Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Poppað í Ólafs- víkur- kirkju Ólafsvík - Söngur og gleði ríktu í Ólafsvíkurkirkju þegar haldin var svokölluð poppmessa sl. sunnudagskvöld. Hátt á þriðja hundrað manns mættu til messu sem lætur nærri að vera um þriðjungur sóknarbarna í Ólafs- vik. Hefðbundnum messuliðum var haldið og þeir klæddir nýju formi. Söngur var einnig með léttara sniði en var sem fyrr í höndum Kirkjukórs Ólafsvíkur. Nokkrir úr röðum kórsins stigu fram og sungu cinsöng. Kirkju- bandið annaðist undirleik við at- höfnina og tóku kirkjugestir virk- an þátt í messunni. Væntanleg fermingarbörn lásu ritningarlest- ur og léku guðspjall sunnudagsins fyrir viðstadda. Sóknarpresturinn séra Óskar Hafsteinn Óskarsson prédikaði og þjónaði fyrir altari. Að messu lokinni var kirkjugest- um boðið að þiggja kaffi, djús og popp í safnaðarheimilinu. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Lista- verk náttúr- unnar Fagradal - Listaverk náttúrunnar eru viða. Þegar fréttaritari Morgunblaðsins var á ferð um Mýrdalinn um síðustu helgi sá hann fallegar ísmyndir þar sem vatn hafði fokið á sinustrá og frosið á þeim í miklu roki og frosti sem var á sunnu- dagsmorgun. Um há- degi var sólin farin að skína á klakastráin og glampaði þá mjög fal- lega á þau eins og sést á myndinni. Andstæðingar brúarstæðis afhenda bæjarstjórn Austur-Héraðs áskorun Deilur magnast um nýtt brúarstæði á Eyvindará Egilsstöðum - Deilur um nýtt brúarstæði yfir Eyvindará hafa nú staðið um 25 ára skeið, en ákvörðun um staðsetningu liggur fyrir og mun eiga að gefa út byggingarleyfi vegna nýrrar brúar í vikunni. A hádegi á mánudag var bæjar- stjóra Austur-Héraðs afhent eftir- farandi áskorun 125 einstaklinga vegna Seyðisfjarðarvegar og nýs aðalskipulags: „Við undirritaðir íbúar Austur-Héraðs krefjumst þess að framkvæmdaleyfi vegna byggingar nýrrar brúar á Seyðis- fjarðarvegi yfir Eyvindará verði ekki veitt fyrr en íbúar sveitarfé- lagsins hafa fengið tækifæri til að gera athugasemdir við nýtt aðal- skipulag fyrir Egilsstaði sem er í vinnslu hjá bæjarfélaginu. í ljósi breyttra lífsgilda, þróun- ar íbúðarbyggðar, aukinnar um- ferðar og þungaflutninga og ekki síst vegna yfirlýstrar umhverfis- stefnu Austur-Héraðs, teljum við brýnt að núverandi Seyðisfjarðar- vegur verði ekki stofnbraut í íbúðabyggð. Ekki verður heldur séð að skipulag íbúðasvæðanna meðfram Seyðisfjarðarvegi geri ráð fyrir að hann sé stofnbraut, m.a. vegna nálægðar íbúðarhúsa við veginn. Bæjaryfirvöld hafa ekki skýrt með viðhlítandi hætti hvernig um- hverfisþættir sem lúta að hljóð- mengun, umferðarhraða og að- komuleiðum bæjarbúa að einhverju áhugaverðasta útivist- arsvæði landsins í þéttbýli, Sel- skógi, verða leystir, svo ekki sé talað um hin sjónrænu áhrif sem svo mikil brú, sem þarna er fyrir- huguð, mun hafa á Eyvindarárg- il.“ Telja skipulagi ábótavant Að sögn Þorbjörns Rúnarsson- ar, talsmanns hópsins sem afhenti áskorunina, er samþykktu skipu- lagi verulega ábótavant, þar sem bæði nýbyggingar og hljóðmön við Seyðisfjarðarveg eru ekki nægjanlega fjarri stofnbraut, eða ekki nema 17 metra. Byggingar- eglugerð kveður á um að lágmark 30 metrar skuli vera frá miðlínu stofnbrautar að mannvirkjum. Sama muni verða uppi á tening- num við byggingu nýs hverfis við Þverkletta, þ.e. að gatan Litlu- skógar muni ekki standast fyrr- greinda reglu. Vegagerð ríkisins hefur gert skriflega athugasemd við hljóðmönina. Hitt brúarstæðið sem talið hef- ur verið koma til greina, er við svokallað Melshorn, og myndi þá umferð vera beint framhjá þétt- býliskjamanum á Egilsstöðum, en samkvæmt samþykktri tillögu fer umferðin eftir Seyðisfjarðarvegi og um Fagradalsbraut gegnum miðbæ Egilsstaða, svo sem nú er. Morgunblaðið/Eldsmiðurinn í vikunni voru heimafólki kynntar teikningar að þessu 2400 fermetra húsi sem mun hýsa, auk framhaldsskólans, bókasafn Hornfirðinga og framhaldsskólans ásamt Nýheijabúðum. Nýr framhalds- skóli á Hornafírði Höfn - Loksins sjá Hornfirðingar fyrir endann á langþráðum draumi um að nýr framhaldsskóli rísi á Höfn. Hann verður í nýju húsi Nýheima í miðbæ Hafnar. I vikunni voru heimafólki kynnt- ar teikningar að þessu 2400 fer- metra húsi sem mun hýsa, auk framhaldsskólans, bókasafn Horn- firðinga og framhaldsskólans ásamt Nýherjabúðum. Framhaldsskólinn verður í um 1200 fermetra hús- næði, aðallega á efri hæð hússins. Gert er ráð fyrir að um 120 nem- endur geti stundað nám við skól- ann og verður öll aðstaða nemenda og starfsfólks eins og best sverður á kosið. Á neðri hæðinn verður bókasafn og upplýsingamiðstöð á um 400 fer- metra svæði og Nýherjabúðir í um 400 fermetrum, þar verður meðal annars til húsa Austurlandssetur Háskóla íslands. í húsinu verður salur sem tekur um 100 manns í sæti og verður hann nýttur fyrir skólann en einnig er hann mjög hentugur fyrir ýmiss konar ráðstefnur og fundi. Kaffistofa verður á neðri hæðinni og opið svæði sem gert er ráð fyrir að hægt verði að nota fyrir ýmiss konar sýningar og uppákomur. Nýheimar vekja athygli Nýheimar hafa vakið mikla at- hygli meðal ráðamanna landsins og varð þessi hugmynd Hornfirðinga til þess að ríkið féllst á að hefja byggingu nýs framhaldsskóla en sú umræða hefur staðið yfir í allmörg ár. Hugmyndin að Nýheimum er allnýstárleg en hefur verið í þróun síðastliðin tvö ár. Þai- er komið saman undir sama þaki unga fólk- inu sem er að mennta sig, aðstöðu fyrir fólk til að koma af stað ýms- um nýsköpunarfyrirtækjum, öflugu bókasafni og upplýsingamiðstöð. Arkitektar að húsinu er arkitekt- astofan Gláma-Kím og einnig kem- ur Hönnun að ýmsum þáttum. Björn Bjarnason menntamálaráð- herra tók skóflustungu að húsinu síðastliðið vor og gert er ráð fyrir að fyrstu útboð fari fram í byrjun næsta árs. Byrjað verði að byggja vorið 2001 og húsið verði fullbúið í ágúst 2002.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.