Morgunblaðið - 27.10.2000, Side 66
>6 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tré ársins 2000
stendur í Bfldudal
SKÓGRÆKTARFÉLAG fslands
hefur valið „Tré ársins árið 2000“
en það er voldugur hlynur við
húsið Sólheima á Bíldudal í Arnar-
firðL
Af þessu tilefni er boðað til sér-
stakrar athafnar við Sólheima á
Bfldudal undir limum hlynsins
laug-ardaginn 28. október kl. 16.
Þar mun m.a. formaður Skógrækt-
arfélags íslands, Magnús Jóhann-
esson, afhenda viðurkenningar er
tengjast hinum giæsilega hlyn.
Utnefningunni er ætlað að beina
sjónum almennings að því grósku-
mikla starfi scm unnið er um land
allt í trjá- og skógrækt, segir í
fréttatilkynningu.
Skatt-
frjálsir
dagar á
Akranesi
VERSLUNAR- og þjónustuaðilar á
Akranesi standa nú fyrir svokölluð-
um skattfrjálsum dögum. A skatt-
frjálsum dögum sem hófust í gær og
lýkur á morgun, iaugardag, veita
verslunar- og þjónustuaðilar afslátt
af vöruverði með sama hætti og um
skattfrjálsa verslun væri að ræða.
Ólíkt því sem gerist erlendis þegar
um skattfrjálsa verslun er að ræða
þurfa viðskiptavinir ekki að fylla út
eyðublöð eða önnur gögn heldur fá
beinan 15% afslátt af vörum við
kassa, segir í fréttatilkynningu.
Rúmiega 40 aðilar í verslun og
þjónustu á Akranesi standa að þess-
um dögum. Markmiðið með þeim er
fyrst og fremst að vekja athygli á
þeirri íjölbrejltu verslun og þjón-
ustu sem er að finna á Akranesi.
Samhliða vaxandi íjölda íbúa, sem nú
um stundir er í sögulegu hámarki,
hefur úrval þjónustufyrirtækja á
Akranesi farið vaxandi.
Dögunum lýkur á morgun, laugar-
dag, og þá verða allir aðilar sem
standa að þessum dögum með fyrir-
'' tæki sín opin til kl. 17.
Norræn
ráðstefna
í Bláa lóninu
RÁÐSTEFNA á vegum fræðsluráðs
norrænna kirkna stendur yfir dag-
ana 25.-29. október. A ráðstefnunni
er starfsfólk kirknanna á Norður-
löndum sem er í ábyrgð fyrir
^ fræðslumálum og skipulagi þeirra.
Að þessu sinni er yfírskrift ráðstefn-
unnar Frásagan í 2000 ár.
Ymsir fyrirlesarar koma að ráð-
stefmmni, má þar nefna Heimir
Pálsson er íjaliar um leyndardóm
frásagnarinnar, Guðmundur Krist-
mundsson og Björg Eiríksdóttir
fjalla um söguaðferðina, Kirsten
Grönlien-Zetterqvist Qallar um tákn
frásögunnar, dr. Sigurður Ámi
Þórðarson fjallar um Guð í náttúr-
unni og Kirsten Thonsgaard íjailar
um frásöguna og drama. Biskup Is-
lands, Karl Sigurbjömsson, verður
með helgLstund í Hvalsneskirkju.
í tengslum við ráðstefnuna verður
Heimur Guðríðar sýndur í Skálholts-
kirkjú laugardaginn 28. október kl.
+ 20.30. Sú sýning er opin öllum og að-
gangur er ókeypis, segii- í fréttatíl-
kynningu.
Túnfískdagar
á Tveimur
fískum
í TILEFNI túnfiskvertíðar á ís~
landsmiðum hefur sjávarréttaveit-
ingastaðurinn Tveir fiskar ákveðið
að efna til túnfiskdaga frá og með 27.
október.
Túnfiskinn sækja matreiðslumenn
Tveggja fiska beint í fiskiskip ís-
lensku sjómannanna sem em að
túnfískveiðum hér við land ásamt
Japönum um þessar mundir, eins og
ávallt á þessum árstíma.
Túnfisk má matreiða á marga
vegu og hafa Tveir fiskar því ákveðið
i tilefni þessa túnfiskveiðitimabils að
bjóða upp á sérréttamatseðil með tíu
ólíkum túnfiskréttum. Þar verður að
finna fimm forrétti og fimm aðal-
rétti.
