Morgunblaðið - 15.11.2000, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Atburðir hinnar eftirminnilegu kosninganætur í Bandaríkíunum farnir að skýrast
Mikill fögnuður braust út meðal stuðningsmanna Bush er sjðnvarpsstöðvar skýrðu frá því,
að hann yrði næsti forseti Bandarfkjanna. Varði sú gleði í rúman hálftíma.
\ Eftir kosningakvöld og nútt, sem einkenndist af miklum vonbrigðum, fengu stuðningsmenn
Gores loks tækifæri til að brosa. Það var þegar tilkynnt var, að allt væri í úvissu í Flúrída.
„Ertu að segja
það sem mér
heyrist þú vera
að segja?“
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa síðustu daga verið að
birta nánari fráttir af því sem gerðist hina æsispenn-
andi kosninganótt fyrir rúmri viku. Hvernig frambjóð-
endurnir brugðust við „niðurstöðunuma og hvað þeim
fór á milli áður en formlega var tilkynnt, að úrslitin í
Flórída myndu dragast á langinn.
FORSETA- og þingkosningarnar í Banda-
ríkjunum eru þegar komnar á spjöld sögunn-
ar sem einhverjar þær eftirminnilegustu frá
upphafi. Kosningakvöldið og -nóttin ein-
kenndust ýmist af ofsagleði eða örvæntingu,
annar frambjóðandinn fagnaði sem forseti
um stund og hinn viðurkenndi ósigur og dró
síðan allt til baka. Þegar nýr dagur reis vissi
enginn hvað við tæki og á stóru sjónvarps-
stöðvunum voru menn heldur skömmustu-
legir. Þeir höfðu flakkað með Flórída á milli
frambjóðenda og báru það nú fyrir sig, að
það hefðu þeir gert í góðri trú, upplýsingar
hefðu bara reynst rangar.
Bush-fjölskyldan, George W. Bush, for-
setaframbjóðandi og ríkisstjóri í Texas; for-
eldrar hans, George og Barbara; bræður
hans, Jeb, ríkisstjóri í Flórída, og Marvin, og
systir hans Dorothy, beið eftir kosninga-
úrslitunum í ríkisstjórabústaðnum í Texas.
Úrslit úr fyrstu ríkjunum komu ekkert á
óvart en beðið var eftir Flórída með mikilli
eftirvæntingu. Úrslitin þar gátu skorið úr
um það hver yrði næsti forseti Bandaríkj-
anna.
Jeb Bush fór
að gráta
Þegar tilkynningin kom um að*Al Gore
hefði unnið Flórída var það eins og yfirlýsing
um, að þessu væri lokið. Jeb, ríkisstjóri í
Flórída, stóð upp og gekk grátandi út. Bush-
fólkinu fannst sem það heyrði í fjarska fagn-
aðarlætin í stuðningsmönnum Gores.
í nokkra stund sat fjölskyldan og horfði í
gaupnir sér en þá kom ný tilkynning um að
allt væri í óvissu með Flórída. „Jebby, þú
getur komið inn aftur,“ kallaði Marvin bróðir
hans og síðan kom að því, að lýst var yfir, að
Bush hefði sigrað.
Bush skipti á milli sjónvarpsstöðva til að
vera viss um, að þær væru allar með sömu
fréttina, og að því búnu rak hann upp fagn-
aðaróp. Það átti fyrir honum að liggja að
verða 43. forseti Bandaríkjanna og hann
faðmaði að sér föður sinn, 41. forsetann.
Loksins höfðu þeir náð sér niðri á Clinton og
Gore, sem höfðu niðurlægt fjölskylduföður-
inn í kosningunum fyrir átta árum.
Bush hringdi nú í höfuðstöðvar Repúblik-
anaflokksins og sá, sem svaraði, kallaði til
Karls Rove, kosningastjóra Bush: „Það er
ríkisstjórinn." „Nei,“ heyrðist þá einhver
segja, „það er væntanlegur forseti."
Gore, fjölskylda hans og nánustu sam-
starfsmenn voru á hóteli í Nashville og þar
voru engin fagnaðarhróp þegar hér var kom-
ið. Gore sýndi þó lítil svipbrigði en sneri sér
að fólkinu og sagði: „Ég þakka ykkur öllum.
Þetta hefur verið hörð barátta.“ Að því búnu
yfirgáfu þau hótelið, Gore ætlaði að þakka
stuðningsmönnum sínum, sem biðu hans við
stríðsminnismerkið í borginni. A leiðinni
hringdi hann í Bush, viðurkenndi ósigur sinn
og eftir vinsamleg orðaskipti þeirra í millum
sagði Bush: „Þú ert merkismaður."
Bílalestin með Gore, fjölskyldu hans og
Bill Daley, kosningastjóra hans, hélt áfram
og minnti nú einna mest á pólitíska útför
varaforsetans. Daley fylgdist hins vegar
áfram með framvindunni í Flórída og nú
fékk hann nýjar fréttir. Forskot Bush,
50.000 atkvæði, var komið niður í 2.000.
Hann sá, að ekki var öll nótt úti enn, og
hringdi í ofboði í bíl Gores. „Hvað sem þú
gerir,“ hrópaði hann í símann, „máttu alls
ekki fara upp á sviðið."
„Vertu ekki
svona hvefsinn“
Gore hringdi nú aftur í Bush og sagðist
taka það aftur, sem hann hefði sagt er hann
viðurkenndi ósigur.
„Kringumstæðurnar hafa gjörbreyst,"
sagði hann. „Það er allt í óvissu með Flór-
ída.“
„Ertu að segja það sem mér heyrist þú
vera að segja?" sagði Bush vantrúaður.
