Morgunblaðið - 27.10.2000, Side 32
32 FÖSTUÐAGUR 27. OKTÓBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistardagar Dómkirkjunnar 28. okt. - 22. nóv.
Ddmkórinn frumflytur nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjömsson á setningartónleikum Tónlistardaga.
Guði einum til dýrðar
Tónlistardagar Dómkirkjunnar verða settir
á morgun en þeir eru nú haldnir nítjánda
árið í röð. Margrét Sveinbjörnsdóttir
gluggaði í dagskrána og ræddi við Þorkel
Sigurbjörnsson tónskáld.
Dagskrá
Tónlistar-
daga
Laugardagur 28. okt. kl. 17
Setning Tónlistardaga.
Frumflutt kórverkið Undir
aldamót eftir Þorkel Sigur-
björnsson fyrir kór, barnakór,
málmblásara og orgel. Auk
Dómkórsins eru flytjendur
Skólakór Kársness undir
stjórn Þórunnar Bjömsdóttur,
Guðný Einarsdóttir organleik-
ari, málmblásarar úr Sinfón-
íuhljómsveit Islands og Mar-
teinn H. Friðriksson.
Dómkórinn flytur einnig Alda-
söng eftir Jón Nordal, Skóla-
kór Kársness syngur og Mar-
teinn H. Friðriksson leikur
orgelverk eftir J. S. Bach til að
minnast andláts hans fyrir 250
árum.
Laugardagur 4. nóv. kl. 17
Deborah Calland og Barry
Millington frá London leika á
trompet og orgel. Tónleikarnir
eru haldnir í samvinnu við R.
Wagner-félagið á Islandi.
Laugardagur 11. nóv. kl. 17
Orgeltónleikar Steingríms
Þórhallssonar.
Sunnudagur 12. nóv. kl. 17
Tónleikar Unglingakórs
Selfosskirkju undir stjórn
Margrétar Bóasdóttur og
Drengjakórs Laugarneskirkju
undir stjórn Friðriks Kristins-
sonar.
Laugardagur 18. nóv. kl. 17
Requiem eftir G. Fauré. Flytj-
endur: Margrét Bóasdóttir,
Bergþór Pálsson, Anna Guðný
Guðmundsdóttir, Dómkórinn
og Marteinn H. Friðriksson.
Miðvikudagur 18. nóv. kl.
20.30
Minningartónleikar um
mæðgurnar Guðfmnu Vigfús-
dóttur og Hólmfríði Sigurjóns-
dóttur. Flytjendur: Sigur-
björn Bemharðsson
fíðluleikari, Marta Guðrún
Halldórsdóttir söngvari, As-
hildur Haraldsdóttir flautu-
leikari og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari.
YFIRSKRIFT daganna er Soli Deo
Gloria eða Guði einum til dýrðar en
upphafsmaður Tónlistardaga Dóm-
kirkjunnar er Marteinn H. Friðriks-
son, dómorganisti og stjórnandi
Dómkórsins.
AUt frá upphafí eða frá árinu 1982
hafa tónskáld verið fengin sérstak-
lega til að semja kórverk sem Dóm-
kórinn hefur frumflutt á Tónlistar-
dögum. Aðallega hefur verið leitað í
smiðju íslenskra tónskálda en einnig
hafa ýmis erlend tónskáld samið fyr-
ir kórinn. Þá hafa verið fengnir
gestalistamenn víða að til að taka
þátt í Tónlistardögum. Að þessu
sinni koma þeir frá London, Róm og
Selfossi.
Meðal þeirra tónskálda sem samið
hafa verk fyrir Tónlistardagana em
Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkell
Sigurbjömsson, Páll P. Pálsson, Jón
Asgeirsson, Mist Þorkelsdóttir og
Atli Heimir Sveinsson. Af erlendum
tónskáldum má nefna tékkneska
tónskáldið Petr Eben og Knut Ny-
sted frá Noregi.
Á setningartónleikunum, sem
hefjast kl. 17 á morgun, verður fmm-
flutt verk Þorkels Sigurbjömssonar,
Undfr aldamót, við kvæði Sigur-
bjöms Einarssonar. Einnig verður
fluttur Aldasöngur eftir Jón Nordal
og orgelverk eftir Bach.
