Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 50

Morgunblaðið - 17.10.2000, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Kasparov í erfiðleik- um með Kramnik SKAK L o n d o n KASPAROV - KRAMNIK 8.10.-4.11.2000 VLADIMIR Kramnik hefur tekist að ná kverkataki á Kasparov í einvíg- inu sem þeir tefla nú í London. Fimm skákum er lokið og staðan er 3-2 Kramnik í vil. Reyndar má Kasparov þakka fyrir að hafa ekki tapað fjórðu skákinni eins og fram kemur í skák- skýringum hér á eftir. Það verður að teljast fremur dapurlegt fyrir Kasp- arov að helsta fagnaðarefni hans í þessu einvígi er að hafa tekist að ná jafntefli í þeirri skák. Hann er óþekkjanlegur frá einvíginu við An- and 1995, þar sem hann hefndi sam- - vstundis fyrsta tapsins í einvíginu. Eftir fjórðu skákina gegn Kramnik sagði Kasparov að nú væri einvígið fyrst að byrja og margir áttu því von á að hann mundi berjast til þrautar í fimmtu skákinni. Reyndin varð hins vegar sú, að jafntefli var samið eftir 24 leiki, þrátt fyrir að Kasparov hefði hvítt. Margir hafa velt fyrir sér byrjana- vali Kasparovs í einvíginu, en hann hefur ekki teflt þær byrjanir sem hafa reynst honum best. Það minnir reyndar á einvígi hans við Deep Blue, þar sem hann tefldi byrjanir sem hann hafði litla eða enga reynslu af og tapaði einvíginu að lokum eins og frægt er orðið. I þessu sambandi er kannski vert að minnast orða An- ands, sem sagði að helsti styrkleiki Kasparovs, þ.e. áður óþekkt dýpt í byrjanaundirbúningi, gæti síðar orð- ið hans helsti veikleiki. Það sem hann óttast kannski mest er að andstæð- ingurinn sé betur undirbúinn en hann sjálfur í byrjunum. Þetta virðist vera tilfellið í yfirstandandi einvígi og Kasparov hefur forðast þær byrjanir sem hafa reynst honum gjöfulastar á undaníornum árum. Helgi Ólafsson hefur bent á, að Kramnik var aðstoð- armaður Kasparovs í einvíginu gegn ■ Anand þar sem Kasparov beitti m.a. skoska leiknum. Kramnik er því væntanlega öllum hnútum kunnugur í undirbúningi Kasparovs fyrir þá byrjun og því hefur Kasparov kosið að sneiða hjá henni. Fjórða einvígis- skákin reyndist gífurlega spennandi og mistökin létu ekki á sér standa. Að því leyti minnir þessi skák kannski á skrautlega skák þeirra Stefáns Krist- jánssonar og Sævars Bjarnasonar á Skákþingi Islands í ár, en kannski voru mistökin færri þar! Fjórða einvígisskákin Hvítt: Kramnik Svart: Kasparov Móttekið drottningarbragð 1. d4 d5 2. c4 dxc4 Kasparov leggur ekki út í Grún- feldsvömina eftir vandræðin í ann- arri skákinni og grípur í þess stað til byrjunar, sem hann hefur ekki áður teflt. 3. Rf3 e6 4. e3 c5 5. Bxc4 a6 6. 0-0 Rf6 7. dxc5 - Aðrir leikir eru 7. De2, 7. a4,7. Bb3 eða 7. Bd3 og hefur Kramnik beitt tveim síðastnefndu leikjunum áður, auk leiksins í skákinni. 