Morgunblaðið - 17.10.2000, Page 13

Morgunblaðið - 17.10.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 13 FRÉTTIR Olíuleit og olíuviimsla í N-Atlantshafí rædd á ráðstefnu um auðlindir Leit hafin innan tíu ára Áhugi á hafsbotnsmálum er nú að glæðast mjög hér á landi. Talsvert miklar líkur eru á því að olíu sé að fínna á Hatton Rockall- svæðinu, sem og á Jan Mayen, mun minni hins vegar á setlagabeltinu fyrir norðan land. En leitin er erfíð og kostnaðarsöm og því talið ólíklegt að íslenska ríkið muni standa fyrir henni. í FRAMHALDI af umræðu um landgrunn og alþjóðlegan hafrétt var á seinni degi ráðstefnu um land- grunnið og auðlindir þess fjallað um olíuleit og olíuvinnslu í Norður- Atlantshafi. Þar var m.a. fjallað um þá þrjá kosti sem Islendingar hafa skoðað með olíuvinnslu í huga, Tjörnesbeltið, norðan við landið, Jan Mayen og Hatton Rockall. 12% líkur þykja vera á því að kolvetni (sem er samheiti fyrir olíu og gas) finnist á fyrsta svæðinu, 24% á því næsta og 36% á því síðastnefnda. Þess má geta að 25% líkur, sam- kvæmt sömu útreikningum eru á því að Færeyingar finni olíu sem þykir raunar vera mjög líklegt og 18% lík- ur voru á því að Bretar fyndu olíu norðan Hjaltlandseyja, en þeir hafa þegar fundið mikla olíu á því svæði. Fjögur ríki gera tilkall til Hatton Rockall svæðisins og meðan yfirráð yfir því eru óútkljáð verður vita- skuld ekki hugað að olíuvinnslu þar. Sérfræðingai- spáðu því hins vegar á ráðstefnunni á laugardag að innan næstu tíu ára yrði farið að leita að olíu á Jan Mayen. Erfið skilyrði, m.a. með tilliti til veðurfars, hafa dregið úr áhuga erlendra fyrirtækja til þessa. Nú er hann að glæðast. í vetur verður lagt fyrir alþingi frumvarp um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, en slík rammalög- gjöf er talin nauðsynleg forsenda þess að olíufyrirtæki sýni því áhuga að leita að olíu í íslensku landgrunni. Það var Þorkell Helgason, Orku- málastjóri, sem hóf annan dag ráð- stefnu um landgrunnið og auðlindir þess. Þorkell rakti í máli sínu hvern- ig Orkustofnun hefur komið við sögu hafsbotnsrannsókna. Þorkell sagði umsvif Orkustofnunar hafa verið „allnokkur en nokkuð slitrótt" og sagði Þorkell að svo virtist vera sem markvissa stefnumörkun í þessum málum hefði skort af hálfu stjórnvalda lengst af. Þorkell sagði fjárveitingar einnig lengst af hafa verið litlar til mála- flokksins, en nú hefði orðið breyting á og framlög hækkuð úr tveimur milljónum í sautján. Þorkell fór einnig yfir þær rann- sóknir sem gerðar hafa verið á landgrunni íslands. Við dýptar-, þyngdar- og segulmælingu á land- grunninu á 8. áratugnum, sem Morgunblaðið/Golli Ráðstefnugestir fylgdust af athygli með framsögum um olíuleit í N-Atlantshafi. Orkustofnun vann í samvinnu við Sjómælingar Islands, Háskóla ís- lands og kortagerðardeild banda- ríska varnarmálaráðuneytisins, upp- götvaðist setlagadældin undan Mið-Norðurlandi, en þar eru setlög þykkust á landgrunninu og því lík- legust til að geyma olíu eða gas. Þorkell færði einnig Jan Mayen og Hatton-Rockall svæðið í tal en líklegt þykii- út frá jarðfræðilegu sjónarmiði að olía finnist á þessum tveimur svæðum, enda svipar þeim til svæða þar sem þegar hefur fund- ist oh'a, við Noregsstrendur og norð- an við strendur Bretlands. Erfið skilyrði til leitar Anthony G. Doré, leitarstjóri Statoil, sem næstur tók til máls, benti á að mun minni líkur væru til að olía fyndist í setlögunum norðan við landið en við Noreg og Bretland. Doré stiklaði í máli sínu yfir jarð- sögu N-Atlantshafsins og fór yfir líkurnar til þess að olía fyndist á hinum ýmsu stöðum sem ísland og nágrannaríkin í Evrópu hafa skoð- að. Doré benti á þá tæknilegu erfið- leika sem geta fylgt olíuleit í N-Atlantshafi í þvi veðravíti sem það oft er. Auk þess liggi fyiTrhug- aðar olíulindir oft ansi djúpt og það skapi líka erfiðleika. Doré sagðist þó búast við auknum áhuga fyrirtækja á olíuleit norður í hafi og sagðist búast við því að innan næstu tíu ára yrði hafin olíuleit á Jan Mayen. Undir þetta tók Karl Gunnarsson, jarðeðlisfræðingur á Orkustofnun. Hann sagði að vegna þess hve því svæði svipaði mikið til þeiiTa svæða þar sem olía hefur fundist við Nor- egsstrendur væri mjög vaxandi áhugi á þessu svæði. Hatton Rockall svæðið sagði Karl mjög áhugavert en benti á að tæknilega væri mjög erfitt að athafna sig þar. Karl rakti rannsóknir sem gerðar hafa verið á setlögunum fyrir norð- an land og sagði að það hefði verið metið sem svo að 