Bætt skilyrði til tónlistar-
flutnings í Dómkirkjunni
Á kirkjuvígsludeginum á sunnu-
dag er hátíðarmessa í kirkjunni og
þá verður tónverk Þorkels endur-
flutt. Ennfremur flytur Dómkórinn
verk Mistar Þorkelsdóttur, Laudate
pueri. Allir viðburðir Tónlistardaga
fara fram í Dómkirkjunni og em þeir
hinir fyrstu eftir gagngerar endur-
bætur á kirkjunni sem bætt hafa
skilyrði til tónlistarflutnings til mik-
illa muna.
Dagskrá Tónlistardaga Dómkirkj-
unnar í heild sinni er að finna annars
staðar hér á síðunni.
Frekar blátt áfram
og aðgengilegt“
HIÐ nýja verk Þorkels
Sigurbjörassonar,
Undir aldamót, sem
frumflutt verður á
setningartónleikunum
á morgun er samið við
samnefnt ljóð eftir fóð-
ur tónskáldsins, Sigur-
bjöm Einarsson bisk-
up*
„Verkið varð til síðs-
umars að ósk Dóm-
kórsins og Marteins H.
Friðrikssonar. Hann
óskaði sérstaklega eft-
ir því að það yrði líka
fyrir Skólakór Kárs-
ness og það var auðsótt
mál,“ segir Þorkell.
Undir aldamót er ekki fyrsta
verkið sem Þorkell semur tii flutn-
ings á Tónlistardögum Dómkirkj-
unnar en árið 1984 frumflutti kór-
inn eftir hann Áminningu fyrir
sexraddaðan kór.
Þegar hann er beðinn að Iýsa nýja
verkinu segir hann það samið fyrír
kór, bamakór, fjóra málmblásara
og orgel. „Maður reynir náttúrulega
að fylgja textanum eftir og ekki
stríða á móti honum. Ég held að
þetta sé bara frekar blátt áfram og
aðgengilegt, bragarhátturinn kall-
aði á það. Þetta er hefðbundinn
ambrósíanskur háttur eða öfugur
Þorkell Sigurbjöms-
son tónskáld.
tvfliður," segir Þor-
kell. Hann segir verkið
frekar stutt. „Það var
eindregin ósk Marteins
að þetta yrði ekki
óþægilega langt,“ bæt-
ir liann við.
Eins og litil
kantata
Fyrr á þessu ári
efndi kristnihátíðar-
nefnd til samkeppni
um lag við ljóð Sigur-
bjöms og fyrstu verð-
laun hlaut Veigar Mar-
geirsson. Lagið var
flutt á Kristnihátíð á
Þingvöllum á liðnu
sumri. Þorkell segir að þar sem það
lag hafi verið til hafí honum ekki
dottið í hug að semja aiinað „Iag“
heldur „meira eins og litla kantötu"
eins og hann orðar það.
Þríðji Qölskyldumeðlimurinn
kemur við sögu í flutningi verksins,
Guðný Einarsdóttir, sem leikur á
orgelið. Hún er bróðurdóttir Þork-
els og „mjög efnilegur ungur organ-
isti“ að hans sögn.
Þorkell leit inn á æfingu í
Dómkirkjunni í fyrrakvöld og var
að sögn ánægður með það sem hann
heyrði. „Þetta er einvalalið og fínn
hljómur."
Kínversk listakona
í Galleríi Fold
KÍNVERSKA listakon-
an Lu Hong opnar sýn-
ingu í Baksalnum í Gall-
eríi Fold, Rauðarárstíg
14-16, á morgun, laugar-
dag, kl. 15.
Sýninguna nefnir lista-
konan íslensku fjöllin.
Lu Hong er fædd í
Peking í Kína áríð 1957.
Árið 1981 fékk hún inn-
göngu i Kínverska lista-
háskólann í Peking
(Zhongyang Meishu Xu-
eyuan), sem er virtasti
myndlistarskóli Kínverja. Þar naut
hún handleiðslu fæmstu kennara.
