Morgunblaðið - 17.10.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1-7. OKTÓBER 2000 33
IWMMIinilHKiH
SSSSSSSÍÍ',
sssssæ^
mm
llil
sssi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þau reka nemendaleikhúsið í vetur og hefja leikárið með Ofviðrinu eftir Shakespeare.
Æfa Ofviðrið í Nem-
endaleikhúsinu
FYRSTI útskriftarárgangur leik-
listardeildar Listaháskóla íslands,
sem áður var Leiklistarskóli Is-
lands, heíúr hafið æfingar á fyrsta
útskriftarverkefni sínu af þremur.
Fyrsta sviðsuppsetningin er Of-
viðrið efth’ William Shakespeare í
leikstjórn Rúnars Guðbrandsson-
ar. Sýningin verður sú fyrsta í nýju
leikhúsi skólans efth’ að gamla leik-
húsið, Lindarbær, fékk hlutverk
skjalageymslu eftir áratuga notk-
un skólans og annarra leikhúsa.
Nýja leikhúsið er í kjallara skól-
ans á Sölvhólsgötu 13 þar sem
Landssmiðjan var áður til húsa.
Leikhúsið hefur hlotið nafnið
SMIÐJAN. Frumsýnt verður hinn
27. október ásamt meðfylgjandi
opnun leikhússins. Sviðs- og bún-
ingahönnun er í höndum Sigurðar
Kaiser. Egill Ingibergsson er
ljósahönnuður. í útskriftarárgangi
skólans í ár eru: Lára Sveinsdóttir,
Víkingur Kristjánsson, Kristjana
Skúladóttir, Björgvin Frans Gísla-
son, Gísli Örn Garðarsson, Elma
Lísa Gunnarsdóttir, Nína Dögg
Filippusdóttir og Björn Hlynur
Haraldsson.
3
Síðasti hluti
tónleikaraðar
Tónskáldafélags
Islands
ÞRIÐJI og síðasti hluti tónleikaraðar
Tónskáldafélags Islands í samvinnu
við Reykjavík - menningarborg
Evrópu árið 2000 hefst á morgun. Þar
verður flutt íslensk tónlist frá lokum
aldarinnar.
Á síðustu 100 árum hafa flestar af
merkustu tónsmíðum íslendinga orð-
ið til, tónsmíðar sem í dag teljast einn
viðamesti þáttui’ íslenskrai’ tónlistai’-
sögu. Á tónleikahátíðum Tónskálda-
félags Islands gefst kostur á að kynn-
ast íslenskri tónlist þessarar aldar og
þeirri þróun sem orðið hefur á öld-
inni. Hátíðinni er skipt í þrjár tónleik-
araðh’ og stóð sú fyrsta frá lokum jan-
úar fram í miðjan febrúar en þar voru
flutt verk sem samin voru á fyrri
hluta aldarinnai’, verk sem mörg hver
hafa unnið sér fastan sess meðal þjóð-
arinnar.
Annar hluti tónlistarhátíðarinnar
hófst með setningu Listahátíðar í
Reykjavík 20. maí og stóð fram í miðj-
an júní þar sem flutt var tónlist frá
miðbiki aldarinnar með áherslu á
verk sem þóttu stefnumótandi í ís-
lensku tónlistarlífi á þeim tíma.
Þriðja og síðasta tónleikaröð Tón-
skáldafélags íslands stendui’ fram til
21. nóvember. Lögð verður áhersla á
íslenska tónlist í lok aldarinnar og
flutt verk eftir flest núlifandi tónskáld
á Islandi. Þá verður lögð sérstök
áhersla á yngstu kynslóð tónskálda á
íslandi þar sem reynt verður að
skyggnast inn í tónlist nýrrar aldar.
Meðal viðburða má nefna tvenna
raf- og tölvutónlistartónleika í sam-
vinnu við ART2000, kammertónleika,
einleikstónleika, kórtónleika, barna-
kóratónleika, hljóðleikhús frá Noregi
fyrir börn í samvinnu við menningar-
miðstöðina Gerðuberg og kammer-
sveitir frá Tékklandi og Italíu sem
munu m.a. hafa íslenska tónlist á
sinni dagskrá.
Meðal flytjenda má nefna Peter
Máté píanóleikara, Einar Jóhannes-
son klarínettuleikai’a, Guðrúnu Birg-
isdóttur flautuleikara, Pétur Jónas-
son gítarleikara, Martial Nardeau
flautuleikara, Richard Talkowsky
sellóleikara, Örn Magnússon píanó-
leikara, Gradualekór Langholts-
kirlgu undir stjóm Jóns Stefánsson-
ar, Skólakór Kársnesskóla undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur,
Hamrahlíðarkórinn undir stjóm Þor-
gerðar Ingólfsdóttur, tónlistarhópinn
Opera Omnia frá Noregi, Agon-
kammersveitina frá Tékklandi, Cap-
ut-hópinn ojg kammerhópinn Music
Attuale frá Italíu.
Fyrir veitingahús, matvælavinnslu,
sjúkrahús og þar sem krafist er
snertifrírra blöndunartækja
OPIÐ ÖLL KVÖLD TILKL. 21
JÍfeMETRO
Skeifan 1 • Simi 525 0800
Kavanaugh
í Dublin
EKKI þurfa öll minnismerki að
hafa sams konar yfirbragð og
þetta minnismerki um irska
skáldið Patrick Kavanaugh hefur
til að mynda yfir sér öllu afslapp-
aðri blæ en við eigum að venjast.
Skúlptúr til minnis um Kavana-
ugh hefur nefnilega verið komið
fyrir á bekk sem snýr út að
Grand Canal-síkinu í Dublin á Ir-
landi.
Kynning
í dag í Lágmúla og á morgun
á Laugauegi frá kl. 13-18
\h LYFJA
Lyfja fyrir útlitið
Lágmúla Sími 533 2308
Laugavegi Sími 552 4045
m
,afsláttur+
kaupaufiar