Morgunblaðið - 17.10.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 17.10.2000, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Landsráðstefna um Staðardagskrá 21 Morgunblaðið/Helgi Ólafsson Stefán Gislason, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21, Duríta Brattaberg frá Færeyjum, sem var aðalfyrirlesari ráðstefnunnar, Guðlaugur Berg- mann, umsjónarmaður og verkstjóri Staðardagskrár í Snæfellsbæ, og lengsttil hægri er Hugi Ólafsson, formaður stýrihóps um Staðardagskrá. Ólafsvík - Um 70 manns sóttu ráð- stefnu sem haldin var í Ólafsvík 12. og 13. október um verkefnið Stað- ardagskrá 21. Þetta var landsráð- stefna sem var haldin á vegum Is- lenska staðardagskrárverkefnisins í samvinnu við Snæfellsbæ. Var ráðstefnunni valinn staður með til- liti til þess að Snæfellsbær hefur verið í fararbroddi meðal íslenskra sveitarfélaga í framkvæmd verk- efnisins undir verkstjórn Guðlaugs Bergmann. Hlaut Snæfellsbær á sínum tíma verðlaun fyrir það. A ráðstefnunni var m.a. fjallað um grænt bókhald og umhverfis- skýrslur sveitarfélaga. Ráðstefnu- stjóri var Sigríður Stefánsdóttir. Einar Sveinbjörnsson, aðstoðar- maður umhverfisráðherra, flutti ávarp en aðalfyrirlesari ráðstefn- unnar var Durita Brattenberg frá Færeyjum sem hefur stýrt nor- rænu verkefni um umhverfisáætl- anir fyrir fámenn sveitarfélög. Ráðstefnugestir komu víðsvegar af landinu og luku lofsorði á fram- kvæmd hennar og umgjörð alla. Fundað var í félagsheimilinu á Klifi og þar eru aðstæður allar hinar glæsilegustu. Að kvöldi fyrri dags var stutt skemmtidagskrá og í lok ráðstefnunnar var boðið að sérlegu glæsilegu sjávarréttaborði sem var í boði sjávarútvegsfyrirtækja í Snæfellsbæ. Stefán Gíslason, verkefnisstjóri íslenskrar staðardagskrár, sagði að öll framganga bæjaryfirvalda í Snæfellsbæ varðandi Staðardag- skrá 21 væri til mikillar fyrirmynd- ar. Áskorun til stjórnvalda Ráðstefnan sendi frá sér yfirlýs- ingu, svokallaða „Ólafsvíkuryfirlýs- ingu“, og einnig áskorun til stjórn- valda: „Þátttakendur í Ólafsvíkur- ráðstefnunni um Staðardagskrá 21 á íslandi 12.-13. október 2000 skora á ríkisstjórn íslands að tryggja sveitarfélögum fjármagn og tekju- stofna til að gera þeim kleift að sinna þeim skyldum sem ríkisvaldið tók á sig fyrir þeirra hönd á heims- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó 1992.“ Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Unnið við gulrót naupptöku í garðyrkjustöðinni Hvammi I. Uppskeru græn- metis að ljúka Safnahúsið á Húsavík Morgunblaðið/Hafþór Sæmundur Rögnvaldsson sagnfræðingur. Góð aðsókn í sumar Húsavík - Mikið hefur verið um að vera í Safnahúsi Suður-Þingeyinga á Húsavík allt þetta ár. Fyrir utan hefðbundna starfsemi hafa ýmis dagskráratriði í tengslum við afmæl- isár Húsavíkurkaupstaðar farið þar fram. I sumar var m.a sett upp ljós- myndasýningin „Svipmyndir úr sögu Húsavíkur á 20 öld“ en sýning þessi var unnin sérstaklega í tilefni tíma- mótanna. Þá má nefna að önnur sérsýning var í sumar í tilefni kristnitökuafmælis en það var sýn- ing á kirkjumunum