Morgunblaðið - 27.10.2000, Side 38

Morgunblaðið - 27.10.2000, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN SÓKRATES ll/Menntaáætlun Evrópusambandsins hefur haft nokkur áhrif á íslenskt skólafólk. Núna er hafíð nýtt tímabil menntastefnu ESB sem stendur til 2006 og Islendingar eru með. Gunnar Hersveinn kynnti sér yfír- lit eldri áætlunar (95-99) og þeirrar nýrrí (00-06) og Anna Ingólfsdóttir skoðaði eitt verkefni í Hólabrekkuskóla. Áhrifamikil _ þátttaka Islendinga • Comenius tengir skóla í Evrópu saman og þá sem koma að skólamenntun. • 300 grunn- og framhaldsskólakennarar fengu styrki á námskeið utan Islands. Morgunblaðið/Asdís Comenius-kennarar frá Italíu og Frakklandi heimsóttu nýlega kennara og nemendur í Hólabrekkuskóla. ANNAR hluti Sókratesar - menntaáætlunar Evr- ópusambandsins - hófst (formlega) á íslandi í síðasta mánuði með opnunarráð- stefnu í hátíðarsal Háskóla ís- lands, að viðstöddum Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra og Joao de Santana, yfírmanni skólamáladeildar hjá fram- kvæmdastjórninni í Brussel. A opnunarhátíðinni sagði mennta- málaráðherra frá þátttöku ís- lendinga í fyrri áætluninni sem stóð frá árinu 1995: Um það bil 50 íslenskir skólar á öllum skólastigum hafa tekið þátt í samstarfsverkefnum með evrópskum skólum. Ríflega 800 íslenskir stúdentar hafa verið með í Erasmus-stúdentaskipta- áætlun Sókratesar og tekið hluta af námi sínu erlendis og fengið það að metið í heimaháskólum sínum. Sífellt bætist við fjölda er- lendra stúdenta sem nema við ís- lenska háskóla og á sl. ári voru t.d. um 180 skiptistúdentar við nám við Háskóla Islands. Fleiri en 300 grunn- og fram- haldsskólakennarar hafa hlotið styrki til að sækja endurmenn- tunarnámskeið til Evrópu. Þá hafa komið hingað um 50 erlendir verðandi tungumálakennarar til að aðstoða við kennslu í grunn- og framhaldsskólum í 3-8 mánuði. í sömu erindagjörðum hafa um 20 íslenskir verðandi tungumála- kennarar fengið styrki til að að- stoða við kennslu í flestum Evrópusambandslöndunum. Tæplega 400 nemendur 14 ára og eldri hafa tekið þátt í nem- endaskiptaverkefnum þar sem bekkjardeildir tveggja skóla frá tveimur Evrópulöndum vinna sameiginlega að verkefni og skiptast síðan á tveggja vikna gagnkvæmum heimsóknum í kjölfarið. Otalin eru stærri samstarfs- verkefni sem íslendingar hafa tekið þátt í, t.d. um námsgagna- gerð og námskeið i flestum þátt- um Sókratesar, þ.e. Lingua, full- orðinsfræðslu, opnu námi og fjarnámi, Erasmusi og Comen- íusi. I greinargerð Ragnhildar Zoéga hjá Alþjóðaskrifstofu há- skólastigsins um opnunarhátíðina lýsti fulltrúi framkvæmdastjórn- arinnar í Brussel, Joao de Sant- ana, ánægju sinni með virka þátt- töku Islendinga í fyrri hluta Sókratesar og sagðist vænta áframhaldandi góðrar þátttöku í öðrum hluta Sókrates-áætlunar- innar. Evrópusamstarf hefði sannað mikilvægi sitt á öllum sviðum menntunar. Mikilvægt væri að deila reynslu og læra hvert af öðru. Markmið SÓKRATESAR ► Að styrkja Evrópuvitund í menntun á öllum skóla- stigum ► Að efla kunnáttu í evrópskum tungumálum ► Að koma á samvinnu og auka hreyfanleika fólks á öllum stigum menntunar ► Að hvetja til nýbreytni í menntamálum ► Að stuðla að jöfnum tæki- færum til menntunar Morgunblaðið/Jim Smart Handhafar Evrópumerkis: Ingegerd Narby, Brynhildur og Gry Ek með menntamálaráðherra. Þorvaldur Pálmason var fjarstaddur. Evrdpumerkið 2000 veitt Mataræði og hollusta ungmenna Morgunblaðið/Ásdís Nemendur í Hólabrekkuskóla fengu að vita að ítalskir jafnaldrar þeirra fara gjarnan með súkkulaðistykki í skólanesti. EVRÓPUMERKIÐ fyrir árið 2000 var veitt verkefninu Tungumálanám á Neti eða http://norr.ismennt.is í umsjá Brynhildar Önnu Ragnars- dóttur, Gry Ek Gunnarsson, Inge- gerd Narby og Þorvaldar Pálma- sonar. Verkefnið var unnið á vegum Fræðslumið- stöðvar Reykjavíkur og er sniðið fyr- ir nemendur í sænsku í 9. bekk og nemendur í norsku í 10. bekk grunn- skóla. Markmið þess er að skapa námsumhverfi á Netinu fyrir þessa nemendur óháð búsetu. Evrópumerkið (European Label) er árlega veitt af menntamála- ráðuneytinu einu nýbreytniverkefni í tungumálanámi og -kennslu, en ráðuneytið tekur þátt í samstarfí á vegum framkvæmdastjómar EBS um merkið. Alþjóðaskrifstofu há- skólastigsins er falin framkvæmd Evrópumerkisins. í dómnefnd eiga sæti fulltrúar frá Samtökum tungu- málakennara á Islandi, Kennarahá- skóla íslands, Háskóla íslands, full- trúi ráðuneytis og erlendur fulltrúi. Núna bárust fjórar umsóknir um merkið og hlaut Tungumálanám á Neti það og fá aðstandendur þess leyfi til að nota merkið og einnig við- urkenningarskjal undirritað af Bimi Bjai-nasyni menntamálaráðherra og Viviane Reding framkvæmdastjóra Evrópusambandsins. Ráðuneytið veitti einnig sérstök verðlaun. Brynhildur A. Ragnarsdóttir sagði eftir að menntamálaráðherra hafði afhent viðurkenninguna að verkefnið væri skóli á Netinu sem nemendur gætu stundað á skólatíma, t.d. meðan aðrir nemendur væru í dönsku. Nemendur geta m.