Bláfjöll
ekki notuð
undir her-
æfíngar
Á FUNDI bæjarstjómar Seltjarn-
arness, sem haldinn var 25. októ-
ber sl., var meðfylgjandi tillaga
Neslistans samþykkt:
„Bæjarstjórn Seltjamarness vís-
ar til 14. liðar 205. fundar Bláfjalla-
nefndar sem haldinn var 5. okt. sl.
Bæjarstjórn álítur að það sam-
ræmist ekki grundvallarhugmynd-
um um notkun Bláfjalla sem úti-
vistarsvæðis fyrir almenning að
leyfð séu afnot svæðisins undir
heræfingar.
Ástæða þess að tiilagan var bor-
in fram, var að á áðumefndum
fiindi Bláfjallanefndar var fjallað
um bréf utanríkisráðuneytisins
vegna hernaðaræfmgarinnar Norð-
urvíkings sem fram fer hér á landi
næsta sumar. í bréfinu er þess far-
ið á leit við Bláfjallanefnd að
nefndin veiti heimild sína til þess
að svæðið verði tekið til afnota
meðan á æfingunni stendur."
Mósaík-
dagar í Flísa-
búðinni
MÓSAÍKDAGAR verða í Flísabúð-
inni Stórhöfða 21, dagana 27.-29.
október.
Þar mun speglalistakonan Rósa
Matthíasdóttir frá Akureyri taka á
móti viðskiptavinum Flísabúðar-
innar sem hafa hug á að eignast
mísaíkspegla inn á heimili og eða
fyrirtæki og taka niður sérpantanir
á speglum og gefa góð ráð varðandi
litasamsetningar. Að auki býður
hún viðskiptavinum verslunarinnar
upp á að koma með myndir af þeim
stöðum þar sem þeir hyggjast setja
upp spegla og/eða senda myndir og
óskir inn á heimasíðuna rosamatt.-
com
Listakonan notast eingöngu við
flísar frá Flísabúðinni sem fluttar
eru inn frá fyrirtækinu Bisazza á
Ítalíu og mun hún taka á móti fólki
föstudaginn 27. milli kl 14 og 18,
laugardaginn 28. milli kl 10 og 14
og sunnudaginn 29. milli kl 11 og
14.
■ SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um
náttúruvernd efiia tíl léttrar göngu
laugardaginn 28. október. Lagt verð-
ur af stað kl. 11 frá strætisvagna-
skýlinu í Mjódd.
Samtökin minna á aðalfund sinn 2.
nóvember kl. 20.00 í Skaftfellinga-
búð, Laugavegi 178.
Kvennadeild
ReykjavíkurdeLldar
Rauða kross Isiands
Vetrar-
starfíð
hafíð
FÉLAGSSTARF Kvenna-
deildar Reykjavíkurdeildar
Rauða kross Islands hófst
með haustfundi 12. október sl.
Ymislegt er framundan í
starfi vetrarins, t.d. basar
með föndurvörum og heima-
bökuðum kökum verður hald-
ið sunnudaginn 5. nóvember í
húsi Rauða kross Islands,
Efstaleiti 9 og jólafundur 7.
desember í Sunnusal Hótel
Sögu.
Fleiri fundir verða haldnir í
vetur, t.d. íræðslu og kynn-
ingarfundur um sjúkravina-
störf Kvennadeildarinnar og
einnig er gert ráð fyrir að
halda skyndihjálpamámskeið
fyrir starfandi sjúkravini en
þeir eru um 256 talsins. Fönd-
urvinna er á hverjum mið-
vikudegi í Fákafeni 11 kL 13
og eru allir velkomnir sem
vilja taka þátt í henni. Sumar-
ferð verður svo farin að vanda
í lok júm' á næsta ári.
LEIÐRÉTT
Ljósmynd/Bragi Ásgeírsson
Jörðin var þá auð og tóm, og
myrkur grúfði yfir djúpinu, og
andi guðs sveif yfir vötnunum.
Blönduð tækni á pappír, akrýl
olíukrít.
Rangur myndatexti
Rangur myndatexti birtíst við
mynd Jennýjar Guðmundsdóttur á
listasíðum blaðsins í gær. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
f
mbl.is
í Moggabúðinni eru margar skemmtilegar vörur. Þú getur m.a.
keypt derhufur, töskur, klukkur o.fl. beint af Netinu með öruggum
hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og færð þær sendar
heim til þín eða á vinnustað.
EINFALT OG ÞÆGILEGT!
Þú getur líka komið við hjá okkur f Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1, skoðað
vörurnar í sýningargiugganum og verstað.
Nýjar vörur í
MOGGABÚÐINNI