Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 4

Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sigurður Einarsson, forstjóri Isfélags Vestmannaeyja, borinn til grafar. Morgunblaðið/Guðrún Sigurgeirsdóttir Kristinn Pálsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, borinn til grafar. Bornir til grafar í Eyjum KRISTINN Pálsson, útgerðarmað- ur í Vestmannaeyjum, og Sigurður Einarsson, útgerðarmaður og for- stjóri ísfélags Vestmannaeyja, voru bornir til grafar í Vestmanna- eyjum á laugardag. Séra Kristján Björnsson jarðsöng Kristin og sá um að jarðsyngja Sigurð ásamt séra Kjartani Erni Sigurbjörns- syni, presti í Landakotssjúkrahúsi. Kór Landakirkju söng í báðum athöfnum og var organisti Guð- mundur H. Guðjónsson. Ingibjörg Marteinsdóttir var einsöngvari í báðum athöfnum. Kistur Kristins og Sigurðar voru bornar úr kirkjunni alla leið austur í kirkju- garðinn. Útvegsbændur í Vest- mannaeyjum, félagar úr Akoges, menn úr skipshöfnum útgerðanna, ættingjar, vinir og aðrir samstarfs- menn skiptust á um að bera kistur þeirra. Við útför Sigurðar stóðu fé- lagar yngsta sonar hans, Kristins, úr fimmta flokki í fótbolta og sjötta flokki í handbolta íþróttabanda- lags Vestmannaeyja, heiðursvörð. Hinir látnu voru báðir þekktir athafnamenn og voru báðar athafn- irnar mjög fjölsóttar. Norrænt hús tekið í notkun í New York Tillaga að matsáætlun Búðarhálsvirkjunar 500 ársverk skapast við framkvæmdirnar FORSETI íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun ásamt Karli 16. Gústaf Svíakonungi, Benediktu prinsessu frá Danmörku og Maríu Louise prinsessu frá Noregi taka þátt í við- hafnardagskrá vegna vígslu Norræns húss - Scandinavia House í New York í dag, þriðjudaginn 17. október. Húsið sem stendur miðsvæðis á Manhattan við Park Avenue verður miðstöð fyrir starfsemi American Scandinavian Foundation í Banda- ríkjunum og er byggt með stuðningi norrænna ríkisstjóma, fyrirtækja og einstaklinga austan hafs og vestan. I byggingunni verður fjölþætt aðstaða til kynningar á norrænni menningu, tónhstarflutnings og viðskiptafunda. Þá mun bókasafn hússins verða kennt við Halldór Laxness. Forseti íslands Ólafur Ragnar Grímsson heldur síðan aðalræðuna á hátíðarkvöldverði American Scand- inavian Foundation að kvöldi mið- vikudagsins 18. október. Kristján NEYÐARLÍNUNNI var tilkynnt um eldsvoða í fjölbýlishúsi við Tungusel 4 í Breiðholti síðdegis á sunnudaginn. Þegar slökkvilið og sjúkrabílar komu á staðinn reyndist um gabb að ræða. Enginn eldur var í húsinu heldur hafði drukkinn maður blekkt slökkviliðið með þessum hætti. Símtalið var rakið og handtók lögregla manninn, sem var staddur skammt frá húsinu. Skömmu áður mun hann hafa gert árangurslausar tilraunir til að fá Tómas Ragnarsson, yfirlæknir við Mount Sinai háskólasjúkrahúsið í New York, er forseti samtakanna. Fimmtudaginn 19. október verður forseti Islands Ólafur Ragnar Gríms- son ásamt Karli Svíakonungi, Bene- diktu prinsessu frá Danmörku og Maríu Louise prinsessu frá Noregi viðstaddur hátíðlega opnun sýningar- innar „Vikings: The North-Atlantic Saga“ í American Museum of Natur- al History í New York, fjölsóttasta safni Bandaríkjanna. Sýningin kem- ur til New York frá Smith- sonian-stofnuninni í Washington. í ferð sinni til New York mun for- seti íslands einnig opna ljósmynda- sýningu Páls Stefánssonar í Amer- ican Museum of Natural History miðvikudaginn 18. október og vera viðstaddur kynningu OZ á nýjum tölvuleik sem fyrirtækið hefur styrkt og framleitt í félagi við Ericsson í Sví- þjóð í tilefni af þúsund ára afrnæli landafunda í vestri. íbúa hússins til að hleypa sér inn í stigagang hússins. Þegar honum var neitað hringdi hann í hefndarskyni í neyðarlínuna og tilkynnti eldsvoða í húsinu. Maðurinn var talsvert ölvað- ur og færði lögreglan hann í fanga- geymslur. Hann gekkst við broti sínu og var sleppt úr haldi. Viðurlög við því að gefa vísvitandi rangar til- kynningar sem eru fallnar til að vekja ótta um líf, heilbrigði eða vel- ferð manna varða sektum eða fang- elsi allt að þremur árum. LANDSVIRKJUN hefur lagt fram tillögu að matsáætlun fyrir Búðar- hálsvirkjun, sem reisa