Morgunblaðið - 15.11.2000, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rétt vika er liðin síðan Einar Örn Birgisson hvarf
U mfangsmikil
leit hefur ekki
borið árangur
Hraðinn drepur
ert þú naist( jr)
>ém>
!l
Morgunblaðið/Kristján
Skilti sem ungmenni í Eyjafjarðarsveit gáfu til minningar um félaga
sinn sem lést í umferðarslysi hefur verið eyðilagt.
Skemmdir á skiltum
í Eyjafjarðarsveit
NÚ er liðin rétt vika frá því síðast
spurðist til Einars Arnar Birgisson-
ar. Víðtæk leit lögreglu, björgunar-
sveita og fjölskyldu og vina Einars á
Reykjanesi og á höfuðborgarsvæð-
inu hefur engan árangur borið. Ætt-
ingjar og vinir Einars
leita hans enn og björg-
unarsveitir bíða fyrir-
mæla um frekari leit
frá lögreglunni.
Á þriðja tug lög-
reglumanna vinnur að
rannsókn á hvarfi Ein-
ars. Allir starfsmenn
rannsóknardeildar lög-
i-eglunnar í Kópavogi
auk tiltækra manna úr
almennri deild taka
þátt í rannsókninni auk
15 manna frá ríkislög-
reglustjóra, lögregl-
unni í Reykjavík og frá
öðrum lögregluum-
dæmum. Rannsóknin
leiddi til þess í gær, að maður var
handtekinn grunaður um að eiga
þátt í hvarfi Einars Amar.
Ný vísbending barst í gær
en Ieit bar ekki árangur
Vísbending, sem lögreglunni barst
í gær, varð til þess að björgunar-
sveitir voru sendar til leitar í ná-
grenni Grindavíkur. Um 15 björgun-
arsveitarmenn auk þriggja leitar-
hunda leituðu Einars án árangurs.
Fjölmargar vísbendingar hafa borist
lögreglu en engin sem leitt hefur
menn á slóð Einars. Víst þykir að
Einar hafi ekki farið af landi brott.
Rætt hefur verið við starfsfólk á
Keflavíkurflugvelli. Þá hefur lög-
reglan skoðað myndbönd sem tekin
eru af eftirlitsmyndavélum í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. I fréttatil-
kynningu frá lögreglunni í Kópavogi
hefur rannsókn lögreglunnar m.a.
miðað að því að kanna hvort sakhæft
athæfi hafi átt sér stað. Friðrik S.
Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í
Kópavogi, segir ekkert útilokað við
rannsókn málsins fremur en við önn-
ur mannshvörf.
Hófu fljótlega að
grennslast fyrir um Einar
Síðast spurðist til Einars á mið-
vikudaginn í síðustu viku. Unnusta
Einars fór af heimili þeirra um kl. 10
um morguninn. Einar ætlaði að hitta
meðeiganda sinn að verslun við
Laugaveg sem þeir höfðu nýverið
opnað. Einar kom aldrei á þann fund
að sögn meðeigandans og síðast
heyrðist frá honum kl. 11.08 þegar
hann hringdi í verslunina. Einar
mun hafa hringt úr bif-
reið sinni en hann
kvaðst þá vera á leið í
verslunina. Einar hafði
uppgjör verslunarinn-
ar frá deginum áður
meðferðis í bflnum. Það
voru einkum korta-
kvittanir en óverulegar
fjárhæðir í peninga-
seðlum. Uppgjörið mun
ekki hafa komið fram.
Samkv. upplýsingum
frá aðstandanda Ein-
ars vær kveikt á GSM-
síma hans til kl. 13.47.
Þá virðist sem slökkt
hafi verið á símanum.
Unnusta Einars reyndi
að hringja í farsíma hans skömmu
fyrir kl. 16, en náði ekki sambandi.
Þegar hún kom heim að lokinni
vinnu fór hún að spyrjast fyrir um
Einar. Kom þá í ljós að enginn hafði
heyrt í honum frá því um hádegi.
Samkvæmt frásögn vina Einars, sem
Morgunblaðið ræddi við í gær, þótti
það strax undarlegt. Einar mun vera
vanur að eiga fjölda samtala við fjöl-
skyldu sína og vini á dag.
Seinna um kvöldið hófu ættingjai-
og vinir Einars að grennslast fyrir
um hann. Þeir óku m.a. um borgina
og leituðu að bifreið Einars sem er
silfurgrá, af gerðinni Volkwagen
Golf. Um miðnætti hringdu foreldrar
Einars í lögregluna í Kópavogi þar
sem eftirgrennslan þeirra hafði ekki
borið árangur. Lögreglan hóf þá að
svipast um eftir bfl hans.
Sporhundur
fann enga slóð
Leit björgunarsveita hófst um
klukkan sjö á fimmtudagsmorgun.
Um kl. 9.30 fannst bfll Einars á bfla-
stæði fyrir framan Hótel Loftleiðir.
