Morgunblaðið - 27.10.2000, Qupperneq 72
72 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ
í dag er fóstudagur 27. október,
301. dagur ársins 2000. Orð dagsins:
En gætið þess, að þetta frelsi yðar
verði ekki hinum óstyrku að falli.
(Kor.8,9.)
Skipin
Reykjavikurhöfn:
Kenkyu Maru no. 18,
Yasu Maru no. 28 og
Ryoei Maru no. 78
koma í dag. Þerney
RE-101 fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Kenkyu Maru no. 18,
Yasu Maru no. 28 og
Hoken Maru no. 8
y koma í dag.
Fréttir
Áheit. Kaldrana-
neskirkja á Ströndum á
150 ára afmæli á næsta
ári og þarfnast kirkjan
mikilla endurbóta. Þeir
sem vildu styrkja þetta
málefni geta lagt inn á
reikn. 1105-05-400744.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 8.45
ieikfimi, kl. 9 vinnu-
stofa kl. 13 bókband,
kl. 14 bingó. Málverka-
sýning Eiríks Árna
Sigtryggssonar og Júl-
\ íusar Samúelssonar op-
in alia daga og einnig
laugardaga kl. 14-16.
Árskógar 4. Kl. 9
perlu- og kortasaumur,
kl. 11.15 tai-chi leik-
fimi, kl. 13 opin smíða-
stofan, kl. kl. 13.30
bingó, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30-
12.30 böðun, kl. 9-12
bókband, kl. 9-16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 13 vefnaður og
spilað í sal.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. kl. 9
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9.45 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10.30 guðþjónusta
* t sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir, kl. 13 „opið
hús“, spilað á spil.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 rammavefnað-
ur. Kl. 9.30 málm- og
silfursmíði. Kl. 13 gler-
og postulínsmálun, kl.
17 slökun, þátttakendur
hafí með sér kodda og
teppi. Hinn árlegi fjöl-
skyldudagur Gjábakka
verður á morgun og
hefst með dagskrá kl.
14. Meðal efnis á dag-
skrá eru förðun, spá-
kona, Skagflrska
söngsveitin undir lög
- undir stjórn Snæbjarg-
ar Snæbjarnardóttur,
gamanmál, keðju og
hringleikir og óvænt
uppákoma. Vöffluhlað-
borð.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið kl. 9-17. Mat-
arþjónusta er á þriðju-
og fóstudögum. Panta
þarf fyrir kl. 10 sömu
daga. Fótaaðgerðastof-
an er opin frá kl. 10.
Boccia kl. 10. Gleðigjaf-
-v arnir syngja i dag kl.
V 14.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Myndmennt kl. 13.
Bridge kl. 13:30. Tréút-
skurður í Flensborg kl.
13:30. Dansleikur í
kvöld kl. 20:30. Caprí
tríó leikur fyrir dansi.
Á morgun verður
ganga, rúta frá Miðbæ
kl. 9:50 og Hraunseli
kl. 10.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10-13. Matur í há-
deginu. Næsti fræðslu-
fundur undir yfir-
skriftinni „Heilsa og
hamingja á efri árum“
verður haldinn sunnu-
daginn 29. október kl.
13.30 þá fjallar Uggi
Agnarsson um nýja
rannsókn á vegum
Hjartaverndar.
Fræðsla og kynning frá
heilsuræktinni World
Class, Jón Arnar
Magnússon íþrótta-
kennari og Fríða Rún
Þórðardóttir næringar-
fræðingur koma.
Fræðslufundimir verða
haldnir í Ásgarði
Glæsibæ, félagsheimili
Félags eldri borgara.
Allir eru velkomnir.
Okkar vinsæla árshátíð
FEB verður haldin 10.
nóvember. Matur, fjöl-
breytt skemmtiatriði
og dansleikur á eftir,
miðar seldir á skrif-
stofu FEB. Nánar
auglýst síðar. Silfurlín-
an opin á mánudögum
og miðvikudögum frá
kl. 10 til 12 í síma 588-
2111 Upplýsingar á
skrifstofu FEB í síma
588-2111 frá kl. 9 til 17.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ, Gönguhópur
og áttavitanámskeið kl.
10.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavfk. Spilum fé-
lagsvist á morgun,
laugardag, kl. 14 á
Hallveigarstöðum. Allir
velkomnir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, m.a. postulíns-
málpn umsjón Sólveig
G. Ólafsdóttir, föndur
og bútasaumur umsjón
Jóna Guðjónsdóttir, kl.