7. - Dxdl 8. Hxdl Bxc5 9. Rbd2 Rbd7 10. Be2 b6 Ekki væri ráðlegt fyrir svart að veikja stöðu sína á drottningarvæng með 10. -- b5, vegna 11. a4! o.s.frv. ll.Rb3 — Kramnik hefur hingað til leikið 11. Rc4 í þessari stöðu, t.d.ll. - Bb7 12. b3 0-0 (12. - Ke7?! 13. Bb2 Hhd8 14. Rel! b5 15. Ra5 Be4 16. Bf3! Bxf3 17. gxf3 Hdc8 18. Rd3 Hab8 19. Rxe5 Hxc5 20. Hacl Ke8 21. Bd4 Hxel 22. Hxcl með betra tafli fyrir hvít (Kramnik, V-Karpov, Frankfurt 1999) 13. Bb2 b5 14. Ra5 Bd5 15. Rd4 Hfc816. Hacl e517. Rc2 Bb6 18. Rb4 Hxcl 19. Bxcl Hc8 með góðri stöðu fyrir svart (Kramnik-Anand, Mónakó 1997). 11. ...Be7 12. Rfd4 Bb7 13. f3 0-0 14. e4 Hfc8 15. Be3 Kf8 16. Rd2 - Nýr leikur í stöðunni. Einn aðstoð- armanna Kramniks, rússneski ofur- stórmeistarinn Evgeníj Barejev, lék 16. Kf2 í skák við Rúblevskíj í Elista 1996, og framhaldið varð 16. ~Ne517. Rd2 Hc718. R4b3 Hc619. Hacl Hac8 20. Hxc6 Hxc6, með friðsamlegum lokum 25 leikjum síðar. Þegar hér var komið átti Kramnik 1 klukkustund og 32 mínútur eftir til að ná 40 leikjunum, en Kasparov 1,36. 16. - Re5 17. R4b3 Hc6 18. Hacl Hac8 19. Hxc6 Hxc6 20. g4! h6 21. h4 Bc8 Þessi hæverski leikur hefur þann göfuga tilgang að tryggja svörtum riddara reitinn d7 til að valda peðið á b6. 22. g5 hxg5 23. hxg5 Rfd7 Kramnik átti 56 mínútur eftir á 18 leiki, en Kasparov 58. 24. f4 Rg6 25. Rf3 - (Sjá stöðumynd efst í næstn dálki.) 25. - Hc2?! Kasparov er orðinn leiður á að- gerðaleysinu og leggur út í vafasama leið. Öruggast virðist að leika 25. — Ke8, t.d. 26. Rfd4 Hc7 27. Bh5 Rgf8 o.s.frv. Klukkan: Kramnik á 46 mínútur eftir, en Kasparov 34. 26. Bxa6! Kramnik teflir til vinnings, en hann hefði getað teflt áfram af öryggi með 26. Hcl eða 26. Hd2 o.s.frv. 26. - Bxa6 27. Hxd7 Hxb2 Klukkan: Hvor teflandi á 30 mínút- ur fyrir 13 leiki. 28. Ha7 Bb5 29. f5! exf5 30. exf5 He2 31. Rfd4! - Klukkan gengur hratt: Kramnik á 13 mínútur, Kasparov 18. 31. ~Hel+ Ekki 31. — Hxe3 32. Rxb5 og hvítur vinnui' mann. 32. Kf2 Hfl+ 33. Kg2 Rh4+ 34. Kh3 Hhl+ 35. Kg4 Be8 36. Bf2 Ng2 37. Ha8!?~ Einnig kom til greina að leika 37. RÍ3 Bd6 (hótunin var 38. Kg3) 38. Bxb6 o.s.frv. o.s.frv. 37. - Hfl 38. Kf3 Rh4+ Kasparov átti a.m.k. 10 mínútur til að ná 40 leikja markinu. Líklega hefði 38. — Rf4 ekki dugað honum til að halda jafnvæginu, t.d. 39. Rd2 Hdl 40. Rc4 Rd5 41. Rb5 Bxg5 42. Ke2 Hbl 43. Red6 Rf6 44. Rxe8 Rxe8 45. Rd6 Ke7 46. Rxe8 o.s.frv. 39.Ke2 Hhl 40. Rb5 Bxg5 41.Rc7 Hvítur vinnur mann. 41. - Ke7 42. Rxe8 Rxf5 43. Bxb6 Kd7 44. a4 - Kramnik hugsaði sig lengi um, áð- ur en hann lék síðasta leikinn. Nú er orðið ljóst, að það þarf kraftaverk til að bjarga svarta taflinu. 44. -Hh3 45. Rc5+ Kc6 46. a5 - Klukkan: Kramnik á 25 mínútur eftir til að ná 60 leikja markinu, en Kasparov á eina klukkustund. 