Morgunblaðið - 09.11.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000 39
UMRÆÐAN
Afkomutryg'g'ing*
aldraðra og öryrkja
ÞINGMENN Samfylkingarinnar
hafa á Alþingi flutt tillögu um að
komið verði á nýjum samningi um
afkomutryggingu fyrir
aldraða og öryrkja
sem komi til fram-
kvæmda um næstu
áramót. Markmiðið
með afkomutryggingu
er að enginn þurfi að
una fátækt eða óvissu
um kjör sín. Samning-
urinn verði síðan und-
irstaða nýrra laga um
lífeyristryggingar al-
mannatryggingar.
Jafnframt er gert ráð
fyrir að kjör ungra ör-
yrkja verði sérstaklega
bætt, en framfærslu-
byrði ungra öryrkja er
oft mjög mikil, ekki
síst ef þeir hafa fyrir
fjölskyldu að sjá. Til þess verkefnis
verði varið 3-6 milljörðum króna.
Lífeyrisþegar
hlunnfarnir í góðærinu
AJIt of stór hópur aldraðra og ör-
yrkja býr við bágborið ástand og í
heild hefur þessi hópur ekki fengið
sanngjarnan eða eðlilegan hlut í
góðæri liðinna ára. Verulega hefur
því dregið í sundur með lífeyrisþeg-
um og kjörum annarra láglauna-
hópa, enda hefur grunnlífeyrir og
tekjutrygging einungis hækkað um
25% frá 1995 meðan launavísitalan
hefur hækkað um 41,5%. Því til við-
bótar hefur gífurleg hækkun á lyfja-
og húsnæðiskostnaði og skerðing á
skattleysismörkum dregið verulega
niður lífskjör aldraðra og öryrkja á
undanförnum árum. 43% öryrkja
hafa engar greiðslur úr lífeyrissjóði
og 22% aldraðra voru með tekjur
undir 70 þúsund krón-
um á mánuði á sl. ári.
Ríkisstjómin miðar
við það sem lægst gef-
ur öldruðum og öryrkj-
um Astæða þess hve
lífeyrisgreiðslurnar
hafa dregist aftur úr
öðrum kjörum í þjóðfé-
laginu er ekki síst að
fyrir 5 áram ákvað rík-
isstjómin að slíta
tengsl launa pg lífeyr-
isgreiðslna. I staðinn
var ákveðið með lögum
sem tóku gildi í byrjun
árs 1998 að bætur al-
mannatrygginga ættu
að breytast í samræmi
við þróun launa en
hækka þó aldrei minna en verðlag
samkvæmt vísitölu neysluverðs. A
þessu tímabili hafa líf-
eyrisgreiðslurnar nær undantekn-
ingarlaust verið miðaðar við það
sem lægst hefur gefið lífeyrisþeg-
um, þ.e. vísitölu neysluverðs í stað
launavísitölu. Þannig hafa lífeyris-
greiðslurnar einungis hækkað um
11% á þessu tímabili en launavísitala
hefur hækkað mun meira eða um
17%.
3-5 milljarða aukning
á lífeyrisgreiðslum
Ljóst er að tillaga þingmanna
Samfylkingarinnar mun marka
tímamót í kjöram aldraðra og ör-
yrkja nái hún fram að ganga. Samn-
ingur um afkomutryggingu með
Tryggingar
Tillagan felur í sér að
hægt er að hækka
gmnnlífeyri og tekju-
tryggingu strax um
18%, segir Jóhanna
Sigurðardóttir, og gera
sérstakt átak í málefn-
um ungra öryrkja.
a.m.k. 3-5 milljarða króna framlagi
væri stærsta einstaka skrefið sem
stigið hefur verið frá upphafi al-
mannatrygginga til að bæta kjör líf-
eyrisþega. Með tillögunni hefur
Samfylkingin ákveðið að málefni líf-
eyrisþega fái ákveðinn forgang.
