Morgunblaðið - 27.10.2000, Side 24

Morgunblaðið - 27.10.2000, Side 24
BETRISTOFAN.IS 24 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Lína.Net hf. leggur ljósleiðara til Vestmannaeyja 150 km á sex vikum Jarðvinnuframkvæmdir Línu.Nets hófust í byrjun október og áætlað er að þeim verið lokið fyrir 17. nóvember. LÍNA.NET hf. stendur nú í miklum framkvæmdum við að leggja ljósleið- ara til Vestmannaeyja. Megintil- gangurinn með þessari framkvæmd er að tryggja öfluga tengingu við Cantat-sæstrenginn í Vestmanna- eyjum fyrir áramót og að geta boðið þéttbýliskjömum, fyrirtækjum og einstáklingum á Suðurlandi upp á öflugar tengingar strax á næsta ári. Farið var í gang með undirbún- ingsvinnu nú í sumar og hefur sú vinna, val á lagnaleið og leyfísmál, verið í höndum verkfræðistofunnar Línuhönnun hf. Akveðið var að fylgja þjóðvegi nr. 1 og fara þannig í gegn- um Hveragerði og Selfoss og tengja ljósleiðarann við örbylgjukerfm sem rekin eru í þeim og einnig verður far- ið framhjá Hellu og Hvolsvelli. Aust- an við Hvolsvöll er stefnan tekin nið- ur á Landeyjasanda þar sem sæ- strengur er lagður til Eyja og kemur upp á Skansinum. Þaðan liggur leiðin inn í símstöðina í Vestmannaeyjum þar sem tengibúnaður verður settur upp fyrir Cantat. Akveðið var að skipta verkinu upp Framtíðin er komin! Ljósleiðaranet til eilífðar Johan Rönning býður nú upp á, fyrst íslenskra fyrirtækja, Ijósleiðaranetkerfi á verði sem er sambærilegt við koparnetkerfi. Kerfið, Volition, er fyrsta alhliða lausnin með Ijósleiðaranetkerfi [fibre-to-the-desk3 á markaðnum og kemur það frá hinu þekkta fyrirtæki 3M. Kerfið býður upp á heildarlausn og hægt er að tvinna það saman víð öll önnur netkerfi. I\lú þegar hefur fjöldinn allur af erlendum fyrirtækjum ásamt íslenskum sett upp slíkt net til að auka hraða, öryggi og vera tilbúin fyrir kröfur framtíðarinnar. Volrtion Innovation twww.ronning.isl JOHAN Wf/l RÖNNING [Sundaborg 15 Sfmi: 5 200 8001 [Óseyri 2 Sfmi: 4 600 8001 í fimm áfanga til að hraða fram- kvæmdum og er fyrsti áfanginn frá Arbæ í Reykjavík til Selfoss um 48 km, annar áfangi er frá Selfossi til Hellu sem er um 36 km. Þriðji áfang- inn er svo frá Hellu niður á Land- eyjasand um 40 km, fjórði áfangi er um 12 km sjóleiðina til Eyja og fímmti áfanginn er í Eyjum þar sem leggja þarf um einn km frá Skansin- um og í símstöðina. í allt gerir þetta um 150 km með ljósleiðaratengingu út í Tæknigarð sem er einn af tengipunktum Línu.Nets. Samið var við Gröfuna ehf. frá Reykjavík um fyrsta áfangann, Aust- firska verktaka hf. frá Egilsstöðum um annan áfanga og við Vinnuvélar Pálmars Friðrikssonar frá Sauðár- króki um þriðja áfangann. Fjórði áfanginn er tekinn af Sjóverk ehf. frá Kópavogi og verið er að semja við verktaka í Eyjum um þann fimmta. Við lagningu á Ijósleiðaranum var ákveðið að fara aðrar leiðir við lagn- inguna en þær hefðbundnu aðferðir sem notaðar hafa verið hingað til hér á landi. Ákveðið var að plægja niður rör frá Reykjavík að Landeyjarsandi sem eru sérhönnuð til þess að hægt sé að skjóta í þau strengjum með loftþrýstingi. Þetta gerir það að verkum að hægt er að notast við hefðbundna ljósleiðara sömu gerðar og notaðir eru til ídráttar innanbæj- ar. Þetta flýtir einnig framkvæmda- hraða jarðvinnuverktakanna veru- lega. Samið var við Ljósvirki ehf. um lagningu á ljósleiðaranum og teng- ingar, frá Reykjavík til Vestmanna- eyja, en þeir hafa fjárfest í útbúnaði sem er sérhannaður til að geta skotið strengjum með loftþrýstingi og við kjöraðstæður er hægt að skjóta allt að 4 km í einu, samkvæmt upplýsing- um frá Eiríki Bragasyni, fram- kvæmdastjóra Línu.Nets. Jarðvinnuframkvæmdir hófust í bytjun október og áætlað er að jarðvinnuframkvæmdum verði lokið fyrir 17. nóvember og að lagnavinna og tenging við Cantat-sæstrenginn verði komin á fyrir 1. desember. I dag er búið að leggja sæstrenginn og plægingu á um 36 km af rörum milli Selfoss og Hellu er lokið. Um 20 km kafia er lokið af plægingu austur frá Hellu og er áætlað að sá áfangi, niður á Landeyjarsanda, klárist í næstu viku. Búið er plægja frá Kömbunum á Hellisheiði og langleiðina að Litlu kaffistofunni sem er um 15 km kafli og erfiðasti hlutinn af leiðinni. Lagn- ing á ljósleiðaranum er hafin og þeg- ar þetta er skrifað er lokið við að skjóta um 10 km af streng frá Sel- fossi og austureftir. -------*-4_»------- Ráðstefna um Netið FJALLAÐ verður um mikilvægi Netsins á öllum sviðum fyrirtækja- reksturs á ráðstefnu um rafræna viðskiptahætti. Það eru Teymi, Skýrr, PrieewaterhouseCoopers, Netís, Opin kerfi og Veita sem standa að ráðstefnunni. Fyrirlesarar koma frá fimm þjóðlöndum og meðal þeirra er Francis Veldeman sem hef- ur gegnt lykilhlutverki í velgengni lausnar Oracle á sviði rafrænna við- skiptahátta í Evrópu og víðar. Mun hann fjalla um þau tækifæri sem bíða íslenskra fyrirtælg'a á Netinu og nýjustu þróunina í viðskipta- lausnum sem keyra alfarið á Netinu. Ráðstefnan verður haldin í ís- lenska kvikmyndaverinu og fer fram föstudaginn 3. nóvember. Hún er sérstaklega ætluð stjómendum og millistjómendum fyrirtækja og stofnana. Ráðstefnan hefst klukkan 09:00 og stendur til 16:30. Samtímis verður opið sýningarsvæði þar sem lausn Oracle á sviði rafrænna við- skiptahátta verður kynnt og starfs- menn fyrirtækjanna sem að ráð- stefnunni standa svara spurningum gesta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.