46. ~ He3+ Kasparov hugsaði sig um í 47 mín- útur fyrir þennan leik. 47. Kdl He7 Rússneski stórmeistarinn Sergey Shipov bendir á skemmtilega vörn fyrir svart: 47. - Bf4! 48. Hc8+ Kb5 49. Re4 (49. Rc7+ Bxc7 50. Hxc7 He7 51. Rd7 virðist gott fyrir hvít) 49. — Hxe4 50. Hc5+ Ka6 51. Hxf5 g5 52. Rc7+ Bxc7 53. Bxc7 He7 54. Bb6 g4 55. Hf4 Í5 56. Hxf5 Hg7 og ef svartur nær kaupum á hrókum heldur hann jafntefli, því að hvíti biskupinn getur aldrei hrakið svarta kónginn frá a8. 48. Hc8+ Kb5 49.Re4?!~ Betra er að leika 49. Rc7+ Kc4 50. Re4! Hxe4 51. Re6! og hvítur vinnur. 49. ~ Hxe4 50. Hc5+ Ka6 51. Rc7+ Kb7 52. Hxf5 Be3 Ekki gengur 52. - f6 53. Hb5 Kc6 54. a6 Ha4 55. a7 Bf4 56. Ha5 o.s.frv. 53. Bxe3 Hxe3 Kasparov hefur varist vel og gert andstæðingi sínum erfitt fyrir. Klukkan: Kramnik: 7 mínúto' eft- ir, Kasparov 4. 54. Hxf7 54. - He5! 55. a6+?~ Með þessum leik missir Kramnik skákina niður í jafntefli. Betra er 55. Rd5+! Ka6 56. Rb4+! Kb5 (56. - Kxaö 57. Rc6+, ásamt 58. Rxe5) 57. Hf4! g5 58. Hg4 Hf5 59. a6 og hvíto' vinnur. Aðalástæðan fyrir því, að svartur nær jafntefli, er sú, að hvíti riddarinn valdar peðið fyrir framan það, á c7, en ekki fyrir aftan, á b4. 55. — Kb6 56. Hxg7 — 55. Hf8 Ha5 56. Hc8 Kc6!, ásamt 57. - Kd7, með jafntefli. 56. - Ha5 57. Kd2 Hal 58. Kc2 Hhl?? Slæmur afleikur. Eftir 58. — Ha5 59. Kb2 Ha4 60. Kb3 Hal 61. Kc2 Ha5 62. Kd3 Hal 63. Kd4 Hcl hefði hvítur ekki getað haldið a-peðinu. Kramnik átti 4 mínútur eftir, þeg- ar hér var komið (Sjá stöðumynd efst í næsta dálki.) 59. Kb2?? Kramnik kvittar fyrir afleik Kasp- arovs. Aðstoðarmenn Kramniks sögðu eftir skákina, að hann hefði séð vinningsleiðina: 59. Hg8! Hh7 60. Hb8+ Kb7 61. Hb7+, en haldið að svartur gæti leikið 61. - Ka8. Þreyt- an var greinilega farin að segja til sín, því að svartur er mát í þeirri stöðu! Eftir 59. Hg8! Hal 60. Rd5+ Kc5 (60. - Ka7 61. Rb4! Ha4 62. Kb3 Hal 63. Hg7+ Ka8 64. Rd5! Hbl+ 65. Ka2 Hb8 66. Hd7 og hvítur vinnur) 61. Hg5 og í framhaldinu nær hvítur að leika riddaranum á óskareitinn, b4, með vinningsstöðu. 59. -Hh8 60. Kb3 Hc8 61. a7 Kxa7 62. Kb4 - Kaspai-ov er sloppinn, skákin er jafntefli. Hvítur getur ekki unnið með hrók og riddara gegn hrók, nema svartur leiki gróflega af sér. 62. - Kb6 63. Rd5+ Ka6 64. Hg6+ Kb7 65. Kb5 Hcl 66. Hg2 Kc8 67. Hg7 Kd8 68. Rf6 Hc7 69. Hg5 Hf7 70. Rd5 Kd7 71. Hg6 Hfl 72. Kc5 Hcl+ 73. Kd4 Hdl+ 74. Ke5 pg keppendur sömdu um jafntefli. I flmmtu skákinni hafði Kasparov hvítt og skákáhugamenn biðu spenntir eftir því hvort honum hefði tekist að finna glufu í Berlínar- afbrigði Kramniks í spænska leikn- um. Það kom hins vegar í ljós, að Kasparov hafði gefist upp á því í bili að brjóta niðm' Berlínarmúr Kramn- iks og sneri sér þess í stað að enska leiknum: Fimmta einvígisskákin Hvítt: