Morgunblaðið - 27.10.2000, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞURÍÐUR
FILIPP USDÓTTIR
+ Þuríður Filipp-
usdóttir fæddist í
Reykjavík 21. nó-
vember 1908. Hún
lést á heimili sínu 21.
október síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ingveldur Jó-
hannsdóttir, húsmóð-
ir og klæðskeri, f.
1873, d. 1959, og Fil-
ippus Ámundason,
járnsmiður frá Bjólu
%í Holtum, f. 1877, d.
1975. Börn þeirra
voru sjö: Tvíburarnir
Þuríður og Karl, f.
1908; Jóhann, f. 1910; Indriði Stef-
án, f. 1911; Haukur, f. 1913; Val-
gerður, f. 1914 og Þórdís, f. 1917.
Þau eru nú öll látin nema Þórdís.
Auk þess ólu þau upp dóttur Val-
gerðar, Eddu Larsen f. 1932.
Þuríður ólst upp í Brautarholti
við Grandaveg og naut nokkurrar
skólagöngu, en fluttist ung til
Grindavíkur þar sem hún giftist
Árna Eiríkssyni bif-
reiðarstjóra. Þau
slitu samvistum. Þau
eignuðust þrjú börn:
Hafdisi og andvana
fæddan dreng, f.
1936 og Hebu, f.
1938. Hafdís á eina
dóttur, Herdísi
Stellu, hennar börn
eru Cody, nemi, og
Jesse, nemi, öll bú-
sett í Bandaríkjun-
um. Dóttir Hebu er
Belinda Theriault,
forstöðumaður al-
þjóðasviðs Alþingis.
Þuríður fluttist aftur til Reykja-
víkur árið 1957 og vann lengst af
við heimilishjálp og umönnun
barna.
Síðustu rúm 20 árin bjó hún í
Lönguhlíð 3 og þar lést hún 21.
október sl.
Útfór Þuríðar fer fram frá Há-
teigskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Jæja elsku Dúa mín, þá ert þú nú
farin frá okkur og heim til Guðs, og
mikið held ég að það verði tekið vel
á móti þér þar, því þú ert búin að
fðggja inn fyrir því. Þú hefur lifað
langa og góða ævi, en þú hefur
þurft að hafa fyrir því að njóta lífs-
ins, því ekki hefur nú lífið alltaf ver-
ið dans á rósum hjá þér, en þú
stjórnaðir því svo vel með þínu já-
kvæða og góða skapi og hafðir al-
veg sérstakt lag á að velta þér ekki
upp úr því þó á móti blési, heldur
hentir því afturfyrir og horfðir
fram á við. Ekki fórstu nú varhluta
af veikindum og þá sérstaklega
mörg undanfarin ár og oft hélt ég
ajð nú kæmist þú ekki upp aftur, jú
Dúa mín, þú reistir þig alltaf við og
byrjaðir upp á nýtt og þú varst eins
og hetja, sama hvað það var sem
dundi á þér.
Eg á svo margar dýrmætar
minningar um þig frá því ég var
barn og það finnst mér vera mikil
gæfa. Mikið hlakkaði ég nú alltaf til
þegar ég mátti heimsækja þig í
Grindavíkina þegar ég var lítil
stelpa, mér fannst allt svo gott sem
þú eldaðir og þó sérstaklega karb-
onaðið og brúnuðu kartöflurnar,
sem þú tókst alltaf á móti mér með
um leið og ég kom úr rútunni.
Já elskan, það er gott að hafa
verið systir þín og fengið að hafa
J;ig svo lengi. Og síðustu árin höfum
víð verið svo mikið saman og Guði
sé lof fyrir það, því maður lærði svo
margt af þér.
Og mikið var gaman að því hvað
þú varst alltaf pjöttuð, fram á það
síðasta var þér mikið í mun að vera
með vel snyrtar neglur og náttúr-
lega fallegt lakk á þeim og svo voru
það nú rúllurnar á laugardögum til
að vera huggulegur á sunnudögum,
svona varst þú í öllu og þetta gefur
lífinu svo mikið gildi. Alltaf varst þú
til í allt, ég man að fyrr á árinu
hringdi ég í þig og spurði hvort þú
værir til í að koma með mér til son-
ar míns og tengdadóttur í Sand-
gerði, og kannski að gista, og ég
þurfti sko ekki að bíða lengi eftir
svari og það var svona , já já ég hef
bara með mér tannbursta og nátt-
kjól“ og á stað fórum við hálftíma
seinna. Svona varst þú alltaf, ekk-
ert að tvínóna við hlutina.
Já Dúa mín, svona minningar er
gott að eiga og ég veit að allir sem
þekktu þig segja það sama.
