Morgunblaðið - 17.10.2000, Page 26

Morgunblaðið - 17.10.2000, Page 26
26 ÞRIÐJIJDAGUR 17. OKTÓBER 2000 VÍÐSKÍPTÍ MORGUNBLAÐIÐ Félag kvenna í atvinnurekstri Þóra Guðmunds- dóttir hlaut viður- kenningu ársins PÓRA Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri og eigandi flugfé- lagsins Atlanta, hlaut viðurkenn- ingu Félags kvenna í atvinnu- rekstri, en viðurkenningin var afhent á laugardag. Er þetta í ann- að skipti sem FKA-viðurkenningin er afhent en fyrsti handhafi þeirra var Hilary Rodham Clinton, for- setafrú Bandaríkjanna. Þakkarblómvöndur FKA kom í hlut Báru Sigurjónsdóttur, eig- anda verslunarinnar Hjá Báru, sem fulltrúa þeirra kvenna sem hafa rutt og varðað brautina fyrir þær sem á eftir hafa komið. Hvatningarblómvönd FKA hlaut Lára Vilbergsdóttir í Randalín- Handverkshúsi á Egilsstöðum. Hún hefur undanfarin átta ár unn- Þóra Guðmundsdóttir tók við viðurkenningunni úr hendi Jónínu Bjart- marz, formanns Fólags kvenna í atvinnurekstri. Persónuvemd f viðskiptum og stjórnsýslu Ráðstefna Staðlaráðs íslands og Skýrslutæknifélags íslands Hótel Loftleiðum - fimmtudaginn 19. október kl. 13.00 Hver verða áhrif tilskipunar ESB og nýrra laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga? Óvist er að vinnuaðferðir og verklag við meðhöndlun upplýsinga sem hafa tíðkast hér á landi eigi framtið fyrir sér. i þvi sambandi mætti nefna viðtæka notkun kennitölunnar. islensk fyrirtæki og stjómsýsla starfa í fjölþjóðlegu umhverfi sem af sögulegum ástæðum er tortrygg/ð gagnvart skráningu persónuupplýsinga. Kröfur ESB ásamt nýrri islenskri löggjöf um persónuvemd og meðferð persónu- upplýsinga gera nauðsynlegt að brugðist só við nú þegar. Markmið ráðstefnunnar Persónuvemd í viðskiptum og stjómsýslu er að vekja athygli fyrirtækja og stofnana á kröfum ESB og nýjum lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. ___ __ __ _ < * »»* ':.í:- = Dagskrá ráðstefnu 13.00 Innritun fundargesta 13.15 Setning ráðstefnu Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra. Þátttökugjald 11.800 kr. Þátttöku berað tilkynna i sima 520 7150 eða með tölvupósti til sky@sky.is í síðasta lagi miðvikudaginn 18. október. 13.25 Áhrif tilskipunar ESB á fyrirtæki og viöskiptaUf Nick Mansfield, aðalráðgjafi Shell Services Internaiional um öryggi upplýsinga og rafræn viðskipti og formaður vinnuhóps, CEN/ISSS Privacy Standardization initiative. 14.15 Persónuvemd - stjómsýsluhlutverk og stefna í Ijósi nýrra laga Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar Páll Hreinsson, stjórnarformaður Persónuverndar og lagaprófessor við Háskóla íslands. 14.35 Kaffihlé 15.00 ÍST BS 7799 - væntanlegur ísienskur staðall um öryggi upplýsinga Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika ehf. 15.30 Þýðing og áhrif nýrra lagareglna um persónuvernd og meðferð persónulegra upplýsinga fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir - skoðun lögmanns Hlynur Halldórsson, héraðsdómslögmaður. 