Morgunblaðið - 27.10.2000, Síða 56

Morgunblaðið - 27.10.2000, Síða 56
56 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Friðarfyllirí Islend- inga er á enda ÞAÐ fór eins og ég spáði. Stríð, sem get- ur valdið heimskreppu og þróast í heims- styrjöld, er að bijót- ast út í Mið-Austur- löndum. Teningunum var kastað nákvæm- lega á þeim tíma- p,únkti sem ég spáði fyrir um. I fleiri ár hef ég sent áskoranir til ráðamanna hér á landi, og sérstaklega til forseta íslands að embættið taki upp leiðandi hlutverk á al- þjóðavettvangi í frið- armálum. M.a. hef ég boðist til að aðstoða við að koma saman sendinefndum sem færu til Mið-Austurlanda undir merkjum forseta Islands sem óhlutdrægir friðarboðar. Eg hef ítrekað varað við því að Bandaríkjunum muni ekki takast að leiða friðarferlið. Því miður hafa forsetamir, frú Xigdís Finnbogadóttir, og síðan Ólafur Ragnar Grímsson, svo og aðrir íslenskir ráðamenn skellt skollaeyrum við öllum viðvörunum og áskorunum Friðar 2000 og fjölmiðlamir henda fréttatilkynn- ingum okkar í ruslið og þegja þunnu hljóði um þetta stærsta mál framtíðar okkar. I síðasta bréfi mínu til forseta Islands, handhafa forsetavalds þ.ám. forsætisráðherra og utan- ríkisráðherra, þann 5. júní sl. sagði qrðrétt: „Næstkomandi september era boðuð tímamót í friðarferli Mið-Aust- urlanda, en Ijóst er að miðað við núverandi tvískinnung Vestur- landa gagnvart málum ísrael og arabaríkja, era meiri líkur á að þeirra tímamóta verði í framtíðinni minnst sem upphaf nýrra og öflugri átaka. Ef til kjamorkuátaka kem- ur vegna Mið-Austur- landa, er nokkuð ljóst að áhrifa þess mun einnig gæta hér á landi, og er rétt að minnast þess að það tekur ekki nema örfáa sólarhringa fyrir hafstrauma Miðjarðarhafsins að umlykja land okkar og fiskimið. Islendingar ættu að hafa þroska til þess að skilja að friður verður ekki tryggður í Mið-Austurlöndum með öfgakenndu viðskiptabanni eða tvískinnungi sem fótum treður friðarferlið. Siíkar aðgerðir geta aðeins leitt til enn frekari ófriðar og hörmunga fyrir mannkynið.“ Margítrekað hef ég fjallað um það hve viðskiptabannið á írak sé hættulegt heimsfriðnum. í um- ræddri áskoran 5. júní sl. vora lokaorðin þessi: „Þeir sem áfram sitja í embætti, með þær stað- reyndir sem nú er um vitað, án þess að aðhafast neitt gegn þeirri nýju helför sem nú er beitt gegn arabaþjóðinni í Irak, eru að skipa sér á bekk með glæpamönnum og geta að sjálfsögðu átt von á að sæta viðhlítandi refsingu í framtíð- inni fyrir samsekt sína.“ Hinn 28. september var tening- unum kastað og átök bratust út. Irak hefur lýst stuðningi við Pal- estínumenn og fréttir berast af liðsflutningum íraska hersins. Ól- íklegt er að hægt sé að stöðva ógn- aröldina sem við blasir fyrir botni Miðjarðarhafs. Líklegra er að milljónir kúgaðra araba munu rísa upp gegn Vesturlöndum. Veður geta fljótt skipast í lofti, og við gætum t.d. séð vinveittar þjóðir eins og Saudi-Arabíu og Jórdaníu, sem stjórnað er af vestrænum leppum, í uppreisnarástandi á næstu mánuðum eða áram. Við íslendingar höfum verið beinir þátttakendur í því að murka lífið úr 500.000 börnum í Irak með ólöglegu viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna. Þessu ómannúðlega við- skiptabanni hefur verið svo ræki- lega framfylgt hér á landi, að utan- ríkisráðherra lét stöðva