Morgunblaðið - 15.11.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 15.11.2000, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Umræður um framtíðarhlutverk verkalýðsfélaga í málstofu á þingi Alþýðusambandsins SVANUR Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla ís- lands, gagnrýndi verkalýðsfélögin og ASÍ fyrir að hafa setið hjá í ýms- um þjóðmálum sem vörðuðu frelsi, jafnrétti og samábyrgð, í erindi sem hann flutti í málstofu um verkalýðs- hreyfmgu framtíðarinnar á þingi ASI í gær. Svanur nefndi tvö dæmi máli sínu til stuðnings, annars vegar launa- misrétti sem konur í þessu landi byggju við og hins vegar hjásetu verkalýðshreyfingarinnar gagnvart gjafakvótakerfinu. Um hið síðarnefnda sagði Svanur: „Hinu pólitíska valdi í landinu hefur hér verið beitt í þágu sérhagsmuna og forréttinda; lénsveldið hefur verið endurreist og samfélögin í sjávar: byggðum landsins tætt í sundur. í stað samfélaga þar sem umtalsverð- ur jöfnuður og samheldni réðu ríkj- um eru komin samfélög sundrungar og ójöfnuðar. Annars vegar stendur hin fámenna stétt kvótaeigenda, hins vegar hinir kvótalausu. Landssamband íslenskra útvegs- manna er ekkert feimið við að hafa skoðanir á kvótakerfinu. Af hverju hefur Alþýðusamband Islands þag- að?“ sagði Svanur. Hann sagði að einnig mætti finna dæmi þess að fulltrúar ASÍ hafi tek- ið virkan þátt í að auka styrk for- réttindaaflanna í landinu með því að flytja skattbyrðar frá hinum ríku yf- ir á þá sem minna mega sín. „Ég vil hér vísa til afstöðu fulltrúa ASÍ í nefndinni sem lagði grunninn að frumvörpum um skatt á fjármagns- tekjur, sem samþykkt voru árið 1996. I skjóli þeirra laga hafa tugir milljarða verið fluttir út úr landinu, skattírjálst," sagði Svanur. Setja ekki fram neina draumsýn Miklar umræður urðu um stöðu og framtíð verkalýðshreyfingarinn- ar í málstofunni en auk Svans voru Gunnar Páll Pálsson, forstöðumaður fjármála- og hagdeildar Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, Guð- mundur Gunnarsson, formaður Raf- iðnaðarsambandsins, og Sigurður Bessason, formaður Eflingai’, frum- mælendur á fundinum. Svanur hélt því fram að verkalýðs- félög og Alþýðusambandið væru sterk þegar þau störfuðu sem veru- leikatengd umbótahreyfing og byggðu á sterkum hugsjónum um betra þjóðfélag. „Pegar verkalýðsfé- lögin eru bara veruleikatengd en starfa ekki að róttækum umbótum á þjóðfélaginu, setja ekki fram neina draumsýn um hvernig þjóðfélagið á að vera, hvemig gott þjóðfélag lítur út, þá verða verkalýðsfélögin tiltölu- lega veik. Þá felst starfsemi þeirra í sterkum stofnunum, faglegum vinnubrögðum, þjóðarsáttarsamn- ingum, fjármálasýslu lífeyrissjóð- anna, persónulegri þjónustu við fé- lagsmenn, fagmennsku við gerð kjarasamninga, starfsþjálfun og endurmenntun. í stuttu máli sagt þá verða verkalýðsfélögin og ASÍ sam- bland af Þjóðhagsstofnun, Trygg- ingastofnun, fjármálastofnun og skóla þegar hugsjónir um framtíðina vantar. Að mínu mati er staða verka- lýðsfélaga á íslandi og ASÍ svona í dag,“ sagði hann. VR þjónustutæki við félags- menn fremur en baráttutæki Gunnar Páll Pálsson sagði hlut- verk stéttarfélaga hafa breyst vegna þeirra hröðu breytingar sem orðið hafa í þjóðfélaginu og í raun giltu sömu lögmál um verkalýðsfélög og um fyrirtæki. „Þeir sem ekki fylgja eftir breytingum líða undir lok. Það er í raun bara hagkvæmni og gæði þeirrar þjónustu sem við veitum sem skiptir máli. Við erum að verða þjón- ustufyrirtæki, og meira niður við grasrótina, fremur en baráttutæki fyrir þessar