Morgunblaðið - 09.11.2000, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ
'%8 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
NASSAU iðnaðarhurðir
Þrautreyndar við íslenskar aðstæður
SALA
UPPSETNING
VIÐHALDSÞJÓNUSTA
EHF
\
Sundaborg 7-9, Reykjavik
Slmi 5688104, fax 5688672
4
LANCÖME
r»A «i s .
pRÉNl RGIi:
CONTOUR LIFT
Besti stuðningur
húðarinnar I
Kynnum stórkostlegar
nýjungar fyrir andlit.
Viðskiptavinir Lancóme fá veglega kaupauka.
Kynning í dag og á morgun
fdstudag.
1 snyrtivöruverslun
Strandgötu 32
sími 555 2615
I Leikmannaskóli
þjóðkirkjunnar
minnir á næstu námskeið vetrarins
Fjórar sögur af Jesú
Kennari sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir.
Staður: Háskóli íslands.
Tími: 4 mánudaga 13/11, 20/11, 27/11 og 4/12 kl. 18-20
Guð og tilvist hans
Kennari dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Staður: Háskóli íslands.
Tími: 4 þriðjudaga 14/11, 21/11, 28/11 og5/12 kl. 18-20
Tilfinningar hversdagsins og
svör kvennaguðfraeðinnar
Kennari sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Staður: Háskóli íslands.
Tími: 4 þriðjudaga 14/11,21/11, 28/11 Og 5/12 kl. 20-22
Kirkjan í Evrópu í 2000 ár
Kennari dr. Hjalti Hugason. Staður: Háskóli íslands.
Tími: 3 miðvikudaga 15/11, 22/11, 29/11
og fimmtudaginn 30/11 kl. 18-20
Kirkjutónlist Bachs
Kennari Halldór Hauksson. Staður: Hallgrímskirkja.
Tími: 4 miðvikudaga 15/11, 22/11, 29/11 og 6/12 kl. 20-22
Pantaðu bækling!
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
Nánari upplýsingar eru veittar á:
Fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar,
Biskupsstofu, Laugavegi 31,
150 Reykjavík, sími 535 1500,
bréfsími 551 3284.
* Netfang: frd@kirkjan.is
UMRÆÐAN
„Far þú á veiðar
og veið mér villt dýr“
í Morgunblaðinu 2.
nóv. sl. er grein eftir
einn af þjónum þjóð-
kirkjunnar, séra Ragn-
ar Fjalar Lárusson.
Þar fer prestur með af-
ar ósmekklegar árásir
á skotveiðimenn. Við
höfum svo sem áður
mátt þola svívirðingar
af hálfu séra Ragnars
Fjalars og ekki talið
þær svara verðar. I
greininni keyrir hins
vegar um þverbak. Þar
gefur presturinn í skyn
að veiðar séu ekki Guði
þóknanlegar. Hann
kallar skotveðimenn
slátrara og drápsglaðan lýð. Áður en
lengra er haldið er rétt að benda á að
því miður hefur séra Ragnar Fjalar
afar litla þekkingu á þessu efni. Eng-
in dýrategund er í útrýmingarhættu
vegna skotveiða. Dýrunum stafar
fyrst og fremst hætta af ýmsum öðr-
um gjörðum mannanna eins og verk-
legum framkvæmdum af ýmsu tagi
og mengun í lofti, á láði og legi. Eg
get upplýst séra Ragnar um, að hér
eru stundaðar afar vandaðar rann-
sóknir af færum vísindamönnum á
dýrastofnum sem veitt er úr, kostað-
ar af fé úr vösum skotveiðimanna. Þá
vitnar presturinn í kvæðið „Óhræs-
ið“ eftir Jónas Hallgrímsson máli
sínu til stuðnings. Allir sem eitthvað
þekkja til skáldskapar Jónasar vita
að í kvæðinu „Óhræsið" er rjúpan
tákn fyrir tilfinningar í hjarta
skáldsins, ljóðið er ekki mótmæla-
kvæði gegn rjúpnaveiðum. Um þetta
má lesa á bls. 454-455 í riti Páls Vals-
sonar um Jónas Hallgrímsson.