flug Friðar 2000 með jólagjafir, lyf, matvæli og fatnað til bágstaddra í Irak. Þessi tuttugu milljóna manna þjóð sem Vesturlönd hafa hjálpað til að halda í gíslingu áram saman gæti nú fengið tækifæri til að sam- einast frændþjóðum sínum og koma fram hefndum. Máttur sameinaðra araba verður mikill því leiðtogarnir munu koma á „heilögu stríði“ með íslömsku trúna reidda sem „sverð réttlætis“ gegn kristnum minnihluta mann- kyns. Siðferðisleg hnignun hins Ástþór Magnússon „Ég var komin með of háan blóðþrýsting upp úr fertugu og þurfti að vera lengi á sjúkrahúsi. Síðastliðin 18 ár hef ég náð mun eðlilegri blóðþrýstingi, þökk sé daglegum skömmtum af blóðþrýstingslækkandi lyfjum. Ef þeirra nyti ekki við gæti ég átt á hættu að fá hjartaáfall, heilablóðfall eða nýrnasjúkdóma. Lyfin gefa mér kost á að lifa eðlilegu og heilbrigðu lífi um ókomna framtíð. Ég ætla svo sannarlega að njóta þess!“ Lyf skipta sköpum! Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910 Fræðsluhópur lyfjafyrirtækja Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Wellcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf • Lyfjaverslun íslands hf. Medico ehf. • NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf. ■ Mið-Austurlönd íslenskir ráðamenn, * segir Astþór Magnús- son, verða að vakna af því rómantíska friðar- fylliríi sem þeir hafa verið á undanfarin ár. Því lengur sem þeir eru í vímunni, því meiri verða timburmennirnir sem við fáum að kenna á í framtíðinni. vestræna samfélags, sem hefur breiðst um jörðina með leiftur- hraða með bandarískri tækni og Hollywood-stjörnum, verður notuð sem lýsandi sönnun þess að við höfum gengið til liðs við hið illa og séum brennimerkt tölunni 666. Þannig verður því haldið fram að við séum eins og krabbamein sem nauðsynlegt sé að uppræta og senda sem allra fyrst hraðbyri nið- ur til föðurhúsanna. Með þeirri skammsýni að fylgja öfgum Bandaríkjanna út í ystu æs- ar, er friðsæla Island að skipa sér á bekk með „óvininum". Þess er ekki langt að bíða að arabaþjóðirn- ar gangi til samstarfs við Rússa, Kínverja, Pakistana og fleiri þjóðir í hernaðarbandalag gegn NATO. Við getum átt von á kjarnorku- styrjöld hvenær sem er á næstu 6 árum með vestrænar borgir auk hernaðarlegra mannvirkja eins og Keflavíkurflugvöll sem skotmark. Flugvélar okkar og skip geta einn- ig orðið skotmark í alþjóðlegri öldu hryðjuverka. Við, þessi vopn- lausa og friðelskandi þjóð, verðum hvergi óhult. Islenskir ráðamenn verða að vakna af því rómantíska friðarfyll- iríi sem þeir hafa verið á undan- farin ár. Því lengur sem þeir eru í vímunni, því meiri verða timbur- mennirnir sem við fáum að kenna á í framtíðinni. Engin framtíð er í þvi að halda áfram stuðningi við öfgastefnu bandaríkjanna í Mið- Austurlöndum, sem hefur byggst á tveimur pólum sem geta aldrei gengið upp. Annar er að viðhalda Irak sem óvinaþjóð, sem gefur Bandaríkjunum ástæðu til hersetu á svæðinu og áhrifavald yfir ol- íuframleiðslunni en hún er undir- Nýju fötin keisarans MARKAÐURINN, frjáls samkeppni, framboð og eftir- spurn. Þetta eru þau hugtök sem glymja í eyram okkar dag og nótt og eru farin að taka á sig mynd trúarbragða. Markað- ur settur ofar guði al- máttugum, frjáls sam- kepni líkist heilögum anda og framboð og eftirspurn eingetið af- kvæmi, eða sonurinn. Það