Að sögn vinar Einars höfðu ættingj-
ar ekið þar um a.m.k. þrisvar kvöldið
áður auk lögreglubfls. Enginn hafði
orðið bflsins var. Lögreglunni barst
vísbending þar sem sagt var að bfll-
inn hefði sést á Vatnsleysuströnd þá
um nóttina. Friðrik S. Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn í Kópavogi, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
mögulegt væri að bfllinn hefði ekki
verið við Hótel Loftleiðir um nóttina.
Eins yrði að gera ráð fyrir þeim
möguleika að mönnum hefði sést yfir
bflinn. Bifreið Einars er enn til rann-
sóknar hjá lögreglunni í Kópavogi.
Þegar bfll Einars fannst voru sér-
þjálfaðir leitarmenn sendir á staðinn
ásamt sporhundi. Sporhundurinn
var látinn þefa af flík af Einari en
hundinum tókst ekki að finna slóð
hans. Þá leituðu björgunarsveitar-
menn og svæðisleitarhundar í ná-
grenni Hótels Loftleiða og í Öskju-
hlíð. Leitinni var hætt síðdegis en
ættingjar og vinir leituðu hans í
Öskjuhlfð um kvöldið. Á föstudag
leituðu þau hans í Heiðmörk en leit
björgunarsveita var frestað þar til
nýjar vísbendingar bærust.
400 manns leituðu
Einars um helgina
Á laugardaginn hófst umfangs-
mikil leit að Einari á Reykjanesi og í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Um
200 félagar í Slysavarnafélaginu
Landsbjörgu tóku þátt í leitinni og
svipaður fjöldi ættingja og vina.
Þyrla landhelgisgæslunnar aðstoð-
aði við leitina. Mikil áhersla var lögð
á að leita á Vatnsleysuströnd enda
hafði vísbending borist til lögreglu
um að bifreið Einars hefði sést þar á
fimmtudag. Leitað var við vegi og
helstu slóða frá Hafnarfirði vestur
að Keflavík. Björgunarsveitarmenn
sigu m.a. ofan í gjótur og leitarhund-
ar voru þeim til aðstoðar. Fjörur
voru einnig gengnar á Álftanesi. Um
200 ættingjar og vinir Einars tóku
ennfremur þátt í leitinni. Þau leituðu
m.a. á Reykjanesinu vestan við
Keflavík og á sunnanverðu Reykja-
nesi og á Bláfjallasvæðinu. Þá var
leitað við Hafravatn og Langavatn
og víðar ofan við Reykjavík. Leitað
var við Nesjavallaveg og Esju og
fjörur voru gengnar frá Garðabæ að
Korpuósum. Þá hafa ættingjar og
vinir Einars gengið Álftanes og opin
svæði innan borgarmarka Reykja-
víkur og Kópavogs. Yfirgefin hús á
svæðinu voru jafnframt könnuð.
Leitin að Einari hefur engan árang-
ur borið.
Vinir Einars hafa opnað heima-
síðu www.einarorn.is. Einnig er
minnt á símann hjá lögreglunni í
Kópavogi 5603050.
UMFERÐAR- og þjónustuskilti í
Eyjafjarðarsveil urðu fyrir barðinu
á skemmdarvörgum á dögunum.
Málningu var sprautað yfir þrjú
skilti í sveitinni, skammt sunnan
Akureyrar, og eru þau talin ónýt.
Um er að ræða stórt þjónustskiiti
Eyjaljarðarsveitar, umferðarskilti
og skilti með merki Akureyrar.
Stefán Árnason, skrifstofustjóri
á hreppsskrifstofu Eyjafjarðar-
sveitar, sagði að þarna væri vissu-
lega um að ræða fjárhagslegt Ijón
en hins vegar væri það sorglegt að
svona nokkuð skyldi gert. Þarna
hefði m.a. verið eyðilagt skilti, þar
sem varað er við hraðakstri og
ÍSLANDSSÍMI hefur fengið góð
viðbrögð við því að bjóða heimilum
upp á síma- og netþjónustu, að
sögn Péturs Péturssonar, upplýs-
ingafulltrúa Íslandssíma, en þessi
nýja þjónusta fyrirtækisins var
kynnt á föstudaginn var og auglýst
um helgina.
Um þúsund manns hafa skráð sig
og sagði Pétur að þeir væru mjög
ánægðir með viðbrögð almennings.
Við skráningu hjá Íslandssíma
þarf að gefa upp greiðslukortan-
úmer til þess að verða tekinn í við-
skipti. Áðspurður um ástæður
þessa sagði Pétur að með þessu
móti sparaði fyrirtækið sér að reka
ungmenni í sveitinni gáfu til minn-
ingar um félaga sinn sem lést í bíl-
slysi. Stefán sagði að lögreglu
hefði verið tilkynnt um verknaðinn
og eru þeir sem geta gefið ein-
hverjar upplýsingar um hver eða
hverjir þarna voru á ferð beðnir að
hafa samband við lögregluna á Ak-
ureyri.