10 börn úr Öldusel-
skóla í heimsókn. Frá
hádegi spilasalur opinn,
kl. 13. bókband. Veit-
ingar í kaffihúsi Gerðu-
bergs. Allar upp-
lýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gott fólk gott rölt,
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10.30 á laugar-
dögum.
Hraunbær 105. kl. 9-12
baðþjónusta, 9-12 út-
skurður, 9-12.30 búta-
saumur, 9-17 hár-
greiðsla, 11-12 leikfimi,
11- 12 spurt og spjallað,
12- 13 hádegismatur.
Hvassaleiti 56-58. Kl.
9 baðþjónusta, kl. 9-
12.30 bútasaumur, kl. 9
hárgreiðsla, kl. 11 leik-
fimi.
Hæðargarður 31. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Norðurbrún 1. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9-12.30
útskurður, kl. 10
boccia,
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13 sungið við
fiygilinn, kl. 14.30
dansað í kaffitímanum
til kl. 16.
Vitatorg. Kl. 9 smiðj-
an, kl. 9.30 bókband og
morgunstund, kl. 10
leikfimi, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10. kl.
9.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugardög-
um.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra leik-
fimi í Bláa salnum í
Laugardalshöll kl. 10.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félagsheimil-
inu Leirvogstungu.
Kaffi og meðlæti.
Átthagafélag Stranda-
manna heldur haust-
fagnað á morgun, laug-
ad. frá kl. 22-3 í
Breiðfirðingabúð við
Faxafen. Hljómsveitin
Upplyfting sér um fjör-
ið.
Úrvalsfólk. Haustfagn-
aður verður haldinn á
Hótel Sögu, Súlnasal
föstud. 10. nóv. Borða-
og miðapantanir hjá
Rebekku og Valdísi í
síma 585-4000, Lág-
múla 4.
Þjónustuíbúðir aldr-
aðra Dalbraut 27. í
dag kl. 9-16 almenn
handavinna, kl. 10
sögulestur, kl. 12 há-
degisverður, smíðastofa
opin, fótsnyrting og
hárgreiðsla.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigtar-
hópar, jóga, vatnsþjálf-
un. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Nánari uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530
3600.
IVIinningarkort
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Parkin-
sonsamtakanna á Is-
landi eru afgreidd í
síma 552-4440 og hjá
Áslaugu í síma 552-
7417 og hjá Nínu í síma
564-5304.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna,
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9-13, s.
562-5605, bréfsími 562-
5715.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1166,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið.
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Um misrétti á
íslandi í dag
FRJÁLSHYGGJAN hefur
alið af sér fátækt á Islandi
og alls konar misrétti í
þjóðfélaginu en það er það
versta að ráðamenn þessar-
ar þjóðar sjá þetta en vilja
ekki sjá það og telja allt í
himnalagi. Svo langt er
gengið að sjálfur forsætis-
ráðherra, hefur skammað
biskupinn yfir Islandi fyrir
að dirfast að segja frá því,
að það sé fátækt á Islandi.
Hvað margir alþingismenn
taka undir með prestinum í
Neskirkju? Hvað skyldu
margir, sem hafa undir
90.000 króna lágmarks-
launum, verða að leigja úti
á hinum almenna leigu-
markaði íyrir 60.000-
100.000 krónur á mánuði?
Maður hefur verið að lesa í
Velvakanda greinar frá
fólki sem kvíðir jólunum
sem er einn mesti útgjalda-
mánuðurinn. Þetta fólk
getur um að það rétt tóri
frá degi til dags. Er þetta
ekki ömurlegur vitnisburð-
ur um þá ríkisstjóm sem
alltaf er að guma af góðær-
inu á Islandi? Aldraðir og
öryrkjar hafa mótmælt
ástandinu og krafist leið-
réttingar á sínum kjörum.
Hvað með einstæðar mæð-
ur og aðra sem lifa undir
hungurmörkum á Islandi í
dag í öllu góðærinu? Er
ekki kominn tími til að
ráðamenn þessa lands fari
að opna augun fyrir
ástandinu í þjóðfélaginu?
Gunnar G.
Bjartmarsson.