Og stór er nú vinahópurinn þinn
sem syrgir þig núna. En við verðum
að þakka hvað Guð er góður að hafa
leyft okkur að hafa þig svona lengi
hjá okkur. Og þú sem varst svo lítil
þegar þú fæddist, bara fjórar merk-
ur og látin í bómull og skókassa, en
Kalli tvíburabróðir þinn stór og
mikill, en hann er löngu látinn. En
margur er knár þótt hann sé smár
og það má með sanni segja um þig,
þú gast eiginlega allt sem þú ætlað-
ir þér þótt það værir nú kannski
ómögulegt.
Elsku Dúa mín, mikið er ég þakk-
lát fyrir að hafa verið hjá þér þegar
þú kvaddir svo rólega og á friðsæl-
an hátt og sátt við allt og alla. Jæja
Dúa mín, svo þakka ég fyrir að hafa
átt þig bæði sem systur og móðurs-
ystur og þakka allar þær góðu
stundir sem við áttum saman.
Vertu svo Guði falin, elsku Dúa
mín.
Hirainninn er dásamlegur staður,
fullur af gleði og söng.
Þar mun ég mæta mínum frelsara,
himinninn er dásamlegur staður.
(Höf.ók.)
Þín systir,
Edda I. Larsen.
Vafalaust er það stundum að-
standendum léttir þegar gamal-
menni á tíræðisaldri lýkur jarðvist
sinni og kemur þar margt til. Ekki
er öllum gefin sú lífsgleði og andans
orka fram á tíunda áratuginn, sem
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útf ararþ j ónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarsson
úlfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjðri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
raunveruleg eftirsjá er að, og elli-
hrörnun og sjúkdómar gera svo há-
an aldur oft erfiðan öllum. Því verð-
ur léttirinn oft sorginni
yfirsterkari.
Þannig er þetta ekki nú, þegar
við kveðjum frænku mína, Þuríði
Filippusdóttur, sem lést á heimili
sínu að Lönguhlíð 3, 21. október sl.
Að því er ekki minnsti léttir og við
erum áreiðanlega fjölmörg sem
finnst heimurinn heldur fátæklegri
við fráfall hennar. Það átti sér held-
ur ekki langan aðdraganda og ekk-
ert fararsnið var á henni fyrir
nokkrum vikum þegar við sátum yf-
ir sérstaklega löguðu capucino-
kaffi og ostakexi á fallega heimilinu
hennar. Hún var að vísu búin að fá
greindan sjúkdóm sinn, en hafði
ekki teljandi áhyggjur af honum og
var sáróánægð yfir að vera hálf-
slöpp þennan dag og komast ekki
með gamla fólkinu í skemmtiferð
vestur í Búðardal! Það var þessi
ómótstæðilegi lífskraftur sem gerði
hana ólíka öllum öðrum. Ekki var
hann tilkominn af því að lífið hefði
alltaf leikið við hana. Tvennt held
ég að hafi mótað hana öðru fremur.
Faðir hennar var sósíalisti af hug-
sjón, barðist með Ólafi Friðrikssyni
á sínum tíma og sýndi okkur krökk-
unum stoltur hnúajárnin sem hann
barði íhaldið með. Þó að okkur
fyndist það frábært er ég ekki eins
viss um að börnunum hans hafi
fundist það. Vafalaust er að þau
fengu stundum að gjalda fyrir bar-
áttu föður síns og að heimilið varð
að víkja fyrir hagsmunum flokks-
ins. Hitt var skilnaður hennar og
manns hennar. Þura var eins
manns kona og aldrei er vitað til að
annar maður kæmi inn í líf hennar.
Þetta tvennt gerði hana á einhvern
sérkennilegan hátt ósæranlega, svo
að engir erfiðleikar fengu bugað
hana. Frá þeim kom hún sem sigur-
vegari og lífsfylling hennar var að
sjá dætur sínar og barnabörn ná því
marki sem hún hefði sjálf svo sann-
anlega getað náð við aðrar kring-
umstæður.
Þuru hafði ég auðvitað þekkt frá
barnæsku, þar sem móðir mín og
hún voru bræðradætur. En þá fyrst
kynntumst við þegar hún tók að sér
umsjá heimilis míns og fjögurra
barna minna árið 1973, þegar ég hóf
störf að nýju utan heimilisins. I sjö
ár kom hún hvern morgun og fór
þegar ég kom heim og féll þar
aldrei dagur úr. Væru vinir og ætt-
ingjar tímabundið í vandræðum
með ungabörn, munaði hana ekkert
um að bæta þeim í hópinn. Ég er að
þessu hvort sem er, sagði hún.
Sá kafli í fjölskyldusögu minni
verður aldrei sagður sem vert væri.
En óteljandi minningar okkar
um ógleymanlegar samverustundir
verða okkur endalaust ánægjuefni.