Klerkur í klípu
Séra Ragnar er einkar óheppinn í
tilvitnunum í árásum á skotveiði-
menn. í sept. 1992 var séra Ragnar
Fjalar á ferð á síðum blaðsins. Þá
lýsti hann andstyggð á grein og
myndum í blaðinu af hreindýraveið-
um. Vissulega er það ánægjulegt að
þjónn kirkjunnar skuli fjalla um
veiðisiðfræði, en rauði þráðurinn í
skrifum séra Ragnars er sá að veiðar
séu ekki Guði þóknanlegar. í grein-
inni 1992 vitnar hann í siðfræði Ai-
berts Schweitzer um
lotningu fyrir lífinu.
Satt best að segja hef
ég frekar takmarkað
álit á Schweitzer, hin-
um merka trúboða.
Hann leit á skjólstæð-
inga sína af ýmsum
kynþáttum þjóða Afr-
íku sem hálfgerð börn
og einfeldninga. Ýmsir
guðfræðingar nútím-
ans og afrískir mennta-
menn hafa tekið svo
djúpt í árinni að kalla
Schweitzer málsvara
nýlendukúgunar, sem
taldi svarta kynstofn-
inn þeim hvita óæðri.
Eg hef hins vegar mun meira álit á
prestinum Kaj Munk, sem var
áhugasamur og góður skotveiðimað-
ur. Veiðifélagi hans og vinur Paul
Hanson skrifaði frábæra bók sem
Rjúpa
Ég vil beina þeim til-
mælum til skotveiði-
manna, segir Sigmar B.
Hauksson, að þeir
minnist séra Ragnars
í bænum sínum.
nefnist ,Á veiðum með Kaj Munk“.
Hálfum mánuði áður en böðlar nas-
ista tóku séra Munk af lífí skrifaði
hann vini sínum og veiðifélaga:
„Veiðiskapur er mér ekki leikur
heldur endursköpun, innblástur, afl-
gjafi og ný lífshvöt.“
Slæm guðfræði
Það er hægt að fyrirgefa séra
Ragnari að hafa ekkert vit á veiðum
og lítinn skilning á hlutverki manns-
ins í náttúrunni. Það kemur hins veg-
ar verulega á óvart hvað hinar guð-
fræðilegu útskýringar og túlkun
séra Ragnars á Biblíunni eru
gloppóttar og einfeldningslegar.
Grein sína nefnir hann „Lítið til fugla
himinsins“ og þessi orð frelsarans
virðast vera kveikjan að fordæmingu
hans á skotveiðimönnum. I dæmi-
sögunni er Kristur ekki á nokkurn
hátt að fjalla um rétt mannsins til
veiða. I Matteusar guðspjallinu seg-
ir: „Er ekki lífið meira en fæðan og
líkaminn meira en klæðnaðurinn?