„Ertu að segja, að þú afturkallir yfirlýsing-
una um ósigur?"
„Vertu ekki svona hvefsinn. Leyfðu mér
að útskýra,“ sagði Gore og bætti við, að þeg-
ar enginn vafi léki á um sigur Bush myndi
hann lýsa yfir „fullum stuðningi" við hann.
Bush vissi ekki hvaðan á sig veðrið stóð. I
meira en hálftíma höfðu léttirinn og fögnuð-
urinn ráðið ríkjum en nú var martröðin byrj-
uð upp á nýtt. Þetta var nýtt áfall fyrir fjöl-
skylduna en móðir hans, sem hafði verið eins
og hengd upp á þráð allt kvöldið, virtist vera
búin að fá sig fullsadda á allri geðshræring-
unni. „Ég var forsetamóðir í hálftíma og
naut þess fram í fingurgóma,“ sagði hún.
Reiknilikönin röng hjá
Voter News Service
Það skiptust víðar á skin og skúrir en í
herbúðum stóru flokkanna tveggja. Þessar
kosningar munu seint líða starfsmönnum
stóru sjónvarpsstöðvanna úr minni en hugs-
anlegt er, að ónákvæmur og rangur frétta-
flutningur þeirra eigi mesta sök á þeirri
stöðu, sem nú er uppi.
NBC-stöðin hefur á að skipa margreyndu
og færu fólki og framan af gekk líka allt eins
og í sögu. Ýmsir frammámenn stöðvarinnar
höfðu efnt til veislu í einu myndverinu og
Jaek Welch, forstjóri General Electric, móð-
urfélags NBC, ákvað, að gaman væri að líta
inn í „vélarrúmið" þar sem verið var að út-
búa kosningatölur fyrir útsendingu. Þegar
hópurinn kom þangað var þar allt á öðrum
endanum og áhyggjusvipur á hverju andliti.
Allnokkru áður hafði NBC lýst yfir, að
Gore hefði unnið í Flórída, en nú var það
ekki lengur víst. Tilkynnt var, að allt væri
opið í ríkinu. Nokkrum klukkustundum síðar
tilkynnti stöðin, að Bush yrði næsti forseti
Bandaríkjanna en síðan kom á daginn, að
það var ekki heldur víst.
Þetta var ein samfelld martröð og ekki
bara fyrir NBC, heldur fyrir flestar frétta-
stöðvarnar. Hún átti upptök sín hjá Voter
News Service, fyrirtæki, sem stóru stöðv-
arnar eiga saman, og segir fyrir um kosn-
ingaúrslit í hverju ríki. Forsvarsmenn stöðv-
anna segja, að allt verði gert til að þetta
endurtaki sig ekki, en líklegt þykir, að
reiknilíkönin hafi verið röng. Þau byggðust á
afstöðu kjósenda í fyrri kosningum en tóku
ekkert tillit til búsetubreytinga á síðustu ár-
um. Auk þess geta líkönin aðeins tekið tillit
til sveiflna, sem ná til þúsunda kjósenda en
ekki hundraða.
Heimildir: The Daily Telegraph,
Newsweek, Herald Tribune.
Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnir um aðgerðir til að sporna við kúariðu
Notkun fóðurs úr
dýraafurðum bönnuð
FRAKKAR hafa stöðvað notkun
fóðurs úr dýraafurðum fyrir allan
búfénað auk þess að banna t-beins
steikur. Forsætisráðherra Frakk-
lands, Lionel Jospin, tilkynnti þess-
ar aðgerðir í gær og eru þær liður í
viðbrögðum Frakka til að sporna
gegn hugsanlegri útbreiðslu kúa-
riðu. I máli Jospin kom fram að hið
„tímabundna og almenna" bann á
fóðurnotkuninni taki gildi í dag.
Akvörðun um algert bann verður
tekin um leið og yfirvöld hafa metið
hver hættan er við fóður úr dýraaf-
urðum. Það mat gæti tekið þrjá til
fjóra mánuði.
T-beins steikur eru bannaðar
vegna þess hve þær eru skornar ná-
lægt hrygg skepnunnar. Jospin
sagði einnig frá ýmsum öðrum ráð-
stöfunum sem gerðar verða til að
draga úr hættunni á heilarýrnunar-
sjúkdómnum sem talið er að tengist
kúariðu.
Jospin, sem var upphaflega and-
snúinn banninu, hefur verið undir
auknum þrýstingi síðan Jacques
Chirac Frakklandsforseti kallaði
eftir banninu í síðustu viku.
Frakkar bönnuðu notkun fóðurs
úr dýraafurðum fyrir kýr árið 1990.
Það bann var víkkað út til annarra
jórturdýra sex árum síðar. Með að-
' ....
Italskur slátrari sýmr viðskipta-
vini nautalqöt. Þútt kúariða hafi
ekki fundist á Italíu er mikill útti
við hana þar.
gerðum sínum er franska ríkis-
stjórnin að reyna að koma í veg fyr-
ir að fóður fyrir kjúklinga, svín og
fiska blandist saman við kúafóður.
Óttinn við kúariðu hefur blossað
upp í Frakklandi undanfarið vegna
fjölda tilfella sem hafa greinst víða
um landið. Fjölmörg mötuneyti í
skólum hafa hætt að bera naut-
gripakjöt á borð.
Jospin tilkynnti einnig um ýmsar
aðgerðir sem fylgja í kjölfar banns-
ins svo sem eins og aukinn innflutn-
ing sojakjöts til að bæta upp þá
próteinríku fæðu sem nú hefur verið
bönnuð. Forsætisráðherrann sagði
einnig frá því að fjárveiting til rann-
sókna á kúriðu verður þrefölduð á
næsta ári.