ö.o. sinnt náminu í nettengdri tölvu í heimaskóla sínum. Allt námsefnið er á Netinu, verk- efnaskil em þar einnig og samskipta- vettvangur nemenda og kennara. Til að geta fengið Evrópumerkið verða verkefni að standast eftirfar- andi kröfur: Vera heildstæð, fela í sér ávinning eða aukin gæði tungu- málakennslu, hvetja þátttakendur í málanáminu, auka vitund um Evrópu og kunnáttu og skilning á tungumáli og menningu viðkomandi málsvæðis, og fela í sér nýjungar sem yfirfæra má á aðrar aðstæður, t.d. þegar um er að ræða nám í öðr- um tungumálum eða aldurshópum. HÓLABREKKUSKÓLI er þátt- takandi í einu af Comenius verkefn- unum í menntaáætlun Evrópusam- bandsins. Verkefnið byggist á samvinnu þriggja skóla hverjum í sínu landinu á evrópska efnahags- svæðinu og snýst um mataræði ungmenna og hollustu. Þrír kenn- arar frá hverjum skóla hittast á fundi til að skipuleggja verkefnið og heimsækja síðan nemendur en hver skóli er heimsóttur einu sinni. Samstarfsskólarnir eru í Moncal- ieri á Italíu og í Sierentz í Frakk- landi og var fundað í báðum þeim skólum á síðasta vetri en þriðji fundurinn var haldinn nú í Hóla- brekkuskóla og sá fjórði og síðasti verður á Italíu á næsta ári. Sætmeti, brauð og kartöflur Nemendur og kennarar í 10. bekk í Hólabrekkuskóla tóku á móti sex kennurum frá Frakklandi og Ítalíu og spurðu þau spjörunum úr varðandi mataræði og ýmsa hagi unglinga í báðum þessum löndum. Þessir erlendu gestir komu til landsins deginum áður, og voru búnir að gæða sér á íslenskum þorramat, sviðum, slátri, hákarli og öðru því sem tilheyrir hefðbundir.ni íslenskri matargerð. Kennararnir komu gagngert til þess að heim- sækja nemendur og samstarfs- kennara sína í Hólabrekkuskóla og bera saman bækur sínar. f verkefn- inu er skoðað mataræði og neyslu- venjur í öllum þessum löndum, hvað er þjóðlegt og hefðbundið í matargerð og ýmsar geymsluað- ferðir á matvælum í gegnum ár og aldir, allt fram á þennan dag. Nem- endur og kennarar í skólunum þremur hafa m.a. skipst á upp- skriftum og gerðu t.d. könnun á mataræði ungmenna í löndunum. í niðurstöðum könnunarinnar kemur m.a. fram að ítölsk ungmenni borða mikið af sætum kökum og hafa gjaman með sér súkkulaðistykki í nesti í skólann. Franskir unglingar sýndu yfirburði í brauðáti og ís- lensk böm og unglingar borða mik- ið af kartöflum. Italir, eins og ís- lendingar, eiga sér sína sláturtíð á haustin og vinna mat úr innyflum sauðfjár og svína, t.d. þykja súrsað- ar hásinar góður matur þar í landi. „Há dú jú læk Æsland?“ íslensku nemendumir komu með margar fyrirspurnir til frönsku og ítölsku kennaranna. Þau fýsti m.a. að fá að vita hvemig námstilhögun jafnaldra þeirra í þessum löndum væri háttað, hvort nemendur þyrftu að borga fyrir sitt nám á grunnskólastigi. Þeim var líka ofarlega í huga að fá að heyra hvemig gestunum þótti þjóðlegi ís- lenski maturinn bragðast, sérstak- lega hákarlinn. „How do you like Iceland?" var svo ein spumingin enda hefur sjálfsagt enginn erlend- ur gestur sem heimsótý hefur fs- land og spjallað við íslendinga komist hjá að svara henni. Björgvin Þórisson kennari er umsjónarmað- ur verkefnisins í Hólabrekkuskóla. Auk hans hafa komið að verkefninu Hólmfríður Pétursdóttir heimilis- fræðikennari og Sigurjón Fjeld- sted skólastjóri. Björgvin sagði verkefnið hafa verið skemmtilegt og fræðandi. Það hefði vakið nem- endur til umhugsunar á margan hátt, m.a. um eigin neysluvenjur og jafnaldra sinna í þessum löndum. Þeir hefðu bæði sent frá sér og fengið uppskriftir frá þessum lönd- um, fengið að spreyta sig á að útbúa þær í samráði við heimilisfræði- kennara og bragða á réttunum sem sumir þóttu framandi og misgóðir á bragðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.