Morgunblaðið - 17.10.2000, Síða 20

Morgunblaðið - 17.10.2000, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Almenna vörusalan ehf. - MT-bflar, Ólafsfírði Smíðar slökkvi- bifreið fyrir Akraneskaupstað UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli Almennu vörusöl- unnar ehf. - MT-bfla í Ólafsfírði og Akraneskaupstaðar um smíði á stórum slökkvibíl fyrir bæjarfélag- ið. Um verður að ræða yfírbygg- ingu á fjórhjóladrifinni 18 tonna Volvobifreið en hönnun á yfirbygg- ingu og útfærsla bifreiðarinnar er í höndum Almennu vörusölunnar ehf. Yfirbyggingin verður öll úr trefjaplasti en fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun og smíði á trefja- plastsyfirbyggingum bifreiða og sér í lagi smíði og uppsetningu slökkvi- og björgunarbifreiða hvers konar. Slökkvibifreiðin er af gerð- inni MT-3500 og verður búin öllum besta búnaði sem þörf er á í öflug- um slökkkvibíl. Bifreiðin sjálf verður 380 hest- afla FM-12-Volvobifreið og í yfir- byggingu verður m.a. 3500 lítra vatnstankur, froðutankur, rafdrifin slönguhjól, öflugur dælubúnaður, rafall og mikið skáparými fyrir lausabúnað slökkviliðs. I áhafnar- rými bifreiðarinnar verða sæti fyr- ir sex slökkviliðsmenn. Komin á götuna mun bifreiðin kosta tæplega tæplega 15,6 milljónir króna. Miðað er við að afhenda slökkvibifreiðina hinn 15. ágúst næstkomandi. Akranesbær efndi til útboðs á smíði slökkvibifreiðar og var tilboð Almennu vörusölunnar ehf. hag- stæðast, en sérstök matsnefnd full- trúa frá Eignarhaldsfélagi Bruna- bótafélags íslands mat tilboðin sem Akranesbæ bárust í smíðina. Sig- urjón Magnússon, framkvæmda- stjóri Almennu vörusölunnar ehf., sagði um að ræða gott verkefni fyr- ir fyrirtækið og mikilsvert í upp- byggingu þess. Fyrr á árinu afhenti Almenna vörusalan hf. slökkvibifreið í Fær- eyjum og aðra til Brunavarna Rangárvallasýslu og þessa stund- ina eru í smíðum stórar bifreiðir fyrir Grundarfjörð og Ólafsfjörð. Morgunblaðið/Kristján Lengsta bogabrú landsins NÝJA brúin yfír Fnjóská, sem opn- uð var formlega sl. fostudag, er lengsta bogabrú landsins. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra klippti á borða á brúnni að við- stöddu fjölmenni. Um er að ræða stálbogabrú með steyptri yfir- byggingu, með 92 metra löngum boga úr stáli og steypu. Heildar- lengd brúarinnar 144 metrar og breidd akbrautar 7 metrar. Nýja brúin leysir af hólmi gamla ein- breiða brú fyrir Fnjóská og með til- komu hennar styttist leiðin til Grenivíkur um 2 km. Áætlaður verktakakostnaður við smíði brúar- innar var 153 milljónir króna en Arnarfell ehf. á Akureyri vann verkið fyrir 134 milljónir króna. Við sama tækifæri var nýr kafli Grenivíkurvegar tekinn formlega í notkun. Um er að ræða um 6 km vegarkafla og var áætlaður verk- takakostnaður við framkvæmdina 100 milljónir króna. Héraðsverk ehf. á Egilsstöðum vann verkið fyr- ir 60 milljónir króna. Aðalfundur kjördæmafélags Vinstri-grænna á Norðurlandi eystra Stjórnvöld tryg'gi reglu- legar flugsamgöngur Um 16.800 farþegar komu með skemmtiferðaskipum í