Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 6

Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kirkjumálaráðherra leitar umsagnar kirkjuþings um lagafrumvarp V eitingarvald fyrir alla presta verði hjá biskupi SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms- og kirkjumála- ráðherra, sagði við setningu kirkjuþings í gær- morgun að á þinginu yrði kynnt til umfjöllunar frumvarp um breytingu á þjóðkirkjulögunum varðandi skipan sóknarpresta. Felur breytingin í sér að biskup skipi einnig sóknarpresta en til þessa hafa þeir einir presta verið skipaðir af kirkjumálaráðherra. „Hér er um breytingu að ræða sem felur það í sér í fyrsta lagi að sami háttur verði hafður á um skipun og setningu sóknarpresta og annarra presta, það er að veitingarvaldið verði hjá biskupi Islands. Ekki virðast vera skynsamleg rök fyrir því að kirkjumálaráðherra setji eða skipi sóknar- presta en biskup Islands aðra presta,“ sagði ráð- herra m.a. í ávarpi sínu og sagði þetta í samræmi við þá stefnu að auka beri sjálfstæði þjóðkirkj- unnar. Gert er ráð fyrir að breytingin taki gildi 1. janúar á næsta ári verði frumvarpið samþykkt. í athugasemdum við lagafrumvarpið, sem ligg- ur frammi á kirkjuþingi, er bent á að með nýjum starfsreglum sem byggðar eru á grunni laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar hafi orðið grundvallarbreyting á reglum um val og veitingu prestsembætta. Svonefndar valnefndir velji jafnt sóknarpresta sem presta og vegna samræmis sé eðlilegast að sami háttur verði hafður á um skipan sóknarpresta og annarra presta. Breytt skipunaraðferð Þingvallaprests Þá boðaði kirkjumálaráðherra með frumvarp- inu þá breytingu á skipan Þingvallaprests, þ.e. að afnumin verði sú regla að Þingvallanefnd komi við sögu skipunar Þingvallaprests. „Sú regla á sér sögulegar skýringar sem ekki eiga lengur við eftir að skilið var á milli þeirra tveggja starfa sem áður var bundið í lög að Þingvallaprestur skyldi gegna. Eru því engin haldbær rök fyrir því að veiting prestsembættis á Þingvöllum fari fram með öðrum hætti en gildir almennt,“ sagði ráð- herra og tók fram að þessi breyting væri ekki í tengslum við umræður um hvort sóknarprestur skuli sitja á Þingvöllum heldur sé einungis verið að bregðast við þeim breytingum sem orðið hafí á starfi Þingvallaprests. í lok ávarps síns minntist kirkjumálaráðherra á landsþing kirkjunnar sem boðað hefur verið á Jónsmessu á næsta ári til að ræða framtíðarsýn kirkjunnar. „Ég tel að hér sé þúsund ára afmæli kristni í landinu fylgt eftir á verðugan hátt og það er von mín að af þessu muni spretta frjóar og framsýnar umræður um hlutverk þjóðkirkjunn- ar, - umræður sem styrki kirkjuna og kristið trúarlíf, umræður sem veki þjóðina til aukinnar vitundar um það mikilvæga starf sem kirkjan rækir.“ Yilja fleiri konurá kirkjuþing VIÐ lok setningar kirkjuþings í gær afhenti dr. Amfríður Guðmunds- dóttir, formaður jafnréttisnefndar kirkjunnar, Jóni Helgasyni, forseta kirlq'uþings skýrslu nefndarinnar um leið og hún minnti með nokkrum orð- um á jafnréttisáætlun kirkjunnar. í skýrslu jafnréttisnefndar er kirkjuþing hvatt til að gera allt sem í valdi þess stendur til að fá fleiri kon- ur inn á kirkjuþing „og stuðla þannig að því að jafnréttisáætlunin sem þingið samþykkti íyrir tveimur árum nái fram að ganga,“ segir meðal ann- ars. Af 21 kirkjuþingsfulltrúa er ein kona en næst verður kosið til kirkju- þings eftir tæp tvö ár. Þá kemur fram í skýrslu nefndarinnar að hlutur karla og kvenna sé ekki jafn hvað varði formenn sóknarnefnda. Er tek- ið sem dæmi að í Reykjavíkurpró- fastsdæmi eystra séu karlar 88,9% sóknarnefndarformanna og yfir 80% í sóknamefndum í því vestra. ■ i. Prestaköll og prófastsdæmi á landsbyggðinni sameinuð Þrjár nýjar sóknir á höfuð- borgarsvæðinu TILLÖGUR em uppi á kirkjuþingi um breytta skipan nokkurra sókna, prestakalla og prófastsdæma og er lagt til að þær taki flestar gildi um næstu áramót. Er meðal annars lagt til að þrjár nýjar sóknir verði stofnað- ar á höfuðborgarsvæðinu, að Barða- strandarprófastsdæmi og ísafjarðar- prófastsdæmi verði sameinuð, að nokkur prestaköll á landsbyggðinni verði sameinuð og nokkrar sóknir færðar til. Á kirkjuþingi fyrir ári vom lagðar fram tillögur um ýmsar breytingar á skipan sókna, prestakalla og prófasts- dæma og vom nokkrar þeirra sam- þykktar en öðram var vísað til bisk- upafundar til kynningar fyrir réttum kirkjustjómaraðilum. Margar tíl- lagnanna