Lu Hong valdi hefðbundna kín-
verska landslagsmálun (sansui) sem
sérsvið og hún var fyrsta konan sem
útskrifaðist frá þessum merka skóla
í þessari grein.
Eftir listnámið i Kína starfaði Lu
Hong um hríð við Listasafn Peking-
borgar, en árið 1986 hélt hún til Tók-
ýó í Japan og lagði stund á japönsku
og japanska myndlist.
Hingað kom hún árið 1990 og hef-
ur verið búsett hér síðan.
. Hong við eitt verka sinna.
Lu Hong notar eingöngu hefð-
bundin kínversk verkfæri og efni við
listsköpun sína. Penslarnir eru hand-
gerðir úr geitarhári. Liturinn er kín-
verskt blek sem hún blandar sjálf
eftir aldagömlum hefðum. Pappírinn
er handgerður og unninn úr bambus
eftir 2000 ára gamalli hefð. Lu Hong
hefur haldið og tekið þátt í fjölda
sýninga í Kína, Japan og á Islandi.
Gallerí Fold er opið daglega kl.
10-18, laugardaga kl. 10-17, og
sunnudaga kl. 14-17. Sýningin
stendur til 12. nóvember.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Leikarar á æfíngu ásamt leikstjóranum, Ylfu Lind Gylfadóttur.
Herramennirnir frum-
sýndir í Hveragerði
Hveragerði. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Hveragerðis frumsýn-
ir leikritið Herramennina í Völundi,
við hliðina á Eden, á morgun, laugar-
dag kl. 15.
Leikaramir í Herramönnunum eru
böm og unglingar í Hveragerði, 25
talsins en alls koma um 40 manns að
uppsetningu sýningarinnar. Leik-
stjóri er Ylfa Lind Gylfadóttfr.
Herramennimir eru í leikgerð
Önnu Jórunnar Stefánsdóttur sem
einnig samdi sönglög og texta við leik-
verkið. Leikritið er unnið upp úr átta
Herramannabókum og þeir sem hafa
lesið bækumar kannast við herra Há-
væran, herra Hroka, herra Kjaftask,
herra Hnýsinn, herra Skell, herra
Gleyminn, herra Rugla, herra Subba,
herra Snyrtinn og herra Þrifinn. Allir
hafa herramennimir sín sérkenni
sem koma fram en á sýningunni fá
áhorfendur að heyra um samskipti
íbúanna í Bestabæ við herramennina
sem em dálítið sérstakir.
„Bömin sækja í að vera með í leik-
félaginu hjá okkur og em mjög
áhugasöm um að leika og koma fram.
Þessi virkni þeirra er mjög skemmti-
leg og gaman að starfa með þeim,“
sagði Anna Jómnn Stefánsdóttir.
Leikritið verður einnig sýnt á sunnu-
daginn, aðrar sýningar verða 3., 5., 11.
og 12. nóvember. Miðaverð er kr. 500.
------------------------
Sýningu lýkur
SÝNINGU hollenska listamannsins
Gerards Groots frá Hollandi í Galler-
íi Reykjavík lýkur í dag.
Gerard er fæddur árið 1942 í
Heiloo í Hollandi en býr nú í Bergen.
Menntun sína fékk Gerard í The
Rietveld Academy. Inntak þeirra
verka sem Gerard sýnir í Gallerí
Reykjavík hefur hann fengið á ferð-
um sínum um landið undanfarin ár.
Sýningin er opin kl. 13-18.
c K' IVI ■2000
Laugardagur 27. október
I
LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNARHÚS
KL. 18-20
Café9
Q2-The Negative. Dagskrá þarsem
klassískir tónlistarmenn frá þremur
borgum koma til með aö spila sam-
an á hljóðfæri.
www.cafe9.net
ART2000
Fyrirlestur Martin Knakkegaard í
Salnum kl. 17. Á tónleikum íSalnum
kl. 20 koma fram Vindva Mei,
Product 8 og Stilluppsteypa. Kvöld-
barinn á
Gauknum frá kl. 22.
www.musik.is/art2000
HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ KL. 20
Á mörkunum
Vitieysingarnir, gamanleikrit um ungt
fólk á íslandi dagsins í dag, eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Leikstjóri erHilm-
arJónsson.