Morgunblaðið - 09.11.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000 5|>
Afram
skal gramsað
í Mý vatni
ÞVERT ofan í tillögur og ráð
hinna færustu vísindamanna og
flestra lögboðinna ráðgjafa sinna
hefur Siv Friðleifsdóttir umhverf-
isráherra heimilað áframhaldandi
kísilgúrnám úr Mývatni og leyfir
nú töku úr Syðriflóa. Þar með
virðist framhald kísilgúrnámsins
tryggt til a.m.k. næstu 20 ára.
Starfsmenn Kísiliðju brugðust við
fregninni með því að slá upp sigur-
veislu og raða í sig góðgæti við
píanóundirleik. Þvílík skammsýni!
Hvað er þetta fólk að hugsa? A að
halda áfram að gramsa í Mývatni
þar til skaðinn er orðinn öllum
bersýnilegur og óbætanlegur með
öllu?
Afdrifaríkt andartak
Það er ótrúleg niðurstaða að
umhverfisráðherra skuli sniðganga
álit og varnaðarorð flestra sinna
undirstofnana og ráðgjafa. Nátt-
úrurannsóknarstöðin við Mývatn,
Náttúruvernd _ ríkisins, Náttúru-
fræðistofnun íslands og Náttúru-
verndarráð hafa öll lagst gegn
frekara kísilgúrnámi. Einnig Líf-
fræðistofnun Háskóla íslands,
Umhverfismál
Á að halda áfram
að gramsa í Mývatni,
spyr Kristín_________
Halldórsdóttir, þar
til skaðinn er orðinn
öllum bersýnilegur og
óbætanlegur meðöllu?
Náttúruverndarsamtök íslands,
Samtök um náttúruvernd á Norð-
urlandi og fleiri. En allt kemur
fyrir ekki. Áfram skal haldið að
gramsa í botni Mývatns og iðju-
sinnar horfa glaðir til nánustu
framtíðar. 20 ár eru vissulega að-
eins andartak í sögu lands og lýðs,
en það andartak getur reynst nátt-
úru Mývatns afdrifaríkt.
Og hvað halda menn að gerist
eftir 20 ár? Ef að líkum lætur
heldur áfram söngurinn um at-
vinnuhagsmuni kísiliðjumanna og
yfirvofandi dauða samfélagsins fái
þeir ekki að halda mokstrinum
áfram. Síðast var með samkomu-
lagi Náttúruverndarráðs, umhverf-
isráðherra og iðnaðarráðherra gef-
inn 15 ára frestur til að búa sig
undir endalok kísilgúrnáms úr
Mývatni. Það samkomulag hefur
nú verið svikið og ekkert raun-
verulegt hefur heldur verið að-
hafst til að draga úr neikvæðum
áhrifum af lokun Kísiliðjunnar.
Enda þarf til þess vilja.
Fráleitt sjálfbær iðja
Það er ekkert annað en ósvífinn
útúrsnúningur iðjusinna á hinni
macDnBUDin;
mm. Golfkúlur 3 stk. i pakka
aðeins 850 kr.
vel þekktu varúðarreglu að telja
sig í fullum rétti vegna þess að
ekki liggi fyrir óumdeildar sannan-
ir fyrir skaðsemi kísilgúrnámsins.
Það er framkvæmdaraðilans að
sýna fram á skaðleysi athafna
sinna á náttúru Mývatns og það
hefur hann ekki gert.
Allt frá upphafi kísilgúrnámsins
hefur það verið deginum ljósara að
hér væri um tíma-
bundna iðju að ræða
af þeirri einföldu
ástæðu að hún er
fjarri því að vera
sjálfbær þar sem
nýmyndun er miklum
mun hægari en
brottnámið. Margir
hafa að vísu viljað
loka augunum fyrir
þeirri staðreynd og
treyst því að ráða-
menn settu hagsmuni
verksmiðjureksturs á
þessu viðkvæma
svæði ofar allri vernd-
unarpólitík jafnvel
þótt í húfi sé náttúru-
perlan Mývatn sem á
líka í heiminum. Þeir
hafa getið sér rétt til.
Kristín
Halldórsdóttir
engan smn
hinir sömu
Skammtíma við-
horfin eru ennþá alls-
ráðandi. Ástæða hefði
þó verið til að ætla að
aukin þekking og um-
ræða undanfarinna
ára hefði breytt við-
horfum meira en raun
hefur orðið.
Ömurlegt
hlutskipti
Það er verulegt um-
hugsunar- og
áhyggjuefni hvernig
ráðherrar leyfa sér að
fara með vald sitt og
ábyrgð. Þar halda
hvorki lög né reglur
og álit fagfólks er sniðgengið að
geðþótta.
Alþingi setur lög um náttúru-
vernd, um mat á umhverfisáhrif-
um, um verndun Laxár og Mý-
vatns. Reynt hefur verið að
tryggja víðtæka faglega umfjöllun .
og ráðgjöf og aðkomu sem flestra
að hverju máli. Ekkert virðist
halda og náttúruverndarsinnar
velta því fyrir sér hvað sé til ráða.
Það er ömurlegt hlutskipti sem
Siv Friðleifsdóttir hefur kosið sér í
embætti umhverfisráðherra. í
hverju embættisverkinu á fætur
öðru tekur hún skammtíma hags-
muni atvinnurekstrar fram yfir
langtíma hagsmuni þeirrar náttúru
sem hún er sett til þess að gæta.
Náttúran er aldrei í fyrsta sæti
hjá umhverfisráðherra.
Höfundur er varafulltrúi
í Náttúruvemdarráði.
NETVERSLUN Á
mbl.is
„Það sem réði úrslitum þegar ég ákvað að færa alla síma- og
gagnaflutninga fyrirtækisins yfir til Títans var m.a. það að TTtan byggir
á nýjustu tækni á sviði fjarskipta. Um er að ræða nýja IP, Ethernet og
DWDM tækni sem getur flutt mikið magn gagna og tals samtímis um
Ijósleiðaranet. Nýja tæknin byggir á annarri kynslóð Internetþjónustu,
Carrier Class, sem felur í sér aukið öryggi meðal annars með tvöfaldri
uppbyggingu kerfisins."
Fyrirtækið
TTtan er framsækið fyrirtæki á símamarkaðnum I meirihlutaeigu Nýhcrja,
íslandssfma og Internets á íslandi. Títan byggir á hæfum starfsmönnum og
stórum hópi viðskiptavina auk þess sem þekking og reynsla eigenda
fyrirtækisíns gefur því aukinn styrk.
Títan starfrækir háhraða (1000 Mb/s) gagnanet á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustan
Títan veitir fyrirtækjum alhliða sfma- og gagnasambandsþjónustu auk
Internetþjónustu. Fjarskiptanet Titans er T fremstu röð í heiminum hvað
varðar tæknibúnað og öryggi.
Tltan býður fyrirtækjum flutningsgetu og öryggi á lægra verði en áður
hefur þekkst hérlendis.
Borgartúni 37 105 Reykjavik
www.titan.is titan@titan.is
xnynr\
Símt 512 9000
Fax 512 9001