stóru hugsjónir sem við erum þegar búin að innbyrða og koma í framkvæmd að stórum hluta,“ sagði hann. Gunnar Páll sagði alveg ljóst að komin væri á samkeppni hjá verka- lýðsfélögunum um félagsmenn og einnig við fyrirtæki á markaðinum. ASI gagnrýnt fyrir þögn í kvótamálinu Alþýðusambandið var gagnrýnt fyrir afskiptaleysi af ýmsum þjóð- málum við umræður í málstofu um framtíð verkalýðshreyfíngar- innar á þingi ASÍ í gær. Frummælendur komu víða við og fjölluðu m.a. um skylduaðild að stéttarfélögum, breytt hlutverk þeirra og vaxandi samkeppni verkalýðsfélaga um félagsmenn og við fyrir- tæki á markaði. Ómar Friðriksson fylgdist með umræðunni. Sjóm.- og vélstjóraf. '"rindavik Morgunblaðið/Þorkell Nokkuð á sjötta hundrað þingfulltrúar eru samankomnir á 39. þingi ASÍ. Meginviðfangsefni þingsins er um- ræða og afgreiðsla tillagna um breytingar á skipulagi sambandsins. „Það er t.d. Ijóst að BSRB hefur breytt sínum lögum og geta aðilar á almenna vinnumarkaðinum átt aðild að BSRB. Þegar Skýrr var einka- vætt þá breytti BSRB lögunum og starfsmenn Skýrr, sem er hlutafé- lag, eru nú í félagi opinberra starfs- manna. Eins höfum við séð að Bandalag háskólamanna ætlar að herja á almenna markaðinn og ná í félagsmenn þar,“ sagði Gunnar Páil. Hann sagði einnig að dæmi væru um að starfsmenn væru að koma frá ríkinu yfir til VR. Þá væru stéttar- félögin líka í samkeppni við trygg- ingafélögin vegna iðgjalda til sjúkra- sjóða. Félagsmenn vildu í auknum mæli vita hvað þeir fengju fyrir það hlutfall launa sem þeir greiddu í sjúkrasjóði stéttarfélaga og hvort þeir ættu ekki kost á meiri réttind- um ef þeir gætu sjálfir ráðstafað þessu iðgjaldi og keypt sér tryggingu hjá tryggingafélagi. Samanburður á hækkun launavísitölu og samnings- bundnum hækkunum á þingi ASÍ Verulegar launahækkanir allra hópa umfram samninga LAUNAHÆKKANIR allra starfs- hópa landvinnufólks í Alþýðusam- bandi íslands eru verulega um- fram umsamdar launahækkanir á undanförnum tveimur árum vegna launaskriðs að því er fram kemur í þingskjali um efnahags- og verð- lagsmál sem dreift hefur verið á þingi Alþýðusambands íslands, sem nú stendur yfir í Kópavogi. Rannveig Sigurðardóttir, hagfræð- ingur ASÍ, kynnti skjalið á þinginu. I þingskjalinu er meðal annars borinn saman kaupmáttur umsam- inna launahækkana á undan- förnum árum annars vegar og kaupmáttur launavísitölu á al- menna markaðnum hins vegar. Fram kemur að kaupmátturinn vex hratt í báðum tilvikum fram til annars ársfjórðungs í fyrra, en lækkar síðan hratt það sem eftir er ársins. Umsamin launahækkun á Kaupmáttur 1997-2000 Kaupmáttur launavísitölu þ.e. bæði umsamdar launa- 1997 1998 1999 2000 fyrra helmingi þessa árs nær ekki að skila sama kaupmætti og árið á undan hjá þeim sem einungis njóta umsaminna launahækkana, en þcir scm njóta launaskriðs ná þó þvi að komast með tærnar þar sem þeir höfðu hælana í fyrra. Er síðan vísað til talna kjara- rannsóknarnefndar um launaþró- un frá öðrum ársfjórðungi ársins 1998 til jafnlengdar í ár, sem sýna að launahækkanir allra starfshópa eru verulega umfram umsamdar launahækkanir á timabilinu, sem voru 6,6-7,7%. Þannig er sam- kvæmt tölum kjararannsókna- nefndar hækkun launa almenns verkafólks að meðaltali á tímabil- inu 14,7%, véla- og vélgæslufólks 11,9%, sérhæfðs verkafólks 17,6%, iðnaðarmanna 10,7%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks 14,4% og skrifstofufólks 12%. Er jafnframt tekið fram að mismunandi gildist- aka samninga í ár skekki saman- burðinn milli starfsstétta