Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 71

Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Afmælis- hátíð í Hall- grímskirkju 60 ÁR eru nú liðin frá stofnun Hall- grímssafnaðar í Reykjavík. í tilefni þess verður efnt til hátíðar í Hall- grímskirkju alla helgina. I kvöld 27. október kl. 20:00 verður Hallgríms- messa á dánardegi sr. Hallgríms Péturssonar. Messan er flutt með tilliti til þeirrar messu sem sr. Hall- grímur sjálfur söng á sínum tíma. Þessi Hallgrímsmessa hefur nú ver- ið flutt í 60 ár óslitið. í kvöld prédik- ar biskup íslands Karl Sigurbjörns- son en með honum þjóna sr. Ragnar Fjalar Lárusson, sr. Sigurður Páls- son og sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors. Laugardaginn 28. október verður „opin söngæfing" í kirkjunni fyrir alla þá sem sungið hafa í Mótettu- kórnum á undanförnum árum og aðra þá sem vildu gjarnan syngja í kór og njóta samfélagsins í kirkjunni þessa helgi. Kórinn sem æfir á laug- ardeginum mun síðan syngja í messu á sunnudeginum. Hörður Áskelsson, kantor, mun stjórna kórnum. Sunnudaginn 29. október verður fræðslumorgunn kl. 10:00 árdegis, en þar mun dr. Sigurbjöm Einars- son, biskup, flytja erindi um efnið: Hallgrímssöfnuður 60 ára. Minning- arbrot frá upphafi starfs. Þá verður messa og barnastarf kl. 11:00 þar sem sr. Sigurður Pálsson prédikar og þjónar ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. „Afmæliskór" helg- arinnar syngur í messunni. „Kaleikar og kross- ar“ - Listsýningar í Langholtskirkju LAUGARDAGINN 28. október nk. verða opnaðar tvær listsýningar í Langholtskirkju. Opnunin er í Hallgrímskirkja tengslum við tvenna tónleika með verkum eftir kanadíska tónskáldið Ruth Watson Henderson, en fjórir kórar Langholtskirkju halda tón- leika laugardag 28. okt. og sunnudag 29. okt. kl. 16 báða dagana. Miðaverð á tónleikana er kr. 1500. Listsýning- arnai' sem opnaðar verða bera yfir- skriftina „Kaleikar og krossar" Annars vegar er sýning á kaleik- um og patínum sem unnin voru fyrir Kristnihátíð á Þingvöllum sl. sumar og aðrir kirkjugripir unnir úr leir. Sjö listakonur sýna þar gripi og þær eru: Ólöf Erla Bjarnadóttir, Kópavogi, sem haft hefur veg og vanda af uppsetningu sýningarinn- ar, Elísabet Haraldsdóttir, Hvann- eyri, Borgarfirði, Helga Kristín Unnarsdóttir, Eskifirði, Sigríður Helga Olgeirsdóttir, Hruna, Guðrún Indriðadóttir, Reykjavík, Bjarnheið- ur Jóhannsdóttir, Blönduósi, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir úr Skaga- firði og Margrét Jónsdóttir, Akur- eyri. Hin sýningin er myndir Þorgerðar Sigurðardóttur sem eru einþrykk af tréplötum og allar unnar á þessu ári af tilefni 2000 ára kristni í heiminum. Myndirnar eru leikur með form og liti en byggðar með krossformið að grunnhugmynd. Sýningarnar standa til 19. nóvem- ber. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-7.05. Mömmumorgunn kl. 10- 12 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif- un fyrir börn. Unglingakvöld Laug- arneskirkju og Þróttheima kl. 20 (9. og 10. bekkur). Grafarvogskirkja. Al-Anon fundur kl. 20. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Strandbergi laugardagsmorgna. Trú og mannlíf, biblíulestur og kyrrðarstund. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11. Á morgun verðm- samkoman í umsjá unglingadeildar kirkjunnar. Ný lof- gjörðarsveit. Barna- og unglinga- deildir á laugardögum. Súpa og brauð eftir samkomuna. Allir vel- komnir. Keflavíkurkirkja. Lofgjörðar- og fyrirbænastundir að þessu sinni í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 20-21. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 æskulýðsfélagar Landakirkju safnast saman í afgreiðslu Herjólfs til brottfarar á æskulýðsmót í Hlíð- ardalsskóla. Víkurprestakall í Mýrdal. Kirkju- skólinn í Mýrdal er með samverur á laugardagsmorgnum kl. 11.15 í Vík- urskóla. Frelsið, kristileg miðstöð. Bæna- stund kl. 20 og Gen X, frábær kvöld fyrir unga fólkið kl. 21. Sjöundadags aðventistar á Islandi: Aðventkirlqan, Ingólfsstræti: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón- usta kl. 11.15. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.15. Ræðu- maður Sigríður Kristjánsdóttir. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Einar V. Arason. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Erie Guðmundsson. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar- firði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíuf- ræðsla að guðsþjónustu lokinni. Ræðumaður Olafur Kristinsson. Föstudagskvöld að hætti Hlíðar- dalsskóla verður í Aðventkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 20. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 Hannyrðabúðin við klukkuturninn í Garðabæ Sími 555 1314 alvara.is/jens 71 =ÍK Rýmum fyrir nýjum vörum Ekta síðir pelsar aðeins 99 þús. Handunnin húsgögn 20% afsl. Sigurstjama Opið virka daga kl. 11—18oglau. kl. 11—15 Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545 | r- 10-40% dagar Afsláttur af Jotun innimálningu HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is (f ■ r - Just For Men hárlitunarsjampó fyrir karlmenn, sem litar gráu hárin og gefur eðlilegan lit á aðeins 5 mínútum og hver litun endist í allt að 6 vikur. # Þú gerir það sjálfur # Sáraeinfalt # Leiðbeiningar á islensku fylgja hverjum pakka Einnig skegglitunargel sem þú burstar i skeggið og gráu hárin fá eðlilegan lit á aðeins 5 mínútum. Otsölustaðir: Hagkaup, Nýkaup, apótek og hársnyrtistofur RERTTI PALMROTH I Tfnið í stýjvéíunum er vatnsfráfnndandi ofl þoíir regn, snjó, saít og tqiCda. ‘PcegiCeyt að prífa, ein strofa með röíqm Cfút ojj stýjvéCin verða jjCjáandi faCCejj. Teg. 10756 Kr. 14.990 Teg. 30670 Kr. 12.990 DOMUS MEDICA við Snorrabraut - Rvík Sími 551 8519 STEiNAR WAAGE SKÓVERSLUN ir*- KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Rvík Sími 568 9212 Fasteignir á Netinu PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.