Morgunblaðið - 17.10.2000, Blaðsíða 28
'28 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Skemmtileg lög viðfalleg Ijóð
Út er kominn hljómdiskurinn Fug ejtirfugl, sumar eftir sumar, þar sem margir
af okkar bestu söngvurumfara á kostum og Jlytja lögÞormars Ingimarssonar
við Ijóð Tómasar Guðmundssonar, Steins Steinarr ogKristjáns Eldjárns.
Þing Sjómanna-
sambandsins
Kjaramál
efst á baugi
22. ÞING Sjómannasambands íslans
verður haldið dagana 18.-20. októ-
ber nk. á Radisson SAS Saga hóteli í
Reykjavík. Þingið verður sett kl.
13:00 miðvikudaginn 18. október og
mun Arni M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra ávarpa þingið við setn-
ingu þess. Að sögn Sævars Gunnars-
sonar, formanns Sjómannasam-
bandsins, verða atvinnu- og kjara-
mál eflaust ofarlega á baugi á
þinginu. Sjómenn hafi haft lausa
samninga frá því í febrúar og ekkert
miði í samningaviðræðum. Því megi
búast við opnum umræðum um þessi
mál á þinginu. Auk þess verði ýmis
önnur mál á dagskrá, svo sem lífeyr-
issjóðsmál og öryggismál.
------------
Ovissa um
útflutning
NORÐMENN hafa frestað ákvörð-
un um leyfi til útflutnings á hvalkjöti
og hvalskipi þar til forsetakosning-
um í Bandaríkjunum lýkur og skipað
hefur verið á ný í öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna, en þar eru Norð-
menn í framboði. Það er sjávarút-
vegsráðuneytið sem á að taka
ákvörðunina um útflutning fyrir lok
ársins, en þvi hefur nú verið frestað.
Ráðuneytið telur þetta vera mjög
erfitt mál, sérstaklega með tilliti til
mögulegra viðskiptabanna á norskar
fiskafurðir. Þess vegna sé rétt að
bíða með ákvörðun þar báðum kosn-
ingunum er lokið.
Vetrarvörurnar
Verðdæmi:
Jakkar
Stuttir jakkar
Pils
Buxur
Bolir
Stuttbuxur
Kvartbuxur
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
4.900
5.900
2.900
1.690
1.500
2.500
1.900
Dragtir í stórum númerum
Alltaf sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Mikið af
loðnunni
Lágmarksverð á þorski
er mjög hátt í Noregi
LOÐNUSTOPNINN í Barensthafi
er enn að stækka, sjötta árið í röð,
samkvæmt niðurstöðum sameigin-
legs leiðangurs Rússa og Norð-
manna. í leiðangri ársins kom mikið
fram af eins árs loðnu, sem var í sam-
ræmi við góða nýliðun árið áður.
Alls mældust nú 4,3 milljónir
tonna af loðnu en 2,8 milljónir í fyrra.
Af fullvaxta loðnu mældust nú um
2,1 milljón tonna. Samsvarandi tala í
fyrra var 1,7 milljónir tonna. Stofn-
inn hefur mælst stærri áður, en þó
ekki síðan 1989. Eldri árgangamir
hafa þrifizt vel og eru þeir allir
þyngri en í meðallagi, en eins árs
loðnan er á hinn bóginn smærri en
venjulega. Ráðgjafarnefnd alþjóða
hafrannsóknaráðsins mun svo leggja
til leyfilegan hámarksafla í lok þessa
mánaðar.
Norðmenn gera sér því vonir um
góða loðnuvertíð í vetur, sérstaklega
vegna þess hve stór og góð loðnan er.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Steinfriður Alfreðsdóttir hampar tveimur demant ssfldum.
Síldarvertíð hafin á Þórshöfn
Þórshöfn - Sfldarvinnslan er nú í
fullum gangi hjá Hraðfrystistöð
Þórshafnar og verður unnið á
vöktum meðan sfldarvertíðin
stendur yfir.
Björg Jónsdóttir ÞH-321 landaði
250 tonnum af demantssfld á föstu-
dag og fór sfldin öll til manneldis-
vinnslu; flökuð og heilfryst fyrir
Austur-Evr ópuinar kað.