er næstum sama til hvaða stjórn- málaflokks litið er, allir tala þeir um Markaðinn sem einhverja óskil- greinda skepnu sem enginn ræður við, því það verði að vera frjáls samkeppni sem byggist á framboði og eftirspurn. Aha! Framboð og eftirspurn er þá grunnurinn og ræður öllu, eða hvað? En hvernig verður til eftirspurn og hver ræð- ur þá framboðinu? Það eru einmitt sömu aðilarnir sem skapa eftir- spurnina og vöruframboðið. Það er langt síðan að mannkynið uppfyllti þarfir sínar fyrir mat, klæði og húsaskjól, þ.e.a.s. þær frumþarfir sem okkur eru áskap- aðar. Allt annað er umframeyðsla. Ýmislegt sem léttir okkur lífið, gerir lífið skemmtilegra eða er bara hreinn óþarfi og eingöngu til að upphefja sig: „Svona er ég flott, ligga, ligga lá!“ Að halda því fram að „markað- urinn“ heimti hitt eða þetta er hrein skrumskæling á sannleikan- um. Það eru þeir sem framleiða og selja vöruna sem með lævísum auglýsingum og duldum jafnt sem ljósum áróðri koma því inn hjá okkur að þessa vöru verðum við að hafa, hvað sem það kostar. Svo fer allt í gang. Fjármagnseigendurnir bjóðast til að lána okkur fyrir þessum „nauðsynjum“, við þurfum „aðeins“ að greiða dálítið háa vexti, auk verðtryggingarinnar, því auðvitað verða þeir að fá sitt. Allt er þetta tryggt í bak og fyrir og engin hætta á að bankar og lán- astofnanir tapi eyri. Er þetta ekki bara eitthvert aft- urhaldsraus? - Aldeilis ekki. Þessi svokallaða markaðshyggja er nefnilega aftan úr grárri forneskju og gerir ekki ráð fyrir að maður- inn hafi þroskast á síðustu árþús- undum. Sem betur fer „höfum við gengið til góðs...“ Við höfum kom- ið okkur upp samfé- lagi með ákveðnum samskiptareglum og ákveðið að deila erfiði og kostnaði. Við erum með almannatrygg- ingar og okkur þykir sjálfsagt að samfélag- ið, sem er bara við sjálf, sjái um sam- göngur, löggæslu, heilbrigðiskerfi sem dugar og krefjumst besta menntakerfis sem völ er á. A síð- ustu áratugum hefur hugtakið mannréttindi öðlast nýja dýpt og við sjáum að margir þeirra sem þóttu undirmálsmenn fyrri tíða eru nú viðurkenndir sem fullgildir þjóðfélagsþegnar. En einmitt þegar við höldum að við séum búin að ná þroska samá- byrgðar þeysa fram úr myrkviðum skóganna steingervingar aftur- Pólitík Þessi svokallaða mark- aðshyggja, segir Guð- forneskju. haldsins og krefjast að „hver sjái um sig“. Þessir afturhaldsseggir, sem í flestum tilfellum hafa sitt á hreinu og eru, sem betur fer, við góða heilsu að eigin mati. Það er hreint ótrúlegt að vel gefið fólk hafi látið blekkjast af þessum áróðri. Menn bera við: „Já, en sjáðu til dæmis íþróttirnar, er það ekki samkeppni?" og „allir vilja vera betri en aðrir“! Einn hálfsannleikurinn til. Það eru ekki allir í íþróttum og fjölmargir stunda þær sér til heilsubótar en ekki til að klekkja á náunganum. Auk þess sem margur missir fót- anna í lífsins ólgusjó, lendir í slysi eða verður fyrir öðrum skakkaföll- um. Að hlusta síðan á Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra og Össur Skarphéðinsson formann Samfylkingarinnar rífast um hvort eigi að selja ríkisbankana hvorn í sínu lagi eða sameina þá fyrst, verður slíkur skrípaleikur að hálfa væri nóg. Greinilegt er að ríkis- Guðmundur Magnússon mundur Magnússon, er nefnilega aftan úr grárri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.