sumar Tekjur hafnarinnar jukust um 25% milli ára AÐALFUNDUR kjördæmafélags Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs á Norðurlandi eystra var haldinn á Akureyri um helgina. A fundinum var skorað á stjórnvöld að grípa þegar til aðgerða sem bæta kjör öryrkja og aldraðra. „Líta ber á það sem forgangs- verkefni að bæta kjör þeirra sem borið hafa skraðan hlut frá borði eða sætt sérstaklega skertum kjörum á undanförnum árum,“ segir í ályktun aðalfundarins. Líflegar umræður urðu á fund- inum, einkum um kjördæmabreyt- inguna, byggðamál og almenn stjórnmál. Fundurinn lýsti þungum ^hyggjum af stöðu byggðamála og krefst þess að gripið verði til markvissra aðgerða til að koma á jafnvægi í þróun byggðar í land- inu í stað þess að láta sitja við orðin tóm eins og núverandi og síðustu ríkisstjórnir hafa gert. Einnig skoraði fundurinn á stjórnvöld að tryggja reglulegar flugsamgöngur innanlands, enda sé innanlandsflugið mikilvægur liður í almenningssamgöngum. „Öflugt innanlandsflug er sjálfsagt öryggisatriði og samfélagsþjónusta sem tengir byggðir og er mikil- vægur þáttur í að efla ferðaþjón- ustu og teysta byggð um allt land,“ segir í ályktun frá aðal- fundinum. Loks er grimmúðleg valdbeiting ísraelsmanna á heimastjórnar- svæðum Palestínumanna fordæmd og bent á að óháð rannsókn verði að fara fram á því hver sé valdur að upptökum átakanna. Tryggja verði palestínskum borgurum al- þjóðlega vernd ef ekki takist að koma á vopnahléi og hefja friðar- umleitanir á nýjan leik. Valgerður Jónsdóttir garðyrkju- tæknifræðingur, Akureyri, var endurkjörin formaður félagsins, en aðrir í stjórn eru Ásgrímur Ang- antýsson, Þórshöfn, Anna Helga- dóttir, Eyjafjarðarsveit, Stefán L. Rögnvaldsson, Öxarfirði, Björgvin R. Leifsson, Húsavík, Óli Þór Jó- hannsson, Dalvík, og Bjarkey Gunnarsdóttir, Ólafsfirði. NÝTT kaffihús, Café Amour, hefur verið opnað við Ráðhústorg á Ak- ureyri. Eigendur þess eru Elís Árnason, Þórhallur Arnórsson og Greifinn, en Greifann eiga þeir El- ís Árnason, Hlynur Jónsson, Páll Jónsson, Sigurbjörn Sveinsson, fvar Sigmundsson og Páll L. Sigur- jónsson. Kaffihúsið er á tveimur hæðum og var hafist handa við breytingar á húsnæðinu í byrjun sumars og það tekið algerlega í gegn og inn- réttað að nýju. Hlédís Sveinsdóttir hjá Eon hönnun sá um hönnun veit- ingastaðarins. Sigurður Bjarnason TEKJUR Hafnasamlags Norður- lands jukust um 25% milli áranna 1999 og 2000 vegna skemmtiferða- skipa, en alls komu 33 skemmti- ferðaskip til Akureyrar síðastliðið sumar. Akureyri var síðasta höfn 18 skipanna af þessum 33 sem komu. Þessar upplýsingar koma fram í og Magnús Sigurbjörnsson sáu um framkvæmdir við breytingar. Elís sagði að um væri að ræða rómantískt kaffihús og yrði það fyrst um sinn opið frá kl. 15 til 1 virka daga, en til kl. 3 um helgar. Ekki verður selt inn á staðinn. Þar verður hægt að fá ýmsa smárétti fram eftir nóttu og brauð og kökur að deginum. Aldurstakmark á kvöldin er 20 ár. „Við stefnum að því að hafa þægilega og ljúfa stemmningu á Café Amour, þar verður