var
hann sælkeri og þótti gott að borða
sætan mat. Þótti mörgum nóg um
sykumeyslu hans en ekki var að sjá
að hún kæmi að sök fyrir hann.
Frekar var Magnús spar á hástig
lýsingarorða og ef matur fékk um-
sögnina „gæti verið verri“ þá var
hann góður. Mörg kvöldin sátum
við Magnús á skrifstofunni eða
kennarastofunni og spjölluðum
saman, stundum fram á nótt. Bar þá
margt á góma enda Magnús fróður
um margt en hann fylgdist ávallt
vel með fréttum fjölmiðla. Oftar en
ekki var þetta þannig að Magnús
talaði og ég hlustaði. Þótti báðum
það ágætt. Margt mætti tína til úr
sjóði minninganna frá 17 ára sam-
veru. Verður það ekki gert frekar
en orðið er. Magnúsi er af einlægni
þökkuð samfylgd og viðkynning.
Megi minning hans lengi lifa.
Kristján Gíslason.
VALUR FANNAR
MARTEINSSON
+ Valur Fannar
Marteinsson
gullsmiður fæddist í
Reykjavík 24. júní
1927. Hann Iést á
hjartadeild Land-
spítalans í Fossvogi
1. október síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Kópavogs-
kirkju 6. október.
Það er búið! Þór
mágur minn hringdi
með þessum orðum sl.
sunnudagskvöld um
hálfníu. Dauðinn kem-
ur alltaf á óvart þó svo að búist sé
við honum og jafnvel beðið eftir
honum. Video-spóla minninganna
fór í gang hjá mér og byrjaði fyrir
tæpum tuttugu árum. En þá kynnt-
ist ég verðandi tengdaföður mínum
Vali Fannari Marteinssyni, mér
þótti hann afskaplega hlýr og ljúfur
maður sem hafði þetta milda yfii--
bragð, stutt í glettnina og jafnframt
hnyttinn í tilsvörum. Valur átti við
veikindi að stríða öll
árin sem ég þekkti
hann og hafði hann fá
orð um sína h'ðan og
vildi sem minnst um
hana tala. Það sem af
er þessu ári reyndist
honum þó erfiðast erf-
iðir uppskurðir með
slæmum aukaverkun-
um, að lokum hægt
andlát. Ég fylgdist
með síðustu dögum
hans misgóðum þó,
þótt hann gæti ekki
tjáð sig í orðum tókst
honum að gera okkur
skiljanlegt hvað hann vildi alls ekki.
Hanna, eiginkona hans, eins og
klettur við hlið hans þessa síðustu
daga eins og liðin 50 ár. Um leið og
ég fyrir hönd sona minna Tómasar
og Olafs sendi tengdamóður minni
okkar bestu kveðjur, vil ég þakka
fyrir glettnina og hnyttnina hans,
sem ég sé í mínum yngri sonum
Halldóri Fannar og Róberti Fannar.
Fríður Garðarsdóttir.
t
Bróðir okkar og mágur,
JÓN S. GUÐMUNDSSON,
Ljósvallagötu 22,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni á morgun,
miðvikudaginn 18. október, kl. 15.00.
Eysteinn Guðmundsson, Valgerður Guðleifsdóttir,
Ásgeir Guðmundsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir,
Kristín M. Guðmundsdóttir, Pétur Jóhannsson,
Sigríður Ósk Guðmundsdóttir, Mikael Gabríelsson,
Ólína Guðmundsdóttir, Einar Sigurbergsson,
Ruth Woodward.
t
Hjartans þakkir sendum viö öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við frá-
fall og útför ástkaerrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
BRYNHILDAR SIGTRYGGSDÓTTUR,
Hávegi 15,
Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Pálmi Steingrímsson,
Kolbrún D. Pálmadóttir,
Jón Pálmi Pálmason, Ásdís Guðmundsdóttir,
Aðalsteinn Leví Pálmason, Kristín Þorsteinsdóttir,
Helga I. Pálmadóttir, Örn Felixson,
Brynhildur Hrund Jónsdóttir, Edvard Ágúst Ernstsson
og barnabörn.
t
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
BÖÐVAR JÓHANN GUÐMUNDSSON
frá Þingeyri,
lést aðfaranótt laugardagsins 14. október.
Helena Böðvarsdóttir, Paolo Del Grosso,
Þórunn, Marisa Valdís og Benjamín.
t
Elskulegur bróðir okkar,
INGÓLFUR BALDVINSSON
frá Naustum,
lést fimmtudaginn 12. október.
Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 19. október kl. 13.30.
Sveinn Baldvinsson, Sveinbjörg Baldvinsdóttir,
Þórdís Baldvinsdóttir, Þórlaug Baldvinsdóttir.
t
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, afi og bróðir,
BRAGI SIGURÐSSON,
blaðamaður og lögfræðingur,
lést á heimili sínu föstudaginn 13. október.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 20. október kl. 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Bragason.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa-
langafi,
GUÐMUNDUR ALEXANDERSSON,
áður til heimilis
í Miðtúni 52,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morgun,
miðvikudaginn 18. október, kl. 13.30.
Guðrún Guðmundsdóttir, Sigurður Jónsson,
Arnheiður Guðmundsdóttir,
Valgerður Guðmundsdóttir, Reynir Jakobsson,
Guðmann Guðmundsson, María Steinsdóttir,
Unnur Guðmundsdóttir, Gísli Guðmundsson,
Gunnar Guðmundsson, Áslaug Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
ÁRNA SIGURJÓNSSONAR
fyrrv. fulltrúa lögreglustjóra.
Sérstakar þakkir til félaga hans í Akóges og
lögreglunnar í Reykjavik.
Þorbjörg Kristinsdóttir,
Þóra I. Árnadóttir, Árni Pétur Guðjónsson,
Sigurjón Þ. Árnason, Bjarnheiður Þrastardóttir,
Kristinn F. Árnason, Ásdís Þórarinsdóttir,
Þórunn K. Árnadóttir, Óskar H. Friðriksson,
Auður B. Árnadóttir, Sigurbjörn Sigurbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý
hug við andlát og útför móður okkar, tengda
móður, ömmu, langömmu og systur,
AÐALHEIÐAR SIGGEIRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkr
unardeildarinnar Hólabæ.
Siggeir Sverrisson, Elín Sigurþórsdóttir,
Anna Sverrisdóttir, Bjarni Elíasson,
Jón Þór Sverrisson, Guðríður Elísa Vigfúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn,
Sigurbjörg Siggeirsdóttir.