og ein- stakra starfsgreina. „Við verðum að vera samkeppnis- fær í því annars mun fólk leita ann- að. Ráðgjafarfyrirtæki eru farin að bjóða fyrirtækjum út um allan bæ ráðgjöf varðandi starfsmatskerfi og ráðningarþjónustu. Hvað eru starfs- matskerfi annað en nútímaleg út- færsla á kjarasamningum? Þar höf- um við ekki fylgt eftir þróuninni og þar eru komin til fyrirtæki sem eru hreinlega í samkeppni við okkur um að skila betri árangri en við erum að gera. Við í VR lítum svo á að hlutverk okkar sé breytt og að við eigum að snúa okkur meira frá því að gera kjarasamninga á tveggja til fjögurra fresti yfir í það sem við köllum dag- lega kjarabaráttu. Við eigum að setja þjónustu við félaga okkar núm- er eitt og teljum að hlutverk okkar sé að aðstoða fólk við að semja um persónulegar uppbætur á laun,“ sagði Gunnar Páll. Skylduaðild heyrir til liðinni tíð Guðmundur Gunnarsson, formað- ur Rafiðnaðarsambandsins, sagði skylduaðild að verkalýðsfélögum heyra til liðinni tíð. Ef hún væri ein- hvers staðar við lýði myndu þeir múrar hrynja innan skamms. „Enda vinnur skylduaðild gegn okkur, ekki með. Alltof margir verkalýðsforingj- ar hafa komist upp með í skjóli skylduaðildar að gera lítið fyrir fé- lagsmenn sína,“ sagði hann. Guðmundur hélt því m.a. fram að félagsmenn stéttarfélaga í framtíð- inni myndu gera kröfur um að sjóðir sem þeir greiða í, skili góðum rétt- indum. Stéttarfélög kæmust ekki upp með að innheimta gjöld í sjúkra- sjóði, sem veiti lakari réttindi en aðr- ir sjóðir sem standi launafólki til boða. Guðmundur gagnrýndi einnig harðlega þá lagskiptingu milli starfsgreina sem viðhaldið hefði ver- ið innan ASÍ og sagði hana vinna gegn eðlilegri þróun í starfs- og sí- menntamálum. „Við erum æ meira að fara inn í þá veröld að ef fólk ætlar að viðhalda sínum starfsréttindum, þá getur það ekki gert það nema fara reglulega á námskeið eða bæta menntun sína með öðrum hætti. Rafiðnaðarmenn eru komnir í þá stöðu að ef þeir ætla að viðhalda sínum réttindum og halda stöðu sinni á vinnumarkaðin- um þá verða þeir að endurnýja sína menntun a.m.k. á fimm ára fresti, enda er um það bil helmingur allra rafiðnaðarmanna á a.m.k. vikunám- skeiði á hverju ári. Það voru 9 þús- und nemendur í þeim skólum sem við rafiðnaðarmenn eigum á síðasta ári, þ.e.a.s. þrisvar sinnum fleiri en eru í Rafiðnaðarsambandinu," sagði Guðmundur. Hafa dottið úr tengslum við framvindu þjóðmálanna Sigurður Bessason sagði að verkalýðshreyfingin hefði að nokkru leyti dottið úr tengslum við fram- vindu þjóðmálanna. „Dæmi um um- ræðu sem við höfum látið nánast al- veg fara fram hjá okkur er hin stóra bankasameining á síðustu dögum og samruni fyrirtælga á matvörumark- aði. I báðum tilvikum er um að ræða umbreytingu á samfélaginu, sem skipta félagsmenn okkar miklu máli- Höfum við verið hluti af umræðunni? Höfum við haft skoðun á málinu? Svarið er því miður nei. Engu að síð- ur kann niðurstaðan að verða sú í báðum þessum dæmum að að aukin fákeppni gæti haft í för með sér versnandi kjör fyrir okkar fólk,“ sagði Sigurður. Hann lagði áherslu á að forsenda þess að verkalýðshreyfingin hefði ítök í samfélagi komandi aldrar væri aukin fræðsla og menntun launa- fólks. Sagði hann að um 40 þúsund launamenn í dag hefðu grunnskóla- próf eða þaðan af minni menntun. Sigurður sagði verkalýðshreyfing- una þurfa að auka ítök sín víðar í samfélaginu en verið hefur, innan stjórnmálaflokka, ríkisvalds, sveit- arfélaga, fyrirtækja og stofnana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.