enginn hávaði, þannig að fólk á að geta spjallað saman í ró- legheitum," sagði Elís. yfirlit Hafnasamlags Norðurlands vegna skemmtiferðaskipa árið 2000. Þar kemur einnig fram að farþegar með skipunum voru ríflega 16.800 talsins. Þjóðverjar voru fjölmennast- ir, um 7.300 alls, þá komu rúmlega 5000 Bretar með þessum skipum og tæplega 2000 Bandaríkjamenn. Frakkar voru 1120 talsins og Belgar um 300. Um 68% þessara farþegar fóru í skipulagðar ferðir og þá kemur fram að farþegar skipanna voru dug- legir að nýte sér þjónustu leigubfla á Akureyri, en alls var farið í 90 ferðir í sumar á þeirra vegum, aðallega að Goðafossi. Loks kemur fram í yfirlitinu að bókunarhlutfall fyrir næsta ár er til- lölulega hátt, eða 84% sem gefi fyrir- heit um að skipuleggjendur ferðanna haldi þeim flestum inni í sinni áætlun fyrir árið 2001. Tónlistarfélag Akureyrar Sager leikur á píanó FYRSTU tónleikar vetrarins á vegum Tónlistarfélags Ak- ureyrar verða haldnir mið- vikudagskvöldið 18. október kl. 20.30 í sal Verkmennta- skólans á Akureyri. Á tónleikunum flytur bandaríski píanóleikarinn Christoper Czaja Sager verk eftir Bach, Debussy, Scriab- ine og Chopin. Sager er fæddur í New York en hefur dvalið í Hol- landi frá 1975. Hann hefur numið píanóleik hjá mörgum af merkari píanóleikunum tónlistarsögunnar og komið fram í öllu helstu tónleikasöl- um Evrópu og unnið til fjölda verðlauna. Aðalsmerki hans er túlkun á hljómborðsverk- um Bach. Fjögur áhugaverð fyrirtæki Alhliða málmlðnaðarþjónustufyrirtæki. Sér um blástur á járni, sinki, stáli og áli ásamt málmhúðun og alla yfirborðsmeðhöndlun á slíku. Mjög fullkomin tæki, þau bestu sem völ er á. Er í eigin hús- næði sem einnig er til sölu. Sérhæfð starfsemi. Skemmtistaður, sem er mjög þekktur. Er með matsölu, vínsölu og veisluþjónustu. Tekur 250 manns í sæti og er mikið pantaður af traustum aðilum. Er einnig með sölu á um 180 matarbökkum á dag. Hefur mjög góða ímynd. Húsnæðið er einnig til sölu sem allt er nýgegnumtekið. 3. Ný þjónustumiðstöð á frábærum stað. Er með skyndibita, sælgæti, Is og myndbandaleigu. Ölll tæki ný ásamt innréttingum og allt það dýrasta og fullkomnasta á þessari öld. Er í kallfæri við 400 ungl- inga sem alltaf eru svangir. Strax mikil velta sem fer sífellt vax- andi og skilar góðum hagnaði ólíkt skuldabréfamarkaðnum. Góð fjárfesting og fallegur vinnustaður. 4. Myndbandaleiga úti á landi sem er að hætta og er til sölu og flutn- ings hvert sem er. Þarft þú ekki að auka veltuna og bæta þessu við hjá þér? Allar nýjustu spólurnar. Góðar innréttingar og öll tæki og forrit sem til þarf. Stöðugt ný fyrirtæki á skrá. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆKIASALAN SUÐURVE R I SlMAR 581 2040 OG 581 4755. REYNIR ÞORGRÍMSSON. Morgunblaðið/Kristján Páll L. Sigurjónsson, Elís Árnason, Magnús Sigurbjörnsson, Páll Júns- son, Þúrhallur Arnúrsson, Sigurður Bjarnason, Sigurbjöm Sveinsson og Hlynur Júnsson, eigendur Café Amour við Ráðhústorg. Café Amour opnar við Ráðhústorg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.