úr Þingeyjar- prófastsdæmi. Var sú sýning unnin í samvinnu afmælisnefndar prófasts- dæmisins, Safnahússins og Þjóð- minjasafns Islands. í september voru haldnir djazz- tónleikar og nú fyrir skömmu flutti Sæmundur Rögnvaldsson sagnfræð- ingur fyrirlestur um sögu Húsavíkur en hann vinnur nú að ritun fjórða og fimmta bindis ritverksins. Munu þau bindi koma út á næsta ári og mun þá ljúka miklu verki sem staðið hefur lengi. Að sögn Guðna Halldórssonar for- stöðumanns hefur aðsókn að Safna- húsinu verið góð í ár, bæði heima- manna sem og ferðamanna. Hrunamannahreppi - Garðyrkju- bændur hér í Hrunamannahreppi eru um þessar mundir að ljúka uppskerustörfum á útiræktuðu grænmeti. Segja garðyrkjubændur að þetta hafi verið gott uppskeruár og eru miklar birgðir komnar í kæligeymslur af mörgum tegund- um grænmetis. Gífurleg vinna er við uppskeru- störfin, allt kál þarf t.d. að skera með hníf. Nemendur í 10. bekk Flúðaskóla hafa um helgar unnið með garðyrkjubændum og starfs- liði þeirra við kálskurð og aflað með því peninga í ferðasjóð. Er- lendis er farið að taka upp kál með vélum en þá þolir það ekki eins vel geymslu. Gulrófur og gulrætur er hægt að taka upp með vélum og er gert hérlendis. Góð sala á grænmeti Sala á grænmeti hefur verið góð og segja bændurnir að þeir njóti góðs af vaxandi áróðri um hollustu grænmetis. Dregið hefur þó úr sölu á kínakáli og veldur þar mestu aukin sala á hinu margumtalaða jöklasalati, en það er einmitt sú tegund sem grunur er um að salm- onellusíkill hafi borist með til landsins. í þessari sveit er ræktað grænmeti í tæplega hundrað hekt- urum lands auk þess sem kartöflu- rækt er allmikil og gróðurhúsaaf- urðir eru ræktaðar í húsum sem eru á annan tug hektara. í tilefni af mikilli umræðu um verðlag á íslensku grænmeti, sagði Georg Ottósson, garðyrkjubóndi á Jörva og formaður Sölufélags garðyrkjubænda, gaf samband garðyrkjubænda út yfirlýsingu í byrjun árs um að hækka ekki verð á grænmeti næstu tvö árin og af- urðasölufyrirækin samþykktu þetta. Staðreyndin er sú að verð á grænmeti hefur ekki hækkað á þessu ári þrátt fyrir hækkað verð- bólgustig segir Georg. Nýr hótelstjóri í Stykkishólmi Stykkishólmi - Hótelstjóraskipti urðu á Fosshóteli í Stykkishólmi í vikunni. Þá tók við starfi Björk Sverrisdóttir af Sæþóri Þorbergs- syni. Björk kemur ásamt fjölskyldu sinni úr Grindavík. Hún er mat- reiðslumeistari og hefur starfað við hótelið við Bláa lónið. Hún segir að sér lítist vel á starfið. Að hennar sögn er vel bókað á hótel- ið um helgar næstu vikur. Þar er mest um að ræða starfsmannaferðir frá höfuðborgarsvæðinu. Virku dag- arnir eru dauður tími yfir veturinn og er ýmislegt reynt til að auka nýt- inguna þá daga. Er þetta vandi sem blasir við öllum heilsárshótelum á landsbyggðinni. Hún segir að ákveð- ið sé að skerða þjónustu hótelsins í vetur og verður nú lokað í hádeginu. Það hefur engan veginn borgað sig að hafa þá opið. Ef um hópa er að ræða er auðvelt að verða við þeirra óskum og bjóða upp á mat í hádeg- inu. Fosshótelakeðjan tók hótelið á leigu