Morgunblaðið - 17.10.2000, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 17.10.2000, Qupperneq 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Notaðir bílar á frábæru veröi Greiðslukjör án útborgunar við afhendingu lánum f allt að 60 mánuði fyrsta afborgun í mars 2001 Opel Astra í kr 1.000.000,- Verð aðein Nissan Micra kr 590.000,- BÍLAHÚSIÐ (í húsi Ingvars Helgasonar og Bllheima) Sævarhöfða 2 112 Reykjavík - Símar: 525 8096 - 525 8020 - Slmbréf 587 7605 BjOR-Qii«ÍilLASALAH 11 -SimiS88 5300 Verð aðeins Verð aðeins FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Jim Smart Vilmar Pedersen ljóðskáld speglar sig í einu ljóða sinna. Geðveikt framtak „GEÐVEIK list er gluggi, gluggi inn í heim huga sem þjáðst hafa af geðröskunum . . . Sýnin er heillandi og átakanleg í senn, sýnin er tækifæri til að skilja þá sem ekki fá nægjaniegan skiining og í framhaldi af því að meðtaka sýnina sem eitthvað jákvætt." Svona lýsir Vilmar Pedersen hug- myndafræðinni á bak við sýning- una Geðveik list en hún er í Gall- eríi Geysi í Hinu húsinu. Vilmar er einn þeirra þriggja Iistamanna sem þar taka þátt en þeir eiga það sameiginlegt að stríða við geðsjúkdóma af einhverju tagi. Á ekki að vera feimnismál Þriðjudagurinn 10. október var alþjdðlegur geðheilbrigðisdagur og af því tilefni fdr áhugafölk um geðheilbrigði í fjöldagöngu til að vekja athygli á fordómum gegn geðsjúkdómum. Áðurnefnd sýn- ing starfar á sama vettvangi - að vekja athygli á því að geðsjúk- dóma ætti ekki að fara með sem eitthvert feimnismál. Aðilar sem taka þátt í sýningunni eru m.a. Hitt húsið sem er menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks og Geðrækt, heilsuefling Geðhjálpar sem starfrækt er í samvinnu við Landlæknisembættið og geðdeild Landspftalans. Listamennirnir sem þátt taka f sýningunni eru þrír; þau Katrín Níelsdóttir myndlistarmaður, Leifur Blöndal myndlistarmaður og Viimar Pedersen ljóðskáld. Titill sýningarinnar, „Geðveik list“, virðist við fyrstu sýn ansi brattur og ögrandi en í því felst einmitt tilgangurinn - að tala hreint út um hluti sem venjulega er pukrað með að sögn Vilmars. „Eg fékk hugmyndina að sýning- unni í febrúar á þessu ári,“ út- skýrir hann. „Eg sá þetta sem gott tækifæri til að styðja við málstað geðsjúkra. Hugmyndin var sú að reyna að vinna svolítið á fordómum og fræða fólk. Hrista svolítið upp í því og sýna að við erum bara fólk eins og aðrir.“ „Geðsjúkdómar eru algengari en fólk vill trúa,“ heldur Vilmar Léttmjólk, vítamín, kalk, þrúgusykur, trefjaefni, prótein: öðru nafni Orkumjólk. nmr www.ms.is ORKUMJÓLK HENTAR ÖLLUM ALOURSHÓPUM áfram. „Nú eru margir að koma út úr skápnum, þetta er ekki eins mikið feimnismál og það hefur verið.“ Glundroði geðveikinnar „Ljóðin eru friðþæging hjart- ans í glundroða geðveikinnar." Svo lýsir Vilmar ástæðunum fyrir því að hann yrkir. Ljóðin hans, sem eru jafnt á ensku og ís- lensku, hanga í gluggum Hins hússins, prentuð á gegnsæ spjöld. „Þessi sýning er manni hvatning til að fara á lappir á morgnana," segir Vilmar og vindur sér svo í útskýringar á Ijóðunum. Hann scgir þau tilkomin af ýmsum ástæðum, sum séu samin leiftur- snöggt er andinn hvolfist skyndi- lega yfir, sum séu myrk og þung en önnur glaðværari og bjartsýnni en eðlilegt getur talist, og segir Vilmar þau ljóð vera ágætis innsýn í geðhvarfasýki sem hefur verið að angra hann undanfarin ár. Vilmar fylgir blaðamanni um salinn og sýnir honum myndir Leifs Blöndal, stórskornar myndir af indíánum, að því er virðist, gerðar með kol- um. Hinn myndlistarmaðurinn, Katrín Níelsdóttir, er þarna á staðnum og sýnir blaðamanni myndirnar sínar. Verk hennar eru litsterk, eins konar flæðandi litahaf, og Katrín segir þau m.a. tilraun til að lýsa óveðri hugans. Listamennirnir virðast báðir afar ástríðufullir gagnvart þessari list sinni - greinilegt að hér er skap- að af raunverulegri innri þörf og engu öðru. Sýningin hefur staðið frá 7. október og henni lýkur næstkom- andi laugardag, hinn 21. Hún er opin á milli klukkan 13 og 19.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.