12% líkur væru á því að kolvetni fyndist þar, þ.e. ann- aðhvort olía eða gas. Hins vegar væru miklu meiri líkur á gasi. Karl benti á, eins og fleiri framsögu- menn, hve dýrt er að rannsaka hafs- botninn. Lagafrumvarp um leit, rann- sóknir og vinnslu lagt fram Á ráðstefnunni kom fram að til stendur að leggja fram frumvarp til laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis á alþingi í vetur en slík rammalöggjöf er talin forsenda þess að erlendum olíufyrirtækjum muni þykja fýsilegur kostur að leita að ol- íu á landgrunni íslendinga. Það var Eyvindur G. Gunnarsson, deildar- sérfræðingur í iðnaðar- og við- skiptaráðuneytunum, sem kynnti þetta frumvarp fyrir ráðstefnugest- um en það byggist á hliðstæðum lögum í nágrannaríkjunum og EES- rétti. Áður en Eyvindur tók til máls höfðu þeir Harald Bekke, yfirjarð- fræðingar Olíustofnunar Noregs, Hans Kristian Schönwandt, for- stjóri Auðlindastofnunar Grænlands og Herálvur Joensen, forstjóri Olíu- stofnunar Færeyja kynnt rannsókn- ir og löggjöf og olíuleit í landgrunni viðkomandi landa. íslensku lögin fjalla eins og nafnið bendir til um leyfisveitingar til leit- ar, rannsókna og vinnslu kolvetnis. Ekki er talið hagkvæmt að ríkið standi í olíuleit, enda útbúnaður sem til þess þarf dýr. Gert er hins vegar ráð fyrir, samkvæmt lögunum, að leyfí til olíuleitar og vinnslu verði veitt, að loknu útboði, í takmarkað- an tíma. Nánar verður kveðið á um framkvæmd laganna í reglugerðum. Formaður Landssambands eldri borgara um þróun kaupmáttar almannatrygginjya Kjör eldri borgara hafa ekki fylgt launaþróun BENEDIKT Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara, seg- ir ljóst að bætur Tryggingastofnun- ar til ellilífeyrisþega hafi ekki fylgt almennri launaþróun í landinu. Hann segir mikilvægt að ráðamenn viðurkenni þessa staðreynd og að unnið verði út frá henni. Forystu- menn eldri borgara hittu forsætis- ráðherra, fjármálaráðherra og heil- brigðis- og tryggingaráðherra sl. föstudag, en á fundinum var ákveð- ið að fulltrúar eldri borgara og embættismenn færu yfir tölulegar upplýsingar um kjör aldraðra. I Morgunblaðinu um helgina var fjallað um kjör aldraðra og komist að þeirri niðurstöðu að bætur al- mannatrygginga hefðu hækkað minna en almenn laun í landinu. Benendikt sagði þessa umfjöllun mjög gagnlegt innlegg í þær um- ræður sem nú ættu sér stað um kjör aldraðra. Hann sagði að í úttektinni væri í öllum meginatriðum komist að sömu niðurstöðu um greiðslur grunnlífeyris og tekjutryggingar og Landssamband eldri borgara og að- ildarfélög þess hafa verið að kynna ríkisstjórn og Alþingi að undan- förnu. „Þessar greiðslur hafa að undan- förnum góðæristíma mjög verið að skerðast sem hlutfall af almennum launum í landinu. Þarna er því sleg- ið föstu, gagnstætt því sem forsæt- isráðherra hefur haldið fram, að þó að kaupmáttaraukning hafi orðið hjá þeim sem taka greiðslur frá al- mannatryggingum þá hefur hún orðið mun minni en á almennum vinnumarkaði," sagði Benedikt. Ekki í samræmi við orð forsætisráðherra í utandagskrárumræðum á Al- þingi fyrr í þessum mánuði sagði forsætisráðherra að kaupmáttur líf- eyristekna hefði aukist um 20% frá því núverandi stjórnarflokkar kom- ust til valda. Benedikt sagði að þetta væri ekki rétt. Kaupmáttur grunnlífeyris og tekjutryggingar hefði hækkað um 12% frá 1995-1999 og um rúmlega 14% ef kaupmáttur- inn væri reiknaður til dagsins í dag. „Eg vil vara alvarlega við því að leggja saman prósentuhækkanir allra tegunda tryggingagreiðslna og tala um það sem aukningu kaup- máttar þeirra. Samkvæmt nýjustu Staðtölum almannatrygginga, sem var verið að kynna s.l. föstudag. fengu aðeins 17,7% ellilífeyrisþega óskerta heimilisuppbót á sl. ári. 1,5% þeirra fengu einnig sérstaka heimilisuppbót óskerta, eða 361 ein- staklingur af 23.283 ellilífeyrisþeg- um. Breytingar á kaupmætti elli- lífeyrisgreiðslna almennt ráðast því ekki af breytingum á þessum greiðslum, sem eru líka lægri en breytingar á launavísitölu. Og þeg- ar á heildina er litið er augljóst að raunhækkun almannatrygginga- greiðslna skilar á umræddu fimm ára tímabili einungis um eða innan við helmings kaupmáttaraukningu, miðað við dagvinnutekjur verka- manna,“ sagði Benedikt. Ekki náðist í forsætisráðherra í gær en hann er erlendis. kr. 890.- Súpa og salat kn 1J90,- Hádegishlaðborð + súpa og salatbar alla virka daga ----- S I N C E 1 9 6 6 - SUÐURLANDSBRAUT 4 Simi: 553 9700

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.