á við Búðar- háls í Tungnaá. Er gert ráð fyrir að virkjunin nýti um 40 metra fall á milli Hrauneyjafossstöðvar og Sultartanga og að afl hennar verði allt að 120 megavött. Aukin orku- vinnslugeta raforkukerfisins er áætluð allt að 520 gígavattstundir á ári. Landsvirkjun ráðgerir einnig að reisa 220 kV háspennulínu, sk. Búðarhálslínu 1, frá tengivirki við Búðarhálsvirkjun að tengivirki við Sultartangastöð, eða um 18 km leið. Hefur fyrirtækið falið Hönnun hf. að annast mat á umhverfisáhrif- um framkvæmdanna. Leyfi fyrir framkvæmdum á borð við þessar er háð mati á um- hverfisáhrifum, skv. lögum nr. 106/ 2000, og ber þess vegna að leggja fram tillögu að matsáætlun hið fyrsta eftir að meginþættir fram- kvæmdarinnar eru orðnir nægilega ljósir. Tillagan að matsáætlun verður nú kynnt umsagnaraðilum, almenn- ingi og félagasamtökum sem láta sig málið varða. Framkvæmdir tækju um þrjú ár í tillögu Landsvirkjunar kemur fram að gert sé ráð fyrir að fram- kvæmdir við virkjun og lagningu lína taki um þrjú ár. Ákvörðun um upphaf framkvæmda sé hins vegar háð eftirspurn eftir raforku. Á byggingartíma Búðarháls- virkjunar er fjöldi starfsmanna áætlaður allt að 300 manns og að fjöldi ársverka í heild verði um 500. Eftir að virkjun kemst í fullan gang, verður stöðin hins vegar að jafnaði mannlaus. Með byggingu Búðarhálsvirkjun- ar er verið að virkja síðasta virkj- anlega fallið (auk Vatnsfellsvirkj- unar) á milli Búrfellsvirkjunar og Þórisvatns. Með virkjuninni er ver- ið að nýta enn frekar vatnsmiðlanir og veitur sem fyrir eru á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Um virkjunarsvæðið þarf að leggja vegi og brúa þarf Tungnaá og leggja veg að stöðvarhúsi vænt- anlegrar virkjunar. Þá er gert ráð fyrir stíflun Köldukvíslar og einnig frái-ennsli Tungnaár frá Hraun- eyjafossstöð, rétt austan við ármót þeirra við Þóristungur. Við þessa framkvæmd myndast uppistöðulón, svonefnt Sporöldulón. Er áætlað að leiða vatnið í göngum gegnum Búð- arháls að stöðvarhúsi við Sultar- tangalón. Blekkti neyðarlínuna Þjónusta númer eitt! Til sölu Landrover Freelander 1.8i nýskráður 19.05. 1999 svartur, ekinn 25.000, álfelgur. Ásett verð 2.200.000. Ath skipti á ódýrari. Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu.sími 569 5660. Opnunartimar: Mánud. - föstud. kl. 9-18 laugardagar kl. 10-14 BÍLAMNGáEKLU A/iwrr oiH ( nolvJi/tf bílurytl Laugavegi 174.105 Reykjavík, sími 569-5500 v.rww.Mt8}hiny.i& • www.hitp»hing.t&»vwv.t.hilplhing.i& Starfsmannafélag rrkisstofnana leggur fram kröfur Vill kaupmáttartrygg- ingu á samningstímanum LAUNAMÁLARÁÐ og trúnaðar- mannaráð Starfsmannafélags rík- isstofnana hafa gengið frá kröfu- gerð SFR fyrir komandi kjarasamninga. Sett er efst á blað að stefna að því að byrjunarlaun verði ekki undir 112 þúsund krón- um. Viðræður eru hafnar við samn- inganefnd ríkisins. Þeim er skipt niður þannig, að heildarsamtökin, BSRB, byrja viðræðurnar um réttindamál, og í framhaldi af því taka við viðræður SFR við ríkis- valdið um sérmál félagsins og um launaliði. Með síðustu kjarasamningum var tekið upp nýtt launakerfi. SFR telur mikilvægt að samn- ingsaðilar taki fyrir reynsluna af kerfinu og með hvaða hætti vinnu- staðasamningar verði endurnýj- aðir, segir í frétt frá félaginu. Launatafla verði endurskoðuð Auk kröfunnar um að stefnt skuli að hækkun byrjunarlauna upp í 112 þúsund krónur er stefnt að því í kröfugerð SFR að kaup- máttur verði aukinn og tryggður á samningstímanum og núverandi launatafla verði endurskoðuð með tilliti til uppbyggingar á töflunni og lengdar. Sérstaklega verði tek- inn fyrir launamunur milli karla og kvenna og munur milli stofn- ana og einstakra starfsstétta. Framlag til starfsnáms og sí- menntunar verði aukið. Starfs- mönnum verði tryggður aðgangur að símenntun og símenntunin verði sjálfsagður hluti af vinn- unni. Greidd verði 2% í séreigna- lífeyrissjóð fyrir starfsmenn. Gengið frá sératriðum sem taka til sértækra mála. Sérstaklega verði endurskoðaðir kaflarnir um hvíldartíma og vaktavinnu í kjara- samningnum og vinnutími verði styttur án skerðingar launa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.