16.00 Með og á móti - rökræður um notkun kennitölunnar Tekist á um notkun íslensku kennitölunnar. Er kennitalan ómissandi í stjórnsýslunni og íslensku viðskiptalífi? Er notkun hennar á einhvern hátt vafasöm? Hallgrímur Snorrason, Hagstofustjóri, Friðrik Sigurðsson, formaður Staðlaráðs íslands og forstjóri Tölvumynda, Pétur Hauksson, formaður Mannverndar, Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika og Úlfar Erlingsson, forstöðumaður gagnaöryggis hjá íslenskri erfðagreiningu 16.40 Samantekt og ráðstefnuslit Ráðstefnustjóri Jóhann Gunnarsson,ritari Ráðgjafanefndar forsætis- og fjármálaráðuneyta um upplýsinga- og tölvumál. STAÐLARÁÐ ÍSLANDS ið að uppbyggingu atvinnutæki- færa á Héraði og rutt nýjár braut- ir í hönnun og hugviti. Félag kvenna í atvinnurekstri var stofnað af tæplega 300 konum hinn 9. apríl 1999 með stuðningi iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta. Félagskonur eru um 500 talsins í dag. Þær eiga allar og reka eigið fyrirtæki, einar eða með öðrum, á öllum sviðum atvinnulífsins. For- sendan fyrir stofnun FKA er að starfskraftar kvenna sem sjálf- stæðra atvinnurekenda er vannýtt auðlind fyrir efnahagslífið og er markmið félagsins að efla sam- stöðu og samstarf kvenna sem stunda atvinnurekstur með það fyrir augum að efla og fjölga kven- fyrirtækjum, að því er fram kemur í frétt. FBA spáir vaxandi verðbólgu á næstu misserum Spáir 5,5% verðbólgu á næsta ári FBA gerir ráð fyrir því að verðbólga aukist á ný á næstu misserum og verði á næsta ári meiri en á þessu ári. Þannig spáir bankinn því að verð- bólgan í ár mælist 5,2% en 5,5% á næsta ári. FBA gerir ráð fyrir því að verðbólga næstu missera verði í auknum mæli drifin af undirliggjandi kostnaðarverðbólgu og því að laun hafa undanfarið hækkað verulega umfram framleiðni. „Framleiðni vinnuafls hefur vaxið hægt hér á landi síðustu ár bæði í sögulegu samhengi og í alþjóðlegum samanburði. Rætur þessa Iiggja m.a. í mikilli íhlutun hins opinbera í rekstri hér á landi. Einnig skortir talsvert upp á virkni markaða. FBA gerir ráð fyrir því að framleiðni vinnuafls aukist um 0,5% á næsta ári og 0,4% í ár. Til samanburðar má geta þess að því er spáð að framleiðni vinnuafls í Banda- ríkjunum vaxi um 3,2% í ár,“ segir í nýútkominni markaðsgreiningu FBA um þróun og horfur verðlags. Bent er á að nokkuð virðist vera að draga úr vexti innlendrar eftirspurn- ar og helgist það ekki síst af því að hægt hefur á vexti kaupmáttar og eignaverðs. FBA gerir ráð fyrir því að þessi þróun haldi áfram fram á næsta ár. „Spáð er miklum hagvexti í heim- inum á þessu ári og útlitið er gott fyr- ir næsta ár. Samfara auknum hag- vexti hefrn- verðbólga færst í aukana í helstu viðskiptalöndunum og er því spáð að sú þróun haldi áfram. Ef sú spá rætist mun það setja mark sitt á verðlagsþróun hér á landi,“ segir í markaðsgreiningu FBA. Áfram mikill munur innlendra og erlendra skammtímavaxta Þess er vænst að skammtímavext- ir í helstu viðskiptalöndunum verði að meðaltali svipaðir í lok næsta árs og þeir eru núna. í verðbólguspá FBA er gert ráð fyrir að Seðlabanki íslands haldi stýrivöxtum sínum óbreyttum út næsta ár og að munur innlendra og erlendra skammtíma- vaxta haldist áfi'am mikill. FBA spáir því „að gengi krónunn- ar muni veikjast um ríflega 3% fram til loka næsta árs. Gert er ráð fyrir því að krónan flökti mikið á spátíma- bilinu og undirstrikar það að óvissan í gengisspánni er mikil. Spáð gildi gengisvísitölunnar er undir fram- virku gengi krónunnar. FBA spáir því að raungengi krón- unnar standi því sem næst í stað fram til loka næsta árs. í þessu felst að samkeppnisstaða innlendra fyrir- tækja gagnvart erlendum keppi- nautum ætti að breytast lítið og að þróun nafngengis krónunnar leið- rétti fyrir því misgengi sem búast má við að verði áfram í innlendri og er- lendri kostnaðarþróun og framleiðni- vexti,“ segir í markaðsgreiningu bankans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.