Lítið til fugla himsins, þeir sá ekki né
uppskera og þeir safna ekki heldur í
hlöðu og yðar himneski faðir fæðir
þá, eruð þér ekki miklu fremri en
þeir? En hver af yður getur með
áhyggjum aukið við aldur sinn.“ Það
er fjallað um veiðar á nokkrum stöð-
um í Biblíunni. í 1. Mósebók 3.4.33
segir: „Isak kallar á Esús son sinn og
segir: Sjá ég er orðinn gamall og veit
ekki nær ég mun deyja. Tak því nú
veiðigögn þín, örvamæli þinn og
boga, og far þú á heiðar og veið mér
villidýr. Og tilreið mér ljúffengan
rétt, sem mér geðjast að, og fær mér
hann, að ég megi eta, svo sál mín
blessi þig, áður en ég dey.“ í 5. Móse-
bók 22.6.7 segir: „Ef fuglshreiður
verður fyrir þér á leið þinni, upp í tré
eða á jörðinni, með ungum í eða eggj-
um, og móðirin liggur á ungunum
eða eggjunum, þá skalt þú ekki taka
móðurina ásamt ungunum. Þú skalt
sleppa móðurinni, en taka ungana
eina, til þess að þér vegni vel og þú
lifir langa ævi.“ Boðskapur Biblíunn-
ar er augljós. Maðurinn drottnar yfir
öllum dýrum sem lifa og hrærast á
jörðinni. Hann á að nýta dýrastofn-
ana af skynsemi, ekki taka meira en
honum ber. Séra Ragnar Fjalar virð-
ist hafa misst sjónar á því að við lif-
um ekki án þess að svipta plöntur og
dýr lífi. Skotveiðar eru útivist með
tilgang. Þegar við erum á veiðum er-
um við þátttakendur í náttúrunni,
ekki áhorfendur, og því í nánum
tengslum við almættið - ég fer aldrei
á veiðar án þess að finna fyrir návist
skaparans. En maðurinn á að um-
gangast dýrin með virðingu og ekki
láta þau líða að óþörfu, þess vegna
setja skotveiðmenn sér siðareglur. I
siðareglum Skotveiðifélags íslands
er ítarlega fjallað um þetta efni, þar
segir m.a.: „Þá er veiðidagur góður
þegar hóflega er veitt, með talsverðri
líkamlegri áreynslu, vakandi nátt-
úruskyni og sært dýr liggur ekki eft-
ir að kveldi.“
Umhverfismál verða æ fyrirferð-
armeiri í þjóðfélagsumræðunni, um
kísilgúrvinnslu úr Mývatni, bygging-
arframkvæmdh' við Elliðavatn, fyr-
irhugaða byggð í Laugardal, svo ekki
sé nú talað um vemdun Eyjabakka.
Séra Ragnar hefur þagað þunnu
hljóði í þessari þörfu þjóðfélagsum-
ræðu. Mér er því óskiljanlegt af
hvaða hvötum hann ræðst á okkur
skotveiðimenn. Varla er það vegna
ástar hans og umhyggju fyrir náttúr-
unni. Guðfræðingar í Evrópu hafa
hins vegar gagnrýnt harðlega
gi'æðgi mannsins gagnvart náttúr-
unni, hvernig hann gengur stöðugt á
ósnortna náttúru í þágu hagvaxtar.
Sömu guðfræðingar hafa einnig for-
dæmt meðferð okkar á húsdýrum
sem alin eru upp í verksmiðjum við
ömurlegar aðstæður. Þessum vesal-
ings dýrum eru gefnir hormónar svo
þau vaxi hraðar og lyf svo þau haldi
lífi. Séra Ragnar ætti frekar að
kynna sér hlutskipti þessara dýra en
að ráðast á skotveiðimenn. Stað-
reyndin er nefnilega sú að hlutskipti
villtu dýranna sem felld era úti í
náttúrunni er svo miklu betra. Við
séra Ragnar Fjalar vil ég segja
þetta: Þú hefur nú um langan tíma
gengt farsælli prestsþjónustu. Þú
hefur án efa skírt, fermt og gift
hunduð sóknarbarna þinni. Margt af
þessu fólki er skotveiðimenn, fólk
sem þú kallar slátrara og drápsglað-
an lýð. Séra Ragnar, svona svívirð-
ingar sæma ekki manni í þinni stöðu.
Ég vil að lokum beina þeim tilmælum
til skotveiðimanna að þeir minnist
séra Ragnars í bænum sínum svo að
reiðin sem hann ber í okkar garð
megi sefast og hann öðlist frið í sálu
sinni.
Einnig hjá ffi^Ksmönnum um land allt
www.i®r-www.bilheinriar.is
án útborgunar
við afhendingu
▼
Ailir bílar
á vetrardekkjum
T
Lánum í allt
að 60 mánuðii
Mán.-fim kl. 09-20
Föstudag kl. 09-18
Laugardag kl. 12-17
1- afborgun
apríl 2001.
Afhending
í dag
*
Sigmar B.
Hauksson
Höfundur er formaður
Skotveiðifðlags íslands.