Sigurður Oddsson, deildarstjóri
framkvæmda hjá Vegagerðinni á
Akureyri, sagði að þó nokkuð væri
um að skemmdir væru unnar á um-
ferðarskiltum. Hann sagði slíkt
mjög alvarlegt mál og geta valdið
stórhættu og alvarlegum slysum í
umferðinni.
innheimtudeild fyrst um sinn en
það, ásamt góðum tækjabúnaði og
lítilli yfirbyggingu, gerði fyiirtæk-
inu kleift að bjóða hagstæðara verð
en aðrir á þessum markaði.
Pétur sagði að þetta væri hag-
kvæmasti mátinn á innheimtu sím-
gjalda, bæði fyrir viðskiptavininn
og fyrirtækið.
Hann sagði að eftir sem áður
fengi fólk senda reikninga heim.
Fólk fengi einnig uppgefið leyniorð
og gæti því fylgst jafnt og þétt með
símanotkun sinni á vef Islandssíma.
Jafnframt gætu þeir sem vildu og
óskuðu eftir fengið senda heim
sundurliðaða símareikninga.
Einar Örn
Birgisson
fslandssími býður síma- og
netþjónustu fyrir heimili
Þúsund manns
hafa skráð sig
Ný ensk orðabók
með hraðvirku uppflettikerfi
Ný og endurbætt ensk-íslensk/
íslensk-ensk oröabók meft hrabvirku
uppflettikerfi er komin út.
Bókin hefur a& geyma 72.000 uppflettiorð
og var sérstaklega hugað að fjölgun oröa
í tengslum við tækni, vísindi, tölvur, viðskipti
og feröalög.
Hún spannar því fjöldamörg svi& og nýtist
vel hvort sem er ó heimili, vinnusta&, i skóla
eða bara hvar sem er.
Or5abókin er 932 bls. I stóru broti og inn-
bundin í sterkt band.
Kynningarverb: 6.800 kr.
OJ
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
wMmmmmnmmammusm
Auglýsingahlé í kvikmyndum RÚV
Tillagan felld
í útvarpsráði
ÚTVARPSRÁÐ felldi tillögu á fúndi
sínum í gær um að stutt auglýsinga-
hlé verði tekin í sýningum kvikmynda
á dagskrá Sjónvarpsins um helgar.
Beiðni um þetta kom frá markaðs-
deild Ríkisútvarpsins og átti þetta að
vera gert til reynslu fram að áramót-
um. Tillagan var felld með 4 atkvæð-
um gegn 3 og klofnaði meirihluti út-
varpsráðs í afstöðu sinni til málsins.
Þeir sem felldu tillöguna voru þrír
fulltrúar stjómarandstöðuflokkanna
auk eins fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
formaður útvarpsráðs, var meðal
þeirra sem samþykktu tillöguna.
Hann sagðist í samtali við Morgun-
blaðið hafa viljað prófað þetta og sjá
hvaða tekjum hléin skiluðu og hvem-
ig þau mæltust fyrir hjá fólki.
„Markaðsdeildin hefur verið dug-
leg í því að leita nýrra leiða við tekju-
öflun og það er vitaskuld þakkarvert.
Þetta var ein hugmyndin og með
þessari afgreiðslu útvarpsráðs verður
ekkert af henni. Ég vona að þetta letji
ekki markaðsdeildina. Menn verða að
þola það að afstaða sé tekin til hug-
mynda þeirra,“ sagði Gunnlaugur
Sævar.
Önnur helstu mál á fundi útvarps-
ráðs í gær vom umfjöllun um fjár-
hagsáætlun Rfldsútvarpsins fyrir árið
2001, sem Gunnlaugur Sævar reikn-
aði með að yrði afgreidd á næsta
fundi.
Valhöll verð-
ur ekki seld
án samráðs
RÆTT var um tilboð breska auðkýf-
ingsins Howards Kmgers í Hótel
Valhöll á fundi Þingvallanefndar í
gær. Fundarmenn höfðu þó ekki
sjálft tilboðið undir höndum heldur
ræddu málið m.a. á grundvelli þess
sem fram hefði komið í fjölmiðlum að
undanförnu.
Björn Bjamason menntamálaráð-
hema, formaður nefndarinnar, sagði
eftir fundinn að nefndin væri sömu
skoðunar og í sumar, þ.e. að menn
gætu ekki ráðstafað umræddri eign
án samráðs við nefndina. Þá hefði sá
vilji komið fram að hótelinu yrði ekki
breytt í sumarbústað.
Björn Bjamason sagði í samtali
við Morgunblaðið í sumar að íslenska
ríkið ætti hluta hótelbygginganna
við Valhöll á Þingvöllum. Því þyrfti
samþykki ríkisins og Þingvalla-
nefndar fyrir hugsanlegri sölu.