Verði hún samþykkt samsvarar
framlagið sem Samfylkingin vill nú
veija til að bæta afkomu aldraðra og
öryrkja því að grunnlífeyrir og
tekjutrygging geti hækkað strax um
nálægt 18%, auk þess sem sérstakt
átak verði gert í málefnum ungra
öryrkja.
Höfundur cr alþingismaður.
M 0 N S 0 0 N
M A K E U P
litir sem lífga
BHNHH
I
■
EXCELLENT
Fimmtudag til sunnudags
20% afsláttur fienu
GARÐURINN
af öllum eterna skyrtum
- KRINGLUNNI -
klæðir þig vel
,ARM
og hárið glampar
ogglansar!!!
Já, hárið glampar og glansar eins og engla-
hár þegar CITRÉ SHINE hársnyrtivörurnar
eru notaðar. Þær eru framleiddar í Kali-
forniu þar sem sítrusávextirnir ieika við
hvern sinn fingur í sólarhitanum. En nafn
sitt draga CITRE SHINE hárvörurnar einmitt
af sítrusávöxtunum þar sem þær eru að
, ... hluta til unnar úr safa þeirra og berki sem
gefa hárinu einstakan glans, lifandi og heil-
brigt útlit.
CITRÉ SHINE hárvörurnar fást á yfir 50.000 sölustöðum
í Bandaríkjunum einum saman auk þess sem þær fást í
Suður-Ameríku, Kanada, Ástralíu, Evrópu, Austurlönd-
um og nú á íslandi! Margir ferðalangar kannast við
sölustaði CITRÉ SHINE í USA, t.d. risafyrirtækin K-Mart,
Walgreens, Revco, Rite Aid, CVS og Albertson's. CITRÉ
SHINE hárvörurnar eru á sérstaklega hagstæðu verði
(ódýrari hér en og hjá Boot's í London) en í háum gæða-
flokki og standast fyllilega samanburð við dýrari teg-
undir hársnyrtivara.
SÖLUSTAÐIR:
Esm
Þverholti 2, Mosfellsbæ • Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi
Smáratorgi 1, Kópavogi • Spönginni 13, Reykjavík
Kringlunni 8-12, Reykjavík • Fjarðargötu 13-15, Hafnarfirði
Iðufelli 14, Reykjavík • Smiðjuvegi 2, Kópavogi
Njarðvík
Dalvíkur-Apótek • Apótekið Ólafsfirði
Apótek Sauðárkróks • Apótek Vestmannaeyja
Apótekið Siglufirði • Apótek Ólafsvíkur
Apótek ísafjarðar • Apotek Austurlands
Stykkishólmsapótek • Lyrjaútibúið Grundarfirði
Lyfsalan Patreksfirði • Árnes Apótek, Selfossi
Grafarvogs Apótek, Hverafold 1-2 • Nesapótek, Eiðistorgi 17
Amon-Ra, Hraunbergi 4 • Árbæjarapótek
Garðs Apótek, Sogavegi 108 • Snælands Videó, Ægisíðu 123
Lónið, Þórshöfn • Hjá Maríu, Amaróhúsinu, Akureyri
Pétursbúð, Ránargötu 15 • Verslunin Áskjör, Ásgarði 22
Verslunin Kjötborg, Ásvallagötu 19
Kjörbúð Reykjavíkur, Bræðraborgarstíg 43
Kjöthóllin, Háaleitisbraut 58-60
Hárgreiðslustofan Evíta, Starmýri 2
Lyf&heilsa
REYKJAVÍK:
smæ • Domus Medica • Austurveri • Háteigsvegi
Melhaga • Kringlunni, 1. og 3. hæð • Mjódd
Fjarðarkaupum, Hafnarfirði
Glæsibæ
LANDIÐ:
Hafnarstræti, Akureyri • Hrísalundi 5, Akureyri
Glerártorgi, Akureyri • Hveragerði • Þorlákshöfn
Kirkjubraut 5, Akranesi
Síðumúla 17 • 108 Reykjavík
Sími: 588 3630 • Fax: 588 3731
Netfang: kosmeta@islandia.is
Netverslun (Amerísku undrakremin): www.kosmeta.is
J
I
I
I
I