Litlu skálarnar í ísskápnum, sem
við stálumst til að tæma um helgar,
af því að hún kunni ekki að henda
mat. Ahyggjur hennar af afkomu
heimilisins, sem henni fannst í al-
varlegri hættu vegna óhóflegra
matarinnkaupa. Hvernig ætlið þið
að eignast eitthvað? spurði hún.
Það étur hérna allur krakkaskarinn
í hverfinu. Sjálf þekkti hún fátækt
allt of vel, en hún lét aldrei baslið
smækka sig. Og reyndar var hún
ótrúlega séð í peningamálum.
Löngu áður en þjóðin fékk hluta-
bréf á heilann braskaði hún með
slík bréf með aðstoð frænda okkar í
bankakerfinu. Og þess vegna gat
hún brugðið sér vestur um haf til
dætra sinna og dótturbarna, þegar
henni svo sýndist.
Og þau ferðalög fengu oftar en
ekki hjörtu okkar til að slá auka-
slög. Éins og þegar hún skrifaði
okkur um hremmingar sínar á
Kennedy-flugvelli, þegar hún var
um það bil að missa af vélinni til
Los Angeles. Hafði hún þá ekki
verið svo heppin að einhver tötra-
legur svertingi hafði boðist til að
passa töskurnar hennar meðan hún
bókaði sig inn á síðustu stundu. Og
auðvitað beið hann með töskurnar
og ýtti henni upp í flugvélina, nema
hvað? Þau skrifuðust á í mörg ár.
Sumt fólk er þeirrar gerðar að
engum dettur í hug að vinna því
mein. Hún var ein af þeim.
Þess vegna var fordómaleysi
hennar algjört, svo að mörgum
fannst jaðra við einfeldni. Aldrei
heyrði ég hana hallmæla nokkrum
manni og hafi henni mislíkað eitt-
hvað hélt hún því fyrir sig. Hún
gleymdi hins vegar aldrei þeim sem
sýndu henni vinsemd, og hélt ævar-
andi tryggð við ólíklegasta fólk um
lönd og álfur. Dóttir mín sem tók að
sér jólakortaskriftir þegar sjónin
brást henni kom sveitt heim eftir 90
kort og sagðist aðeins hafa komist
yfir póstinn til útlanda! Öllum þess-
um vinum hennar er enginn léttir
að fráfalli hennar. Ekki okkur held-
ur. Við hefðum svo gjarnan viljað
hafa hana hjá okkur lengur, litla og
fallega með lökkuðu neglurnar og
vel lagða hárið yfir ótrúlega sléttu
andlitinu. Við vildum svo gjarnan
fara með hana einu sinni enn í Mun-
aðarnes eða til Þingvalla og horfa á
hana setja á sig ermahlífarnar og
opna nestiskörfuna sem var engri
annarri lík.
En öllum er afmörkuð stund. Við
það verðum við að sætta okkur.
Börnin mín og ég eigum Þuríði
Filippusdóttur skuld að gjalda sem
aldrei verður greidd. Nema með því
að gleðjast yfir velgengni allra
þeirra barna, hennar eigin barna og
annarra, sem hún annaðist af
ómældri ást og alúð. Dætrum henn-
ar og barnabörnum sendum við
samúðarkveðjur. Þau hafa misst
það besta sem þau áttu.
Ástæða er til að þakka starfsfólk-
inu í Lönguhlíð 3 fyrir einstaka
elskusemi þau 20 ár sem Þuríður
átti þar heimili og að þar fékk hún
að kveðja þennan heim. En þannig
var hún. Það var svo auðvelt að
gera henni til hæfis.
Guðrún Helgadóttir.
Elsku Dúa. Mig langaði bara til
að kveðja þig með örfáum orðum.
Einhvern veginn fannst manni að
þú myndir alltaf vera hér hjá okk-
ur, að við myndum alltaf eiga Dúu
frænku. Maður hugsaði aldrei út í
það að þú myndir einhvern tímann
deyja.
En eitt sinn verða allir menn að
deyja.
Alltaf varst þú svo hress, atorku-
söm, glaðlynd og vildir okkur öllum
svo vel. Ekki var það aldurinn sem
háði þér. Alveg fram á síðustu
stundu léstu ekkert aftra þér í að
ferðast um hálfan heiminn, vera sex
mánuði í Ameríku hjá ættingjum og
fleiri þess háttar ferðalög.
Krafturinn í þér var ótrúlegur.
Ég gleymi því aldrei er ég var ungl-
ingur og þú varst hjá okkur eins og
svo oft áður. Þú hafðir lagt þig.
Mamma bað okkur frænkurnar að
fara upp að vekja 'þig. Við lædd-
umst að þér og vöktum þig rólega.