koma aftur tíl umræðu á kirkjuþingi nú en nokkrum er frestað, einkum vegna athugasemda úr við- komandi héraði. Reykhólaprestakall fært undir SnæfeUsnessprófastsdæmi Á Vestfjörðum er lagt til að Barð- astrandarprófastsdæmi og ísafjarð- arprófastsdæmi verði sameinuð undir nafninu Vestfjarðaprófastsdæmi. Er einnig gert ráð fyrir að Reykhóla- prestakall verði flutt undir Snæfells- ness- og Dalaprófastsdæmi í ljósi breyttra samgangna í héraðinu m.a. með tilkomu Gilsíjarðarbrúar. Með þeirri breytingu yrði Barðastrandar- prófastsdæmi ekki nógu stór eining og því er lögð til áðumefnd sameining undir nafni Vestfjarðaprófastsdæmis. Lagt er til að Bíldudals- og Tálkna- fjarðarprestaköll verði sameinuð með prestssetri á Bíldudal. Lagt er til að Melgraseyrar- og Nauteyrarsóknir færist undir Hólmavíkurprestakall. Lagt er til að Ámesprestakall og Hólmavíkurprestakal] verði samein- uð og að prestssetrið verði á Hólma- vík. Er miðað við að það gerist við starfslok sóknarprests í Árnespresta- kalli. Lagt er til að Bólstaðar- hlíðarprestakall sameinist Skaga- strandarprestakalli og að Miðgarða- sókn í Grímsey verði færð undir Dalvíkurprestakall en hún hefur til- heyrt Akureyrarprestakalli. Þá er lagt til að stofnaðar verði þijár nýjar sóknir sem mynda ný prestaköll: Vallasókn í Hafnarfirði, Lindasókn í Kópavogi og Grafar- holtssókn í Reykjavík. Morgunblaðið/Asdís Sólveig Pétursdóttir kirkjumálaráðherra flutti ávarp við setningu kirkjuþings í gær. Við hlið hennar er Jón Helgason, forseti kirkjuþings. Yfir 30 mál til umræðu á kirkjuþingi BISKUP Islands, Karl Sigur- björnsson, setti kirkjuþing í gær og við setningarathöfnina fluttu einnig ávörp Sólveig Pétursdótt- ir, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Jón Helgason, forseti kirkju- þings. Þingstörf standa þessa viku og næstu og eru á dagskrá þingsins fjölmörg mál er varða starfsreglur hinna ýmsu greina kirkjunnar, um fjármál og stjórn og starfshætti kirkjunnnar. Gert er ráð fyrir að kirkjuþing fjalli alis um yfir 30 mál. ( 1 BðK» í Besti ferðafélaginn til London? Allt sem forvitnir ferðalangar þurfa að vita um London - og meira til. Mðl og mennlngl malogmennlno.ls* Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Siðumúla 7 • Sími 510 2500 Semja á um verkaskipt- ing’u biskups og kirkj’uráðs MEÐAL mála sem liggja fyrir kirkjuþingi sem hófst í gær er til- laga um starfsreglur kirkjuráðs sem fela í sér að hlutverk þess er afmarkað skýrar, en kirkjuráð fer með framkvæmdavald í málefnum þjóðkirkjunnar. Gert er ráð fyrir að kirkjuráð ráði framkvæmda- stjóra og ráðgert er að gera samn- ing um skiptingu verkefna og starfa milli biskups og kirkjuráðs miðað við lögbundnar skyldur hvors aðila um sig. Fimm menn sitja í kirkjuráði; biskup, sem er forseti ráðsins, tveir guðfræðingar og tveir leik- menn sem kirkjuþing kýs. í at- hugasemdum við tillögurnar sem lagðar eru fyrir kirkjuþing nú seg- ir að með reglunum sé verkefnum og skyldum kirkjuráðs skipað á einn stað, svo og þeim reglum er það vinnur eftir, en fyrirmæli „eru fyrirmæli um störf kirkjuráðs á víð og dreif í kirkjulöggjöfinni". Gert er ráð fyrir að kirkjuráð ráði framkvæmdastjóra en til þessa hefur það verið hluti af embættis- skyldum skrifstofustjóra biskups- stofu að sinna framkvæmdastjórn fyrir kirkjuráð. Kirkjuráð hafi því ekki haft ráðningu framkvæmda- stjórans með höndum heldur bisk- up og þyki eðlilegt í ljósi nýrrar stöðu og sjálfstæðis kirkjuráðs að það hafi sjálft ákvörðunarvald um það efni. Sjálfstæði kirkjuráðs undirstrikað Biskupsstofa verður annars veg- ar skrifstofa biskups íslands og hins vegar aðsetur kirkjuráðs. „Er það til að undirstrika sjálfstæða stöðu kirkjuráðs sem fram- kvæmdavalds kirkjuþings. Er fyr- irhugað að gera samning um skipt- ingu verkefna og starfa milli biskups og kirkjuráðs miðað við lögbundnar skyldur hvors um sig,“ segir m.a. í athugasemdunum. Þá verður kirkjuráði falin aukin fjárstjórn með því að fjalla um ár- leg framlög í fjárlögum samkvæmt f samningi ríkis og kirkju frá 1998 til greiðslu á launum 138 presta og prófasta, tveggja vígslubiskupa, biskups íslands og 18 starfsmanna biskupsstofu. Einnig fer kirkjuráð með stjórn kristnisjóðs, jöfnunar- sjóðs sókna, kirkjumálasjóðs og meðal verkefna kirkjuráðs er um- sjón með Skálholti og Skálholts- | skóla, starfsemi Löngumýrar og skipan fulltrúa í ýmsar nefndir og stjórnir. r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.