Þakkir fyrir grein
OLGA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
koma á framfæri þakklæti
fyrir frábæra grein sem
birtist í Morgunblaðinu 24.
október sl. Greinin nefnist
„Heimsókn þingforseta til
Kína“ og er eftir Hilmar
Sigurðsson. Þetta er alveg
frábær grein. Einnig vildi
hún koma á framfæri að
kalda stríðinu er alls staðar
lokið nema á Islandi.
Gróðurskálinn
Hveragerði
VIÐ hjónin fórum haust-
litaferð á Þingvöll þann 7.
október sL og enduðum í
Hveragerði. Duttum inn á
alveg dýrðlegan stað sem
heitir Gróðurskálinn, Þela-
mörk 29. Við keyptum
þama blómvönd sem stend-
ur enn. Þarna er mjög hlý-
legt andrúmsloft og eig-
andinn alveg einstakur.
Þarna er fullt af skreyting-
um og fallegum munum
sem eigandinn hefur út-
búið. Mig langar að þakka
fyrir okkur og benda fólki á
þennan yndislega stað.
Kristrún.
Stutt og Iaggott!
í UPPHAFI er maðurinn
fullkominn, síðan kemur
skrattinn og laumar í hann
gölluðum genum, þá kemur
Kári Stefánsson og gerir
þau fullkomin að nýju. Er
farið að glitta í sæluríkið?
Vigfús Bjömsson,
Snægili 10, Akureyri.
Tapad/fundið
Cannon-myndavél
í óskilum
CANNON-myndavél
fannst á leikvelli vi_ð Lang-
holtsskóla í júlí sl. I vélinni
er filma. Upplýsingar í
síma 564-4883.
Nokia 6110 tapaðist
FJÓLUBLÁR Nokia 6110
tapaðist í miðbæ Reykja-
víkur líklega nálægt Wund-
erbar 14. október sl. Skilvís
finnandi hafi samband við
Elsu í síma 567-5989 eða
587-7244.
Mjallhvít er týnd
HÚN Mjallhvít okkar er
týnd og hennar er sárt
saknað. Hún hvarf frá
Holtinu í Hafnarfirði um
mánaðamótin sept./okt. sl.
Hún var með rauðköflótta
ól og rautt merki. Þeir sem
vita um ferðir hennar, era
vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 565-5805 eða
899-8761.
Læða í óskilum
SVÖRT læða, gæf og góð,
fannst í sumarbústaða-
hverfi á Laugarvatni fyrir
stuttu.
Hún er svört með smá
hvítt á hálsi og maga. Hún
er ómerkt.
Þeir sem kannast við
hana hafi samband við
Kattholt hið fyrsta.
Krossgáta
LÁRÉTT:
1 hroki, 8 falleg, 9 lítur
eftir, 10 námsgrein, 11
tónstigi, 13 dskertur, 15
ausa,
18 mannvera, 21 sefa, 22
launum, 23 byr, 24 auð-
menn.
LÓÐRÉTT:
2 hvarfia, 3 súti, 4 núa, 5
orðrómur, 6 eldstæðis, 7
þrjóskur, 12 þreyta, 14
meis, 15 poka, 16 voru í
vafa, 17 ásynja, 18
brekka, 19 pípuna, 20
lengdareining.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 sápan, 4 holds, 7 lítil, 8 feitt, 9 lýs, 11 nánd, 13
kann, 14 eljan, 15 kjör, 17 álit, 20 hró, 22 padda, 23 súp-
an, 24 náðin, 25 renna.
Lóðrétt: 1 sólin, 2 pútan, 3 núll, 4 hofs, 5 leita, 6 sátan, 10
ýkjur, 12 der, 13 kná, 15 kápan, 16 önduð, 18 læpan, 19
tunna, 20 hann, 21 ósar.
Víkverji skrifar...
NÚ safna framhaldsskólanemar
liði til að styðja kröfur kennara
sinna í samningaviðræðum við ríkið.
Víkveiji sá að nemendumir rök-
studdu framtakið með því að hags-
munir þeirra sjálfra væru í húfi. Eðli-
legt er að nemendur vilji afstýra
verkfalli. Það gæti þýtt að þeir tefð-
ust í námi, sumir flosna líka upp úr
námi ef mikið er um truflanir á fram-
vindunni.