Aðstaða til löndunar er ágæt á
Þórshöfn en aflanum er öllum
landað með vacumdælu i leiðslu
beint inn í vinnslusalinn en það
tryggir gæði hráefnisins. Von er á
áframhaldi á sfldarlöndun og í
framhaldi af sfldinni tekur loðnu-
vinnslan við.
495 krónur og fyrir skötusel skal
greiða hæst 405 krónur. Meðalverð
fyrir þessar tegundir hér heima
var 150 krónur fyrir grálúðu, 299
fyrir lúðu og 168 fyrir skötusel, en
hæsta verð var 174 krónur, 640
krónur og 400 krónur.
Lágmarksverð á karfa í Noregi
skal vera frá 61,20 upp í 108 krón-
ur kílóið. Meðalverð á karfa á síð-
ustu vikum hér heima var á bilinu
54 til 57 krónur, en hæsta verð var
91 króna.
Hausaður og
slægður fiskur
Rétt er að taka fram að saman-
burður þessi er ekki fyllilega raun-
hæfur, þar sem verð í Noregi mið-
ast við hausaðan og slægðan fisk,
en hér er fiskurinn seldur slægður
með haus og verð á kíló því lægra.
Loks skal tekið fram að verði á
fiski í föstum viðskiptum milli út-
gerðar og fiskvinnslu í sömu eigu
hér á landi er mun lægra.
Verð á slægðum þorski þar er til
dæmis í kringum 88 krónur í júlí
síðastliðnum. I sama mánuði var
meðalverð á slægðum þorski á fisk-
mörkuðum 119 krónur kílóið.
www.arinn.is
Greiða þarf allt að 173 krónum fyrir
kíló af hausuðum og slægðum þorski
LÁGMARKSVERÐ á þorski í
Noregi er mun hærra en verð á ís-
lenzku fiskmörkuðunum. Nú er
hæsta lágmarksverð á þorski í
Noregi nærri 173 krónur, en með-
alverð á slægðum þorski á fisk-
mörkuðum tengdum Reiknistofu
fiskmarkaða um miðja síðustu viku
var 164 krónur. Hæsta verð hér
heima var hins vegar 236 krónur á
kíló.
Norðmenn ákveða lágmarksverð
á fiski upp úr sjó með reglulegu
millibili. Það er Norges Raafisklag,
sem eru samtök fiskseljenda, sem
ákveða verðið og er óleyfilegt að
selja fisk undir hinu opinbera lág-
marksverði. Samkvæmt síðustu
verðákvörðun skal lágmarksverð á
þorski, hausuðum og slægðum,
vera hæst 172,80 krónur íslenzkar
á kíló, en lægst 93,60, en þá er um
undirmálsfisk að ræða, undir einu
kílói. Verðflokkar eru margir og
miðast við stærð og gæði, en einnig
landsvæði.
Hæsta verð á ýsu 133,20
krónur en lægst 76,50
Hæsta verð á ýsu skal vera
133,20 krónur og er þá enn miðað
við að flskurinn sé hausaður og
slægður. Lægsta verð fyrir ýsuna
er 76,50 krónur.
Meðalverð á ýsu á fiskmörkuð-
um hérlendis síðustu vikurnar var
um 138 krónur, en fór hæst í 325
krónur. Fyrir ufsann skal greiða
35,10 til 59,67 krónur. Meðalverð
hér heima var um 47 krónur á síð-
ustu vikum en hæsta verð var 110
krónur.
Að öðrum tegundum má nefna að
lágmarksverð á grálúðu er frá
85,50 upp í 157,50, fyrir lúðu 360 til
Á(ftagerðisbræður • Ari Jónsson • Helgi Bjömsson • Halli Reynis • Guðrún Ámý Kristjánsdóttir Þormar Ingimarsson
Kristján Gislason • Páll Rósinkranz
Vilhjálmur Guðjónsson • Gunnar Þórðarson
Ólafur Gaukur • Strfán S. Stifámssnn
Helgi Bjömsson Páll Rósinkranz
Áiftagerðisbræður
Vandaðir viðarbrennslu-
arnar frá Spáni. 20 tegundir.
<ytyVnÓÚ(fifl/
Stórhöfða 17 ■ Sími 567 2133