Morgunblaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 21
VIÐSKIPTI
BROSTU, ÞAÐ ERU AÐ KOMA JÓL
JAKKI 6600 kr.
PEYSA 3300 kr.
SKÓR 3900 kr.
SASHA
KRINGLUNNI
SÍMI: 568 1440
SKÓR 4500 kr.
Samherja sem félagið keypti á
markaði.
Heildarveiðiheimildir hins sam-
einaða félags innan íslenski-ar lög-
sögu nema 28.630 þorskígildistonn-
um og íslenskar veiðiheimildir utan
lögsögu nema tæpum 5.200 þorsk-
ígildistonnum. I fréttatilkynningu
kemur fram að í öllum tilfellum eru
veiðiheimildirnar langt undir til-
skildu hámarki, eða svonefndu
„kvótaþaki".
Stærsti einstaki hluthafinn í Sam-
herja er KEA með 18,07% hlut; þá
Kristján Vilhelmsson með 16,72%;
Þorsteinn Már Baldvinsson með
16,34%; Kaupþing hf. með 11,53%;
Fjárfestingafélagið Skel ehf. með
5,41%; Fjárfestingafélagið Fjörður
ehf. með 4,91%; Fjárfestingafélagið
Gaumur ehf. með 2,84%; F-15 sf.
með 2,56%; Lífeyrissjóðurinn
Framsýn með 1,56%; Sundagarðar
ehf. með 1,50%; Lífeyrissjóður
verslunarmanna með 1,34% og
Tryggingamiðstöðin hf. með 1,21%.
Alls eiga þessir 12 stærstu hluthaf-
ar 83,99% í félaginu.
Á hluthafafundinum var kosin ný
stjóm fyrir Samherja. Aðalmenn í
stjórn félagsins eru Finnbogi Jóns-
son, Hjörleifur Jakobsson, Jóhann-
es Geir Sigurgeirsson, Óskar Magn;
ússon og Þorsteinn M. Jónsson. I
varastjórn eru þeir Eiríkur S. Jó-
hannsson og Kristján Jóhannsson.
Ný stjórn kosin á hluthafafundi Samherja
Hlutafé aukið um
285 milljónir króna
Morgunblaðið/Garðar Páll
Stærstu hluthafar Samherja hf. eru KEA með 18,07% hlut, Krislján Vil-
helmsson með 16,72%, Þorsteinn Már Baldvinsson með 16,34% og Kaupþing
hf. með 11,53%. Aðrir eiga um 5% eða minna.
HLUTHAFAFUNDUR Samherja
hf., sem haldinn var í gær, sam-
þykkti að auka hlutafé félagsins um
285.315.012 krónur, eða úr
1.374.684.988 krónum í 1.660 millj-
ónir króna. Jafnframt samþykkti
fundurinn að núverandi hluthafar
féllu frá forkaupsrétti á hinu nýja
hlutafé og verður það notað til að
kaupa hlut KEA í BGB-Snæfelli hf.
en stefnt er að sameiningu þessara
tveggja félaga undir nafni Samherja
og að sameiningin taki gildi eigi síð-
ar en um næstu áramót.
Skiptahlutfall í hinu sameinaða
félagi er þannig að núverandi hlut-
hafar BGB-Snæfells eignast 26% í
því og núverandi hluthafar Sam-
herja hf. 74%. Samherji mun bjóða
öðrum hluthöfum BGB-Snæfells
sömu kjör og KEA við skipti á
hlutabréfum í BGB-Snæfelli og
Samherja en félagið mun mæta
þeim kaupum með því að kaupa
hlutabréf í Samherja á markaði.
Sömu sögu er að segja af kaupum
Samherja á hlut KEA í Fiskeldi
Eyjafjarðar. Sá hlutur hefur þegar
verið greiddur með hlutabréfum í
Níu mánaða
milliuppgjör
Opinna kerfa hf.
Hagnað-
ur vex
um 86%
ÁRSHLUTAREIKNINGUR
Opinna kerfa hf. fyrir fyrstu
níu mánuði ársins liggur nú
fyrir og hefur verið kannaður
af löggiltum endurskoðendum
félagsins, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá fé-
laginu.
Hagnaður félagsins vex um
86% frá fyrra ári, var 100
milljónir króna á fyrstu níu
mánuðum síðasta árs en er nú
186 milljónir. Hagnaður fyrir
tekjuskatt rúmlega tvöfaldað-
ist' og fór úr 204 milljónum
króna í 410 milljónir.
Heildarvelta samstæðunn-
ar jókst um 46% miðað við
sama tímabil í fyrra og er nú
3.770 milljónir króna. Aukn-
ingin skýrist samkvæmt
frétt félagsins af góðum
vexti í rekstri móðurfélags-
ins (43%) og vexti hjá dóttur-
félögunum Skýrr og Tölvu-
dreifingu sem varð hluti af
samstæðu Opinna kerfa 1.
apríl 1999.
Veltufé frá rekstri var á
tímabilinu 270 milljónir króna
en var árið áður 208 milljónir
króna og hefur því aukist um
30% milli tímabila.
Hagnaður af hefðbundinni
starfsemi móðurfélagsins án
skatta eða fjármagnsliða er
nú 161 milljón króna sem er
um 60% aukning frá sama
tíma í fyrra. Velta móðurfé-
lagsins jókst um 43%, og er
nú 2.158 milljónir króna.
Kaupa eigin bréf vegna
valréttarsamninga
Auknum umsvifum móður-
félagsins hefur meðal annars
verið mætt með fjölgun
starfa, en laun og launatengd
gjöld hafa hækkað um 34%
milli tímabila. Opin kerfi
hyggjast kaupa eigin bréf til
nota í tengslum við valréttar-
samninga eða aðra umbun
starfsmanna.
Birgðastýring hefur verið
virk og magn sölubirgða vax-
ið hægar en velta.
Áhrif dóttur- og hlutdeild-
arfélaga voru jákvæð um 29
milljónir króna fyrstu níu
mánuði ársins en voru nei-
kvæð um 19 milljónir kr. á
sama tímabili 1999. Opin kerfi
hf. eru með beina eignaraðild
að um 17 félögum þar sem
bókfært verð þeirrar eignar
er 1.000 milljónir, en áætlað
markaðsverðmæti um 4.000
milljónir króna, að sögn fé-
lagsins.
Ekki talin ástæða til að
breyta áætlun um hagnað
í 9 mánaða uppgjörinu er
enn fylgt hinni nýju fram-
setningu rekstrarreiknings í
samræmi við nýjar reglur
Reikningsskilaráðs. Vegna
þessa er söluhagnaður
rekstrarfjármuna nú færður
með rekstrartekjum og sölu-
hagnaður af eignarhlutum í
öðrum fyrirtækjum færður
með fjármunatekjum. Þá eru
áhrif dóttur- og hlutdeildar-
félaga (eftir skatta) færð
næst á eftir hreinum
fjármunatekjum.
Forráðamenn félagsins
telja ekki ástæðu nú að
breyta fyrri áætlun um að
hagnaður félagsins fyrir árið
2000 í heild verði yfir 280
milljónir króna.