En Víkverja fannst önnur röksemd
einnig athyglisverð. Talsmaður nem-
enda sagði það vera þeim til hagsbóta
að kennarar væm vel launaðir vegna
þess að þá fengist hæfara lið í
kennslu. Nemendur fengju með öðr-
um orðum betri þjónustu.
Víkveiji dagsins skilur sjónarmið
nemendanna en veltir því nú fyrir sér
hvort nýir tímar séu að renna upp í
kjarabaráttu opinberra starfsmanna.
Ef notendur/neytendur þjónustunn-
ar sem í húfi er verða virkir aðilar í
slagnum við þá sem halda um pyngju
skattborgaranna og þybbast við er
vígstaðan breytt. Þegar kennarar,
læknar, hjúkmnarfólk, ræstitæknar,
bílstjórar og yfirleitt allar stéttir,
sem starfa hjá opinberum aðilum,
vilja fá betri kjör mun spretta upp
herskari aðstoðarmanna t£l að safna í
verkfallsjóðinn, dreifa áróðri, taka
þátt í útifundum, flytja eldheitar ræð-
ur. Að ekki sé gleymt nútímalegri að-
ferðum eins og þeim að senda tölvu-
póst og koma SMS-skilaboðum á
framfæri um gemsana. Vonandi
kunna menn sér samt hóf. Sjúklingar
á spítölum eiga mikilla hagsmuna að
gæta þegar kjör hjúkmnarfræðinga,
sjúkraliða og lækna em annars veg-
ar. En ef reynt verður að fá þá til að
skrifa undir stuðningsyfirlýsingar við
kaupkröfur heilbrigðisstéttanna
þætti Víkveija og öðmm skörin vera
farin að færast upp í bekkinn. Og Vík-
verji getur ekki stillt sig um að velta
því fyrir sér hvemig það sé að vera
nemandi í menntaskóla og fá í hend-
urnar skjal þar sem lýst er stuðningi
við kaupkröfur kennaranna. Getur
maður leyft sér að segja nei, halda því
fram til dæmis að 40% kauphækkun í
einu lagi sé of mikið, geti orðið hættu-
legt fordæmi og komið af stað verð-
bólguskriðu?
Vaflaust er brýnt að íslendingar
velti því fyrir sér hvemig best sé að fá
hæft fólk til að sinna kennslu og
margt bendir til að kaupið sé of lágt.
En er ekki þama verið að beita vara-
sömum hópþrýstingi? Víkveija finnst
að samband kennara og nemenda sé
með þeim hætti að aldrei eigi að
draga nemendur beint inn í kjarabar-
áttu hinna fyrmefndu, krefjast þess
að þeir taki afstöðu. Og þá skiptir
engu hvort kröfurnar em sanngjam-
ar og eðlilegar eða hóflausar. Þá er
verið að virkja nemendur til að gæta
hagsmuna kennaranna en markmið
skólanna er að mennta nemendur,
ekki að kenna þeim að setja fram
kaupkröfur. Við lærum þannig hluti
hjálparlaust í lífinu.
Með þessu er ekki verið að fullyrða
að kennarar hafi sjálfir ýtt undir und-
irskriftasöfnunina en þeir hefðu að
mati Víkverja átt að afþakka aðstoð-
ina á kurteislegan hátt.
/
XXX
BÚIÐ er að setja upp nýja og full-
komna kaffivél á vinnustað sem
Víkveiji þekkir til á. Vélin gefur auk
þess möguleika á margvíslegum teg-
undum, cappucino, súkkulaðikaffi,
kakói og fleiri hressingarmeðulum.
Ös er oft við vélina og smástund tek-
ur að velja og fárast svolítið yfir þess-
um þrem sekúndum sem það tekur
hana að laga mjöðinn.
„Þetta er ágætt, ég er búin að
kynnast mörgum nýjum vinnufélög-
um síðustu dagana,“ sagði kona í
„biðröðinni". Hún fullyrti að hönnuð-
ur vélarinnar hefði af ásettu ráði
komið íyrir smávegis töf í forritinu
(er ekki allt forritað núna?) til að auka
mannleg samskipti á vinnustaðnum.
Allt væri orðið svo hagkvæmt og
hraðvirkt að dálítil bið eftir kaffinu
væri vel þegin tilbreyting. Enginn
vildi lengur eyða tíma í að spjalla
augliti til auglitis. Það gerðu helst
reykingamenn sem fyndu til sam-
kenndar þeirra sem eru útskúfaðir.