Þú varst ekki fyrr búin að opna
augun er þú stökkst á fætur og
hljópst niður stigana eins og ekkert
væri. Mér fannst þetta alltaf svo
ótrúlegt því þú varst eflaust yfir
áttatíu og fimm ára.
Ég var alltaf svo stolt af þér. Og
þegar þú varst áttatíu ára klippti ég
út myndina af þér í Mogganum og
hengdi hana upp á vegg.
Þegar ég frétti af þessum sjúk-
dómi sem dró þig til dauða hugsaði
ég alltaf já, já, hún hlýtur að sigrast
á þessu. En lífinu eru víst takmörk
sett og þinn tími var bara kominn.
Þú hafðir aldrei setið auðum hönd-
um og áttir viðburðaríka ævi svo að
þú gast farið sátt yfir í annan heim.
Elsku Dúa, þú munt alltaf eiga
stað í hjarta okkar allra og þó svo
að sambandið hafi verið minna síð-
ustu ár þá átt þú stóran þátt í æsku
minni og okkar allra í fjölskyldunni.
Ég vona að allir séu eins heppnir og
við að eiga eina svona Dúu frænku.
Þín frænka,
Edda Jóhannsdóttir.
Hún Dúa okkar er látin. Hún er
lögð af stað í eina ferðalagið sem
hún vildi helst ekki fara í, því það er
óhætt að segja að allt annað í lífinu
fannst henni spennandi. Hver dag-
ur var dýrmæt gjöf sem hún fór vel
með og við höfum ekki kynnst
manneskju með aðra eins gleði í
hjartanu.
Við kynntumst Dúu í Los Angel-
es fyrir sex árum, þar sem hún var í
heimsókn hjá Hafdísi dóttur sinni.
Okkur fannst með eindæmum að
Dúa skyldi hafa lagt í þetta ferða-
lag þvert yfir heiminn ein síns liðs,
þá áttatíu og fimm ára gömul, og
farin að tapa bæði sjón og heyrn.
Við áttum oft eftir að grípa í tómt
þegar við ætluðum að heimsækja
hana á heimili hennar í Lönguhlíð.
Þá var hún stokkin af stað alveg
fyrirvaralaust, ef ekki til útlanda þá
með langferðarbílnum að heim-
sækja vini suður í Grindavík. A
sólskinsdegi í sumar hringdi Dúa
og sagði: „Það er svo gott veður, er-
uð þið ekki til í að koma og gera
eitthvað skemmtilegt?" I haust
þegar hún var orðin veik og þurfti
að liggja fyrir, þá áttum við margar
yndislegar stundir hjá henni ásamt
Láru litlu. Lára hljóp við fót eftir
ganginum og hrópaði hástöfum á
ömmu. Svo klifraði hún upp á rauða
skammelið við rúmið til að geta
heilsað upp á Dúu vinkonu sína og
oft skreið hún alla leið upp í til
hennar til að geta faðmað hana al-
mennilega.
Þær ljómuðu af gleði þegar þær
hittust, því þær áttu lífsgleðina að
sameiginlegu áhugamáli, þótt rúm
níutíu ár skildu þær að.
Það hefur verið okkur fjarska-
lega dýrmætt að kynnast Dúu. Hún
fékk sterka réttlætiskennd í vega-
nesti frá Filippusi föður sínum og
jákvæðni og óbilandi lífskraftur var
henni eins og í blóð borin. Hún hef-
ur sáð fræ í lífi margra og fyrir
þessi stuttu en ríkulegu kynni erum
við innilega þakklát.
Við vottum dætrum Dúu, Hafdísi
og Hebu, sem og ættingjum'hennar
og vinum, okkar dýpstu samúð.
María og Þorsteinn J.
Það var ánægjulegt að fá tæki-
færi til þess að kynnast þér Dúa, en
við kynntumst þegar þú varst að
vinna í efnalauginni Björk og ég bjó
í nágrenninu í Fellsmúla 15.
Við kynntumst þegar ég var lítill
og ég kom í heimsókn til þín í vinn-
una og þú varst alltaf svo góð við
mig. Aður gaf fólk sér tíma til þess
að hittast en nú eru breyttir tímar
og gefur maður sér ekki tíma til
þess að hitta fólk, því vorum við
ekki búin að sjást í töluverðan tíma.
Við gátum talað um hitt og þetta og
það var alltaf jafngott að tala við
þig en þú varst bæði skemmtileg og
frábær leikkona. Það var gaman að
sjáj)ig í Jóni Oddi og Jóni Bjarna.
Eg samhryggist ættingjum Dúu
og guð veri með ykkur í framtíð-
inni.
Stefán Konráðsson sendill.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í
tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/
sendanda fylgi.
Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi.
Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.