vorið 1999. í framhaldi af þeim samningi sem þá var undirritaður Björk Sverrisdóttir úr Grinda- vík hefur tekið við starfi hótel- stjóra í Stykkishólmi. Hótelið er heilsárshótcl og er rekið af Fosshótelum. réðust eigendur hótelsins í miklar endurbætur á hótelinu í vetur. Hót- elherbergi öll voru endumýjuð og m.a. var húsið lagfært að utan og málað. Kostnaður við endurbæturn- ar var um 40 milljónir króna. Sýning á ýmsum lundaafbrigðum Athygli vakti þessi lundapysja með fjaðraskúf á höfðinu. Vestmannaeyjum - Nýverið hélt Náttúrugripasafnið í Vestmanna- eyjum sýningu á lundaafbrigðum. Nokkuð algengt er að lundi finnist í hinum ýmsum litaafbrigðum á hverju sumri hér við Island og ekki óeðlilegt þar sem lundast ofninn er langstærsti fuglastofninn á ísland, að sögn Kristjáns Egilssonar, safn- varðar á Náttúrugripasafninu. Veiðimenn hafa nefnt fuglana ýmsum nöfnum, t.d. hefur veiðst alhvítur lundi, sem nefndur er Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Alhvítur lundi sem nefndur hef- ur verið lundakóngur. lundakóngur, lundadrottningin er brún á bakið, pysjudrottningin er lík henni. Þá var á sýningunni dökkbrúnn/svartur lundi sem nefndur hefur verið því skemmti- lega nafni sótari. Einnig var á sýn- ingunni grár lundi, nefndur grá- silfri, ásamt ýmsum öðrum af- brigðum. Sérstaka athygli vakti þó lundapysja sem var með Qaðraskúf á höfðinu og ekki óeðlilegt að segja að þar hafi farið soldáninn í hópnum. Fyrsti áfangi Borgarfiarðarhrings Ljósleiðari lagður að Hvanneyri Reykholti - Landssíminn er nú að hefja framkvæmdir við lagningu á ljósleiðarastreng frá símstöð í Borg- arnesi, yfir Borgarfjarðarbrúna, að Hvanneyri. Þetta er fyrsti áfangi endurnýjunar á gamla stofnlínukerf- inu á milli símstöðva í Borgarfirði. Tilgangur með þessum fram- kvæmdum er að auka flutningsgetu og öiyggi fjarskiptasambanda um uppsveitir Borgarfjarðar, og mun þessi lögn að Hvanneyri opna mögu- leika fyrir afkastamikinn gagna- flutning. Ljósleiðarinn verður lagður í röri eftir Borgarfjarðarbrúnni að Seleyri en þaðan verður hann plægð- ur niður beinustu leið að Hvanneyri. Framkvæmdaleyfi hefur fengist frá Skipulags- og byggingamefnd Borgarfjarðarsveitar að fyrsta áfanga og hefur landeigendum á þeirri leið sem strengurinn verður lagður, verið kynnt lega strengsins í landi þeirra. Að sögn Ólafs Þ. Stephensen, for- stöðumanns upplýsinga- og kynning- armála hjá Landssímanum, hafa ekki verið teknar endanlegar ákvarðanir um framhald á lagningu ljósleiðara áfram frá Hvanneyri, en væntanlega verði byrjað á öðrum áfanga næsta sumar. Fyrirhugað er jafnframt að leggja ljósleiðara á milli húsa Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og segir Ólafur að aðrir þéttbýliskjarnar á svæðinu ættu einnig að eiga möguleika á slíkum lausnum í framtíðinni ef eftirspurn gefur tilefni til. Ljósleiðari verður lagður frá Hvanneyri um Borgar- fjarðardali í gegnum allar helstu símstöðvarnar og mun hann koma aftur niður á aðalljósleiðarahringinn við Hreðavatn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.