Kasparov Svart: Kramnik 1. c4 c5 2. Rf3 Rf6 3. g3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. Bg2 Rc6 6. Rc3 g6 7.0-0 Bg7 8. Da4 Rb6 9. Db5 Rd7 10. d3 0-0 11. Be3 Rd4 12. Bxd4 cxd4 13. Re4 Db6 14. a4 a6 15. Dxb6 Rxb6 16. a5 Rd5 17. Rc5 Hd8 18. Rd2 Hb8 19. Rc4 e6 20. Hfcl Bh6 21. Hcbl Bf8 22. Rb3 Bg7 23. Bxd5 Hxd5 24. Rbd2 e5 og hér féllst Kasparov á jafnteflisboð Kramniks eftir 20 mínútna umhugs- un. Sjötta einvígisskákin verður tefld í dag. Eitt af því sem gerir þetta ein- vígi spennandi er vitneskjan um að Kasparov getur skyndilega sýnt klærnar og sýnt andstæðingnum í tvo heimana. Spurningin er hins vegar hvort honum takist það í þetta skipti. Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson Erlencjur Jóns- son Islands- meistari í ein- menningi BRIDS B r i d s h ö 11 i n Þönglabakka ÍSLANDSMÓT í EINMENNINGI 72 þátttakendur - 13.-14. oktáber. ERLENDUR Jónsson varð Islandsmeistari í einmenningi um helgina eftir hörkukeppni. íslands- —meistarinn frá í fyrra, Sigurbjöm Haraldsson, varð í öðru sæti eftir að hafa leitt mótið síðustu umferðimar og Asmundur Pálsson varð í þriðja sæti. Mótið var spilað í þremur lotum og var fyrsta lotan spiluð á föstudag. Eftir kvöldið var Asmundur Pálsson langefstur með 737 stig. Erlendur ‘ÍK'ar þá í 10. sæti með 637 stig og Sig- urbjörn í því 19. með 594 stig. Eftir tvær lotur var Bjöm Amarson kom- inn í efsta sætið með 1.291 stig og Asmundur var þá annar með 1.284 stig og Sigurbjörn og Erlendur voru í 4. og 5. sæti með 1.254 og 1.250 stig. I síðustu lotunni spiluðu 12 efstu pörin saman í riðli og var hart barist. Sigurbjöm náði snemma forystunni í riðlinum og hélt henni til lokaum- ferðarinnar en þá fékk Erlendur góða skor sem nægði honum til sig- urs. Spiluð voru 3 spil milli para. í fyrstu umferð var stigahæstu ein- staklingum raðað í riðlana til að byija með og síðan raðaði tölvan að eigin geð- þótta. í annarri umferð var slöngur- aðað sem kallað er, þ.e. efsta parið fór í A-riðil, næstefsta parið í B-riðil o.s.frv. en í lokaumferðinni spiluðu Morgunblaðið/Amór Sigurvegararnir í íslandsmótinu í einmenningi árið 2000 talið frá vinstri: Sigurbjöm Haraldsson, Erlendur Jónsson íslandsmeistari, Ásmundur Pálsson og Guðmundur Ágústsson, forseti Bridssambandsins, en hann afhenti verðlaunin í mótslok. 12 efstu pörin í A-riðli, næstu 12 í B- riðli en alls var spilað í 6 riðlum. Keppnisstjóri og reiknimeistari var Sveinn Rúnar Eiriksson, móts- stjóri var Stefanía Skarphéðinsdótt- ir og forseti Bridssambandsins, Guð- mundur Ágústsson, afhenti verðlaun í mótslok. Arnór Ragnarsson Svipmynd frá íslandsmótinu í einmenningi. Jón Stefánsson og Björn Friðriksson spila gegn Erlendi Jónssyni og Garðari Jónssyni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.